Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
22.08.2009 at 12:09 #654946
Kolbrún Halldórsdóttir
Kolbrún kemur víða við í pistli sýnum. Þarna eru margt sem særir jeppamenn og aðra sem hafa stundað hálendis ferðalög um langan tíma. Sérstaklega særir það, þegar því er haldið fram að enginn árangur hafi náðst fram í áratugi. En þetta skrifa Kolbrún sennilega af góðum vilja en samt sem áður af vanþekkingu. Vanþekkingin er reyndar rauði þráðurinn í pistlinum. Sem er sorglegt í ljósi þess að hér skrifar fyrrverandi umhverfisráðherra. Þó er það ekkert nýtt fyrir okkur jeppamenn að umhverfisráðherrar hafi ekki mikla þekkingu á hálendinu og slóðakerfinu þar, þetta sama á einnig við svokallaða sérfræðinga umhverfisstofnunar og sérstaklega umhverfisráðuneytisins.
Kolbrún fjallar um nokkur megin mál í pistli sínum og eru þau þess eðlis að ekki verður komist hjá því að svar þeim. Því miður er ekki hægt að gera það í stuttu máli Kolbrún, þú verður því að hamra þig í gegnum pistil minn, þar sem þú ákvaðst að leggja út í þessar árásir á okkur jeppamenn.Slóðin í Friðlandinu.
Hvernig er hún tilkominn. Um Arnafellsveg var farið fyrr á tímum ef ekki var talið fært um vaðið á Þjórsá við Sóleyjarhöfða, þegar fara átti Sprengisandsleið. Þótti það ekki góður kostur að fara þessa leið vegna fjölda stórra jökulfalla og fenjasvæða. Ávallt hefur hvílt ævintýra ljómi yfir þessari leið meðal jeppamanna, og er það kannski fyrst og fremst vegna þess hversu fáfarin og erfið leiðin er talinn. Árið 1950 var leiðin ekin í fyrsta skipti. Var það vegna atbeina Einars Magnússonar frá Miðfelli. Fékk hann til liðs við sig 44 manns og var farið á þrem bílum. Tveir bílanna voru í eigu Guðmundar Jónassonar og einn í eigu Páls Arasonar. Segir Einar frá því í bókinni Hálendið heillar að hann viti ekki til þess að leiðinn hafi verið ekinn síðar, en bókin kom út 1975, enda dæmdu þeir félagar leiðina ófæra. Þetta reyndist ekki rétt hjá þeim félögum, enda hefur verið farið þarna í göngur lengi á vélknúnum ökutækjum og einnig við sporðamælingar jökla. Einnig haf jeppamenn ekið þarna að hausti. Haldið er af stað inn á leiðina frá Setrinu skála Ferðaklúbbsins 4×4 undir Blautukvíslarjökli. Ekið er til suðausturs frá Setrinu, um Fjórðungssand og framhjá sjálfvirkri veðurathugunarstöð. Þá er ekinn austasta slóðin um sandinn. Og sunnan við Hnífárbotna og Steingrímsöldu og yfir Hnífá. Fljótlega er komið að fyrsta farartálmanum sem er Blautakvísl. Blautakvísl getur verið varhugaverð ef ekki er á henni heldur ís. Er það vegna þess að víða eru í henni sandbleytur. Austan við kvíslina tekur við stór alda sem heitir Nautalda og er skemmtilegt að aka upp á ölduna og virða þaðan fyrir sér umhverfið, og skoða þar gamla gæsaréttir sem eru í öldunni norðanverðri. Sunnan við Nautöldu er Oddkelsver. Í Oddkelsveri er talið að Oddkell útilegumaður hafi borið beinin eftir viðureign við biskupssveina. Þjóðsagan segir að Oddkel og kona hans hafi verið dysjuð í öldu sem kallast Oddkelsalda. Undir Nautöldu austanverðri stendur ” Nautöldu skálinn, sem var rannsóknarsetur Orkustofnunar 1970-1974. Rétt austan við skálann handan Miklukvíslar er Nauthagi sem Nautalda dregur nafn sitt af, en þá er Jón Guðmundsson síðar ritstjóri Þjóðólfs fluttist með búslóð austan af Síðu 1847, struku tarfar tveir í eigu hans, úr sínum nýju heimkynnum og leituðu átthaganna Lentu þeir heldur en ekki úrleiðis og fundust haustið eftir uppi undir Hofsjökli, þar sem síðan heitir Nauthag”i. Úr árbók FÍ 1967
