Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
14.02.2009 at 17:58 #64087614.02.2009 at 14:03 #640852
Eins og Einar Steinsson reyndar er búinn að segja, þá fer þetta allt eftir ökumanninum, eða mest allavega. Öllum bifvélavirkjum ber saman um að þessi undirvagn í Grandinum sé vel hannaður og sterkur. Var einmitt fyrir örfáum dögum að ræða við einn reyndan á þessu sviði meðan við stóðum undir svona bíl sem stóð á lyftu á verkstæðinu hjá honum. Það er hinsvegar með alla bíla, jeppa sem aðra nauðsynlegt, að fara varlega í að reyna mikið á þá í afturábakgír. Til dæmis ef menn ætla að gera félaga sínum greiða og kippa í hann í festu, að snúa frekar afturendanum í þann, sem dreginn er og taka á áfram. Ég þekki engan gírkassa, sem er þannig uppbyggður, að afturábaksnúningur sé ekki fenginn með því að setja aukahjól inn í drifrásina til að breyta snúningsáttinni á aflúrtaki kassans. Þess utan leggur þetta of mikið á framdrifið og þau eru líka ekki byggð fyrir að átakið komi á þau með þessum hætti.
13.02.2009 at 15:27 #640826Hjó eftir þessu með fólksbílanagla. Nú skilst mér að þeir séu eitthvað misþungir, ef ég hef skilið dekkjasérfræðing minn rétt. Ef það er tilfellið, ertu nokkuð til í að segja okkur hvaða þyngd af nöglum þetta er? Ég er alveg sammála þér með að hafa ekki "jeppanagla" og því síður vörubílanagla í jeppadekkjum, maður má lítið keyra yfir 70 – 80 km hraða til að þeir fari að fjúka úr, auk þess sem þeir losna við minnsta átak. Einhvernveginn minnir mig að Fjalli hafi verið með 400 nagla í hverju dekki af 44" DC, getur það verið?
kv.
12.02.2009 at 14:39 #640736Svo það fari ekki neitt á milli mála, þá dettur okkur hér í fásinninu ekki í hug að slá eign okkar á Benedikt Sigurgeirsson. Okkar Benni heitir Benedikt Egilsson og hefur vinnusímann 455 4573 og við í 4×4 deildinni hér erum aldeilis alveg sáttir við að eiga hann að vini og teljum okkur alls ekki vera að gengisfella aðra Benna með því. Megi allir Bennar, innan og utan 4×4 hafa það sem allra best.
12.02.2009 at 11:35 #640732Ég hef verið að nota Delphi – rafgeyma í bátnum hjá mér undanfarin ár. Var búinn að prófa ýmsar tegundir áður, en þessir hafa bara ekki klikkað. Þeir eru þess utan á mjög samkeppnishæfu verði. Við höfum nefnilega hér á Króknum okkar eigin Benna í bílabúðinni, og hann flytur þessa geyma inn beint. Mæli með þeim, og reyndar Benna líka!
03.02.2009 at 20:00 #639894Hækkaði upp þrjár Pæjur að framan með þessu móti, svo 33" dekk pössuðu betur undir. Maður þarf að hafa svolítinn vara á sér varðandi hosurnar um hjöruliðina á driföxlunum, því þegar öxlarnir hætta að vera beinir að staðaldri, þá reynir meira á hosurnar og þeim hættir til að fara í sundur og vatn og drulla komist inn í þær og þá fer allt fjandans til. Fylgjast vel með þessu er mín reynsla.
03.02.2009 at 08:10 #639824Manni er kennt að nýtísku olíukerfi, rafeindastýrð, þoli ekki steinolíublandað eldsneyti, þá fari allir skynjarar og hvað þetta dót heitir úr lagi. Hef þessvegna ekki þorað að blanda eldsneytið síðan maður hætti að vera með gamaldags olíuverk. En ég fylgdi reglu, sem var í leiðbeiningum með Scania í gamla daga, en hún var sú, að þegar frostið fer niður fyrir -7°C, þá er sett 10% af steinolíu í dieselolíuna og svo 1 lítri af tvígengisolíu á móti 10 lítrum af steinolíu. Steinolían minnkaði smurhæfni eldsneytisins með því að "mýkja" paraffínið eða leysa það upp að hluta til, og því þurfti eitthvert smurefni í staðinn. Til þess var tvígengisolían, sem er ætluð til að brenna með eldsneyti og myndar ekki steinefnaútfellingar. Allir hlutar olíuverksins þurftu á smurningu frá eldsneytinu að halda, en sérstaklega "dýsurnar", en eins og þeir vita sem þekkja hvernig þær vinna, þá er álagið á hreyfihluta þeirra gríðarlegt. Þetta svarar kannski ekki nema að hluta til spurningunni um steinolíuna "kerosene", en smurhæfni hennar er náttúrulega ekki mikil, þótt hún henti vel á t.d. þotuhreyfla.
