Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
10.11.2008 at 08:24 #632532
Sæll Kjartan, Litlanefndin er vettvangur innan klúbbsins fyrir óbreytta og lítið breytta jeppa. Ég get bent þér á að nú er skráning í ferð Litlunefndar sem farin verður um næstu helgi í samstarfi við Ungliðanefnd og Hjálparsveit.
Allar upplysingar um ferðina og skráningu finnurðu [url=http://www.f4x4.is/new/news/default.aspx?file=615:2qvkp2wr][b:2qvkp2wr]hér[/b:2qvkp2wr][/url:2qvkp2wr].
kv. Ólafur, Litlunefnd
09.11.2008 at 16:47 #203176Mig langaði bara að þakka Valgeiri Stefáni fyrir að deila með okkur flottum myndum úr ferðum fyrr á árum, frá 1987. Þessi myndaalbúm voru að koma inn núna í gær og er afskaplega gaman að skoða.
Takk fyrir mig,
Óli
09.11.2008 at 09:34 #632334Um að gera að skrá sig. Allar upplýsingar um ferðina og skráningu eru [url=http://www.f4x4.is/new/news/default.aspx?file=615:1m8f4xa4][b:1m8f4xa4]hér[/b:1m8f4xa4][/url:1m8f4xa4] .
Svo er frábært námskeið í sambandi við ferðina á miðvikudaginn.
Allir sem vilja með að skrá sig.
kv. Óli Litlunefnd
07.11.2008 at 10:37 #632328Ofsi og skari þið eruð hjartanlega velkomnir í þessa ferð, ásamt öllum öðrum. Allar upplýsingar um ferðina sjáið þið í auglýsingu ferðarinnar [url=http://www.f4x4.is/new/news/default.aspx?file=615:3ocgyb6g][b:3ocgyb6g]hér.[/b:3ocgyb6g][/url:3ocgyb6g]
Við tökum að sjálfsögðu við stórasta gjaldmiðli í heimi, íslensku krónunni sjálfri.
kv. Óli
06.11.2008 at 20:53 #632324Ég vísa allri ábyrgð alfarið frá mér. Ég tel að þessum gögnum hafi verið plantað af ónefndum seðlabanastjóra eða jafnvel af fulltrúa allþjóðagjaldeyrissjóðsins til þess eins að sverta mannorð mitt…..
kv. Óli
06.11.2008 at 20:33 #632320Í ljós hefur komið að bankaupplýsingarnar sem gefnar voru upp í auglýsingu ferðarinnar eru ekki réttar. Réttar bankaupplýsingar eru:
[b:3788acrx]132-05-061900, Kt. 701089-1549[/b:3788acrx]
Ég hef beðið vefnefnd að leiðrétta fréttina.
kv. Ólafur, Litlunefnd
01.11.2008 at 11:47 #631916Hef notað stafrænan mæli í mörg ár. Kannski hálf-hallærislegt að segja frá því en ég fékk fyrsta slíka mælinn í fataversluninni Next í Kringlunni og entist hann mér líklega í ein 4-5 ár. Sá mælir er núna ónýtur, en ég fékk annan svipaðan hjá Bílanaust (N1). Minnir að hann hafi kostað undir þrjúþúsundkallinum og virkar fínt. Hef mælt niður í 0,5 psi með honum og upp í heilan helling.
Ég er reyndar alltaf með súlumæli með líka svona ef hinn skyldi verða rafmagnslaus eða klikka.
kv. Óli
27.10.2008 at 16:22 #631738Það er reyndar grunsamlegt hvað er langt síðan það hefur komið inn ný auglýsing. Það bendir til að eitthvað sé að.
Hinsvegar hef ég séð svona villumeldingar áður, þá er yfirleitt verið að nota tákn sem ekki má nota, t.d. gæsalöpp, sem setur allt í steik Betra er að nota tvær einfaldar gæsalappir, það virkar fínt. Einnig virkar ekki að afrita texta beint úr t.d. Word. Þá þarf að fara með hann í t.d. Notepad fyrst.
kv. Óli
27.10.2008 at 09:37 #631668Sendu bara póst á vefnefndina og biddu þá að tékka á þessu fyrir þig. Þeir eru mjög liðlegir.
kv. Óli
26.10.2008 at 21:51 #631662Ertu ekki örugglega innskráður? Það er ekki hægt að búa til albúm ef þú ert ekki skráður inn með notandanafni og lykilorði.
20.10.2008 at 13:10 #631396Eins og fram hefur komið á öðrum spjallþræði fór Litlanefndin í dagsferð á laugardaginn var. Þetta var góð ferð í Litlunefndarveðri, þ.e. sól og björtu.