Varlega þarf að fara í nágrenni skálans í slæmu skyggni að vetri vegna yls í lækjum og uppsprettum neðan við skálann. Frá Nautölduskálanum er hægt að aka inn með Ólafsfelli inn í svokallaðan Jökulkrika. Þegar ekið hefur verið u.þ.b miðja leið verður á vegi ferðalanga heitur lækur, sem eru með passlegur baðhita, og voru þeir stíflaðir og nýttir til baða þegar vísindamenn voru við störf og bjuggu í Nautölduskála. Inn í Jökulkrikanum kemur Miklakvísl undan Blautukvíslarjökli og myndast þar stundum íshellir, sem þó var fallin saman veturinn 2005. Innst í krikanum austanverðum er mikilfenglegt gil og ofan við það og norðaustan við Ólafsfell er uppþornað jökullón og ofanvið það fjallið Steðji sem nýtilkomið hefur einnig verið kallað Lónstindur. Aðal leiðin liggur hinsvegar frá Nautölduskálanum og yfir Miklukvísl. Þá er farið um 200 metrar til norðurs af skálanum til þess að komast að mestu fyrir háa bakka Miklukvíslar. Handan kvíslarinnar er ekið fyrir Ólafsfell og inn í krika milli ólafsfells og Múlajökuls ( Arnafellsmúlajökull ). Þar er Nauthagajökull og austan við Nauthagajökul er Hjartarfell. Undir Nauthagajökli er hitasvæði og var til skamms tíma náttúruleg laug þar, en í vorleysingum 2003 skolaði henni burt. Var hún endurbyggð sumarið 2004 af hópi manna sem voru þar í sporðamælingum á skriðjöklum. Frá lauginni er örstutt í jökulinn og er hann mjög tignarlegur þar sem hann rís stundum nánast lóðréttur upp af eyrunum. Og stundum er þar mikill íshellir þar sem Ólafskvíslin kemur undan jöklinum. Þetta er reyndar mjög breytilegt og stundum virðist áin hverfa með öllu. Frá jöklinum er haldið um eyrar Ólafskvíslar og Fremri Múlakvíslar og stefnt á suður hluta Múlajökuls. Fremri Múlakvísl er ein af minni jökulánum á leiðinni. Ekið undir hálfmánalöguðum Múlajökli og yfir Innri Múlakvísl. Þarna eru gamlar en greinilegar ökuslóðir, sennilega að mestu eftir gangnamenn og vísindamenn Orkustofnunar. Við norðurenda hans tekur við Kerfjall og síðan Arnarfell hið mikla 1143 metra hátt. Þegar komið er norður fyrir Múlajökul þarf að aka yfir Arnafellskvísl. Arnarfellskvíslin er mesta vatnsfallið á leiðinni, en við g.p.s punktinn er nokkuð fastur botn í ánni en brattur er upp úr ánni að norðanverðu. Frá vaðinu að sumri sést fögur Arnarfellsbrekkan skrýdd gróðri sem á ekki sinn líka á hálendi landsins í þessari hæð. Í brekkunni hafa fundist 97 tegundir blómaplanta sem er býsna mikið í þessari hæð. Upplagt er að staldra við undir hlíðum Arnarfells, enda skjólsamt þar fyrir norðlægum og vestlægum áttum. Þar er talið að Fjalla Eyvindur og Halla hafi búið ásamt dóttur sinni Guðrúnu. En árið 1762 fannst þar útilegumanna byggð, sem nú er týnd og hefur jökulinn sennilega átt það hlut að máli. Að vetri til sést ekki mikið til gróðursins nema kannski stöku hvönn sem nær að kíkja upp úr snjónum. Frá Arnarfelli hinu Mikla er ekið um miklar eyrar Arnarfellskvíslanna, Þar sem leiðangur Einars Magnússonar og félaga lenti í miklum hremmingu 1950. Á eyrunum er ekið yfir Innri Arnarfellskvísl sem er mun vatnsminni en Arnarfellskvíslin. Ofan við ána