Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
26.10.2005 at 00:01 #527682
mér finnst það nú ekki vera í verkahring Skúla að útskýra neitt. Heldur kom hann með þá ágætustu uppástungu að hlutlausir aðilar einsog Sveinlaugur í Nýbarðanum skoðaði dekkinn. Enda eðliglegra að fá hlutlausan fagmann til þess, svona til þess að fá fleiri sjónarmið fram. ekki satt.
19.10.2005 at 23:46 #529634Var það ekki JCB grafa árgerð 1981 sem bjargaði þér úr Tungufljóti. Var það ekki Runner árgerð 1990 sem bjargaði þér af Kaldadal. voru það ekki gamlingar árgerð 1950-1960 sem björguðu þér úr Setrinu forðum daga. Var það ekki gamli Patrolinn þinn sem bjargaði þér ú Skjálfandafljóti, þegar þú varst búinn að koma þér í vandræði.
Bara svona að pæla
15.10.2005 at 22:09 #529438Þ.a.s jökulhlutinn sunnan við Hvítárvatn, og norður jökull er frekar nýtilkominn ofaní Hvítárvatn. En af hverju nota menn ekki örnefnið Bláfellsjökull í dag
14.10.2005 at 23:48 #529284mér skilst að eitt af vandamálunum sé það að það sé búið að leggja meir og minna niður varahlutaframleiðslu í nmt kerfið. En heyrði þó að austantalsþjóðirnar hefðu áhuga á. á því að byggja upp nmt kerfi. En sel það þó ekki dýrara.
Hvað varðar það að félög líkt og FÍ-4×4-Útivist eða Landsbjörg taki þetta að sér, þá tel ég það litlar líkur á því. Þar sem Síminn segir það vera tóm tap á þessum rekstri
14.10.2005 at 23:26 #529426samband við Ferðafélag Íslands í Mörkinni
13.10.2005 at 23:32 #52706602.10.2005 at 21:46 #525914Það er reyndar ekki rétt hjá þér þetta síðast, ég held nefnilega að menn séu lítið að ferðast saman á sumrinn t.d ferðast Rottugengið lítið saman sem hópur að sumri og mér sýnist það á sumarmyndum almennt að menn sé þetta á 1-3 bílum
02.10.2005 at 16:28 #528354Það verður að fara að panta enda fer Einar Sól alveg hamförum í miðasölu, svona að drífa sig gemlingar fyrst þið eruð komnir til byggða
02.10.2005 at 16:26 #525910nefndinn var stofnuð, og í henni er ég ásamt Agnesi, þannig að við sem áttum hugmyndina urðum sjálf að taka það að okkur að vera í nefndinni, þetta er nokkuð lýsandi fyrir mikið af starfinu. Þ.a.s það lendir mest á sömu einstaklingunum. Því er það helvíti hart að lesa pistilinn langa þar sem menn fara hamförum vegna einhverra hundraðkalla, en hinsvegar nennir svona lið ekkert að gera nema pikka á tölfuna sína heima í stofu. en við meigum ekki láta þetta hafa áhrif á okkur heldur halda áfram á sömu braut. sorrý djöful getur maður nöldrað Sorrý. Sorrý
02.10.2005 at 08:18 #525904Þennan pistil birti ég fyrir nokkru og er nokkuð merkilegt hvað hann vakti litla athygli. Þar sem hann fjallar um það sem okkur finnst skemmtilegast. Þ.a.s að ferðast. En ég vill endilega prufa á ný og sjá hvort menn hafi skoðanir á ferðum klúbbsins eða hvort þetta sé að fara á þann veg að menn bara vilji láta mata sig skipulögðum ferðum að hætti FÍ og Útivistar eða hvort þeir vilji hafa áhrif á málin, leiðarval, fjölda ferða m.m
01.10.2005 at 18:23 #528338greinilega hlaupin í formannin og þarf með þessu áframhaldi að fara að setja rautt viðvörunarmerki efst í hægra hornið hjá honum er hann ætlar að halda svona áfram
01.10.2005 at 15:32 #528328Karlar þurfa nú ekki að hafa áhyggjur af svo fjarlægum áfangastöðum. En austfirðingarnir svara þér kannski þegar þeir eru búnir að byggja álverið og þétta misgengið við Kárahnjúka.
01.10.2005 at 15:04 #528324Hann heitir Nafnlausi fossinn. En þessi austfirðingar eru stór furðulegir, eða kannski gleyma þeir alltaf hvar skálarnir eru. Því nota þeir eftirfarandi
Austurheiðarkofi= á Austurheiðinni
Vesturheiðarkofi= á vesturheiðinni
Miðfjarðarkofi= í miðfirðinum
Dragakofi= já já í drögunum
Vatnsendi= já við vatnsendan og svona koll af kolli.
En hvurn fjandan meina mennirnir með Eggjahús og tvö freka en eitt. Skyldi þó aldrei hafa verið gamlir hænsna kofar. Ég held að þeir verði að útskíra þetta fyrir okkur Flatlendingunum.
01.10.2005 at 09:00 #528316að finna út hvað er réttast hveju sinni, ég hef oft notað þá aðferð að nota nafn heimamanna eða eiganda skálanna, en þó er það ekki á vísan að róa í öllum tilfellum. T.d
Rústaskáli-Rústakofi-Klasar-Orravatnsrústir.
Skálarnir í Ásgarði eða Árskarði
Eða Kisa eða Kísá eða jafnvel Kjálkaversá
01.10.2005 at 07:17 #528304fást hjá R Sigmundssyni
30.09.2005 at 18:06 #528274Núna eru Áshreppingar í eftirleitum inn á Sprengisandi og hægt er að ná sambandi við Svein Tyrfingsson í síma 852-2161 og forvitnast um færð.
28.09.2005 at 22:41 #528226Það er þegar byrjað að vinna í þessu. Og er rétt að benda vefnotendum á að skrá sig inn undir nafni og kennitölu annars lenda þeir undir Delete takkanum.
27.09.2005 at 19:50 #528084Átt þú Runner ????????“’ ég hélt að þú væri á Gaz 42
27.09.2005 at 19:48 #528054Ég veit nú ekki alveg hvað þú er að fara en ég sá að þú er skráður í félagatalinu í Admin kerfinu
24.09.2005 at 19:41 #527464Ég var að heyra í honum Skúla formanni en hann er fararstjóri í Útivistarhóp sem er á leið frá Veiðivötnum um Jökulheima-Breiðbak og á að gista í Hólaskjóli í nótt. Þeir eru búnir að vera í miklu brasi. En þungt færi er nú á Breiðbaksleið og eiga þeir 10 km í suðurenda Langasjáfar. Mikið er dregið og lentu þeir í því núna fyrir skömmu að það slitnaði spotti með þeim afleiðingum að 3 rúður brotnuðu í læner og afturrúða í þeim sem var að draga, þegar ég var búinn að fá þessar frétti þá datt síminn hjá Skúla út. Batteríslaus að mér skilst.
-
AuthorReplies