Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
14.05.2003 at 19:10 #467794
Úpps mér var nú bara bent á þessa þvælu út í bæ, og að
Björn Þorri væri farinn að semja ástarljóð til mín.Ég hef nú miklu meiri áhyggjur af þróun þinni en okkar hér
í Kópavogi Björn Þorri minn, þú verður bara að koma í heimsókn og líta alla dýrðina augum
Nei það er kannski ekki góð hugmynd þín vegna.það er verið að breyta c.a 12 bílum í 38" sem allir eiga að vera komnir á götuna í Júní.
Söluhæðsti 38" bíllinn?? og já ætli það ekki enn eitt árið.Enn Björn Þorri ég svara þér bara þannig að ég býð þér í kaffi og hafðu með þér eitthvað róandi.
Kv. Lúther
08.05.2003 at 12:30 #473174Sælir
Er ekki bara að rétt að kanna áhuga félagsmanna til þessara mála, jafnvel með einhverskonar kosningu.
En í röðum 4×4 klúbbsins hljóta að vera menn sem þekkja til
þessara verkefna, hvað til dæmis með Jöklarannsóknar félagið
gætu þeir ekki miðlað að sinni þekkingu hvað viðkemur að bora?kv Lúther
07.05.2003 at 11:54 #473162Jæja jæja strákar!!
Mér finnst alveg frábært að Jón Snæland og hans félagar skuli ennþá kalla sig björgunarsveitarmenn, og aðrar eins
tilfæringar til að redda sér ókeypis þorramat og bjór hafa
bara aldrei sést.Enn eins og þú veist líklega best sjálfur Hlynur geta ekki
allir verið í björgunarsveitum, það á bara ekki við alla.
til þess þurfa menn að vera í afar góðu líkamlegu formi og
með að alla vega meðal greindarvísitölu.Nei Björn Þorri ég var ekki háskælandi þegar fyrrum skálanefnd kom að mér í Setrinu í vetur, enda amaði nákvæmlega ekkert að, var löngu komin í skála og var þar í fínu yfirlæti, þetta voru bara tár sem komu í kjölfar hláturskrampa þegar Jón birtist í hurðargættinni í Setrinu
með sígarrettur i sitthvoru munnvikinu, frosnum gallabuxum
og grét út úr okkur tvo súrsaða Hrútspunga og einn öl.
og þverneitaði að aka til baka í þessu ofsa veðri.Þá hefði nú verið gott að setjast við hliðina á heitum ofninum.
kv Lúther
06.05.2003 at 10:33 #192568Nú í gærkvöldi leit ný skálanefnd dagsins ljós, það væri
gaman að vita hvort þeirra forgangsmál væri ekki að laga
aðeins til eftir OFSA fengna útrás gömlu skálanefndar
og koma kabissunni í Setrinu upp aftur.kabisan ætti að vera til ennþá það þarf bara að finna stóra
gáminn og líklega lyklana af honum aftur:)Kveðjur Lúther
24.04.2003 at 05:16 #472772HVAÐ GERÐIST NÚ!!
Ég fylgdist nú aðeins með þínum skrifum þínum hér fyrir nokkrum vikum síðan, og vonaði að allt hefði endað vel??
Eitt get ég sagt þér Flippi, ég hef verið í þessum klúbbi í mörg ár, stundum hef ég fengið svör sem mér hefur mislíkað við í mínum skrifum.
En oft hef ég líka þurft að skrifa til að biðja um leiðbeiningar og þá hefur sjaldan staðið á svari.
Einnig hef ég þurft að kalla eftir aðstoð þar sem ég og félagar höfum lent í klandri og þá hefur ekki verið talið eftir sér að mæta með suðugræjur til að hægt væri að bjarga túr, og mörg önnur dæmi á ég til. Það sem þér kannski vantar
er að hætta að eltast við leiðinlega einstaklinga og sega einfaldlega "VIÐ"P.S. ástæðan fyrir mínum skrifum svona seint(04.15) er einmitt sú að við vorum að koma heim eftir að félagar
höfðu þurft á aðstoð að halda.Flippi ég vil að þú blandir ekki leiðinlegum vinum þínum við þennan klúbb og ef svo leiðinlega vill til að þessir leiðinlegu vinir þínir eru í þessum klúbb þá talaðu bara við næstu menn!!