taka við miklar jökulöldur sunnan við Þjórsárjökul. Fyrsta Þjórsárkvíslin er austarlega í jökulöldunum og þar þarf að fara varlega því kvíslin hefur skori sig niður í öldurnar og eru víða mjög háir lóðréttir malar bakkar að vestanverðu. Kvíslin sjálf er frekar auðveld viðfangs og svo er reyndar með alla Þjórsárkvíslarnar, auk þess er austasta vaðið stikað. Þegar komið er yfir síðasta vaðið eru ekið um ása og má sjá þar fjölda slóða sem eru líklega frá þeim tíma er Þjórsárstífla var í byggingu, aðal slóðin virðist mikið ekinn frá Þjórsárkvíslum austur að stíflunni. Þegar farið er að nálgast Punkt númer 35 vestan við Þjórsárlón þarf að fara varlega því ekið er á Þjósárstíflunni neðan við lónið og er það stór varasamt í slæmu skyggni. Handan við stífluna er komið á Kvíslaveituveg og eru þar leiðarlok. Leið þessi er einungis fær fyrir vana jeppamenn og vatnamenn auk þess er ráðlegt að hafa spil með í för. Þeir sem vilja halda áfram til norðurs úr Þjórsárverum að vetri til, geta ekið inn í jökulkrikann við Arnarfell hið litla sem er mjög falleg leið. Framhjá þar sem Rótarjökull steypist fram á milli Arnarfellanna. Og upp á Þjórsárjökul og er gott að aka nokkra kímómetra norður eftir jaðri jökulsins til þess að sleppa við mjög grófa jökulruðninga og lón neðan við Þjórsárjökul. Síðan er hægt að halda niður af jöklinum niður á ruðningana norðar, þar sem þeir eru viðráðanlegri. Þetta landsvæði norðan við Þjórsárverin og milli jökuls og Þjórsár hafa gangnamenn kallað Villta vestrið. Hægt er að halda áfram norður fyrir Hofsjökul. En ferðalangar þurfa að gæta sín á mörgum mjög varasömum hengjum og giljum. Þá sérstaklega sunnan við Háölduhraun og í Háölduhrauni.Heimildir Hálendið eftir Guðmund Páll Ólafsson.
Heimildir Hálendið Heillar eftir Loft Guðmundsson.
Heimildir Árbók FÍ 1967 eftir Hallgrím Jónasson
Heimildir Landið þitt 2. bindi eftir Steindór Steindórsson ( útg. 1968 )Utanvegaakstur án árangurs í 10-20 ár ( Kolbrún Halldórsdóttir )
Eitt þarf að huga að vegna þessara fullyrðingar, en það er umferðaþunginn í samræmi við utanvegaakstur. Ég held því framað utanvegaakstur hafi minkað mikið ef miðað er við fjölda farartækja á hálendinu. En viðurkenni samt að utanvegaakstur sé of mikill. En hvernig hefur Ferðaklúbburinn 4×4 barist í tvo áratugi gegn utanvegaakstri án aðstoðar Ust. Og umhverfisráðuneytisins ( reyndar ekki einungis aðstoðar heldur beinlínis í óþökk þessara stofnana ). Þar sem um árabil Árni Bragason forstjóri náttúruverndarsviðs Ust jeppahatari nr 1 á íslandi setti fyrir jeppamenn fótinn allstaða þar sem hann kom því við.
Ferðaklúbburinn hefur gefið út bæklinga og lagt fjármuni í bæklinga sem svo aðrir hafa gefið út. Klúbburinn hefur einnig staðið í vegabótum fyrir eigin reikning. Það má lengi telja upp það sem umhverfisnefnd og ferðaklúbburinn hefur gert í þessum málum. En eitt mikilvægasta verkefni hefur engu af síður verið stikun leiða á hálendinu. Þar er klúbburinn nánast einn um þá vinnu og kostnað sem því fylgir. Hér á árum áður fékk klúbburinn stuðning frá vegagerðinni, en eftir að vegagerðin fór út í plaststikur. Þá hefur ferðaklúbburinn 4×4 keypt stikur fyrir eigin reikning í Húsasmiðjunni. ( fyrir þá sem hafa verið að þræta fyrir þetta, þá getur klúbburinn lagt fram reikninga þessu til sönnunar ).
