Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
25.01.2007 at 23:47 #577430
afsakið við skrensuðum aðeins út fyrir efnið. Hvar eru allar hetjurnar ætla menn ekki að bjóða fram aðstoð
25.01.2007 at 23:41 #577428þeir eru ekkert í vélaviðgerðum, er það ekki samlokufyrirtæki.
25.01.2007 at 23:28 #577418Hann Slúdó eða Plútó eða hvað hann heitir nú sá ágæti bílaböðull frændi þinn. Hann vaknar aldrei svo snemma. Hvað er undir húddinu, ja það veit fjandinn, en það er eitthvað Japanskt, púslað saman á íslandi og sennilega hannað í Hong kong. Annars er ég ekki viss, það þarf aldrei að opna húddið nema þegar ég steiki beikon á túrbínuninni.
25.01.2007 at 23:15 #577414það þýðir ekkert að væla í vefnefndinni, við sendum hana alla til sólarlanda og eru þeir einmitt þar að staupa sig á kostnað fátækra félagsmanna
25.01.2007 at 23:12 #577410Hringdu í Ingva Reyk flugsveitin á spil, vældu það út úr þeim 8948509. Og Ingvi svarar Er-að-coma, þá ertu á réttum stað Bazzi
25.01.2007 at 23:10 #577408ég held að Sæmi sé hægt og hljótt að breyta Fordinum í 600 Benz. Áfram Sæmi
25.01.2007 at 22:46 #577198Jæja kæru félagar, þá er komið að því sem allir hafa beðið eftir:
Þorrablót F4x4 í Setrinu helgina 2-4 febrúar 2007.
Skráning á blótið er í tölvupósti f4x4@f4x4.is, eða síma 8974427 þeir sem hafa áhuga þurfa að vera búnir að skrá sig fyrir 30. jan 07 og greiða kr 5000 inn á reikning klúbbsins 1175-05-411586 kt. 701089-1549 Senda kvittun í tölvupósti á f4x4@f4x4.is.
Fyrstur kemur fyrstur fær, vertu snöggur/snögg því færri komust að í fyrra en vildu.
Kv
Nefndin.
25.01.2007 at 22:42 #577394humm hum hjá hverjum brotnaði drifskaftið undan á þjóðvegi 1 í Blöndudal. Hum hum hver var skilin eftir við Jaka í viku hum hum. Hvern er verið að sækja inn á Sprengisand getur það verið Ford hum hum ???? eða, Hvar var 46 tommu fordinn hans Sæma í Miðjuferðinni, kannski á verkstæði eða. Hversvegna notar Hlynur ekki stóra fordinn sinn nema út í Nóatún ????????. Bara svona vangaveltur og pælingar já af hverju seldi ég aftur Fordinn minn. hugsa huga hugsa já nú man ég hann var alltaf að bila. Hvernig gat ég gleymt því he he he. Sendið konurnar á sleðunum í kvennaferðina, svona til öryggis
25.01.2007 at 22:21 #577194er föst einhverstaðar he he
25.01.2007 at 20:38 #576844ég er búinn að prófa allra útfærslur af þessu, en ekkert gengur.
