Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
17.01.2012 at 09:21 #222140
Sælir jeppamenn og konur…
Ég var að kaupa gamlann Bronco og þætti vænt um að ef einhver hér lumaði á upplýsingum um bílinn, sögu hans og jafnvel myndum að sá hinn sami gæti deilt því með okkur hinum…
Upplýsingar um bílinn (að ég best veit)
Ford Bronco
Fæddur í Janúar 1974, skráður fyrst á Íslandi í Maí 1974
302 V8 – C4
frekar original bíll, keyrður 89.000
örfáir eigendurkærar þakkir,
kv
Símon
25.11.2008 at 21:14 #633468takk fyrir það
25.11.2008 at 19:46 #203264Ég er að fara inn í Þórsmörk á fimmtudaginn. Er eitthvað í ánum þessa dagana? veit það einhver?
14.05.2008 at 21:51 #622758Þetta er búinn að vera mjög líflegur og jafnframt fróðlegur þráður. Ég var að vinna í Kárahnjúkum nánast frá byrjun og sá alfarið um rútukeyrslu á svæðinu. Þvímiður þá komu flestir bílarnir ekki vel undan þessu volki og voru aðstæður oft á tíðum vægast sagt hrikalegar. Maður var keyrandi í göngum tugi kílómetra þar sem þau rúmuðu varla rúturnar "trukkana". Svo var það gilið, maður var að keyra niður í gilið í þannig aðstæðum að maður hélt að það væri mannlega ómögulegt, keðjaður á öllum skautandi niður mesta bratta sem ég hef séð á ævinni. Ég veit hreinlega ekki hvernig maður komst lífs af. Ég var mest á sjöunni eins og þið kallið hana, vestfjarðaleiðinni. Hún var alveg eins og hugur manns og þetta var einn af tveim bílum sem komust allt og bilaði nánast aldrei. Ég er með nokkrar myndir sem mig langar að deila með ykkur. Sjáiði Magirus Deutz trukkinn, þetta er ein sú svaðalegasta, hægt að setja undir hann endalaust stór dekk. Hann er til sölu sá með 40 sætum, beltum og öllu klabbinu. kíkið á slóðina og klikkið á "rútur" [url=http://nomis97.tripod.com/id15.html:3kfpgxj9][b:3kfpgxj9]Kárahnjúkarútur[/b:3kfpgxj9][/url:3kfpgxj9]
14.02.2007 at 15:24 #580352Takk fyrir góð viðbrögð! Þetta með stýrismaskínuna er áhugavert, ég ætla að láta Svan hjá Bílaverkstæði Borgþórs, Egilsstöðum taka maskínuna upp fyrir mig og sjá hvort þetta sé ekki bara málið. Hann kannaðist alveg við þetta mál.
14.02.2007 at 11:45 #580342Það sem ég er búinn að gera:
Víxla dekkjum og ballansera
skipta um allar spindil legur
ný hlutföll (var á orginal, setti 4.10)
nýjar hjólalegur
búið að mæla milli hjóla
ofl.
ofl.
ofl.
14.02.2007 at 11:42 #199681Ég er með Land Cruiser 80 38″ og ég lenti í því að það fór hjá mér hjólalega að framan fyrir stuttu með þeim afleiðingum að það skemmdist allt sem skemmst gat hægra megin, þar á meðal öxull. Nú er ég búinn að láta taka framhásinguna upp eins og hún leggur sig en bíllinn leitar alltaf til hægri. Þessi leitun er mikil og það er búið að gera allt til að reyna að finna út úr þessu en án árangurs. Hefur einhver hér lent í þessum fjanda??????????????????
08.01.2007 at 21:56 #199323hvernær hættu ford að framleiða 6.9 diesel mótorinn? veit það einhver. er auðvelt að setja 6.9 í bíl sem var 7.3?
Mig vantar mótor í Econoline ´98. Það var verið að bjóða mér 6.9 mótor. er það ekki bara rugl?
látiði í ykkur heyra expertar!!!!
-
AuthorReplies