FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir
You are here: Home / Guðbrandur Þorkell Guðbra

Guðbrandur Þorkell Guðbra

Profile picture of Guðbrandur Þorkell Guðbra
Not recently active
  • Prófíll
  • Groups 0
  • Forums
  • Topics Started
  • Replies Created
  • Favorites

Forum Replies Created

Viewing 20 replies - 201 through 220 (of 1,412 total)
← 1 … 10 11 12 … 71 →
  • Author
    Replies
  • 17.01.2009 at 17:22 #638166
    Profile photo of Guðbrandur Þorkell Guðbra
    Guðbrandur Þorkell Guðbra
    Member
    • Umræður: 78
    • Svör: 2584

    Það er auðvitað margt um þetta að segja. Í fyrsta lagi er það sú afstaða, að þeir sem flokkast sem "jeppamenn" séu með einhverju móti ekki hluti af því fyrirbrigði, sem embættismenn kalla "almenning". Skv. hugsanagangi embættismannavaldsins er almenningur eitthvert lið, sem þeir eiga að stjórna og ráðskast með. Sýna vald sitt. Engum þeirra dettur í hug að þeir séu raunar þjónar þessa almennings. Alls ekki. Svo er annað atriði. Af hverju á t.d. Ásahreppur í Rangárvallasýslu að hafa skipulagsvald milli Jökulheima og Vonarskarðs? Með tilliti til laga um þjóðlendur, þá skyldi maður ætla að allur sá málarekstur, sem þeim lögum hefur fylgt, eigi að verða til þess að skilgreina þessar þjóðlendur sem þjóðareign og þar með jafn fráleitt að Miðhálendið sé undir skipulagsvaldi fjölmargra, smárra sveitarfélaga, sem hafa enga möguleika á að framfylgja þessum málum, hvorki fjárhagslega né tæknilega. Eðlilegast væri að þetta skipulagsvald væri á könnu eins aðila, þ.e. Alþingis. Ekki að maður treysti því betur heldur hinu, að það væri þá á sviði eins aðila, þar sem öll þjóðin hefði að orði kveðnu a.m.k. sömu möguleika á kjósa þá fulltrúa sem um málin véla.





    17.01.2009 at 10:57 #638160
    Profile photo of Guðbrandur Þorkell Guðbra
    Guðbrandur Þorkell Guðbra
    Member
    • Umræður: 78
    • Svör: 2584

    Páli Halldóri. Ofsinn okkar er eiginlega miklu meira virði fyrir félagsskapinn en bæði Jón og séra Jón til samans í öðru veldi. En við ættum að athuga þá hugmynd vandlega, að fá lögfræðilega aðstoð. Ekki væri það lakara, ef sá hinn sami væri í félaginu og þar með nógu kunnugur, til að þurfa ekki að eyða miklum tíma í að setja sig inn í málin. Maður talar nú ekki um ef við værum að tala t.d. um Björn Þorra, sem er meira að segja búinn að vera formaður. Soffíu þekki ég ekki, en gef mér að hún væri ekki síðri fyrst búið er að nefna hana. En við verðum að gera okkur ljóst, að þau gætu ekki gert þetta nema að fá greiðslu fyrir, og hér er um sjálfa tilvist klúbbsins að ræða, þannig að mér finnst í sjálfu sér að slíkt ætti að vera forgangsmál, fram yfir mörg önnur.





    17.01.2009 at 10:49 #638264
    Profile photo of Guðbrandur Þorkell Guðbra
    Guðbrandur Þorkell Guðbra
    Member
    • Umræður: 78
    • Svör: 2584

    Já, út af fyrir sig voru þetta góðar fréttir. Gallinn er bara sá, að dreifistöðvunum hefur fækkað mikið og viðskiptaöryggið minnkað að sama skapi. Mér er sagt að ástæðurnar séu þær, að það sé ekki hægt að fá lengur suma mikilvæga varahluti í þær, því þetta kerfi sé hvergi í starfrækslu nema á Íslandi. Það á víst við um símtækin líka, ég á t.d. eitt bíltæki, sem er ekki í lagi og mér hefur verið sagt að gleyma því að fá gert við það. Gamli Mobira-síminn í bátnum mínum er samt enn í lagi. Frændur Everts Jenssonar, þeir Jón K. Snorrason og Evert Snorrason hafa talið allan vafa á að borgi sig að treysta á NMT-síma vegna þessa. Þeir hafa allavega vit á þessu. En mig langar að biðja Evert Jensson að skila kveðju frá mér til pabba síns. Við sátum saman í gaggó í den hér á Krók höfum alla tíð verið góðir kunningjar.





