Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
26.02.2003 at 10:11 #469430
Sleðamenn kalla þetta svæði SÓKNINA, en ekki veit ég hvaðan það er upprunnið eða af hverju. Kannski til aðgreiningar frá GIRÐINGUNNI, sem er Landmannalaugasvæðið. Það er kannski einhver fróður sem getur útskýrt það nánar. En það er alveg ljóst að þetta er ekki Lyngdalsheiði þó svo að það sé þægilegt að nota það nafn og maður gerir það allt of oft að nota það….
Kv, R-2170.
25.02.2003 at 14:50 #469318Hafa menn virkilega ekkert betra við tímann sinn að gera?
25.02.2003 at 14:40 #469204Björgunarsveitir rukka ekki fyrir björgun og eiga ekki að gera það. Fólk leggur inn í "bankann" með því að kaupa flugelda af björgunarsveitunum og á að geta tekið út þegar það þarf á því að halda. Hræðslan við reikning á ekki að aftra mönnum að kalla til aðstoð. Við vitum öll að það getur haft alvarlegar afleiðingar ef fólk veigrar sér við að kalla til björgunarsveitir út af kostnaði. Gott dæmi um þetta er þegar Vikartindur fórst af því að skipstjórinn vildi ekki borga björgunarlaun fyrr en það var of seint! Þessi ranga ákvörðun og hræðsla við há björgunarlaun kostaði mannslíf, skipið og farm. Þetta viljum við ekki fá inn í björgunarsveitageirann. Aftur á móti getur hver og einn styrkt björgunarsveitirnar að eigin frumkvæði, en ekki á að rukka fyrir aðstoð. Verðmætabjörgun er svo annað mál, en oft er samið um björgunarlaun fyrirfram og verkið unnið í samræmi við það.
20.02.2003 at 17:04 #468914Veit enginn hvernig er ástatt með snjó á Lyngdalsheiðinni?
Jeppa/sleðafært?
Kv, R-2170
20.02.2003 at 13:15 #192202Veit einhver hvernig snjóalög eru núna?
Er orðið fært aftur inn í Landmannalaugar?
Er einhver snjór á Lyngdalsheiðinni?
Er hægt að komast á jeppa/sleða frá Lyngdalsheiðinni og upp á Langjökul?
Einhverjar snjóupplýsingar?Með von um meiri snjó,
Ólafur
R-2170.
07.02.2003 at 11:07 #468008Það var reyndar mágur minn sem fékk "ónýta" cbíið og í raun dauðsé ég eftir því að hafa verið svona "góður" við hann! En annars er það í lagi þar sem hún er aldrei notuð og bara til "skrauts"! Hún er líka góð í það! :o)
Kv, R-2170.
06.02.2003 at 12:13 #468002Ég átti Presedent Harry CB stöð. Hún virkaði aldrei og eftir heilan vetur af pirringi þá gaf ég hana. Algjört drasl sem virkar ekki! VHF er eina lausnin sem virkar, en ef menn eru fastir í fortíðinni þá hef mæli ég með Midland CB stöð frá RSH. Hún kostar svipað og Harry, en virkar!
Kv,
R-2170.
05.02.2003 at 18:17 #467538Rás 45 er svokölluð veiðirás og víst opin öllum sem eru með VHF, hvort sem þeir eru í F4X4 eða ekki. En þegar verið er að tala um allar hinar rásirnar og sérstaklega endurvarpana, þá finnst mér að menn ættu að sjá sóma sinn í að taka þátt í kostnaðinum. 3900 kr á ári er bara enginn peningur til að viðhalda og byggja upp VHF kerfið okkar.
Maður fær svo miklu miklu meira fyrir peninginn en bara suð- og surglaus, langdræg fjarskipti.
Tökum sem dæmi Setrið og fleiri skálar, fréttabréfið einu sinni í mánuði, fundirnir, opnu húsin, félagsskapurinn, ferðirnar, tækninefndin, afsláttakortið, og ég tala nú ekki um þessa frábæru heimasíðu. Maður fær mikið fyrir þennan litla pening og ég hvet alla til að gerast félagar, borga árgjöldin og halda áfram þessari uppbyggingavinnu sem klúbburinn hefur staðið fyrir undanfarin ár.
