Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
26.01.2012 at 12:30 #745947
Litlanefnd minnir á að myndakvöld verður á opnu húsi í kvöld.
kv. Óli
24.01.2012 at 17:22 #748163Framhaldið er auðvitað það að Ferðaklúbburinn 4×4 fordæmir öll spjöll sem verða vegna umferðar utan vega og skorar á alla jeppamenn að virða náttúruna eins og allur meginþorri þeirra gerir.
kv. Óli
21.01.2012 at 23:11 #745945Gott kvöld.
Þá er aðalfararstjórinn í þessari Litlunefndarferð kominn til síns heima. Þetta var frábær dagur á fjöllum þó ekki höfum við komist alla leiðina sem stefnt var að. Langan tíma tók að koma öllum að skálunum við Tjaldafell og fórum við aðeins austurfyrir það, áður en snúið var við. Mikið var um festur og drætti, og eitthvað um affelganir. Öllum var að sjálfsögðu bjargað og allir komust heilir heim, nema Tóti sem fékk gat á hausinn.
Nánari frásögn kemur hér á vefnum á næstunni. Myndakvöld Litlunefndar verður á opnu húsi á fimmtudagskvöldið kemur.
Aðalfararstjóri þakkar hópstjórum fyrir frábært starf, einnig fréttaritara og öðrum sem lögðu okkur lið í þessari ferð. Ferðalöngum öllum þakka ég líka fyrir góðan dag í dag.
kv. Óli, Litlunefnd
20.01.2012 at 21:53 #745937Takk Guðmundur Geir, það hefur verið fært til bókar.
kv. Óli
20.01.2012 at 09:41 #745933Þú hefur verið afskráður Hjörvar Orri.
Það er einmitt gott að láta vita annaðhvort hér á þræðinum eða á tölvupósti til litlanefndin@f4x4.is ef forföll verða.
kv. Óli, Litlunefnd
18.01.2012 at 12:29 #745925Litlanefndin lætur nú ekki hvorki smá snjóföl né fortölur draga úr sér kjarkinn. Stefnum ótrauð í frábæra ferð á laugardaginn, enda gerir spáin ráð fyrir fallegu verðaveðri.
Gott undirlag, nýfallinn snjór ofaná, bjart og fallegt ferðaveður – þannig höfum við það.
Minnum svo ferðalangana á að í kvöld kl. 20:30 verður kynningarfundur vegna ferðarinnar í [url=http://www.f4x4.is/g2/main.php?g2_view=core.DownloadItem&g2_itemId=292239&g2_serialNumber=2:1vxpu5ze]félagsheimili klúbbsins[/url:1vxpu5ze].
kv. Óli, Litlunefnd
17.01.2012 at 15:52 #745919Nokkur pláss eru ennþá laus í Litlunefndarferðina um næstu helgi.
Nú gerir veðurspáin ráð fyrir frosti og snjókomu á laugardaginn og það verður því spennandi að sjá hvaða útúrdúra færið gefur okkur kost á.
kv. Óli, Litlunefnd
16.01.2012 at 10:43 #745917Það er ótrúlegur gangur í skráningum. Aðeins 2 dagar opnir og nú þegar komnar 27 skráningar. Við lokum fyrir skráningar á miðvikudagskvöld eða þegar orðið er fullt, svo það er um að gera að skrá sig sem fyrst.
kv. Óli, Litlunefnd
14.01.2012 at 11:40 #745915Athugið að búið er að opna fyrir skráningu í Litlunefndarferðina sem verður um næstu helgi. Frétt um málið er að finna [url=http://f4x4.is/index.php?option=com_content&view=article&id=1692:skraning-hafin-i-januarfere-litlunefndar&catid=75:litlanefnd&Itemid=327:30h0vbmu]hér.[/url:30h0vbmu]
Skráning ferð fram [url=http://f4x4.is/index.php?option=com_seminar&Itemid=285:30h0vbmu]hér.[/url:30h0vbmu]
kv. Óli, Litlunefnd
13.01.2012 at 18:35 #745913Nú ættu allir áhugasamir um janúarferðina að vera í startholunum því við munum opna fyrir almennar skráningar um helgina. Þetta verður rækilega kynnt hér á vefsíðunni.