Ferðasagan öll ásamt myndum kemur í næsta tbl. af Setrinu.
kv. Ólafur, Litlunefnd
19.10.2008 at 12:21 #630986Dagur, takk fyrir að standa fréttavaktina. Ferðin gekk vel fyrir utan þetta óhapp í byrjun ferðarinnar. Ferðasagan kemur svo öll í næsta Setri.
Ég þakka ferðalöngunum fyrir vel heppnaða ferð, sérstaklega Óskari Erlngs fyrir að leiða okkur í aðal-ævintýrið sem sagt verður frá í ferðasögunni í Setrinu.
kv. Ólafur, Litlunefnd
17.10.2008 at 20:53 #630980Það eru allir velkomnir í ferðir með Litlunefndinni. Þess ber þó að gæta að ferðatilhögun miðast við minnst breyttu jeppana sem eru með í hverri ferð. Í þessari ferð er mikið af óbreyttum jeppum og því ekki mjög erfið leið sem farin verður.
kv. Ólafur, Litlunefnd
16.10.2008 at 21:31 #630972Þá er komin ferðatilhögun vegna ferðar
Litlunefndarinnar laugardaginn 18. október n.k.Hittingur er á Shell Select við Vesturlandsveg kl. 8:30. Finnið þar grænan Musso, sem merktur er með fána Ferðaklúbbsins 4×4. Hópurinn leggur af stað stundvíslega kl. 9:00. Haldið er til Þingvalla og hópurinn þéttur þar. Farin er Uxahryggjaleið í átt að Kaldadal og við línuveginn norðan Skjaldbreiðar nemum við staðar og mýkjum í dekkjum. Ökum línuvegin austur um, framhjá Skjaldbreið og stoppum við “þorpið“ undir Tjaldafelli. Eftir stutt stopp þar er haldið áfram austur eftir línuveginum í átt að Kjalvegi. Farið yfir Ásbrandsá upp á Kjalveg og síðan niður að Geysi þar sem formlegri ferð lýkur.
Við áskiljum okkur rétt til að breyta ferðatilhögun ef aðstæður krefjast eða leyfa.
Áætluð vegalengd er uþb 130 km að ferðalokum við Geysi, en þaðan eru um 120 km til Reykajvíkur.
Nauðsynlegt er að huga að því að hafa nægt eldsneyti og gott nesti fyrir allan daginn. Hlífðarfatnað er einnig mikilvægt að hafa. Gott er að hafa góðan loftmæli og pílulykil vegna úrhleypinga. Skóflu og kaðal má hafa með þótt ekki sé víst að það verði notað í þessari ferð.
Annað sem er ágætt að hafa, en ekki nauðsynlegt eru talstöðvar og staðsetningartæki ásamt loftdælu til að pumpa í dekkin að ferð lokinni.
Veðurspáin gerir ráð fyrir þurru og köldu veðri en nokkuð hvössu framan af degi. Frábært ferðaveður !
Þeir sem ekki hafa skráð sig en hafa hug á að koma með, skrái sig á litlanefndin@f4x4.is
16.10.2008 at 14:09 #630970Muna að skrá sig og fylgjast svo með á þessum þræði í kvöld. Þá kemur nánari ferðatilhögun.
Ólafur, Litlunefnd
15.10.2008 at 20:40 #630968Minni á að upplýsingar um ferð litlunefndarinnar koma inn á þennan þráð á morgun, fimmtudagskvöld.
Munið að senda skráningu á litlanefndin@f4x4.iskv. Ólafur, Litlunefnd
14.10.2008 at 17:18 #630966Stjórn Litlunefndar hittist á fimmtudagskvöld og ákveður nánar hvert verður farið.
Ég hvet áhugasama til að skrá sig í ferðina á litlanefndin@f4x4.is
Ólafur, litlunefnd
12.10.2008 at 20:21 #630962Nánari ferðatilhögun kemur hér á þennan þráð þegar ákvarðanir hafa verið teknar um slíkt. En þar sem um dagsferð er að ræða þá verður ekki farið mjög langt.
Um að gera að fylgjast áfram með hér, líklega kemur ferðaplanið á fimmtudagskvöld.
kv. Ólafur, litlunefnd
11.10.2008 at 13:04 #63095810.10.2008 at 22:09 #203051Litlanefndin stefnir á ferð fyrir óbreytta og lítið breytta jeppa um næstu helgi. Um er að ræða dagsferð sem farin verður 18. október n.k.
Ferðin er öllum opin, fyrir félagsmenn sem aðra og er ekkert þáttökugjald.
Ferðatilhögun verður tilkynnt þegar nær dregur.
Vinsamlegast tilkynnið þáttöku í ferðinni á póstfangi litlunefndar: litlanefndin@f4x4.is
-
AuthorReplies