Stikanir er eitt öflugast vopnið i baráttunni gegn utanvegaakstri, því mest allur utanvegaakstur er ekki einbeittur brotavilji, heldur vanþekking og þegar ferðalangar villast og eða elta villuslóðir. Á þeim svæðum þar sem hefur verið stikað. Þar höfum við fljótlega séð hvernig ferðamenn hafa fært sig að stikunum og villuslóðir hafa horfið eða dofnað í nágrenni stikanna. ( hér má kannski bæta því við að bróðurpartur allra hálendisslóða er illa eða lítt stikað ).
Á undanförnum misserum hefur klúbburinn tekið upp á því að stika leiðir með samþykki sveitarfélagana og má t,d benda á að leiðir um Stórasand og Arnavatnsheði voru stikaðar með leifi sveitarfélaganna norðan Langjökuls. Einnig þegar hluti Bárðargötu var stikaður inn að Sylgjufelli ( það var gert með vitund Ásahrepps ). Sama samstarf hefur verið haft við Hrunamannahrepp og fleiri. Samstarf milli sveitarfélaga og Ferðaklúbbsins 4×4 hefur einfaldlega verið gott.Stöðug fjölgun slóða á hálendinu ( Kollbrún Halldóttir )
Þetta er einungis fullyrðing sem lítil innistæða er fyrir. Hver veit hvort þetta sé rétt. Þetta er svona svipuð fullyrðing og þegar hrópað “ aukinn utanvegaakstur “ sem er oft gerður af svona 101 pakki sem situr niður á Hressó og hefur sjaldan farið lengra en upp á Ártúnshöfða. Það sem hefur gerst í slóðamálum er að með aukinni umferð, þá hefur víða verið skerpt á gömlum slóðum vegna meiri umferðar og hafa margir af vanþekkingu haldið að þarna sé um nýja slóði að ræða. Einnig hafa birst á kortum slóðir sem hefur kerfisbundið verið eitt út af kortum á liðnum áratugum. T.d eru komnar leiðir inn á ýmiss kort sem liggja að hálendisskálum ( það má benda á að skálar í óbyggðum eru rúmlega 400 stykki, svo einungis þær slóðir er álíka margar og stundum fleiri en ein leið að þessum slóðum. Það má draga þetta saman í eftirfarandi: þessar slóðir voru þarna, þið vissuð bara ekki af þeim.
fyrsti hluti Kv Ofsi
22.08.2009 at 10:18 #654936Er búinn að lesa mig í gegnum þessa þvælu Kolbrúnar, í stutt máli sagt er þetta röð af þvælu og bulli sem þarf að svara formlega. Verst finnst mér þegar minnst er á samstarf við slóðanefnd ríkisins ( sem ég er vít í, en hef ekki fengið að fara á fundi með þeirri skrípanefnd í eitt einast skipti )
Kv
22.08.2009 at 09:57 #654932Farinn út í sjoppu, þessu þarf að svara. Kolbrún þú vildir samvinnu. Er þetta leiðin til þess. Nei Kolbrún
21.08.2009 at 13:52 #65478420.08.2009 at 19:56 #649284Velkominn heim Óli minn. Gamla ísland er semsagt á sama stað og það var he he
20.08.2009 at 10:39 #654562Þar sem það er erfitt að linka á þetta, þá er pistilinn í eftirfarandi þræði og settur inn af Summi 19. ágúst, 2009 kl.22:3
Innlent – miðvikudagur, 19. ágúst, 2009 – 21:26
Hreiðar Már: Neitar að biðja þjóðina afsökunar. Á ekki peninga til að aðstoða við uppbygginguna
20.08.2009 at 10:28 #654724Glápgjald
Áætlanir eru uppi að taka upp svokallað glápgjald í Dimmuborgum. Þetta er í boði ríkisins. Hugsunin er sennilega sú að láta útlendingana greiða fyrir það að skoða íslenska náttúru. Svipað mál kom upp hjá eigendum Kersins. Sem ætluðu að innheimta glápgjald af ferðaþjónustuaðilum á rútum. Ferðaþjónustuaðilarnir neituðuð að greiða fyrir og varð það til þess að þeim var bannað að stoppa við Kerið. Og hafa verið sett upp skilti þess efnis á planinu við Kerið ( sem einmitt var byggt fyrir almannafé ).
