Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
18.08.2012 at 08:34 #224135
Ég var að taka bensín í gær og þannig stóð á að ég fór á Orkuna. Líterinn kostaði 249,1 og með 8 krónu afslættinum sem við fáum kostaði hann mig 241,1 kr. Það var allt gott og blessað en á næstu dælu var maður að taka bensín á Subaruinn sinn og ég tók eftir að hans líter kostaði 238,1 hann fékk ss. 11 krónur í afslátt af lítranum. Nú var ég bara ekki nógu forvitinn til að fara að spyrja manninn af hverju hann fengi 3 krónum meiri afslátt en ég, fannst mér svosem ekki koma hans afsláttarkjör neitt við, en hann hlýtur að tengjast einhverjum sem kaupa meira bensín og auglýsa Skeljung meira en við gerum. Get hinsvegar ekki ýmindað mér hverjir það geta verið.
Kv Beggi
23.05.2012 at 22:38 #754387Sæll Agnar, ég fæ 8kr afslátt af sjálfsafgreiðsluverði af dælu + 2 punkta svo nú veistu væntanlega hvar ég kaupi olíu. Fæ 11 krónu afslátt af afhendingaverði uppí sveit + tvo punkta. Ég læt punktana safnast upp og tek olíu fyrir þá svo 1 punktur er 1 króna þannig að í raun fæ ég 10 kr af lítra.
23.05.2012 at 01:04 #754373Mér finnst þetta flott framtak hjá ykkur strákar að semja um þennan afslátt við skeljung, eeennnn hvað eru margir í klúbbnum og hvað kaupum við samnlagt mikið eldsneyti ??? Ég er bóndi og kaupi þónokkra lítra af olíu á ári, að vísu mestmegnis litaðri en er lika með kort/lykil fyrir heimilisbílana og tek ólitaða olíu/bensín á dælu með því. Ég fæ meiri afslátt en þið, að vísu ekki hjá skeljungi, en ég sendi póst c/c á öll olíufélögin þar sem ég sagði þeim hvað ég keypti ca. mikla olíu á ári og spurði hvaða afslátt þau mundu bjóða mér. Nú er það í sjálfusér mitt mál hvaða afslátt ég fæ og við hvaða olíufélag ég versla en minnn afsláttur er nokkrum krónum hærri en 4×4 afslátturinn sem ég fæ hjá Skeljungi
Kv Beggi
07.12.2011 at 19:19 #743435Takk fyrir það, hvaða tengingar er verið að lóða upp?? Mér sýnist bara vera eitthvað blað aftaná mælinum sem rafmagnið tengist í.
Kv Beggi
05.12.2011 at 19:11 #221555Ég er með 95 árg af patrol og snúningshraðamælirinn í honum er ákaflega sjálfstæður og sýnir umþaðbil nákvæmlega það sem honum sýnist óháð vélarsnúning. Er þetta eitthvað sem patrolmenn kannakst við og hafa jafnvel hugmynd um hvað veldur???? Allar vangaveltur eru velþegnar
Kv Beggi
31.12.2010 at 00:40 #714104upp á topp
24.12.2010 at 17:22 #216531Megið þið eiga gleðilega jólahátíð
Kv Beggi R-3538
20.12.2010 at 02:56 #714088Andskotans djöfulsins hottintottar, höldum þessu uppi og höfum augun opin
07.12.2010 at 17:59 #712858svosem ekki neina sérstaka, en mitt spil er frá Warn og hefur dugað vel, þekki þau líka úr björgunarsveitum sem ég hef verið í og þau hafa reynst vel þar það best ég veit. Kínaspilin eru kannski ekkert slæm heldur en mér finnst ég aldrei vita hvað maður er að kaupa samt, þetta heitir allt eitthvað óskiljanlegt og lítil reynsla sem fylgir þessu eðlilega þar sem þetta er nú ekkert fyrir löngu farið að fást hérna 😉
Kv Beggi
06.12.2010 at 23:05 #712854Greinilegt að þú veist það, enda erum við sem eigum þessa bíla fljótir að koamst að þessu ef við vitum þetta ekki fyrir 😉
Kv Beggi
06.12.2010 at 23:02 #712852Hvað sem þú kaupir þá skaltu aldrei undir nokkrum kringumstæðum fara eftir ráðleggingum Hrannars um að taka 12v straum af öðrum geyminum, það þýðir bara ónýtan geymi hjá þér í hvert skipti sem þú þarft að nota spilið.
