Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
19.09.2010 at 12:09 #702620
Fín ferð. Setti nokkrar myndir inn á myndaalbúmið mitt [url=http://www.f4x4.is/index.php?option=com_jfusion&Itemid=235&g2_itemId=287301:15gbmxuj]hér.[/url:15gbmxuj]
Kv. Óli
19.09.2010 at 09:38 #702860Það er rétt hjá Kidda að þeir sem vilja vera innan skipulags ferðarinnar verða að skrá sig í upphafi. En ef menn vilja yfirgefa hópinn þá er það sjálfsagt, bara ef hópstjóri er látinn vita.
Hinsvegar getum við ekki bannað fólki að elta hópinn, en þá telst viðkomandi auðvitað ekki innan skipulags okkar.
Ég hvet þig Sigurður til að skrá þig og prófa að vera með okkur í Litlunefndarferð
Kv. Óli, Litlunefnd
16.09.2010 at 22:24 #702738Það verður unnið í fræsöfnun frá kl. 13 og fram eftir degi. Ef þér er alvara, þá geturðu hringt í mig þegar þið eruð í nágrenninu og fengið upplýsingar um hvar við erum.
kv. Óli
16.09.2010 at 12:19 #702732Palli, þú lætur hópinn svo koma við í Þjórsárdalnum til að tína birkifræ
kv. Óli
13.09.2010 at 08:48 #702602Félagar athugið að landgræðsluferðir klúbbsins er einn af mikilvægustu þáttum í áróðursstarfi okkar í að vernda ferðafrelsið.
Ég vill hvetja sem allra flesta til að mæta þennan dagpart sem um er að ræða um næstu helgi og leggja sitt af mörkum til gróðuruppbyggingar og jafnframt til góðvildar klúbbsins á vettvangi umhverfisverndar.
Allir að skrá sig
Kv. Óli, Litlunefnd
13.09.2010 at 08:23 #702244Hansi, ertu til í að senda okkur póst á litlanefndin@f4x4.is með upplýsingum um símanúmer og bíltegund oþh.
Kv. Óli, Litlunefnd
12.09.2010 at 12:27 #702240Nú þegar höfum við fengið hópstjóra, en alltaf gott að hafa góðan og traustan hóp með í ferðum. Látið okkur endilega vita ef þið viljið koma með okkur í Litlunefndarferðir.
Kv. Óli, Litlunefnd
07.09.2010 at 21:12 #214393Sælir félagar
Nú er starf Litlunefndar að hefjast og styttist í fyrstu ferð haustsins. Eins og undanfarin ár munum við skipta þeim bílum sem ferðast með okkur í minni hópa. Til að það heppnist vel þurfum við á allri þeirri hjálp að halda sem hægt er. Ef einhver vill aðstoða við ferðir okkar í vetur, eina eða fleiri, þá er um að gera að senda póst á litlanefndin@f4x4.is en einnig má hringja í undirritaðan ef þörf er á meiri upplýsingum.
Ferðir Litlunefndar eru allar dagsferðir og afskaplega skemmtilegar þar sem margir eru að fara í sínar fyrstu jeppaferðir og upplifa í fyrsta sinn það sem reyndari jeppamenn þekkja í ferðamennsku á fjöllum.
Látið endilega heyra í ykkur ef þið viljið koma með í þessar frábæru ferðir.
Kv. Óli, Litlunefnd
844 4247
07.09.2010 at 12:16 #701594Benni, er þetta sími sem styður og getur notað GSM900 (G3L) kerfi símans, eða er þetta bara venjulegur GSM sími ?
kv. Óli
17.08.2010 at 20:35 #700282Líklega er þetta endanlegt sbr. frétt á vef símans [url=http://www.siminn.is/um-simann/frettasetur/nanar/item148152/:2v6sc1fa]hér[/url:2v6sc1fa].
Kv. Óli
12.08.2010 at 15:22 #699776Litlanefndin mun standa fyrir dagsferðum, einusinni í mánuði í allan vetur, eins og undanfarin ár. Fyrsta ferð Litlunefndar verður haustlitaferð í Þórsmörk, 25. september n.k. Síðan verða mánaðarlegar ferðir fram á vor og vonandi njótum við þess að geta farið með litlu bílana í margar góðar snjóferðir í vetur.
