Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
09.04.2011 at 14:21 #726043
Eins og sjá má á forsíðunni hér til vinstri hefur verið opnað fyrir skráningar í aprílferð Litlunefndar í Landmannalaugar. Nú er bara að skrá sig og leggjast á bæn og óska eftir frosti á Landmannalaugasvæðinu í vikunni fram að ferð
kv. Óli, Litlunefnd
06.04.2011 at 22:00 #726041Sæll Hjörvar
Eins og verið hefur í síðustu ferðum Litlunefndar er öllum velkomið að skrá sig eftir að opnað hefur verið fyrir skráningu. Ef ásókn er mikil og lítið um aðstoðarbíla höfum við þurft að takmarka og þar sem þetta er "Litlanefnd", höfum við veitt 35" og minni bílum forgang.
Ég hvet alla sem langar með okkur að skrá sig, svo sjáum við hvernig okkur tekst að útfæra hópana.
kv. Óli, Litlunefnd
06.04.2011 at 14:39 #7260671. Grímsey
2. Hrísey
6. Flatey á Skjálfanda
05.04.2011 at 22:38 #218388Nú er aprílferð Litlunefndar komin á dagskrá. Þetta verður síðasta ferð þessa starfsárs hjá Litlunefnd og verður farið laugardaginn 16. apríl n.k. Við ætlum að reyna að enda veturinn með stæl og stefnum á dagsferð í Landmannalaugar.
Við gerum þó þann fyrirvara að ef hlýindi verða á svæðinu í næstu viku munum við breyta út frá áætluninni og fara á slóðir sem liggja okkur nær, þ.e. á Kaldadalssvæðið.
Við opnum fyrir skráningar um helgina og verður það auglýst hér á vefsíðunni þegar þar að kemur.
Kv. Óli, Litlunefnd
05.04.2011 at 22:27 #722600Sigurvegarar í ratleik vegna góðs frágangs á gögnum sem send voru til okkar var
C – Hópur
Sverrir Kr. Bjarnason
Gnýr Guðmundsson
Sveinbjörn ?
Einar H. JónssonVerðlaun fyrir mynd:
Heiðar Freyr Steinunnarson – [url=http://www.f4x4.is/g2/main.php?g2_view=core.DownloadItem&g2_itemId=299296&g2_serialNumber=1:2hbusq99]sjá mynd hér[/url:2hbusq99]Vinningar í boði Arctic Trucks voru loftmælir og bolur. Þeir sem ekki hafa fengið sinn vinning hafi samband við Litlunefnd.
Kv. Óli, Litlunefnd
02.04.2011 at 16:38 #725705Takk fyrir að upplýsa okkur Jón. Þetta lítur út fyrir að vera hópur sem er á bandi hins venjulega ferðamanns. Það verður spennandi að fylgjast með framvindu mála.
kv. Óli
24.03.2011 at 10:47 #724506Í Fréttablaðinu í dag er mjög góð grein sem lýsir meintu samráði um Vatnajökulsþjóðgarðinn
[url=http://vefblod.visir.is/index.php?s=4914&p=109815:16ukry2z]Sjá má greinina hér[/url:16ukry2z].kv. Óli
23.03.2011 at 08:54 #218133Umhverfisráðuneytið hefur birt svör við spurningum frá opnum fundi um daginn.
Sjá athugasemdir hérMerkilegt hvað þeir telja að fáar athugasemdir hafi borist, þegar nokkur þúsund voru sendar í gegn um F4x4, auk annara athugasemda.
kv. Óli
19.03.2011 at 18:12 #723976Góðan dag
Þá er eftirfarinn kominn til síns heima eftir flottan dag. Þetta var fremur fámenn ferð, aðeins um 20 bílar, en mjög skemmtileg var hún. Haldið var í Bláfjöll með viðkomu á ýmsum völdum stöðum. Frá Bláfjöllum var farið í átt að Hafnarfirði en Breiðdalsleið farin yfir á Sveifluháls. Ekið var með Kleifarvatni og inn á Suðurstrandarveg. Á þessari leið voru nokkrir punktar sem þurfti að finna. Af Suðurstrandarvegi fórum við á Vigdísarvelli en þar lauk ratleiknum.
Hóparnir fóru síðan Djúpavatnsleið til baka og var fremur lítill snjór á leiðinni, en þó ágætir skaflar á stöku stað sem reyndust þokkalega krefjandi fyrir minni bílana. Pumpað var í og ferð slitið þar sem Krýsuvíkurleið og Djúpavatnsleið koma saman. Einhverjir fóru í leit að frekari ævintýrum en aðrir fóru til síns heima.
Ég þakka öllum sem lögðu hönd á plóg og minni hópana á að senda okkur leiðina sem farin var, eitt eintak frá hverjum hóp á litlanefndin@f4x4.is. Einnig valdar góðar myndir sem teknar voru. Á næsta félagsfundi, 4. apríl n.k. veitum við verðlaun fyrir bestu rötun og er það allur viðkomandi hópur sem fær verðlaun. Einnig verða veitt verðlaun fyrir bestu ljósmyndina úr ferðinni.
Kv. Óli, Litlunefnd
19.03.2011 at 09:02 #218040Þá er ratleikur Litlunefndar hafinn. Um 20 bílar lagðir af stað í óvissuna.
Fleiri fréttir síðar.