    16.01.2009 at 21:29 #637422
    Profile photo of Guðbrandur Þorkell Guðbra
    Guðbrandur Þorkell Guðbra
    Member
    • Umræður: 78
    • Svör: 2584

    Bráðgóðar þessar hreyfi – skýringarmyndir fyrir hnýtingar. Þarna var hestahnúturinn gamli og svo tvöfalda pelastikkið, sem við notuðum stundum þegar við vorum að binda okkur saman á línu í den tid án þess að hafa þennan alvöru fjallgöngubúnað, sem flestir alvöru menn hafa tiltækan ef þeir ferðast t.d. um jökla. Besta mál.





    16.01.2009 at 17:45 #638142
    Profile photo of Guðbrandur Þorkell Guðbra
    Guðbrandur Þorkell Guðbra
    Member
    • Umræður: 78
    • Svör: 2584

    Amen





    16.01.2009 at 17:40 #638082
    Profile photo of Guðbrandur Þorkell Guðbra
    Guðbrandur Þorkell Guðbra
    Member
    • Umræður: 78
    • Svör: 2584

    Ég ætla að byrja á að óska eiganda þessa glæsilega bíls til hamingju með hann. Auðvitað vildi maður gjarnan eiga svona, en maður hefur bara ekki efni á því. Það er hinsvegar déskoti barnalegt að láta öfundina hlaupa með sig í gönur þrátt fyrir það. Bíll af þessari gerð er ekkert hættulegri en venjulegur flutningabíll, síður en svo. Spurningin er með þessa bíla eins og alla aðra, að allt veltur þetta á hvort ökumaðurinn er starfi sínu vaxinn. Við í okkar félagi eigum frekar að leggja áherslu á að fræða hvert annað til að gera okkur að betri ökumönnum, fremur en að vera með nagg út í eigendur bíla, sem okkur langar til að eiga en getum ekki.
    kv.





    15.01.2009 at 20:35 #635482
    Profile photo of Guðbrandur Þorkell Guðbra
    Guðbrandur Þorkell Guðbra
    Member
    • Umræður: 78
    • Svör: 2584

    Líklega fer maður að setja upp gömlu Gufunesstöðina fyrst menn eru farnir að hafa númerin skráð. Mitt var og er væntanlega enn bara 175 – eins og þú sjálfsagt manst. Grímur var svo með 575 ! Symmetri í því hjá okkur. Ég á mína stöð í góðu lagi og góðri geymslu hér niður í bílgeymslunni í kjallaranum, þú manst líklega hvernig þetta er hérna hjá okkur gamla settinu. Ætlarðu svo ekki að fara að kíkja í heimsókn? Það er yfirleitt til eitthvað af kökum hjá frúnni og oft lumar maður á skoskum rúgmjölssafa ef út í það er farið.
    kv. ólsarinn.





    14.01.2009 at 21:46 #635478
    Profile photo of Guðbrandur Þorkell Guðbra
    Guðbrandur Þorkell Guðbra
    Member
    • Umræður: 78
    • Svör: 2584

    Er litli bró alveg getting even with big brother?
    En við erum náttúrulega alveg sprengmontnir af strákunum hérna sófariddarar uppi á gamla skerinu!





    14.01.2009 at 21:43 #637264
    Profile photo of Guðbrandur Þorkell Guðbra
    Guðbrandur Þorkell Guðbra
    Member
    • Umræður: 78
    • Svör: 2584

    Það þarf nú að hafa í huga, að eftir því sem fróðir menn segja, þá minnkar brotþol álsins með auknum kulda. Annars er mjög algengt að nota svona stangir milli vörubíla þegar þarf að draga, en sá sem dreginn er er vélarvana. Þá fara nefnilega bremsurnar líka og stýrið verður ansi erfitt viðfangs. Þá er öruggara að hafa þá fasttengda saman.





    14.01.2009 at 08:55 #637286
    Profile photo of Guðbrandur Þorkell Guðbra
    Guðbrandur Þorkell Guðbra
    Member
    • Umræður: 78
    • Svör: 2584

    Er nokkur glóra að vera að eyða peningum í að breyta Pajero? Er ekki betra að nota peningana til að kaupa sér bíl?





    12.01.2009 at 10:09 #547066
    Profile photo of Guðbrandur Þorkell Guðbra
    Guðbrandur Þorkell Guðbra
    Member
    • Umræður: 78
    • Svör: 2584

    Datt í hug í sambandi við þessa mynd Rúnars, að það væri gaman ef hann og fleiri, sem hafa lent í einhverjum ámóta aðstæðum, myndu segja okkur frá því hvernig bílunum varð náð upp og þá ekki síður, hvaða lærdóm þeir hafi dregið af þessu. Hvað hafi verið gert rétt og hvað vitlaust. Þótt festur séu að sjálfsögðu ákaflega mismunandi, þá má alltaf læra eitthvað af þeim. Í sambandi við krapafestur, þá getur t.d. verið gagnlegt ef hægt er að veita vatni frá festustaðnum, þótt það þurfi að fara nokkuð langt til þess að mynda afrennsli. Hvernig standa menn að því að brjóta ísinn frá bíl, sem náð hefur að frjósa að eins og í mynd Rúnars, hvað þarf maður að gera til að skemmdir verði sem minnstar. Svona mætti lengi halda áfram, en hvernig líst mönnum á að myndaður verði upplýsingabanki hjá klúbbnum í tengslum við þennan þráð?





