Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
17.04.2007 at 15:13 #588634
[img:vtncnmx4]http://www.offroaders.com/sandbox/vehicles/images/v-165.jpg[/img:vtncnmx4]
Hér er rétti golfbílinn fyrir litla menn
kv,,, MHN
16.04.2007 at 16:47 #200136
Hér áður fyrr létu menn sér nægja að vera á 31 t og 33 t dekkum og voru nokkuð ánægðir með það og komust aðeins lengra en hinir, en sumum fannst það ekki nóg fóru á 35 t dekk og skildu hina eftir á minni dekkjum.Og þá var kominn tími til að stofna félag utanum þessa jeppa sem voru á stærri dekkjum og spruttu upp félög hér og þar,en það þurfti að hafa stjórn á öllum þessum félögum svo að það tóku sig nokkrir til og stofnuðu f4x4 sem flestir gengu í er svo komið að það er eina sem er með virka starfsemi í gangi.Og önnur félög litla starfsemi af og til. Nú hófust miklir umbrotatímar í að breyta jeppum og vera á stæri dekkjum. Og voru þá stærstu dekkin 38 t og 44 t og voru þessi dekk alls ráðandi í langa tíma, en sumum fannst þurfa stærri dekk og fóru menn að leita af réttum dekkjum. Leitin var stutt og voru nú dekkin 46 t og 49t og eru þó nokkuð margir komnir á þessi stóru dekk og næsta stærð sem sumir hafa verið að skoða er 52 tommur. Nú tala menn um til að geta gengið í þennan félagskap þurfa þeir að vera á ekki minna en á 35 t dekkjum á minni jeppum og 38 t dekkjum á stærri jeppum, og er talað um þessi dekk eru litlu dekkin passar vel í Litludeild. þá eru það bílarnir fyrsti jeppinn var Willis svo aðrir komu allir hinir jeppar, pikkupar og sendiferðabílar svo sem Sprinter, Maður heyrir þessa gömlu menn minnast á þá gömlu góðu daga þegar hestar voru fararskjótar vor hastir og allir riðu þeim voru með rassæri, en í dag ferðast maður í mjúkum hægindastólum og nennir ekki að fara út úr bílnum maður getur misstígið sig í grjótinu. Og er svo komið að stofna félag utanum Jeep sem er í minni hluta í dag.Og þeir sem eru á minna en 35 t dekkjum verð að fara að enduskoða hug sinn hvort þeir vilja vera í þessu félagi og koma sér á stærri dekk svo þeir séu gjaldgengir í þessum félagskap.. Einn sem skoðar bara 38 t Jeppa með bensínvél svo hann geti verið áfram í þessu félagi . Tillaga : Mæli með að verði stofnað Sófaritarafélag fyrir þá sem hafa skrifað flesta póstana hér inn fyrir þá sem eru komnir yfir 900 …….
( Sá sem þetta skrifar veit allt og getur alla hluti og tekur sig ekki mjög
hátiðlegan í sínum skrifum eða gjörðum með fjölda pósta 567 HÍ HÍ HÍ HA )
KV ,,, MHN
06.04.2007 at 22:51 #200085Tíndist öxul á leiðinni frá Langjökli að Jaka úr Land-Cruser 60 h/m aftan (stutti úr fljótandi hássingu)
vorum á ferðinni milli 14 og 16 í dag(Föstudaginn langa)
Ef einhver finnur öxulinn hafa þá samband við MHN í síma 8243118 eða Ómar í síma 5530571Með von um að einhver hafi fundið hann með
MHN
05.04.2007 at 09:25 #580260Það verður opið í kvöld Boðið upp á pönsur svona til að breita til og köku
kv,,, MHN
04.04.2007 at 21:29 #580254Það eru ekki allir sem sitja við tölvuna og tékka á því hvort húsið eigi að vera opið eða lokað.
Ef menn eru að setja inn svoleiðis tilkynningu gera menn það ekki 5 min. fyrir venjulega opnun.