Aftur að Dimmuborgum. Verði komið þar á glápgjaldi. Þá mun það fara einsog eldur í sinu um allt og þá eru það ekki einungis erlendir ferðamenn sem greiða heldur allir íslenskir ferðamenn. Þegar ríkið fer á undan með slík fordæmi, þá verður ekki hægt að banna einkaaðilum að taka upp sama gjald. Þá fer að verða arðbært að eiga náttúruperlur á íslandi og selja aðgang.
Ég reikna með því að þetta komi einsog holskefla yfir okkur om leið og samþykki fæst við Dimmuborgir og þá förum við að greiða fyrir að glápa á Gullfoss, Geysi, Dettifoss, Hveravelli, Hafrahvamma, Öskju, Þakgil, Landmannalaugar ofl. ofl ofl.
Það væri fróðlega að vita hvað stjórn f4x4 finnst um þetta, einnig Samút, ferðafélaginu, Útivist og öðrum ferðafélögum. Og ekki síst ferðaþjónustuaðilum.
Takk fyrir þetta Stefanía, það er aumt að geta ekki stofnað eigin þræði
20.08.2009 at 10:12 #654560Málefni Hofs í Álfafirði.
Eigendur Hofs eru þau Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir og Kristján Arason. ( þau voru stödd á staðnum þegar umrætt atvik átti sér stað ) Í því ljósi er eðlilega að pistilinn hafi verið tekinn út að vefsvæði Djúpavogs. En pistillinn er þegar kominn í dreifingu á veraldarvefnum og mát.d sjá hann á eyjan.is slóðin er: http://eyjan.is/blog/2009/08/19/ hreidar-mar-neitar-ad-bidja-thjodina-afsokuna-a-ekki-peninga-til-ad-adstoda-vid-
Fyrrverandi sveitarstjóri Djúpavogs, Ólafur Áki Ragnarsson er núverandi bæjarstjóri í Ölfuss og Sjálfstæðismaður. Málið fer fyrir sveitarstjórn og eru fundargerðir sveitarstjórna settar á vefinn. Því verður áhugavert að sjá hvernig tekið verður á málinu.
Ég reikna með því að það verði svæft á einhvern hátt. Mestu líkurnar er þó á því að bæjarstjórinn í Ölfuss, gleymi málinu. Enda, hvaða bæjarstjóri Sjálfstæðisflokksins vill styggja varaformann flokksins. Það gæti endað með atvinnuleysi bæjarstjóra Ölfuss.
kv Ofsi
18.08.2009 at 06:46 #654346Umsjónarmaður Bólsstað á Einhyrningsflötum
Sími 487 8407. Jens Jóhannsson
15.08.2009 at 21:12 #654104Það er aðeins gróft á Urðarháls. Ef þér lýst ekki áf læðurnar, þá er hjáleið til norðurs og þá sleppur þú við flæðurnar. Ef þú er þarna fyrri hluta dags þá er ekki komið neitt rennsli um Flæðurnar
15.08.2009 at 20:49 #654100Úpps ruglaði smávegis, hélt að þú ætlaðir Gæsavatnaleið ( það er skemmtilegri leið ) en skakast um hraunið á Dyngjuflajallaleið
15.08.2009 at 20:47 #654098Hún er bara gróf á smá kafla, ekkert mál á 35 tommu.
