FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir
You are here: Home / Ólafur Ólafsson

Ólafur Ólafsson

Profile picture of Ólafur Ólafsson
Not recently active
  • Prófíll
  • Groups 0
  • Forums
  • Topics Started
  • Replies Created
  • Favorites

Forum Replies Created

Viewing 19 replies - 1 through 19 (of 19 total)
  • Author
    Replies
  • 06.05.2013 at 18:04 #765679
    Profile photo of Ólafur Ólafsson
    Ólafur Ólafsson
    Member
    • Umræður: 4
    • Svör: 30

    Sæll

    Seldum nákvæmlega svona vagn í fyrrahaust. Auglýstum á Bland á 750 og seldum daginn eftir á 730 þús á borðið

    Kv

    Ólafur Ólafsson





    01.06.2009 at 20:10 #648306
    Profile photo of Ólafur Ólafsson
    Ólafur Ólafsson
    Member
    • Umræður: 4
    • Svör: 30

    Sæll

    Ég átti gamlan Coleman tjaldvagn, sem er með sama fjaðrakerfi og fellihýsin en á litlum dekkjum

    Ég keypti 12 eða 13 tommu felgur með dekkjum á partasölu

    Ég smíðaði hringi með gatadeilingunni sem var á vagninum. Smíðaði svo aðra hringi með sömu gatadeilingu og felgurnar, Sauð svo 5 sm teina á milli hringjanna þannig að ég gæti skrúfað þetta upp á vagninn og svo nýju dekkin utan á.
    Dekkin komu þá utar og vagninn varð miklu stöðugri.

    Í staðin fyrir að setja hásinguna upp á fjaðrirnar smíðaði ég nýjan sleða, þar sem afturhluti fjaðrarinnar rennur í og hafði hana 6 sm neðar, þannig að þannig hækkaði vagninn

    Þetta virkaði frábærlega

    kv

    ÓLI





    02.05.2009 at 17:55 #646434
    Profile photo of Ólafur Ólafsson
    Ólafur Ólafsson
    Member
    • Umræður: 4
    • Svör: 30

    Sælir félagar.

    Að mínu mati er þetta óásættanlegt fyrir Ferðaklúbbinn 4×4 að félagsskírteini hans sé gefið út og merkt einstöku fyrirtæki en ekki Ferðaklúbbnum sjálfum og merki Ferðaklúbbsins kemur hvergi fram.
    Ég held að ég sleppi að nota skírteinið til að fá afslátt hjá fyrirtækum frekar en að framvísa þessari hörmung

    Skora á næstu stjórn að láta þetta ekki koma fyrir aftur.
    M.B.K
    Ólafur





    07.08.2008 at 09:31 #626646
    Profile photo of Ólafur Ólafsson
    Ólafur Ólafsson
    Member
    • Umræður: 4
    • Svör: 30

    Ágætu félagar í 4×4

    Ég var um árabil fundarritari á aðalfundum 4×4 og gerði á sínum tíma fundargerðir aðgengilegar fyrir birtingu á heimasíðu félagsins.
    Þetta var gert til þess að þeir, sem ekki áttu kost á að mæta á aðalfundi gætu kynnt sér hvað hefði verið gert síðasta ár og hvað gera ætti á næsta félagsári.
    Ef eitthvað "óþægilegt" kemur fram í fundargerð hlýtur það að hafa átt ssér stað í raunveruleikanum og þá nauðsynlegt að slíkt endurtaki sig ekki.

    ALLIR félagar í 4×4 eiga rétt á að lesa fundargerð aðalfundar sem hefur verið rituð af kjörnum ritara á aðalfundi og er því sjálfsögð krafa að fundargerðin verði birt ÓRITSKOÐUÐ á sama stað og aðrar fundargerðir ekki seinna en strax.

    Ólafur Ólafsson





    24.04.2006 at 16:19 #550630
    Profile photo of Ólafur Ólafsson
    Ólafur Ólafsson
    Member
    • Umræður: 4
    • Svör: 30

    Ágætu félagsmenn

    Þar sem ég hef unnið meira eða minna á flestum sýningum klúbbsins og tel mig hafa nokkra reynslu af þeim tel ég að stærri sýningar á vegum klúbbsins hafi runnið sitt skeið á enda. Flest jeppaumboðin sýna og auglýsa breytta jeppa og bílasölurnar eru fullar af þeim.
    Því tel ég að áhugi almennings hafi minnkað það mikið að of mikil áhætta verði af því að halda svona sýningar, nema hægt verði að halda ódýra sýningu eins og t.d. hjá Bílabúð Benna um árið.

