Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
12.03.2003 at 21:52 #470580
Já Fastur ég hef nú gengið um gólf í allan dag og klórað
mér í hausnum yfir því hvað þessi ágæti maður átti við
þegar hann nefndi að gaman væri að vera á díesel.Þó ég sé nú með diesel vél í húddinu mínu þá skil ég ekki ennþá hvað hann átti við, og þó ekki nema hann líti svo á
að hann sé að reykspóla þegar hann sér svartan reykjamökkinn
fylla út í afturspegilinn.en ætli menn séu ekki að horfa í rekstrarkostnaðinn þegar
þeir vilja fara úr bensín í díselinn.Já já Fastur ég veit að þínar tölur sega annað en svona er þetta nú samt.
En ég er allveg samála því að Wrangler verður alltaf
soldið skrítinn með diesel lykt úr húddinu.kv.Lúther
12.03.2003 at 17:05 #470610Ég er að fara upp í Setur næstu helgi,og það ætti að vera
lítið mál að upplýsa þig á Mánudag
kv Lúther
12.03.2003 at 15:25 #470572Já það væri gaman ef maður kallaður "FASTUR" léti
skoðun sína í ljós hér.kv Lúther
07.03.2003 at 17:22 #192293STRÁKAR
það fer að styttast í kvennaferðina eru ekki allir búnir
að gera klárt fyrir dömurnar okkar.skiptir nokkuð svo miklu máli hvort maður útbúi einhvern varahlutakassa, nei ég meina verða þeir nokkuð settir í hvort sem er.
Ég ætla alla vega að sýna frúnni helstu TAKTANA um helgina
í 1000 bíla ferðinni, einhver verður að fara að skáka þeim
Soffíu og stínu fínu við.kveðja Lúther
07.03.2003 at 16:44 #470080Sæll Erling
Endilega prófaðu bara Pattan í átt að Skjaldbreið
það verður nóg af mannskap til að aðstoða þig ef illa gengur
svo er það ekkert sjálfgefið að þér eigi eftir að ganga illa
kannski kemur bíllinn þér bara á óvart.Eitt sem er rosalega gott í að kanna sig og bílinn er
einmitt bara að prófa.
Ekkert hik og góða ferð.kv.Lúther
07.03.2003 at 13:01 #470082jú jú það er bara tóm þvæla.
kv Lúther
07.03.2003 at 12:15 #469902Nú þá er komin eðlileg skýring af hverju frú Soffía
hleypir Begga ekki einum á Trooper!!!!!Því eins og hún segir eru þetta 70% hæfileikar og SKYNSEMI
ökumannsins.Kveðja Lúther
06.03.2003 at 17:10 #470010Nei Björn er þetta ekki bara skrökvulýgi
04.03.2003 at 18:14 #469660Nei soffía mín ekki það, en þú veist hvar Smárinn er.
(nei GRÍN ég bara varð)
28.02.2003 at 13:21 #469596JÆJA JSK MINN ALLTAF Í BOLTANUM ER ÞAÐ EKKI, NÚNA ER STÓRLEIKUR Á SUNNUDAG LIVERPOOL GEGN MAN UNITED.
KV. LÚTHER
28.02.2003 at 09:36 #469590Vignir minn aldrei má maður líta eitt augnablik af þér
þá ertu búinn að koma þér í einhver vandræði.Hvað segir þinn yfirmaður ef þú myndir koma á bílnum í vinnuna á þessum dekkjum og svo merktum Heklu í þokkabót.
En hvernig er það Vignir var Bílabúð Benna ekki að setja
37" dekk frá BFG á markað?Nei drengur minn Benni á örugglega nóg af límmiðum handa þér.
kveðja Lúther
26.02.2003 at 11:36 #469392já ég meina var ekki eithverstaðar sýnt að 4+4 geta
orðið 5.
26.02.2003 at 11:03 #469388Sæll Halli V
"V" ið hlýtur að standa fyrir vitlaus.
þú talar bara um aumingjaskap og skíta hátt út í umboðið
án þess að vita nokkuð um þetta mál.
vonandi skrifar þú annarsstaðar en hér í framtíðinni
26.02.2003 at 10:58 #469258Mig langaði að taka þráðinn upp þar sem hann byrjaði þar
sem ég tók það til að Einar Sól svaraði fyrir sjálfan sigÞað gerði hann ekki enda kannski alger óþarfi að svara svona umræðum,Strumparnir voru með sína árlegu afmælishátíð
og er auðvitað eðlilegt að þeir hafi viljað nota sinn eigin
skála (Setrið)enda enginn annar staður sem kom til greina þar sem strumpagengið eru allir mjög virkir í félagsstarfi
4×4 klúbbsins og hafa verið í mörg ár og klúbbnum til sóma.Síðan Einar hætti í skemmtinefnd 4×4 klúbbsins hefur verið auðsótt mál fyrir núverandi skemmtinefnd að leita eftir aðstoð hans.