Kv. Óli, Litlunefnd
13.07.2010 at 18:23 #695958Það fer nú líka eftir því hversu stór mótorinn er í hjólinu ……
12.07.2010 at 09:32 #698148Það er alveg hægt að vera á fólksbíl í Veiðivötnum. Hægt er að fara hjáleið til að sleppa við öll vöðin, nema kannski vaðið við Snjóölduvatn. En auðvitað er fljótlegra og þægilegra að vera á jeppa.
kv. Óli
23.06.2010 at 19:54 #696876Þau komu vel fyrir, Didda og Elvar. Heyra má viðtalið [url=http://dagskra.ruv.is/ras2/4519147/2010/06/23/:1c27yads]hér[/url:1c27yads]. Athugið að viðtalið er alveg undir lok síðdegisútvarpsins.
kv. Óli
23.06.2010 at 14:06 #696874Í dag ca. kl. 17:30 verður viðtal í síðdegisútvarpinu á RUV, við Diddu í Umhverfisnefnd og Elvar Árna Lund skotveiðimann um verndaráætlun Vatnajökulsþjóðgarðs.
Allir að hlusta og muna að skrá sig á mótmælin og fá alla sem þeir þekkja til að skrá sig einnig.
Kv. Óli
21.06.2010 at 22:54 #696866Flott vinna hjá þeim sem stóðu að þessu.
Nú er boltinn í höndum hins almenna félagsmanns að koma málinu að hjá vinum, kunningjum, vinnufélögum, ættingjum og bara öllum. Fá alla til að skrá sig, en tíminn er skammur aðeins er hægt að senda inn athugasemdir til og með 24. júní n.k. sem er á fimmtudaginn kemur.
kv. Óli
16.06.2010 at 22:08 #696454Er ekki nóg að tjakka hann bara upp til að losa þannig um mögulega spennu, sem gæti haldið læsingunni í skefjum ?
kv. Óli
11.06.2010 at 10:13 #695988Þetta er ca:
N64 05.388 W21 45.810kv. Óli
08.06.2010 at 08:28 #695566Takk fyrir gott svar, Snorri
Ég hjó einmitt eftir því að jeppamönnum er bent á að vera með útiloftnet við gsm símana og einnig að vera með símagerð sem styður nýja langdræga kerfið. Mig langaði einmitt að fá ráðgjöf varðandi hvaða tæki styðja þessar kröfur.
Hitt sem mér fannst líka merkilegt, var hvernig upplýsingafulltrúi Símans heldur því fram að verið sé að hafa samband við jeppamenn og sjómenn til að upplýsa um hvað hægt sé að gera í þessum málum. Það væri auðvitað auðveldasta leiðin fyrir Símann að hafa samband við Fjarskiptanefnd 4×4 til að ná til stórs hóps jeppamanna á einu bretti. Sjálfur hef ég ekki heyrt af neinum sem hafa fengið hringingu eða bréf frá Símanum vegna þessa, er einhver ykkar sem veit um einhvern? Kannski hafa þeir bara byrjað á sjómönnunum og eiga jeppamennina eftir hehe……..
Kannski þið getið fengið svona upplýsingar frá Símanum, Snorri, fyrst Síminn er farinn að láta einhverjar fréttir um þetta berast í fjölmiðlana.
Kv. Óli
08.06.2010 at 08:20 #695654Litlanefndin hvetur alla, hvort sem þeir telja sig telja sig með Litlunefnd eða þeim stóru, að skella sér í landgræðsluferð. Í fyrra voru nokkrir fulltrúar Litlunefndarinnar með og var þetta afskaplega skemmtileg útilega, þar sem einnig var gert gagn við sáningu, áburðardreifingu og trjáplöntugróðursetningu. Það er skemmtilegt að hafa ákveðið svæði sem hægt er að sjá árangur af starfinu milli ára.
Um að gera að skrá sig og skreppa í skemmtilega útilegu.
Kv. Óli, Litlunefnd
-
AuthorReplies