    Ég tel hins vegar góða hugmynd að nota tækifærið og taka þátt í þessari sýningu sem um er talað og reyna þar að kynna klúbbinn sem best og markmið hans

    Kveðjur

    óli Óla





    24.06.2004 at 22:46 #504104
    Profile photo of Ólafur Ólafsson
    Ólafur Ólafsson
    Member
    • Umræður: 4
    • Svör: 30

    Varðandi eyðslu á trooper get ég einungis sagt frá 32" bílum, en þeir bílar hafa eytt um og undir 10 lítrum / 100 km hjá mér í langkeyrslu, þ.e. dieselbílarnir
    Hef átt 5 stykki af Trooper, þ.e. árg. 1992 1993 1999 2000 og 2002 árgerð, sem ég keypti fyrir viku
    Allir þessir bílar hafa reynst mjög vel, en hef ekki látið breyta þeim neitt.
    Verðum að treysta nýjum eigendum IH til að standa sig vel í þjónustunni við okkur.

    Varðandi það að urmull sé af þessum bílum á sölu villir það að sömu bílarnir eru skráðir á mörgum bílasölum, en það standa ekki margir á staðnum

    Kveðjur
    Ólafur Ólafsson
    R 199





    23.06.2004 at 12:07 #504116
    Profile photo of Ólafur Ólafsson
    Ólafur Ólafsson
    Member
    • Umræður: 4
    • Svör: 30

    Ágætu félagar

    Auðvitað er eðlilegt að ýmislegt breytist í tímanna rás, einnig hlýtur svo að vera með félagsskap eins og Ferðaklúbbinn 4×4.
    á sínum tíma var Ferðaklúbburinn stofnaður sem hagsmunasamtök þeirra, sem stunduðu ferðalög um hálendið á eigin vegum.
    Öflug barátta félaga Ferðaklúbbsins á sínum tíma fyrir að fá leyfi fyrir breytingum á jeppum til að þeir hentuðu til ferðalaga bar þann árangur, sem sjá má á bílum í dag og er grundvöllur þess að menn hafa leyfi til að aka á breyttum bílum í dag.
    Þessi barátta var ekki fyrirhafnarlaus en skilaði gífurlegum árangri.

    Að sjálfsögðu hafa margir frumkvöðlar Ferðaklúbbsins breytt lífsmunstri sínu og hætt ferðalögum, en því miður er það svo, að stór hópur þeirra, sem en stundar ferðalög finnur sig ekki lengur í þessum félagsskap, sem virðist því miður leggja mikla áherslu á að sinna þeim, sem nýrri eru í félaginu, en sinnir minna þeim, sem eldri eru í félaginu, en halda þó tryggð við það með greiðslu félagsgjalda.

    Skora ég hér með, ásamt félögum mínum, á nýja stjórn ferðaklúbbsins 4×4 að halda a.m.k. 1 eða 2 fundi í vetur, þar sem eldri félagar gætu fundið eitthvað við sitt hæfi

    Félagskveðjur
    Ólafur Ólafsson
    R-199





    06.03.2004 at 10:32 #193937
    Profile photo of Ólafur Ólafsson
    Ólafur Ólafsson
    Member
    • Umræður: 4
    • Svör: 30

    Sælir félagar. Rakst á þessa síðu á netinu „http://www.seriouswheels.com/top-2004-Jeep-Rescue-Concept.htm“ Þessi gæti trúlega virkað vel á fjöllum

    Kveðjur

    Óli





    27.01.2003 at 17:25 #467120
    Profile photo of Ólafur Ólafsson
    Ólafur Ólafsson
    Member
    • Umræður: 4
    • Svör: 30

    Sælir Félagar.

    Hér er komið eitt besta tækifærið til að svara þeim, sem séð hafa svart, þegar þeir sjá breytta jeppa.
    Mér sýnist þessi grein vera nokkuð faglega unnin.
    Ég teldi rétt fyrir stjórn félagsins að fá þessa útreikninga beint frá höfundum þessarar rannsóknar og vinna fréttagreinar í fjölmiðla út frá henni, ásamt því að koma að þætti Ferðaklúbbsins í sögu jeppabreytinga og reglugerðarbreytinga frá því að ekkert mátti gera og allir jeppar óku um á skurðarskífum sem eyðilögðu malbikið.

