Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
26.03.2006 at 23:27 #547404
veiðileyfi á hvaða Vitleysinga ertu að tala um???
27.02.2006 at 14:30 #544654Votta aðstandendum þessa hörmulega slys mína dýpstu samúð.
Mundi
24.02.2006 at 23:14 #544204ég er nú kominn á 7 Öl…
og fanst þetta þyrfti að koma inn hérna
þar sem ég er að koma þessu fyrir þessa dagana
Mundi
24.02.2006 at 22:58 #544198Sælir
en hvernig er það með að setja stýristjakk?
þá minkar álagið á sekktorsarminn?
og getur bjarga útafkeyrslu ef armurin brotnar á mikilli ferð ,en það eru skiptar skoðanir með að setja stýristjakk
Mundi
23.02.2006 at 23:07 #542212Sæll
Birkir
hvernig gengur ertu búinn að finna eithvað út úr þessu hjá þér hvað var að??
Mundi
23.02.2006 at 22:56 #544140sæll Jökull
Alltplast selur kanta á flesta jeppa
Tangarhöfði 6 Reykjavík
Sími: 8453844
GSM: 8562422
Veffang
22.02.2006 at 13:54 #543872FÍB Trygging – keyrir niður kostnaðinn
Félag íslenskra bifreiðaeigenda er með samning við Vörð – Íslandstryggingu., um að bjóða félögum FÍB Tryggingu. FÍB Trygging er heiti á tryggingarvalkosti þar sem iðgjöld ábyrgðartrygginga, kaskótrygginga og heimilistengdra trygginga eru í flestum tilvikum hagkvæmari en hjá öðrum tryggingafélögum.
Með því að bjóða FÍB Tryggingu sem valkost vonast FÍB til að stuðla að öflugri samkeppni í bílatryggingum. Iðgjöld bílatrygginga stórhækkuðu þegar FÍB Trygging hjá Lloyd´s hætti að vera valkostur á markaði. Með samningnum um FÍB Tryggingu hjá Íslandstryggingu hafa viðbrögð markaðarins verið á þann veg að iðgjöld bílatrygginga hafa lækkað um tugi prósenta. Enn sem fyrr hefur innkoma FÍB Tryggingar áhrif á markaðinn neytendum til hagsbóta.
Vörður Íslandstrygging er íslenskt tryggingafélag sem fékk starfsleyfi þann 30. júlí 2002. Vörður Íslandstrygging býður allar hefðbundnar tryggingar fyrir einstaklinga og fyrirtæki. Sérstaða Varðar Íslandstryggingar er m.a. fólgin í því að félagið nýtir sér þjónustu vátryggingamiðlara til að koma á viðskiptum. Slíkt fyrirkomulag tryggingaviðskipta er mjög algengt á meginlandi Evrópu og hefur þar stuðlað að lægri iðgjöldum vegna aukinnar samkeppni tryggingafélaga.
FÍB trygging stendur til boða fyrir alla félaga í FÍB. Bíleigendur geta skipt um tryggingarfélag þegar núverandi tryggingartímabil er útrunnið eða þegar bifreið er keypt. Segja þarf tryggingunni upp með minnst eins mánaðar fyrirvara áður en nýtt tryggingatímabil hefst.
Það er skoðun FÍB að virk samkeppni komi neytendum alltaf til góða. Skortur hefur verið á samkeppni í bifreiðatryggingum frá því að FÍB Trygging hjá Lloyd’s hætti haustið 2000 en nú er lag til að hafa áhrif á markaðinn. Með því að fylkja sér um FÍB Tryggingu geta bíleigendur tryggt eigin hag og fest hagstæðari iðgjöld í sessi.
Samningur FÍB og Varðar Íslandstryggingar tryggir félögum í FÍB að jafnaði betri kjör í bifreiðatryggingum og fleiri tryggingum samanborið við kjörin sem öðrum bjóðast á markaðnum hér á landi. Þeir sem eru skuldlausir félagar í FÍB njóta þessara sérkjara og eiga rétt á að fá útgefið vátrygginga-skírteini hjá FÍB Tryggingu.
Aukinn bílaleiguréttur og 50% lægri eigin áhætta!
Stórlækkuð sjálfsábyrgð í kaskótryggingum bíla!
FÍB Tryggingartakar bera nú (október 2005) lægri sjálfsábyrgð á kaskótryggingum bifreiða, komi til tjóns. Þetta virkar þannig að þeir sem eru með FÍB Tryggingu og borga iðgjald miðað við 80.000 króna sjálfsáhættu í kaskótryggingu bifreiða, þurfa aðeins að borga 40.000 kr. komi til kaskótjóns. Til viðbótar njóta FÍB félagar sem fyrr eftirfarandi vildarkjara:
Félagi sem eingöngu ábyrgðar- og kaskótryggir bifreið hjá FÍB Tryggingu nýtur bílaleiguréttinda vegna kaskótjóns í allt að fimm daga.