13.08.2009 at 00:01 #653412Hættu þessu pexi og undanbrögðum Skúli. Þó gætum við fengið millilendingu í málið. En fell eitt þarna fyrir ofan var eitt sinn nefnd “Skapafell” og kvíslin gæti því heitið Skapa-kvísl. En flestir fullvaxnir vita hvað sköp eru, og ætla ég ekki að fara nánar út í skilgreiningu á því. En nafn fellsins er víst þannig til komið, ef ég má vitna í einn félaga okkar. “Begga kokk” en hann skilgreindi nafngift fellsins þannig: Eitt sinn voru tvær konur staddar á felli þessu, og þurfti önnur að kasta af sér þvagi. Við þann gjörning pissaði koman á lítið strá sem stóð upp úr urðinni á fellinu. Og í þakklætisskyni fyrir ylinn, þakkaði stráið fyrir sig með því að kíttlaði konuna í sköpin, og þannig festist nafnið við fellið
kv Ofsi
12.08.2009 at 21:49 #653406Austari-Krókkvísl,, átti það að vera, en þér er fyrirgefið
10.08.2009 at 22:53 #653750Humm hum ég veit ekkert hvað á að ræða um. Kannski nýju laugarbókin, eða hálendið.
Hvað veit ég, allavega ekki mikið annað. Kannski við tökum snúning á Icesave, það er allavega slóð fyrir mikið breytta jeppa
kv Ofsi
08.08.2009 at 13:30 #653610Slóðin er víst merkt á Mapsource, upp frá Nátthaga og Hvammi. Og línuvegur Landsvirkjunar yfir Grafningsháls er merktur á 1:50.000 frá Landmælingum. Það er ekki við okkur að sakast að kortagerð er í skötulíki.
Þessi slóð er ekin reglulega t.d með eldsneyti á ljósavél fyrir Tetraendurvarpa. Síminn hefur séð um það. Þar sem er brattast, þar þarf bara aðeins að skoða sig um og aka síðan slóðina sem er syðst, þar er ekki mikill bratti. Við höfum farið þarna um með þungar kerrur og einnig dregið gáma þarna upp. Svo að jeppar með eitthvað í eftirdragi fara þetta létt.
07.08.2009 at 17:07 #653490Nei, þá þarft þú ekki að aka yfir snó
06.08.2009 at 10:24 #653392Held að steini sé eitthvað að misskilja. Á góðum degi geta ár norðan Hofsjökuls verið hlandsprænur. Ef þær geta líka verið foráttu fljót á sumrin. Blanda, Svartakvísl, Strangakvísl og þrjú vöð á Vestari-Jökulsá.
04.08.2009 at 21:55 #652752Vonarskarð og Bárðargata.
Svonefnd Bárðargata liggur vestan Vatnajökuls milli byggða. Nú tölum við aðalega um Bárðargötu milli Jökulheima og Gæsavatnaleiðar. Vonarskarðsleiðin liggur svo Hágöngulóni norður um Vonarskarð. Færð er þannig og var þannig um síðustu helgi að vegir voru vel þurrir enda búið að vera þurrt og heitt undanfarið. Kaldakvísl við Svarthöfða var ekki væð ( var reynt og ekki komst vaðmaðurinn aðein út í ánna og átti í vandræðum að komast í land á ný ) . Þar af leiðandi varhugaverð fyrir 35 tommu og minni jeppa, það gefur auga leið. Sveðja gæti því verið í sama hamnum. Ef aka á þessar leiðir þá þarf að vera snemma morguns í þessum vöðum og á flæðunum norðanvert í Vonarskarði ( Rauðá upptakaá Skjálfandafljóts ). Á sunnudaginn var hinsvegar Þjórsá á Sóleyjarhöfðavaði fær. Þ e dýpi rétt upp á hurðar á 38 t jeppa. Sindri óð Sóleyjarhöfða vað á naríunum einum saman he he.
PS það má bæta því við fyrir landverði að það er 59 ára hefð fyrir akstri um Vonarskarð.
28.07.2009 at 20:26 #652608[quote="jakinn":h78szek1]Góðan daginn,
er að spökulera hversu langt menn fara með tjaldvagna?
Ef maður er á góðum bíl er þá nokkuð mál að fara með hann í Langadal?
Kveðja Hjörtur og JAKINN.is[/quote:h78szek1]miðað við hver maðurinn er sem er að spyrja. Þá myndi ég segja Hjörtur.
Settu spotta í tjaldvagninn straummegin og svo tekur þú þessa hlandsprænu aðeins upp á móti straum. Trukkurinn þinn veit ekki af því.
-
AuthorReplies