Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
23.02.2006 at 09:35 #543962
Ég er búinn að eiga Trooper árg. 2000 í uþb. ár. Ekki hafa verið nein vandamál með vél, skiptingu eða neitt þessháttar hjá mér. Mér skilst það hafi verið vandræði með túrbínur og spíssa í eldri árgerðum og hluta af 2000 en IH innkallaði þá bíla sem gallinn fannst í og skipti um það sem var gallað – ef menn hafa sinnt því.
Mér skilst að það sé mjög mikilvægt að passa að nota rétta gerð af smurolíu og að tryggja að ekki sé of lítið og alls ekki of mikið af olíu. Ef þessu er sinnt á vélin að skila sínu án vandræða.
Svo vill ég bæta því við að þeir hjá IH hafa verið mjög liðlegir við að svara öllum mínum spurningum varðandi þessi mál.
Minn bíll er á 35" og eftirgrennslan hefur leitt í ljós að ekki er hægt að fá hlutföll í þessa bíla lengur, þannig að kannski er óráðlegt að fara í frekari breytingar þegar svo er.
Kv. Ólafur
21.02.2006 at 08:48 #543532Vá, frábært hvað menn standa saman. Er sjálfur nýgenginn í klúbbinn og tek að sjálfsögðu þátt í þessu framtaki.
Gangi ykkur vel.
Ólafur
26.01.2006 at 13:29 #540440Við tókum okkur nokkrir saman og fengum verðið eitthvað niður þannig. Stöðin með loftneti kom þá út á ca 42-43 þúsund kall.
Ólafur
26.01.2006 at 12:39 #197173Sælir snillingar
Ég var að fjárfesta í VHF stöð sem á að koma fyrir í Trooper og þá eru miklar pælingar í gangi hvar best er að koma henni fyrir. Búið er að skoða að koma henni í stokkinn fyrir neðan útvarpið, en það virðist ekki vera fýsilegur kostur, einnig líst mér ekki á að setja hana utaná stokkinn til fóta farþegamegin, þar sem gæti verið sparkað í hana með blautum skóm oþh. Helsta hugmyndin núna er að smíða einhverskonar festingu til að festa uppá mælaborðinu og festa hana síðan þar.Hvað segja Trooper eigendur, hvernig hafið þið leyst þetta? Tek fram að um er að ræða ICOM IC-F110 talstöð frá Aukaraf.
kv. Ólafur
24.11.2005 at 14:36 #533872Ég er nú enginn sérfræðingur í dekkjum og ekki haldinn trúarofstæki í þeim málum heldur En ég er búinn að keyra á BF Goodrich AT í nokkur ár, fyrst á 33" og síðan á 35" og verið afskaplega ánægður vægast sagt. Þau hafa farið vel með mann að sumri, mjúk og þýð. Hef svo verið á samskonar dekkjum að vetri, með 2+1 neglingu og þau hafa komið vel út.
Nú er ég að prófa nýju TOYO dekkin með AT mynstri (og 2+2 neglingu) og mér finnst þau ekki síðri en BFG. Þau hafa verið mjög góð í hálkunni og ágæt í snjó líka. Mynstrið er svipað og BFG, heldur opnara þó og það eru góðir fínskorningar í þeim. Svo ég er að minnsta kosti mjög ánægður með þau. Svo má bæta við að það virðist vera eitthvað auðveldara að balansera þau en BFG.
Kv. Ólafur M.
21.11.2005 at 10:34 #533296Ég er sjálfur á Trooper árg. 2000 á 35" dekkjum. Er búinn að eiga hann í tæpt ár og er mjög ánægður. Ferðaðist mikið um hálendið í sumar og engin vandræði með neitt. Engar bilanir (7-9-13), hef fengið ágæta þjónustu hjá IH og er bara mjög sáttur.
Þetta er þó þungur bill og miðað við 35" dekk er hann ekkert of duglegur í snjó. Hef verið að prófa aðeins í haust og það hefur alveg tekist að festa hann Svo ef það á að fara í alvöru vetrarferðir, þá þarf nú stærri hjólbarða en 35".
Annars bara ágætis bíll með góðum krafti.
-
AuthorReplies