Það væri í lagi að menn gerðu þetta með meiri fyrirvara.(fólk kom niðueftir og vissi ekki betur en að húsið ætti að vera opið)
MHN
04.04.2007 at 17:09 #200072Jæja þá er vorið komið og tími til að taka jeppann út úr skúrnum
og fara prufutúr á fjöll og keyra yfir nokkrar sprænur og dáðst að hvað billinn kemur vel út og reynist vel. þá er bara að keyra út á bensínstöð setja bensín á bílinn, þegar þangað er komið eru þar nokkrir jeppar fyrir sem voru að gera sig klára á fjöll og 1 stór á 49 eða 52 t ég fékk smá minnimáttarkennd að vera þarna á planinu á mínum litla 33t þriggjadyra súkku me bensíntank sem tekur bara 70 L á meðan sá stóri tók svona um 370 L af olíu . Svo að ég dreif mig í burtu og tók stefnuna í Setur og fara klakksleið það voru fleiri sem voru á þessari leið en ég, þegar inn á hálendið var komið var komið tími á kaffipásu og anda að sér fjallaloftinu og hlusta á kyrrðina, en hvaða nið heyrði ég eins og peiloter væri að koma, nei það var sá stóri á 52 t að koma upp brekkuna, þegar hann sá mig stoppaði hann og drap á bílnum og steig út. Mér til mikillar undrunar kom útúr bílnum þar lítill og pervisinn náungi ekki mikið hærri en dekkið undir bílnum hjá honum, svo að ég missti það útúr mér er hvort bíllinn ekki of stór. En hann svaraði maður verður að bæta sér stærðina og brosti og spurði hvort að ég kæmist fyrir inni í mínum. Ég spurði hvort hann vildi ekki vera á undan mér, því að ég væri svo hræddur að hann mundi keyra yfir mig. Alveg eins svo að ég setti bílinn í gang en þegar hann setti sína grjótmulningsvél í gang hætti ég að heyra í saumavélinni sem var í mínum bíl. þegar komið var að fyrstu ánni, keyrði hann óhikað yfir en þegar ég kom sá ég enga á því hann ók það greitt yfir að hún hvarf. Ég bað um fá að vera á undan svo ég gæti fengið að keyra yfir einhverjar ár þennan túrinn og veitti hann mér það leyfi góðfúslega. þegar við keyrðum framhjá gróðri og hann gaf honum aðeins inn þá lagðist allur gróður í dvala vegna mengunar sem betur fer var lítið um gróður á leiðinni. þegar færðin fór að vera verri og meira um grjót þurfti ég að sæta lagi innan um grjótið en hann keyrði yfir eins og hann væri á loftpúðum og virtist ekki finna fyrir þessu grjóti sem ég var að puða við að sniðganga.Eftir að hafa keyrt í smá stund stoppaði ég og steig útúr bílnum hann stoppaði líka og spurði hvort eitthvað væri að, ég sagði nei og sagðist vilja tjalda hér yfir nóttina þar sem það væri áliðið. Honum þótti þetta bara sniðugt þar sem þetta væri líka hans fyrsti bíltúr á þessum bíl og vildi prófa að sofa í bílnum. Ég tjaldaði mínu litla tjaldi og tróð mér í svefnpoka tók fram vasaútvarp og hlustaði á það en hann lagðist á dýnu og breiddi yfir sig sæng og kveikti á sjónvarpinu, setti DVD mynd í diskspilara og horfði fram á nótt á hana. Morguninn eftir vaknaði maður skakkur og skældur stirður eftir nóttina, og helti ég uppá kaffi á gamla mátann en hann úthvíldur og ferskur og tengdi kaffibrúsann sinn við bílinn og hellti þannig uppá kaffi. En þegar upp er staðið getur hver og einn ferðast á sinn máta á sínum bíl hvort sem hann er lítill eða stór og það sem skifti öllu máli hafa gaman af þessu sporti…..
( Hugurinn ber mig hálfa leið en bíllinn ber mig alla leið. )
KV,,, MHN
30.03.2007 at 16:03 #200031Þá er það að koma á hreint að það megi gera bíla upptæka
fyrir vítaverðan akstur + góða sekt, kemur svosem ekki á óvart.
Eru mun fleiri sem styðja það nú en áður og hafa menn
verið að tala um að tekjutengja sektir við laun + sektarskali
fyrir þá sem eru ekki á launum og jafnvel setja á sakavottorð.
Ekki mundi ég vilja vera með sakavottorðið fullt af sektum og
eiga það á hættu að verið stungið inn í nokkrar vikur fyrir
umferðalagabrot og bílnum fátækari. Þessar umræður hafa verið í næturútvarpi síðustu nætur og Fréttablaðið birti
grein um þennan hraðakstur í dag, löndin í kringum okkur hafa tekið mjög hart á þessu og hefur það skilað árangi, má nefna dæmi í Noregi þar sem sektir við ölvunarakstri eru tekjutengdar frá nokkrum tugtþúsunda upp í milljónir og þá oftast tekin
eins mánaðarlaun í sekt.
( Sumum getur fundist þetta röklaus þvættingur en svo er ekki . )
kv,,, MHN
28.03.2007 at 15:01 #586316þær myndir sem ég setti hér inn voru ósköp saglausar
þó svo þær væru teknar af x síðu, menn vilja kansgi
íslenskan veruleika eins og þennan, þessi var ekki á
60 km heldur 130 + slapp bara kokkuð vell frá þessu.