Kærar kv. Lúther
24.04.2003 at 03:09 #472796Sæll!
það eru skynjarar fyrir loftpúða fyrir aftan framstuðara
venjulega undir frauðplasti sem liggur utan á stuðara.Í mörgum tilfellum eru þeir tengsir rafmagni líklega í þínum bíl ef skráning er rétt að þú eigir Suzuki.
þegar þú varst að klippa úr og berja í innra brettin
(líklega bílstjóramegin) hefur þú af öllum líkindum skemmt leiðslur frá stuðaranum sem liggja (ja ég veit ekki hvert)
en auðvelt ætti fyrir þig að rekja þær, athugaðu að engin öryggi er tengt við þessar leiðslur.Gangi þér vel
kv.Lúther
19.04.2003 at 11:24 #472616Sæll Benni
jú þú átt fullt af myndum af þessum glæsilega bíl, ég er reyndar staddur í þínum heimabæ þessa stundina og erum við
félagarnir að reyna að komast út fyrir malbikið í dag en þær
fréttir sem við fáum héðan eru allan tengdar bleytu og krapasvona páskafæri hefur maður bara ekki séð á Akureyri í háans herra tíð.,en vonandi næ ég að renna til þín um helgina og afhenti þér þá myndir af bílnum þar sem hann
stendur á 44"reyndar voru þær fréttir sem ég fékk af þér að þú hefðir farið með félugunum eithvað upp á fjöll?
en vonandi skilum við okkur niður aftur við Akureyri á morgun eða Mánudag.
bestu kveðjur Lúther
16.04.2003 at 12:06 #471406Þar myndirðu fá bætt boddýskemmdir sem verða á bílnum það er
að segja allt sem ísinn skemmir utan á bílnum, en ekki vatntstjón, ef til að mynda vatn fer inn á mótor eða inn í yfirbyggingu bílsins og skemmir þ.a.l. teppi,innréttingu eða
fjarskiptatæki.
16.04.2003 at 09:17 #472552Já ég veit ekki, þetta hljómar nú ekkert sérstaklega spennandi fyrir mig allavega.
Ef ég skil þetta rétt þá getur maður mætt ofan í einhverja
drullutjörn og spólað sig fastan, já nei takk.
15.04.2003 at 11:48 #472486Sæll Snorri
Allt sem þú segir í þínum þræði hér að ofan er vissulega rétt, við hjá A.T. áttum pantað pláss fyrir 20 manns, en vegna veikinda ferðalanga ákváðum við að hætta við.
Það hefði átt að vera skylda okkar að láta Hafstein á Hveravöllum vita af þessum breyttu áformum okkar.
það verður hringt í hann og hann beðinn velvirðingar á þessuTakk fyrir að skamma okkur, það verður örugglega til þess að við gleymum okkur ekki næst.
kv Lúther
15.04.2003 at 09:16 #472464Nei, nei Gunnar minn þetta kemur skemmtinefnd ekkert við.
Enda hefur hún aldrei verið beðinn um að taka að sér þessa
ferð.Ætli old boys menn hafi ekki bara gleymt þessu enda komnir til ára sinna:)
14.04.2003 at 21:21 #192484Samkvæmt vetrardagskrá klúbbsins ætti nú að verða ný afstaðin Old boys ferð???
Ekki veit ég nú hvort þessi ágæta uppákoma varð af veruleika eða ekki, en hef samt grun að hún hafi ekki verið farin.
Og ástæðuna hef ég ekki grun um, nema að lyfjameðferð
old boysanna hafi staðið sem hæðst og því ekki þorandi að hleypa þeim út á þjóðvegina hvað þá á fjöll.Reyndar þegar maður spyr kollegana hver þessi old boys hópur sé hrista allir gráa skallan og þykjast ekkert vita
og enginn vill kannast við að hafa verið tilnefndur í þessa ferð.