Kv, ÓAG.
R-2170.
05.02.2003 at 17:45 #467940Er með snúningshraðamælinn tengdann inn á alternator.
Ég reyni yfirleytt að fara ekki yfir 3200 snúninga, nema í neyð…
Hef þó farið upp í um 4000 og þá fer maður að hafa áhyggjur af vélinni….
Kv, R-2170.
27.01.2003 at 20:53 #467142Talaðu við Rikka hjá R. Sigmundssyni. Hann reddar öllu varðandi GPS.
Í mínum huga kemur ekkert til greina nema Garmin.
Er með Garmin GPSMAp 162 en mundi fá mér í dag Garmin GPSMap 182C.
Kveðja,
R-2170.
14.01.2003 at 11:16 #191989Hvaða skoðun hafa menn á No Spin læsingum.
Er þetta eitthvað að virka? Og hvernig virka þessar læsingar?
Hver er munurinn á þessu og t.d. 100% loftlæsingu?
Hvernig er bíll með No Spin að framan og aftan í borgarakstri vs. snjóakstri?
Er einhver sem getur frætt mig um þetta?
Kveðja, Ólafur.
R-2170.
10.01.2003 at 14:11 #466198Takk fyrir upplýsingarnar.
Kveðja, R-2170.
10.01.2003 at 14:02 #466242Þessi svipar svolítið til MegaCruiser, sem var hannaður fyrir japanska herinn og var mjög líkur Hummer…
R-2170.
09.01.2003 at 11:13 #191959Sælir.
Er að fara inn í Hvanngil um næstu helgi og vantar upplýsingar um færð inneftir. Hefur einhver verið þarna í vikunni? Hefur snjóað eða rignt síðustu daga? Hvernig eru snjóalög og hvað þarf stór dekk til að komast þangað? Eiga óbreyttir/lítið breyttir bílar eitthvað erindi þangað?
Í hvaða hæð er Hvanngil og er einhver veðurstöð sem gæti gefið mér sambærilegar upplýsingar og eru í Hvanngili?
Kveðja, R-2170.
06.01.2003 at 17:01 #466034Toyota flutti inn einn LC 105 UN bíl og er hann björgunarsveitarbíll á 38" í dag. Það var mikið vesen að að fá þennan bíl samþykktan inn í landið vegna mengunarvarnareglugerðarfaragani. Þetta var fyrsti LC 105 bíllinn sem var fluttur inn og var hann án tölvustýrðu olíuverki, turbínu og intercooler og einnig engar læsingar.
Úr þessum bíl var svo smíðaður mjög flottur og skemmtilegur jeppi á 38". Hinir tveir voru fluttir inn framhjá umboði og er annar á 38" en hinn á 44". Fjórði bíllinn gæti verið til, en ég veit það ekki fyrir víst. Mér skilst að bílarnir sem voru fluttir inn framhjá umboðinu sé ekki UN týpur og meira í þá lagt. Það er kannski einhver sem veit meira um þetta en ég.
Kv,
R-2170.
06.01.2003 at 16:14 #466028Sú ákvörðun að kalla nýja LC 120 sama nafni og gamli LC 90 er víst pólitísk ákvörðun frá stjórnendum Toyota hér á Íslandi. Þetta á víst m.a. að einfalda markaðsetninguna og hafa ekki of mörg númer til að rugla kaupandann. Þeir hjá Toyota hafa greinilega ekki mikið álit á kaupendunum ef einhver númer eiga á rugla þá! Persónulega held ég að þessi bíll selji sig alveg sjálfur óháð númerum! Ég myndi alla vega kaupa mér einn á 38" ef ég ætti nóg af peningum, hann er ekkert smá flottur!