Óli, Litlunefnd
15.03.2011 at 14:55 #722594Enn er eitthvað af lausum plássum í ratleikinn á laugardaginn. Þetta verður skemmtilegt og það er gaman að segja frá því að við munum veita tvenn verðlaun í boði Arctic Trucks. Ein verðlaun fyrir bestu ljósmyndina úr ferðinni og ein verðlaun fyrir best útfærðu rötunina.
Þetta gæti orðið, ekki bara skemmtilegt, heldur líka spennandi …….
kv. Óli, Litlunefnd
14.03.2011 at 22:08 #722592Á laugardaginn verður [url=http://www.mbl.is/frettir/taekni/2011/03/12/ofurmani_a_himni_naestu_helgi/:2dyd84w5]ofurmáni á himni[/url:2dyd84w5]. Skyldi það hjálpa við rötunina?
Enn eru nokkur pláss laus, um að gera að skrá sig og skella sér í skemmtilega ferð. Þetta gæti jafnvel orðið nokkuð krefjandi, það er snjókoma og éljagangur í kortunum og frostaspá fyrir helgina.
[url=http://www.f4x4.is/index.php?option=com_seminar&Itemid=246:2dyd84w5]Hægt er að skrá sig hér.[/url:2dyd84w5]
Kv. Óli, Litlunefnd
13.03.2011 at 21:19 #723020Ég hefði nú haldið að 3. myndin að ofan væri tekin upp Ferjukotseyrarnar í Hvítá í Borgarfirði, þ.e. rétt ofan við Hvítárbrúnna gömlu.
kv. Óli
13.03.2011 at 12:09 #722590Höfum nú opnað fyrir skráningu í marsferð Litlunefndar, gps-ratleikinn. Sjá frétt á forsíðunni eða [url=http://www.f4x4.is/index.php?option=com_content&view=article&id=1305:skraning-hafin-i-marsfere-litlunefndar-ratleik&catid=75:litlanefnd&Itemid=130:3dheat3x]hér[/url:3dheat3x].
Kv. Óli, Litlunefnd
10.03.2011 at 11:29 #217872Ágætu félagar
Í gærkvöldi var haldinn fundur hjá Ferðafrelsi og var þar ákveðið að leggja áherslu á vinnu sem fer fram þar. Ákveðið var að ég yrði verkefnisstjóri þeirra verkefna sem nú þarf að vinna og með mér eru nú þegar vaskir menn, þeir Jón Snæland, Guðmundur G. Kristinsson og Einar Haraldsson hjá Skotvís.
Það er nóg af verkefnum framundan og ekki leggjandi á þessa fjóra aðila að sinna þeim öllum. Því óskum við eftir að þið ágætu félagsmenn komið að þessu með okkur. Við þurfum amk 8-10 manns í vinnuna með okkur og þannig deilist hún niður og allir fá hæfilega mikið að gera.
Við viljum sjá gamla „hunda“ úr félagsskapnum en ekki síður þá sem nýrri eru til að koma inn í vinnuna með okkur.
Þeir sem vilja leggja ferðafrelsinu lið, sendið póst á mig, olafurmag@gmail.com og við verðum svo í sambandi og boðum til fundar.
Með bestu kveðju,
Óli ferðafrelsiskall
07.03.2011 at 23:44 #217829Góða kvöldið
Marsferð Litlunefndar verður farin 19. mars n.k. Í þetta sinn verður um gps-ratleika að ræða með svipuðu sniði og gert var í mars 2010. Í ljósi þess verður ekki hægt að uppljóstra um það hvert verður farið, en við getum lofað skemmtilegri dagsferð.
Hugsunin er að fólk geti lært á og æft sig í notkun gps tækisins í ferðinni. Ekki er nauðsynlegt að eiga gps tæki til að vera með, þó slíkt sé óneitanlega skemmtilegra.
Opnað verður fyrir skráningu um helgina.
Kv. Óli, Litlunefnd
05.03.2011 at 14:55 #721658Nú mótmæla Skotreyn menn einnig.
[url=http://www.skotvis.is/index.php?option=com_content&task=blogsection&id=6&Itemid=79:24ux6nga]Sjá yfirlýsingu Skotreyn hér[/url:24ux6nga]
Kv. Óli
04.03.2011 at 18:38 #721642Ég er ósammála því að ekkert gagn hafi verið af þessum fundi. Þessi fundur er liður í baráttunni og þó fleiri fulltrúar klúbbsins hefðu mátt vera á staðnum, var þetta tilvalinn vettvangur fyrir okkur að hitta þá sem standa með okkur í baráttunni og koma okkar sjónarmiðum á framfæri við þá sem aðra, eftir að útsendingu fundarins lauk.
Öll umfjöllun er af hinu góða því þá helst umræðan í gangi og því lengur sem hún er í gangi þeim mun meiri líkur á að árangur náist og réttlætinu verði fullnægt.
Kv. Óli, sem var á fundinum (en reyndar í hliðarsal)
03.03.2011 at 14:39 #721442Gísli Einarsson Landastjóri, var í sambandi við mig rétt í þessu og upplýsti mig að hann hafi tekið viðtal við Snævarr vegna sprungukortaverkefnisins og það verði sýnt í Landanum á sunnudaginn kemur.
Kv. Óli
01.03.2011 at 19:22 #721554Ágæt umfjöllun og gott viðtal við Sveinbjörn í fréttum Stöðvar 2.
kv. Óli
-
AuthorReplies