    Samt eigum við ekki að ofmetnast þó að við vitum að við erum ALLTAF bestir

    Félagskveðjur

    Óli Óla R199





    06.11.2002 at 01:16 #464064
    Profile photo of Ólafur Ólafsson
    Ólafur Ólafsson
    Member
    • Umræður: 4
    • Svör: 30

    Ágætu félagar

    Ég var að lesa lög félagsins eins og þau koma fyrir í Bókasafni heimasíðunnar.
    Engin dagsetning kemur þar fram, þannig að ég sé ekki hvort þetta séu lögin eins og þau eru í dag, eða hvort þeim hefur verið breytt síðan þau voru sett inn á heimasíðuna.

    Í 3. grein laganna stendur m.a. "Aðalfundur hefur æðsta vald í öllum málefnum félagsins". Þar tekur af allan vafa að ákvarðanir teknar á Landsfundi félagsins gilda ekki sem lög eins og sumir fundarmenn skynjuðu orð stjórnar á fundinum á mánudagskvöldið.

    í 5. grein stendur m.a. "Stjórn félagsins skal skipuð FIMM mönnum" síðan stendur "Formaður getur boðað varamenn á STJÓRNARFUND þegar þess er þörf". Þarna finst mér koma skýrt fram að einungis aðalstjórn félagsins skal sitja í pontu á félagsfundum og hvet ég stjórn félagsins til að skoða þessi mál. Að sjálfsögðu hef ég ekkert út á Palla að setja, hvatti hann meira að segja til að taka sæti í stjórn á sínum tíma, en tel hins vegar að stjórn verði að virða fundarsköp.

    Í skemmtimefndarmálum hvet ég alla aðila til að reyna að fremsta megni að slíðra sverðin og snúa bökum saman og efla einingu félagsins. Enda er aðaltilgangur félagsins ekki að sjá um skemmtanir, heldur er félagið hagsmunafélag þeirra, sem ferðast um hálendið á eigin vegum og þar verður öll okkar orka að koma fram og standa saman um að verja okkar málefni.

    FÉLAGAR, EKKI KLJÚFA FÉLAGIÐ OKKAR, STÖNDUM SAMAN

    kveðjur

    Óli Óla R199





    05.10.2002 at 20:47 #463522
    Profile photo of Ólafur Ólafsson
    Ólafur Ólafsson
    Member
    • Umræður: 4
    • Svör: 30

    Sælir Félagar

    Ég sé að stofnuð hefur verið 4oo % fjölmennari skemmtinefnd en sú sem áður var við störf.
    Var samstarf við Einar Sól. virkilega orðið það stirt að þessi staða þyrfti að koma upp að hann ákvæði að hætta störfum.
    Þeir almennu félagar sem ég hef talað við hafa verið ánægðir með hans störf fyrir félagið, hef ekki talað við stjórnarmenn.
    Hvet félaga að tjá sig um þessi mál og vil þakka Einari fyrir hans störf fyrir félagið.
    Kveðjur
    ÓLI ÓLA





    06.08.2002 at 21:50 #461830
    Profile photo of Ólafur Ólafsson
    Ólafur Ólafsson
    Member
    • Umræður: 4
    • Svör: 30

    Sælir félagar
    Mér sýnist verðugt verkefni núverandi stjórnar að huga að 20 ára afmæli klúbbsins á næsta ári.
    Hugmynd um sýningu á þar fullan rétt á sér. Þá ætti klúbburinn að finna nýtt form, þar sem peningahliðin spilaði ekki eins stórt hlutverk og áður, heldur yrði hér einungis sýning á bílum félagsmanna í einhverri og nýrri mynd, og þá sem flestum. Jafnvel væri spurning að stilla þeim upp á útisvæði á næstu helgi við afmælisdaginn, 10. mars.
    Skora á sem flesta félagsmenn að ýta á takkana á tölvunum hjá sér og tjá sig um þetta mál.

    ps. Palli, ert þú ekki til í slaginn ?????