Enda kannski enginn furða þar sem hann og stjórn 4×4 leystu
þetta ágreiningsmál sem kom upp í haust með miklum sóma þar
sem allir gengu full sáttir frá borðum.kveðja Lúther
P.S Vonandi kemst Viddi Elliða fljótlega í Setrið til að
máta Mussóinn á planið(hefur gengið eithvað erfilega hingað til:)
25.02.2003 at 15:25 #468886Sæll Fastur
Mig leikur forvitni á að vita af hverju þú fórst á 38" dekk?, Varst þú ekki búinn að horfa á minni dekk fara lengra
en stór dekk???
24.02.2003 at 15:15 #469214Ég hef nú jafn litlar áhyggjur af þessu og hann Kjartan
en nú væri gaman að fá línu frá Einari Sól sjálfum.kv. Lúther
19.02.2003 at 01:43 #467716Sæll Björn Þorri
Ég vill óska þér til hamingju með nýja bílinn.
En guð minn hvar á ég að byrja???
Ég ásamt öllum hinum í Toyota fjöldskyldunni á Nýbílaveginum
eigum eftir að sakna þess sárt að sjá ekki ÞORRA merkið
fyrir neðan Toyotu merkið.Við horfðum agndofa á þennan pistil þinn og enginn okkar gat sagt orð í langan tíma. Vonbrigðin mátti sjá á hverju andliti.
Enginn okkar hafði hugmynd af þessari hugmynd þinni að breyta nýja LC bílnum í 44"
Þú ert mikill hugsuður,góður tæknimaður,og umfram allt frábær bílstjóri. því hefði það verið virkilega gaman að
fá þig í lið með tæknimönnum okkar að smíða svona græju fyrir þig.
En það er alltaf gott að vera vitur eftirá það á við báða
aðila í þessu tilviki held ég.
Þú ert ekki vanur að fara troðnar slóðir vilt stundum troða þær sjálfur eins og margir hafa séð þig gera á LC 90 með
góðum árangri.En þessi slóð sem þú ert að fara að troða núna verður erfið viðureignar og ekki orð um það meir!Gangi þér vel með þennan bíl.
P.S
Hvenær fáum við svo að sjá afraksturinn?Með Toyota kveðjum Lúther
16.02.2003 at 18:43 #468630síðustu bílarnir eru að renna upp kampana, að sögn Einars
er Sóleyjarhöfðin rétt orðin ófær vegna bleytu.
Stórar tjarnir eru komnar um all stórt svæði innúr og var
eithvert bras á köllunum í dag þegar þeir voru að krapast
miili tjarna.Viðar Elliða fór víst ekki lengra en upp í Hrauneyjar sneri
þar við súr í bragði.Patrolinn sem var skilinn eftir í Þjórssárdalnum var í togi
í bæinn ásamt 4 Runner sem bilaði í dag.það var vísst ekki um það að ræða að Jón og félagar úr
Skálanefndinni gætu eithvað hjálpað til þessa helgi þar
sem bíll Jóns Snælands er ekki ferðafær og reyndar er
Tercelinn hjá honum bilaður líka svo til að fullkomna ástandið hjá honum lagðist tölvan hjá honum í flensu svo
kall greyið kemst ekki einu sinni á netið.Björn Þorri er víst ennþá að kenna Gulla að setja LC 90 í
framdrifið og okkar ástsæli formaður er að setja rör undir
4 Runner svo það er ekki lengur neitt hægt að stóla á þessa
nýju björgunarsveit því urðu strákarnir að treysta á guð
og lukkuna um helgina.kveðja Lúther
14.02.2003 at 21:42 #468624Einar Sól lagði á planinu hjá Setrinu kl 21:30 með honum
var 30 manna hópur, já ekki nema 30 manns. Að sögn Einars
er færið uppúr mjög gott.Annar 30 manna hópur er á leiðinni
en er í Hrauneyjum að bíða eftir hjálp við að draga súkkuna upp úr skurðinum og verður henni komið á pall
og farið með það til Rvk.Eitthvað bilerí er ennþá hjá einhverjum í Hrauneyjum en búist við að þeir leggi í Setrið
seinna í kvöld.
Flott veður og flott færi.
14.02.2003 at 19:02 #468622fyrirgefiði Viddi Elliða er ekki á Patrol hann var
ný búinn að fá sér Musso fyrir pattann.En viddi er að engu að síður kominn til baka á Hrauneyjar í
viðgerðarstopp.Þær slæmu fréttir bárust nú rétt í þessu að Susuki jeppi
sem var með í för var að velta og er gjörónýtur
ÞAÐ URÐU ENGINN SLYS Á FÓLKI sem betur fer.
Mikil hálka er á þessum slóðum.
Vonandi fara fréttirnar að verða betri af félögum okkar.kveðja Lúther
-
AuthorReplies