Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
18.02.2009 at 14:51 #639488
usss eru ekki allir að fara í saltkjöt og baunir á sprengidag????
Mamma verður sko ekki sátt ef við systur mætum ekki í mat þá. Það er örugglega of seint að óska eftir því að þetta verði kannski haft miðvikudaginn 25.feb. hmmm….. Vil nefnilega ekki missa af þessu
15.02.2009 at 17:12 #639472Jæja ég sé að það er komið full greiðsla fyrir minn bíl, Ólöf, Solla og Lilja.
Nú er bara að vona að litli bumbubúinn verði almennilegur við móður sína svo hún verði nógu hress til að koma með í ferðina ; )Hlakka til að sjá ykkur á mánudaginn, er ekki stemmning fyrir því að taka kallana með eða hvað???? minn eitthvað smeikur að vera eini kallinn í þessu kvennahafi.
26.02.2008 at 13:59 #612916Algjört klúður hjá mér, ég gleymdi að fylgjast með síðunni nú um helgina og sá því ekki færsluna um hitting í gær. Og í gær var ég svo spennt að kaupa mér nýja jeppa að ég fór ekkert á síðuna um kvöldið var svo mikil stemmning að prófa bílinn að ég var vant við látin. En ég sá það að ég er ekki fær um að keyra svona trillitæki alveg strax og held mig því við að vera kóari.
Glatað að missa af þessu því það er svo gott að hitta mannskapinn svona áður en farið er.
hlakka mikið til að fara en er því miður alveg búin að missa úr þessari umræðu um þotukeppnina og verð því að passa þar, en á örugglega eftir að hafa mjög gaman af ykkur hinum
19.02.2008 at 12:29 #612842Sælar!
Ég og Elísabet erum í græna hópnum en ég held að við sjáum okkur ekki fært að leggja af stað kl.14 svo við værum hugsanlega til í að vera samferða barböru og möggu kl. 16/17. En best að ég ræði það nánar við bílstjórann hana Lísu.því miður situr Lísa enn uppi með mig þar sem ég hef ekki enn fundið mér bíl (og ekki ráðlegt að fara á bíl sem ég hef sjaldan eða aldrei keyrt). Ég sé að hún er ekki búin að borga ;( og ætla því rétt að vona að hún sé ekki hætt við. Ef svo er þá verð ég bara að fá að hanga á þakboganum hjá einhverri eða vera í tengdamömmuboxinu ef einhver er með svoleiðis
Allavega er farin að hlakka geggjað til…
07.02.2008 at 12:51 #612756Mikið öfunda ég ykkur að vera að fara, ég er því miður ekki búin að kaupa mér bíl, mjög ílla gengur í leitinni ef þið vitið um einhvern sem er að reyna að losna við bíl þá megið þið láta mig vita. Ég get því ekki skráð mig með en endilega ef einhverjum vantar kóara, auka farþega eða skemmtikraft að þá er ég nokkuð vön…
kv. Ólöf Ósk
-
AuthorReplies