25.01.2007 at 19:46 #576838Litlanefnd http://litladeildin.a47.net/users.php?m … 4cac730db2
Litladeildin
http://litladeildin.a47.netÞar sem auglýst er að nefndarmenn svari fyrirspurnum á spjallsvæði Litludeildarinnar. Datt mér í hug að logga mig þar inn. Ég verð að segja það að það gekk frekar illa og virðist ég ekki finna út hvað er lykilorðið mitt. Gæti einhver skýrt út fyrir mér hvað að ofantöldu er lykil orð. Svo kannski að öðru. Af hverju notar Litlanefndin ekki spjall f4x4.is til samskipta líkt og flestar deildir eru farnar að gera, ég hélt að það dragi fleiri að og nefndinni þar sem mun fleiri lesa spjall f4x4.is en lokað spjall Litlunefndar
24.01.2007 at 19:41 #576914Ég gert nú byrjað á því að svara Inga, en hann segir. Af hverju í ósköpunum getur maður ekki fengið félagsskírteini í debetkortastærð. Ég skil nú ekki þessa fullyrðingu eða spurningu, þar sem félagsskírteinin eru einmitt í debetkortastærð. Hvað varðar slitinn skírteini, þá gert ég ekki ímyndað mér að það sé mikið mál að fá nýtt skírteini og er einfalt að snúa sér til skrifstofunnar, eitt símtal eða póstur. En ég sé ekki þörfina á því að senda árlega skírteini á alla þó svo að einhverjir þurfi að endurnýja árlega. Ég skoðaði mitt skírteini eftir þessa lesningu og það var bara í þokkalegu standi og reikn ég með að svo sé hjá megin þorra félagsmanna.
Hvað varðar þessa fullyrðingu um það að félagsgjöld séu allmennt 6000 kr, þá kannaði ég það hjá Útivist og verður félagsgjaldið það 4500 kr fyrir félagsárið 2007. Hjá Ferðafélagi Íslands var það 4200 fyrir árið 2006. Og eru það félög sem við ættum að miða okkur við. En ekki Golfklúbb Suðurnesja eða Átthagafélag Önfirðinga.
Svo gert ég bent mönnum á það að næstu hækkanir hafa þegar verið ákveðnar af Póst og fjarskiptastofnun íslands. En sú ágæta stofnun þarf 200-300 krónur frá hverjum félagsmann fyrir sýna frábæru þjónustu
23.01.2007 at 21:13 #576798hvað þýðir orðið Knulla
23.01.2007 at 21:10 #576788Árni hefur alltaf verið stoð og stytta jeppamanna.
Getum við ekki bara komið kallinum á þing.
23.01.2007 at 17:29 #576782Einar, af hverju. Segðu okkur það
22.01.2007 at 22:12 #576640Ég er með 17 tommu
22.01.2007 at 00:13 #576522ég verð alltaf að taka þær út, annars lendi ég í þessu
22.01.2007 at 00:11 #574664Það er alveg rétt við fórum ekkert, svo þú varst ekki að tapa af neinu. Svo getur þú fengið þetta skaft aftur. Það passaði ekki. Svo breyttist ferðin í Ofsafengna leit að Tryggva, sem sat allan tíma heima ofaná spilinu hennar Barböru. Svo ljóti karlinn kæmi ekki og tæki það.
21.01.2007 at 22:54 #574652Nýi skálin.
Sæll Magnús, nýi skálinn er einn salur. Og er nokkuð rúmgóður fyrir einn mann. Í honum eru bólstraðir stólar að hætti frænda okkar í vestri. Já ljósavélin er 6,2 dísel. Eldunaraðstaða er ekki fyrir hendi en þó er komið eldhúsborð í skálann.
21.01.2007 at 22:35 #574646Jæja ok Maggi, við lentum í því að týna einum, og var byrjað að leita og var leitaður þjóðvegur 1 norður í land. Síðan leituðum við suður Kjalveg og vítt og beitt um Sprengisand og loks leituðum við í Setrinu í nótt. Héldum við um tíma að Tryggvi hefði flækt sig í drifskaftinu hjá Lúther, en svo birtist hann hér á spjallinu. Þannig að allt er komið undir control hjá okkur. Þó má kannski geta þess að Ferðaklúbburinn 4×4 hefur eignast nýjan skála á miðjum Sprengisandi við Sprengir. Og verður Danni skálavörður. Einnig verður hægt að nálgast lykla hjá Danna.
En eitt PS, vandamálið við þessa Tryggva leit að við vitum ekki hvað Tryggvi þetta er enda er hann slægur og gengur undir hinum ýmsu eftirnöfnum. En við komum til að klára málið dularfulla
-
AuthorReplies