Því spyr ég veit einhver eithvað??kv.Lúther
10.04.2003 at 00:43 #472256Það er rétt Hlynur að menn ættu nú kannski ekki alveg að
fara að huga að því að setja sumardekinn undir.En sumir ónefndir hafa þó tekið það til bragðs að hreinlega
"bolta" dekkin utan um felgurnar til að gata ekið áhyggjulausir um öræfin í 1.5 pundum út í næsta krappapyttEnn aðrir líka ónefndir (NISSAN MENN)hafa tekið það til bragðs að rífa hreinlega öll sæti og teppi úr bílnum og
eru alvarlega að hugsa um uppblásna IKEA stóla óg vindsængur
í gólfið til að geta mætt klárir aftur í Jökulheimana.Nú enn aðrir einnig ónefndir hafa gerst svo stórtækir að
þeir hreinlega skiptu um bíltegund um miðjan vetur því
þeir héldu að þá loksins færu þeir að drífa meir, en þeir sökkva víst seinna grindarlausir.Og svo eru það nátturulega þeir sem grátbáðu um að fá inngöngu í ROTTUGENGIÐ, því allir vita jú að rottur plumma
sig vel í ræsum bæjarins, en auðvitað eru þeir líka ónefndir
nema hvað!!!Nei strákar og stúlkur(ónefndar) áfram með smjörið, upp með fjörið. Í VÖÐLUR OG Á FJÖLL.
KV. LÚTHER
08.04.2003 at 21:11 #472244Við fórum tveir á tveimur 38" bílum upp hjá Jaka á Sunnudag og var færið bara þokkalegt, skyggnið var akkúrat ekki neitt og fórum við því bara að Hábungu (1,335 m)
En eitt er á hreinu eftir þá ferð að Kaldidalur er ófær.kv.Lúther
05.04.2003 at 14:52 #192451Þekkir einhver hvernig Langjökull hefur tekur á móti gestum núna nýlega.
05.04.2003 at 12:16 #472088Þarna held ég að um sé að ræða boddý af Explorer sem sett er á bronco grind.
03.04.2003 at 19:08 #472052Jú Eyþór það standa yfir viðræður um næsta bjórkvöld
en ekki hægt að staðsetja það að svo stöddu.
En það styttist.kv skemmtinefnd
02.04.2003 at 12:53 #471960Sælir strákar
Í mínu tilfelli um daginn höfðu þjófarnir ekkert skemmt
til að komast inn í bílinn hvorki hurð né sviss.En við nánari athugun komst ég að því að gamall lykill úr Toyotu Tercel dugði á svissin með smá lagni þó.
Ég tók þá alla cilendera úr hurðum og svissin og keypti
annað sett í umboðinu og skipti um, í mínum gamla Hilux
hefur aldrei verið fjarstýring svo á tólf árum hlýtur
hurða cilender að slitna mikið.Ég leytaði til Neyðarþjónustunar og sögðu menn mér þar
að þeir gætu breytt hurðarcilendernum og svissinum án þess að skipta um þá en sú þjónusta kostaði ýfið meira en nýtt
lásasett í allt draslið í umboðinu.kv.Lúther
30.03.2003 at 23:29 #471646Já það hefur lítið frést af þessum pæjum á fjöllum þessa helgina og allir sem að maður spyr og yppta bara öxlum.
Nei Hlynur þeirra för hefur farið það leynt að þeir hljóta
að vera í einhverjum sérverkefnum í sambandi við þetta Íraksstríð og það næsta sem maður fær að heyra frá þessum
annars miklu mönnum að þessir fararskjótar þeirra hafi tekið
við Hummernum sem stríðstól.Já hLYNUR hRÆDDAGENGIÐ er fínt nafn á þá, annars datt mér
líka í hug "EKKERT GENGIÐ"kV. LÚTHER
30.03.2003 at 13:05 #471668Siggi það vantar símanúmer þar sem hægt er að ná í þig.
við finnum þennan líka strákar.
kv Lúther
-
AuthorReplies