FÍB félagar sem eru með heimilistengdar tryggingar hjá FÍB Tryggingu bera í tjónstilfellum hvorki meira né minna en 50% lægri eigin áhættu í heimilis- og húseigendatryggingum samanborið við almenna skilmála um eigin áhættu hjá Verði Íslandstryggingu.
Sé reynt að verðmeta þessi sérkjör þá þýða þau, fyrir venjulega fjölskyldu sem býr í eigin húsnæði og á og rekur einn bíl, sparnað sem er að minnsta kosti álíka mikill og fjögur eða fimm félagsgjöld í FÍB á hverju ári. Í þessu sambandi er rétt að geta þess að hagstæðustu tryggingar sem völ er á á Íslandi í dag eru aðeins einn af kostum þess að vera félagi í FÍB
FÍB hvetur félagsmenn sína til að gera verðsamanburð á iðgjöldum trygginga. Eitt símtal getur skilað sér ríkulega. Tryggjum virka samkeppni og ódýrari tryggingar.
FÍB Trygging, Sætúni 8, 105 Reykjavík, sími: 511 6000.
Nýtt og sterkara vátryggingafélag:
Vörður Íslandstrygging
Vörður Íslandstrygging sem vistar FÍB Tryggingu varð til við sameiningu félaganna Varðar vátryggingafélags og Íslandstryggingar. Fyrrnefnda félagið var stofnað árið 1926 undir nafninu Vélbátasamtrygging Eyjafjarðar, síðar Vélbátatrygging Eyjafjarðar. Félagið sérhæfði sig í báta- og skipatryggingum og hefur mikla reynslu á þeim markaði.
FÍB hvetur sína félagsmenn til að gera verðsamanburð á iðgjöldum trygginga. Eitt símtal getur skilað sér ríkulega. Tryggjum virka samkeppni og ódýrari tryggingar.
21.02.2006 at 16:26 #543674sælir
er ekki Trukkagengið fínnt nafn…
Mundi
20.02.2006 at 11:15 #542904Sæll
ef mótorinn er keyrður 400 þús hundslitinn og ekkert búið að gera fyrir hann þá er eðlilegt að hann bræli fyrst kaldur og skýringarnar geta verið ýmsar dísur. ventlafóðringar tímastillingar og vél sem er orðin þetta slitin verður slöpp í gang í kulda
þannig að þetta hefur allt sína eðlilega skyringar hjá þér..Á ekki að sjást reykur þegar bíllinn er ræstur kaldur skrifar Eik ég er ekki sammála
það eru fáar vélar sem ekki reykja eithvað fyrst kaldar komnar yfir 100 200 þúsund þó öll kerti séu í lagi
Mundi
20.02.2006 at 09:56 #543386Sæll
þegar þú settir skiptinguna í byrjaðir þú þá
að skrúfa converterinn á velina og svo skiptinguna á eftir?? vona að ég móðgi þig ekki ef þú hefur gert þetta rétt
mundi
17.02.2006 at 12:53 #543026Sælir Hlunkar…
Ég væri alveg til í að vera í hlunkahóp
ef á að stofna slíkann
Mundi
17.02.2006 at 12:25 #542210Sæll
Takktu helvítis startarann úr og láttu athuga hann
áður en þú fer að pæla hvort vélin sé föst eða útbrædd
þú getur líka reynt að snúa vélinni á trissunni
eða á startkransinum
Mundi
13.02.2006 at 01:54 #542292sæll
það var nú gott að þú fannst orsökin fyrir gangtruflunum
en hvað með allan þennan skít sem kom í síuna
sem þú varst að tala um?
Mundi
11.02.2006 at 01:39 #541516Góður
11.02.2006 at 01:16 #542286Sæll Arnþór.
tékkaðu á hosuni niðrí tank getur verið
að hún sé sprungin eða gat á henni þá er þar greið leið af drullu niðrí tankinn
Mundi
11.02.2006 at 00:52 #541216meira bullið að þræta um þetta
fyrst verið er að rífa svona mótor hlítur að vera mikið að þannig að það þarf að rífa meira en stimpla úr
einfaldast
er að taka sveifarásinn úr fyrst og taka svo stimpillstangirnar með stimplunum úr niður, málið leist
skiptir ekki máli hvort bakkarnir snúa upp niður eða út á hlið.
Og sett eins saman
Mundi
10.02.2006 at 23:30 #197290Sæll Sveinbjörn
Ertu með verstæði á Akureyri sem heitir Trukkurinn og var starfandi 2002?
Mundi
09.02.2006 at 02:28 #542140Toyota Rav fer ekki á fjöll
aðeins á lága móa
Ravinn er heldur ekkert tröll
sem veður um fjöll og flóa…
Vona að ég móðgi enga!!
Mundi
07.02.2006 at 23:13 #541954sæll það ætturu að gera
07.02.2006 at 22:22 #541950BANDARÍSIR EÐALVAGNAR..
Koma með bæði 5.6 og 8 gata felgu deilingu.
ef þessi Ford Econline er með diselvél?? þá er líklegt að hann sé með 8 gata felgudeilingu..
Mundi
-
AuthorReplies