Kv Beggi
12.11.2010 at 10:22 #709898Það er líka annað sem menn verða að hugsa um í þessu sambandi, bæði ég og aðrir ( ég hef bæði keypt notuð dekk og selt líka) að hliðarnar í dekkjunum skipta ekkert minna máli en munstrið. Þegar menn eru að kaupa hálfslitin dekk vita þeir svosem ekkert hvernig meðferð þau hafa fengið varðandi keyrslu á úrhleyptu, þó það sjáist ekkert utan á dekkinu og það líti vel út þá gæti alveg sprungið dekk nokkrum dögum eftir að þú kaupir þau. Og hálfslitin dekk gera alveg verið 5 – 7 ára gömul þessvegna sem skiptir líka máli. Ég tek það fram að ég er ekkert að dæma dekk sem erið er að selja hérna, hvorki þín né önnur en tala af pínulítilli reynslu í þessu, þekki dæmi um kaup á notuðum dekkjum sem hafa reynst bæði vel og illa.
Kv Beggi
21.10.2010 at 07:35 #707320Það væri frábært Hjalti, ég held líka áframa að leita að þessu.
Kv Beggi
20.10.2010 at 22:57 #707314takk fyrir þetta Hjalti, ég finn ekki í fljótu bragði íslandskort þarna en á eftir að skoða þetta betur
Kv Beggi
20.10.2010 at 17:27 #215303Veit einhver hvort það er til íslandskort sem er hægt að setja inn í þessi tæki, þau eiga að vera með 2.5 mb minni sem á að vera hægt að setja kort inn á í gegn um tölvu??
Kv Beggi
15.10.2010 at 09:59 #706006Er svo ekki bara hægt að láta húða tankinn að innan ef suðurnar eru eitthvað vandamál ?
06.08.2010 at 23:08 #213872Það er nú þokkalegasta teygja í þessu hjá stráknum
http://www.youtube.com/watch?v=GI6VWk3zGgY&feature=related
Kv Beggi
04.07.2010 at 22:46 #697554Hálendishandbókin eftir Pál Ásgeir Ásgeirsson fæst gefins hjá mér gegn því að verða hent.
05.05.2010 at 16:15 #690904Ég er með sennilega ennþá einfaldara display en þú þar sem ég er með Lc 60. Í honum er skjár sem sýnir inni og útihitann og hann var einmitt svona eins og þú lýsir að detta inn og út. Ég fór í umboðið fyrir ca 5 árum og ætlaði að fá þetta nýtt því þá var það alveg dottið út. Það kostaði þá einungis 45 þúsund. Ég spurði manninn hvernig það gæti bara verið, þá var hægt að kaupa vídeotæki eða dvd spilara fyrir 5 þúsund kall og þar er mun merkilegra display að finna fyrir utan alla aðra fítusa sem er í svoleiðis tækjum. Hann vissi auðvitað ekkert um það en sagði þetta verðið á þessu hjá þeim. Ég reif draslið úr og viðgerðin tók um 5 mín með stækkunargleri og lóðbolta 😉
Kv Beggi
05.05.2010 at 15:29 #212562hæ hvað er venjulegt bil milli samsláttaspúða og hásingar? Þá meina ég þegar bíllinn stendur úti á hlaði farþegalaus með einhverja olíu á tanknum. Bara venjulegur.
Kv Beggi
-
AuthorReplies