Þessi númer eru í raun miklu flóknari en gefið er upp. T.d var hætt að selja LC 90 fyrir þónokkru síðan og tók LC 95 við með 4D vélinni. Vélin er það eina sem er sameiginlegt með LC 95 og LC 120, en LC 120 er annars alveg nýr bíll frá grunni og þ.a.l. ekkert skyldur LC 90. Það er bara hætt að framleiða LC 90 og LC 95 og kemur LC 120 í beinu framhaldi þar af og því auðvelt að kynna hann sem "nýjan" LC 90 til að "flækja" ekki málið of mikið! Eitthvað hef ég heyrt um að væntanlegur sé nýr LC 100, en hann mun væntanlega heita frá verksmiðjunni eitthvað annað en LC 100 eins og t.d. LC 130 eða LC 140, hver veit! En eitt er víst, hann verður örugglega markaðssettur sem "nýr" LC 100 á sömu forsendum og LC 120 er markaðssettur sem "nýr" LC 90. LC 105 er aftur á móti mjög skemmtilegur bíll sem ég hef þónokkra reynslu af, en aðeins eru til um 3 eintök af honum hér á landi en mættu vera fleiri. Ef einhver er að velta því fyrir sér hvað LC 105 er þá er það "NATO" útgáfan af LC 100 (standard). Heil hásing að framan, en LC 100 bodýið. Aftur á móti væri lang best ef það væri ennþá framleiddur LC 80 en það er miklu meiri jeppi en nokkurn tímann allt annað í LC númeraröðinni. Náðu ekki allir þessu? Einfalt ekki satt!
Mér er alveg sama hvað þeir hjá Toyota segja en þetta er bara Landcruiser 120 í mínum huga og mun ég ekki kalla hann neitt annað. Þegar tveir aðilar eru að tala um hvernig bíl þeir eiga og báðir segjast eiga LC 90, en annar er í raun með LC 90 (eða LC 95) og hinn með LC 120, þá er það alveg ljóst að þeir eru með tvo ólíka bíla og eru að bera saman svart og hvítt. Skv. Toyota eru nú þegar til þrjár mismunandi tegundir af LC 90 og finnst mér það ekki einfalda málið því enginn veit hver þessara þriggja gerða er í umræðunni. Þess vegna er verið að nota númerin til að aðgreina bílana, en ekki til að auðvelda markaðssetningu.
Ég hvet því alla til að nota LC 120 um nýja Landcruiserinn til aðgreiningar. Barbí er svo eitthvað sem fylgdi "gamla" LC 90 bílnum, en nýi LC 120 er eitthvað miklu meira. Hann er kannski bara "Ken"!!! Hver veit!
:o)
LC XXX-kveðja,
R-2170.
17.12.2002 at 10:56 #465516Ég var búinn að bíða lengi eftir þessu korti og er nú búinn að vera með það í GPS tækinu mínu (Garmin MAP162) í eitt ár og er þetta hverrar krónu virði. Það er alveg rosalega þægilegt að hafa þetta og mæli ég eindregið með að fólk fái sér svona kort.
Kv, ÓAG.
R-2170.
16.12.2002 at 13:38 #465512Ég held að það sé 15.000 ef tækið er með innbyggðum mynniskubb.
Ef ekki, þá kostar kubburinn um 5.000, samtals 20.000.
Talaðu við Rikka hjá R.Sigmundssyni, hann gefur þér allar upplýsingar.
Kv, Ólafur.
R-2170
12.12.2002 at 16:01 #465110Hvar er hægt að fá fullbreytta Lada Sport?????
Á einhver svoleiðis og er tilbúinn að taka Landcruiser 120 upp í……………..
11.12.2002 at 13:43 #465184Þegar jeppinn fór niður í Þursaborg um síðustu páska þá lentu menn í fjarskiptavandræðum milli félaga 4×4 sem voru staddir á vetvangi og björgunarsveitabílanna sem voru á leiðinni á staðinn. Menn þurftu t.d. að kalla í gegnum þriðja aðila sem var með allar rásirnar til að koma skilaboðum áleiðis. Eftir það atvik skilst mér að björgunarsveitir Landsbjargar hafi fengið aðgang að endurvörpum 4X4 og beinu rásinni, þ.e. 44, 45 og 46. Þessar rásir voru t.d. settar inn í allar talstöðvar í eigu HSSK og eru þær þar eingöngu til öryggis. Björgunarsveitirnar nota svo sitt kerfi fyrir eigin fjarskipti.
Kv, R-2170.
-
AuthorReplies