    11.01.2009 at 20:29 #635680
    Profile photo of Guðbrandur Þorkell Guðbra
    Guðbrandur Þorkell Guðbra
    Member
    • Umræður: 78
    • Svör: 2584

    https://old.f4x4.is/new/forum/default.as … 482#104439





    11.01.2009 at 17:05 #613150
    Profile photo of Guðbrandur Þorkell Guðbra
    Guðbrandur Þorkell Guðbra
    Member
    • Umræður: 78
    • Svör: 2584

    Það hoppar í manni hjartað við að sjá þetta. Til hamingju með þetta allt saman!





    09.01.2009 at 15:08 #636876
    Profile photo of Guðbrandur Þorkell Guðbra
    Guðbrandur Þorkell Guðbra
    Member
    • Umræður: 78
    • Svör: 2584

    Eftir því sem ég best veit, þá eru stöðvarnar í sjálfu sér í fullu gildi til samskipta sín í milli. Hinsvegar lauk þjónustu við þær af hálfu Reykjavík Radíó fyrir nokkrum árum. Þeir þekkja tæknihliðina á þessu mjög vel félagar okkar, t.d. Einar Kjartansson, jarðfræðingur og Snorri Ingimarsson, verkfræðingur, sem báðir eru með reyndustu radioamatörum hérlendis.





    07.01.2009 at 15:21 #636460
    Profile photo of Guðbrandur Þorkell Guðbra
    Guðbrandur Þorkell Guðbra
    Member
    • Umræður: 78
    • Svör: 2584

    Er þetta ekki tækið, sem alla hefur dreymt um? Optional built in GPS – það er bara spurning hvort það er eitthvað takmarkað? Hlýtur þessi vél ekki að vinna með MapSource og slíkum forritum? Þá væri maður í góðum málum væntanlega með svona í bílnum.





    06.01.2009 at 05:07 #636410
    Profile photo of Guðbrandur Þorkell Guðbra
    Guðbrandur Þorkell Guðbra
    Member
    • Umræður: 78
    • Svör: 2584

    Ekkert kjarkleysi þarna, þetta er gaman að sjá og lesa. Ekki er undirritaður neinn sérfræðingur í framhásingum, en hefði haldið svona að lítt athuguðu máli, að það þurfi að hafa hliðsjón af því hverskonar mótor þú setur niður í bílinn. Einnig hefur áhrif að sjálfsögðu hvort þú skiptir um skiptingu og millikassa, þ.e. hvoru megin drifskaftið liggur o.s.frv. Man ekki eftir að hafa lesið um neinn, sem hefur sett 8 cyl. vél ofan í Trooper, en það hlýtur samt einhver að hafa gert það. Af því Isuzu er hluti af GM-samsteypunni hefði maður giskað á, að GM-mótor myndi henta, en það þarf þó ekki að vera. Mig minnir að það sé til 4,6 eða 4,7 lítra Vortec – mótor, sem ætti að gefa góðan kraft án þess að vera mjög óhagstæður hvað eyðslu snertir. Staðan varðandi eldsneytisverð er nú orðin þannig, að það er mjög vafasamt, hvort það borgar sig yfirleitt að vera með diesel-vélar, ekki síst ef maður vegur saman aðra þætti. Því miður eru ekki horfur á að verðhlutfall milli diesel og bensíns á alþjóðamarkaði breytist diesel í vil í fyrirsjáanlegri framtíð. Maður hefði því haldið að þetta væri bara hin ágætasta hugmynd hjá þér.





    05.01.2009 at 14:07 #636300
    Profile photo of Guðbrandur Þorkell Guðbra
    Guðbrandur Þorkell Guðbra
    Member
    • Umræður: 78
    • Svör: 2584

    Hverjar eru óskir þínar, hverju viltu kosta til o.s.frv. Einfaldast er að ná sér í 22R Toyota mótor, auðveldast og ódýrast að koma honum fyrir, auk þess sem hann er tiltölulega sparneytinn. Næst myndi verða fyrir V6 toyota mótor, heldur meira mál að koma honum fyrir og meiri eyðsla en fleirri hross í salinn. Nú, svo hafa menn verið að setja ameríska drauma í þetta, t.d. GM Vortex V6, þá ertu kominn með ágætan hrossahóp, en eyðslan vex náttúrulega en tiltölulega dýrast að setja hann niður. Ég myndi hinsvegar hugsa mig vel um áður en ég færi að stofna til mikils kostnaðar við vélaskipti í svona gamlan bíl.