    Kveðjur

    Óli Óla





    23.07.2002 at 01:06 #462496
    Profile photo of Ólafur Ólafsson
    Ólafur Ólafsson
    Member
    • Umræður: 4
    • Svör: 30

    Á síðasta aðalfundi var félagsgjaldið hækkað í 3.900.- krónur. Hægt er að sjá það, ásamt öðrum atriðum aðalfundar með því að fara inn á "Bókasafnið" og skoða "aðalfund 2002"
    Besta leiðin til að skrá sig í félagið er að mæta á næsta fund, fyrsta mánudag í september og skrá sig þar.

    Kveðjur

    Óli Óla





    02.05.2002 at 21:15 #460764
    Profile photo of Ólafur Ólafsson
    Ólafur Ólafsson
    Member
    • Umræður: 4
    • Svör: 30

    Frábært framtak hjá vefstjóra

    Félagar. Upp með myndaalbúmin og inn á netið með myndirnar eins og skot.

    Kveðjur

    Óli Óla





    12.04.2002 at 23:21 #460368
    Profile photo of Ólafur Ólafsson
    Ólafur Ólafsson
    Member
    • Umræður: 4
    • Svör: 30

    Ágætu félagar

    Hugmynd Jóns er frábær.

    Með tillögu sinni er hann sjálfkjörinn leiðtogi til að skipuleggja svona ferð, enda fer hann og hans félagar létt með það

    Bara að byrja að pakka niður

    Kveðjur

    Óli Óla





    11.04.2002 at 22:23 #191440
    Profile photo of Ólafur Ólafsson
    Ólafur Ólafsson
    Member
    • Umræður: 4
    • Svör: 30

    Ágætu félagar.

    Varðandi tilboðið frá Stoðtækni um göngugreiningu hér til hliðar á heimasíðunni vil ég bæta við að það gildir að sjálfsögðu fyrir alla fjölskyldumeðlimi.

    Vonast til að sjá sem flesta

    Kveðjur

    Óli Óla





    26.03.2002 at 20:52 #460044
    Profile photo of Ólafur Ólafsson
    Ólafur Ólafsson
    Member
    • Umræður: 4
    • Svör: 30

    Sælir félagar.

    Í sambandi við árekstur fólksbíla og jeppa má einnig benda á flutningabíla og rútur í umferðinni.
    Hraði þessara bíla er oft meiri en jeppa, auk þess sem þeir taka mun meira pláss á vegunum, þannig að þeir eru ekki síður hættulegir en jeppar. Einnig hefur fjöldi þessara bíla aukist til muna eftir að flutningar með skipum lögðust af.

    Kveðjur

    Óli Óla





    12.10.2001 at 22:44 #191178
    Profile photo of Ólafur Ólafsson
    Ólafur Ólafsson
    Member
    • Umræður: 4
    • Svör: 30

    Ágætu félagar

    Ég vil fyrir mína hönd og annarra þeirra sem að sýningu Ferðaklúbbsins í Laugardalshöllinni stóðu, þakka þeim fjölmörgu, sem aðstoðu við að gera sýninguna jafn glæsilega og raun bar vitni.
    Mjög ánægjulegt var að vinna með jafn áhugasömum hóp og þarna kom að verki.
    Á sýningunni kom mjög vel í ljós hvað samhentur hópur áhugasamra einstaklinga getur komið í verk þegar vilji og áhugi er fyrir hendi.

    Enn og aftur, Kærar þakkir

    Félagskveðjur

    ÓLI ÓLA





    10.10.2001 at 22:18 #191176
    Profile photo of Ólafur Ólafsson
    Ólafur Ólafsson
    Member
    • Umræður: 4
    • Svör: 30

    Sælir 4×4 Félagar og aðrir lesendur

    Nú að aflokinni sýningu Ferðaklúbbsins 4×4 væri gaman að heyra um hvað þeim, sem sáu sýninguna í Laugardalshöllinni fanst um hana.
    Að mati okkar, sem að henni stóðu erum við nokkuð vissir um að þetta var ein best heppnaða sýningin frá upphafi.
    Þó að sýningargestir hefðu mátt vera fleiri erum við nokkuð vissir um að þeir sem gáfu sér tíma til að koma hafi verið nokkuð ánægðir.
    Endilega látið ykkar skoðun í ljós, bæði kosti og galla.

    Félagskveðjur

    Óli Óla
    R 199





  • Author
    Replies
Viewing 19 replies - 1 through 19 (of 19 total)

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.