kv. Óli, Litlunefnd
07.01.2012 at 22:24 #745911Nú styttist í janúarferð Litlunefndar og er undirbúningur á fullu. Verið er að safna hópstjórum og gera klárt. Allir sem hafa áhuga taka frá laugardaginn 21. janúar
kv. Óli, Litlunefnd
03.01.2012 at 22:12 #221892Litlunefndarferð verður farin laugardaginn 21. janúar n.k. Farið verður á línuveginn norðan Skjaldbreiðar og haldið austur með honum niður Mosaskarð að Ásbrandsá og áin skoðuð. Ef mögulegt er verður farið þar yfir og á Kjalveg þar sem ákvörðun verður tekin um framhaldið, en þar eru nokkrir spennandi kostir í boði, allt eftir því hvað tíminn leyfir.
Opnað verður fyrir skráningar laugardaginn 14. janúar n.k., fylgist því vel með hér á vefsíðunni.
Litlanefndin hefur pantað fullt af snjó og ljómandi veður fyrir þessa ferð.
kv. Óli, Litlunefnd
03.01.2012 at 20:08 #745905Verkfærasalan, Síðumúla.
21.12.2011 at 10:06 #221741Í nýjasta tölublaði Útiveru er grein eftir Diddu, formann Umhverfisnefndar um síðustu stikuferð klúbbsins um Gljúfurleitina.
kv. Óli
21.12.2011 at 10:03 #22174020.12.2011 at 15:14 #743995Þeir segjast hafa slegið heimsmetið og farið þetta á 1 degi, 15 klst og 54 mínútum.
20.12.2011 at 12:52 #744517Fyrst á að afhenda FÍ þjóðgarðana og nú að undanþiggja gistináttagjaldi. Og ég heyrði ekki betur í útvarpsviðtali við stjórnarmann FÍ á Bylgjunni um helgina að hann væri að betla um opinber framlög til FÍ ….
Hvar skyldi þetta nú enda ?
kv. Óli
16.12.2011 at 11:02 #742945Hvítbókarathugasemdirnar eru mjög faglega og vel unnar og varla hægt annað en að taka mark á þeim.
Mér finnst það þurfi að taka nokkur "highlights" úr skýrslunni og senda á fjölmiðla, ásamt fréttatilkynningu um að athugasemdir hafi verið sendar.
En ég vill jafnframt benda á að á Alþingi Íslendinga eru 2 frumvörp núna. Frumvörp sem þegar hafa farið í gegn um umræður og nefnd. Þessi frumvörp fjalla m.a. annarsvegar um lögleiðingu kortagrunns, þar sem allur akstur er bannaður nema um þær leiðir sem eru leyfðar í grunninum og hinsvegar refsingarnar sem geta verið að 250þ kall sekt, upptaka ökutækis eða fangelsi að 4 árum. Og það er þannig að þessar sektir geta verið notaðar, jafnvel þó ferðalangur sé á vegslóða, einfaldlega ef vegslóðinn er ekki á kortagrunninum !!!
Athugið að þetta á við um alla sem munu ferðast um Ísland í framtíðinnim ef það verður samþykkt og því mikilvægt að allir sem geta haft áhrif til að stoppa þetta beiti áhrifum sínum og það strax, því það er því miður mjög líklegt að þetta verði samþykkt á Alþingi á næstunni, verði ekki við brugðist.
Félagsmaður í Ferðaklúbbnum 4×4, Róbert Marshall, er flutningsmaður sektarfrumvapsins og ég held hann tali ekki nema fyrir munn eins félaga í klúbbnum í þessu máli.
Félagar, vinsamlegast notið málefnalegar athugasemdir, en ekki persónuleg níð og árásir þegar þið fjallið um þessi mál.
kv. Óli
12.12.2011 at 12:35 #743941Samkeppni við AT ?
09.12.2011 at 15:28 #221592Var að sjá að rússarnir eru komnir með samkeppni við GPS kerfið og það er farið að virka hjá þeim. Spurning hvaða græjur koma til með að nota það.
Hér er hlekkur á frétt um málið fyrir þá sem skilja dönsku.
kv. Óli
-
AuthorReplies