    04.01.2009 at 17:37 #636224
    Profile photo of Guðbrandur Þorkell Guðbra
    Guðbrandur Þorkell Guðbra
    Member
    • Umræður: 78
    • Svör: 2584

    Það er nú sem betur fer orðið þannig, að flest alvöru verkstæði, sem ætla sér að vera áfram í bransanum, leggja metnað sinn í að gera þetta vel, því augljóslega myndi Umferðarstofa gera þeim lífið leitt, sem ítrekað gera mistök í þessu efni. Svo er líka málið, að fari menn út í það að láta gera tilboð í svona verkefni, þá er nauðsynlegt að fá einhvern, sem veit jafn langt nefi sínu í þessum efnum, til að gera verklýsingu, svo ekki fari milli mála hvað sé verið að biðja um og hvað menn ætlist til að fá fyrir aurana sína, því þetta er andskoti dýrt.





    04.01.2009 at 17:31 #636154
    Profile photo of Guðbrandur Þorkell Guðbra
    Guðbrandur Þorkell Guðbra
    Member
    • Umræður: 78
    • Svör: 2584

    Þetta eru ansi stór og áhugaverð svæði, sem eftir er að ferla skv. lista Jóns Snæland hér ofar á þræðinum. Mér finnst mikilvægt, að í þessar mælingaferðir fari með staðkunnugir menn. Ekki þannig að ég sé að gera lítið úr staðþekkingu ýmsra góðra manna, svona eins og Jóns "Ofsa" Snæland, fjarri því, en í framhaldi af spurningu Hilmars formanns Skagafjarðardeildar hér ofurlítið ofar, þá þykist ég vita að hann sé einmitt með slíkt í huga. Ég þykist til dæmis geta bent á einstaklinga, sem eru gríðarlega vel kunnugir Eyvindarstaðaheiði og slóðum og leiðum um hana, svo dæmi sé tekið, og þykist vita að svo muni vera um fleiri heiðar og öræfasvæði. Refaskyttur og gangnamenn þekkja "sínar" slóðir oft öðrum betur og væri áreiðanlega ekki ónýtt að hafa einn slíkan með í för þegar farið er til mælinga.





    04.01.2009 at 15:54 #635996
    Profile photo of Guðbrandur Þorkell Guðbra
    Guðbrandur Þorkell Guðbra
    Member
    • Umræður: 78
    • Svör: 2584

    Þetta ætlar að verða býsna skemmtilegur og upplýsandi þráður um örnefni. Oft hefur það komið fram á spjallþráðum f4x4.is að meðal félagsfólks er fjöldinn allur af einstaklingum, sem eru hafsjór fróðleiks um örnefni. Olgeir Engilbertsson í Nefsholti er áreiðanlega einn af allra kunnugustu mönnum á Landmannaafrétti og að Fjallabaki og minnugur með afbrigðum. Hann á aðdáun mína og fleiri óskipta þess vegna og ekki síður fyrir það hve vandur hann er að virðingu sinni með að fara rétt með og hafa í heiðri reglu Ara Þorgilssonar að "hafa það sem sannara reynist". Við höfum einhverntíma áður haft orð á því okkar í milli hversu ein þeirra opinberu stofnana, sem þurfa mikið að nota örnefni í sínum störfum, er aftur á móti "frjálsleg" í notkun örnefna. Þar á ég við Vegagerðina. Mörg okkar kunna áreiðanlega sögur af því hvernig starfsmenn Vegagerðarinnar hafa í gegn um tíðina stuðlað að ónákvæmni og jafnvel flutningi örnefna milli nálægra staða. Ég ætla ekki að tiltaka neitt sérstakt í þessu tilefni, þótt ég kunni eins og fleiri slíkar sögur. Þessar bollaleggingar mínar koma til af því, að mér finnst og vil leggja á það áherslu, að félagsfólk haldi áfram að ræða um örnefni, skrá þau og stuðla að því að þeir sem vel þekkja til miðli sínum fróðleik til þeirra sem eru nýgræðingar. Örnefnin voru GPS tæki fyrri tíðar og mönnum nauðsynleg til að nota sem viðmiðanir á ferðum sínum, við vörslu og smölun búfjár sem og varðandi mörk bújarða. Ég leyfi mér því að vonast til að þessi þráður og aðrir, sem stofnað er til um örnefni og fróðleik um þau, verði að sem mestu gagni fyrir okkur öll.





  • Author
    Replies
Viewing 20 replies - 201 through 220 (of 1,412 total)
← 1 … 10 11 12 … 71 →

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.