( Það eru alli svona lánsamir. )[img:23dzv3gr]http://www.f4x4.is/new/files/photo/default.aspx?file=files/photoalbums/4243/41564.jpg[/img:23dzv3gr]
kv,,, MHN
28.03.2007 at 00:06 #586302‘Eg fer til þískaland til að fá útrás, þar má keira hratt og hef góðan bíl til þess svon 200 til 260 km
góður hraði til að drepa sig á. Það átt að standa fór yfir á rauðu ljósi. Svo má taka á þeim sem nota ekki stefnuljós það er gert í öðrum löndum en ekki hér
kv,,, MHN
27.03.2007 at 23:38 #586298‘Eg get talið upp nokkur óhöpp sem sumir vilja helst gleima og það þegt nöfn sem sátu undir stýri fyrir glanna agstur
og fólk dóg í , en geri það ekki hér,
kv,,, MHN
27.03.2007 at 16:30 #200011það er alveg ótrúlegt hvað menn vilja leika sér að dauðanum
og sýna mátt sinn við stýrið og hvað þeir eru klárir að leika sér við þann neðra og ergja hann. En honum er nokkuð sama hann hefur alltaf betur að endanum. þeir sem haga sér svona í umferðinni eru að sýna hve þeir eru VANÐROSKA og HÉGÓMAGJARNIR þar að auki litlar sálir sem þurfa sína hæfni við að kökukeyra bílinn og koma sér í hjólastól eða þaðan af verra liggja í rúmi láta mata sig og skeina, tala ekki um að lesa fyrir sig fréttina um að 2 drengir voru í kappakstri og annar missti vald á bílnum og ók útaf og valt 3 veltur og hafnaði á staur. Góður endir á stundagaman eða þannig, ég held að það þurfi að herða viðurlög við hraðakstri og láta koma við budduna svo um munar. Til dæmis taka bíl eignarnámi þegar hraðinn er kominn yfir 100 km og fer eftir hversu alvarlegt brotið er + góða sekt og missa ökuréttindi í svona 6 til 8 ár, menn fara ekki að hugsa fyrr en það kostar hundruðir þúsunda og eða tapa bílnum líka. þeir sem haga sér svona eru oftast miklar aurasálir og vælukjóar. Jeppa menn við verðum að huga af því að þarna er fullt að VANVITUM sem eru á bíl og haga sér miðað við þroskann, ég vona að svona menn séu ekki í okkar félagskap.
( Með hækkandi sól mun hraðinn aukast og fleiri börn eru að leikKV,,, MHN
23.03.2007 at 16:19 #585852Rafinn fer allt og leyfir öðrum að draga sig til að spara bensín
og svo menn hafi eitthvað að gera og tala ekki um að hepla
slóðina fyrir aðra svo þeir komist alla leið. Annas er ég búinn
að setja sjálfstýringu í bílinn svo að hundurinn geti setið undir
stýri meðan ég legg mig .
( Ravinn er besti bíllin sem Toyata hefu framleit til þessa )[img:mpd7g49y]http://toolandsupply.ca/images/Precision_Measuring/yf-tt6.jpg[/img:mpd7g49y]
Hér er nýasti snjódýftarmælir.kv,,, MHN
22.03.2007 at 00:28 #585184Draumur sem verður ekki að veruleika það er meiri vinna
í honum en ég hélt því miður fyrir mig. Birja að leita aftur
að öðrum bíl er með nokkra í huga .
kv,,, MHN
21.03.2007 at 10:34 #585166Myndin er af minni bílnum hér eru fleiri myndir svo menn geta séð
mismunin á stærðum bílana. Á stæri bílnum er dekkið ekki við
hurðastafinn eins og er á þeim stutta .[img:3b5lij5d]http://www.brian894x4.com/i-10_B_L.jpg[/img:3b5lij5d]
Stuttur[img:3b5lij5d]http://www.brian894x4.com/LC73whiteOz.jpg[/img:3b5lij5d]
Milli stærð[img:3b5lij5d]http://www.brian894x4.com/T-salesfolder08d.jpg[/img:3b5lij5d]
3 stærðir
kv,,, MHN
20.03.2007 at 20:46 #585158þeir eru báðir með sömu breid, eini munurin er að dekkin á stæri bílnum eru
aðeins utar en sá stutti sem er á framan 1435 og 1420 á aftan milli hjóla en
stutti með framan 1415 og 1400 aftan milli hjóla sama hæð á báðum bílum
sem er 1880 cm þessar upplsingar er teknar úr grunmynd .
kv,,, MHN
20.03.2007 at 14:55 #585148Hann er frátegin fyrir mig er á þvi að kaupa hann
kv,,, MHN
20.03.2007 at 13:20 #585142Já ég er að tala um þessa stærð sem er á lengt 4.075 L
og 1,690 B mér þætt gaman að vita hvað vélar voru í
þessum bílum veit um 1 sem ég er lítur bara vel út
og hef verið haldið vel við, Hann er með 2,4 bensín
finn lítið um þessar vélar sem voru í þessum bílum[img:1z99kl99]http://www.brian894x4.com/i-1_B_L.jpg[/img:1z99kl99]
Þessi bíl er á 35 t( Milli stærð er 4,365 á lengt )
kv,,, MHN
19.03.2007 at 14:16 #199956Hvernig reinast gömlu stuttu crusarnir 62 ,70 og 73 tegund og hvaða stærð að dekkum er verið setja þessa bíla á 35 eða 38 t eða stæra, eru þessir bílar ekki flestir með 100 % læst að aftan, hvernig eru þessar hásingarnar að reinast og hvesu sterkar eru þær miða við dana 30 ,35, 44 eða ?