02.02.2009 at 10:47 #20370402.02.2009 at 10:17 #639746Eins og Skúli segir, þá eru skoðanirnar nokkurnveginn jafn margar tegundum. Á það jafnt við um bílana og dekkin. Eins og Skúli segir líka, þá fer þetta jafnframt eftir því hvernig þú ætlar að nota bílinn, ætlarðu að nota hann eingöngu í vetrar- og fjallaferðir eða líka sem "family commuter". En þú minnist á HiLux. Einhvernveginn held ég að það séu nú skárstu pickuparnir af þeim japönsku/asísku. Besta þjónustan, mesta endingin og skárst að aka þeim, ásamt með bestu endursölumöguleikum og -verði. Flestir asísku pickuparnir eru hinsvegar með ákveðinn annmarka hvað varðar sætin, maður situr því sem næst flötum beinum í þeim. Þetta hefur þó skánað í nýjasta HiLuxinum. Ef þú ert bara að leita að jeppa og hefur takmarkaða fjármuni, þá er hægt að gera góð kaup í Isuzu Trooper. Þeir eru mun skárri en það orðspor, sem af þeim fer og verðið er oftast ansi hagstætt.
31.01.2009 at 21:50 #639680Ertu að tala um í dag (laugardaginn 31.) eða föstudaginn 30.1.? Eða ertu að tala um 23.og.24.1? Bara svona til að átta sig á þessu. Verstur fjárinn að það hefur snjóað talsvert á hluta svæðisins núna fyrri partinn í dag svo það eru líkur á að hann hafi horfið í snjóinn. Trúlegast er að hjólkoppar losni þar sem einhverjar ójöfnur eru í veginum mér dettur í hug í kringum vegaframkvæmdirnar í kringum um Grábrókarhraunið ellegar þar sem skemmdir eru í nýju malbiki skammt frá og í kringum þar sem gamli Brúarskálinn í Hrútafirði stóð áður. Vona samt að koppurinn finnist og komist til þín, þetta er fokdýrt þykist ég vita. kv.
31.01.2009 at 11:42 #639638Hérna í eina tíð var hægt að fá boga til að festa á grindur eða skíðafestingar, sem festust í þakrennur. Nú eru fæstir bílar með svoleiðis rennur, en mig grunar að það sé hægt að fá boga, sem festast í sérstakar raufar utan til á toppnum, ellegar segulfestingar. Þær síðastnefndu halda varla þungum hlutum og hætt við að toppurinn rispist ef ekki er gætt ítrasta hreinlætis.
27.01.2009 at 17:03 #639002Hefurðu prófað að tala við þá hjá ET? Þar fæst margt fyrir stóra bíla og vinnuvélar, sem eru ansi oft með 24 volta kerfi. Svo eru margir minni bátar með 24 volta kerfi og þeir sem sjá um uppsetningar á tækjum í þá, þekkja 24 volta bransann þar af leiðandi.
22.01.2009 at 16:45 #638178Gott að lesa þetta. Sýnir manni að umhverfisnefndin er að vinna vinnuna sína. Klúbbfélagar halda þessu áreiðanlega vakandi og standa bak við sína menn í umhverfisnefnd.
21.01.2009 at 20:29 #635502Mikið rosalega getum við verið montin öll af þessum piltum. Það er til afreksfólk á Íslandi, það er bara ekki í pólitík! – Til hamingju strákar, þið eruð laaaaaaaaangflottastir!
19.01.2009 at 21:17 #638138Hvað hækka Unimog housingar bílinn mikið út af fyrir sig? Það er greinilega eitthvað meira en þessar 5 tommur sem munar um hvað 54" bíllinn er hærri. "Ef ég væri ríkur…….." Jæja, það þýðir víst ekkert að vera að láta sig dreyma dagdrauma!
19.01.2009 at 21:13 #638472Sæll Ríkharður. Ég er "bara" með 60 CSx tækið, sem er reyndar að gera allt sem ég þarf á að halda. Hvað þarf maður að borga fyrir uppfærsluna? Fær maður hana hjá þér, eða í "gamla" fyrirtækinu? Ég keypti mitt tæki áður en þú seldir, rétt áður líklega, og er búinn að uppfæra hugbúnaðinn líklega tvisvar.
19.01.2009 at 14:35 #63548819.01.2009 at 07:34 #638432Er þetta ekki eitthvað ámóta og er skrúfað í færiböndin (vélsleðana)?
En maður þyrfti að athuga þetta í traktorinn!
18.01.2009 at 16:29 #63839417.01.2009 at 21:16 #638362Ef það væri nú ekki hann Guðni Sveins sem væri að skýra frá þessu, þá tryði maður því ekki með snjóalögin útfrá. Það er nú ekki langt héðan af Sauðárkróki út á Lágheiði, en hér er engin snjór, hefur ekkert snjóað, aðeins smá hálka á götum.
Jæja, en hvað um það, ég vona að þið hafið átt góðan dag á heiðinni, ágætu nágrannar og gaman að frétta að þessi dekk hafi reynst vel í vondu færi. Allt svona telur í okkar sameiginlega reynslubanka.
-
AuthorReplies