( þeir sem vita meira um þessa bíla væri gott vita af þeira reinslu )
kv,,, MHN
11.03.2007 at 16:57 #199893Ferðasagan mín
Farið var á 7 bílum af stað á Select og var einn bíll skyldur eftir á leiðinni þar sem hann var talinn of lítill svo sex bílar héldu áfram að Árbúðum og gekk ferðin mjög vel. Hittum fleiri og varð þetta í kringum 30 manna hópur. Enginn festi sig fyrir utan einn sem keyrði inní skafl við vörðuna á Bláfellshálsi og var það svona létt æfing en varla telst sem festa.
Var komið í Árbúðir skömmu síðar, voru þar fyrir bílar frá litlu deildinni ásamt krapagenginu, tóku þeir sér smá bíltúr nokkrir bílar og skruppu uppí Kelllingafjöll.
Eftir það fór veðrið að versna en það kom ekki að sök þar sem menn skiluðu sér í hús á tilsettum tíma til að elda og var yfirkokkur Haffi toppur. Í ferðinni voru nokkrir krakkar, lítið var um kvenfólk fyrir utan tvær rosknar konum um fimmtugt. Eftir að menn höfðu fengið sér kjötsúpu og kjöt í karrí var tekið við að syngja frameftir kvöldi, byrjaði frekar rólega en þegar þessar tvær rosknu konur fóru að finnast þetta heldur rólegt tóku þær völdin í söngnum og var sérstaklega önnur þeirra meira áberandi og grófari í tali, þegar menn voru að tala um pund í dekkjum talaði hún um tommur og átti þá við neðanmálstommur þar sem þetta væri auðvitað litla deildin og þar sem þetta var örugglega litla deildin þá voru fáar tommurnar. Spurði þar einn maður hvar hún svæfi, sagðist hún sofa venjulega úti í horni…og iðulega á bakinu.
Menn héldu sig stíft við drykkju og var þar náungi sem bauð vissum mönnum uppá XO cognac og virtust vera að reyna að koma sér í mjúkinn hjá þeim. Þegar fór að líða á nóttina fóru þessar tvær rosknu konur að verða heldur léttmála, sérstaklega önnur þeirra, fannst þá eiginmanni hennar nóg komið og rak hana í rúmið þar sem hann vissi að deginum eftir ætti hún eftir að eiga í erfiðleikum með ýmiskonar krankleika, hlýddi hún því umyrðalaust. Sjálfur skreið hann í bólum um 2 leytið en glaumurinn hélt áfram til 3 og hélt fyrir honum vöku.
Um nóttina var snarvitlaust veður og söng vel í gluggum. Innan dyra var annarskonar söngur á ferðum, menn sem hrutu eins og þeir höfðu snorker á sér, aðrir blístruðu og enn aðrir á innsoginu, var þá opnaður gluggi og þagnaði þetta snarlega þar sem þetta virtist vera súrefnisleysi. Fljótlega um átta um morguninn fóru menn að vakna með mismikinn höfuðverk en hann lagaðist fljótt þegar menn litu út um gluggann og sáu hverskonar veður var úti við. Fóru þá menn að huga að faratækjum og tíja sig af stað uppúr tíu. Veðrið var blint á köflum en kom ekki að sök og gekk ferðin mjög greiðlega, fyrir utan það að menn voru aðeins að dansa í hjólförum.
Þegar fór að nálgast Gullfoss stoppuðu menn til að bæta lofti í dekk, skildust þá leiðir, aðrir fóru línuveginn en hinir fóru í bæinn og þökkuðu fyrir sig.
Sá sem þetta skrifar, hvort þetta sé allt satt og rétt skal láta ósagt og tekur enga ábyrgð á því.
Þakka kærlega fyrir mig fyrir ánægjulega ferð og kvöldstund og ég sá ekki betur en allir hefðu mjög gaman af þessari uppákomu með kjötsúpu og kjöt í karrý, góð tilbreyting.Kveðja… mhn og Jóhanna
08.03.2007 at 22:50 #582672Er vitað hvað koma margir á þessa gleði
kv,,,MHN
-
AuthorReplies