Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
13.10.2008 at 22:20 #630066
þá vinsamlegast leggið til hliðar tvo miða á árshátíðina fyrir mig og spúsu mína. Verða þeir væntanlega greiddir með hinum handónýta íslenska gjaldmiðli er króna nefnist þegar nær dregur herlegheitunum þ.e.a.s.ef hún hefur þá ekki runnið sitt skeið á enda þegar að þessu kemur. Með bestu kveðjum, Logi Már.
01.10.2008 at 21:19 #630258Þessi stærðarpöntun er þá sennilega gerð í sparnaðarskyni svo að ég og mínir líkir getum verið tveir í einni peysu. Þetta kalla ég að fara vel með fjármuni klúbbsins, L.
27.09.2008 at 22:09 #629908Ef þetta er að virka verður þetta orðið staðalbúnaður í bílum innan skamms, L.
18.09.2008 at 18:10 #629542Góður, Borgþór,,,
10.09.2008 at 22:00 #628614Sæl öll, styttist nú óðum í brottför stikuferðar og vegna matarinnkaupa þurfum við að vera búnir að fá á hreint á hádegi á morgun hversu margir verða með. LOKAFRESTUR Á SKRÁNINGU ER ÞVÍ HÁDEGI Á MORGUN. Eftir það munum við svo auglýsa hvenær brottför er áætluð fyrir þá sem vilja keyra saman í hóp á áfangastað. Takk að sinni, Logi.
08.09.2008 at 18:14 #628366þá er þessari vinnuferð í Setrið lokið að þessu sinni. Um helgina náðist að grafa fyrir og steypa sökkulsúlurnar ásamt því að slá upp fyrir og steypa sökkulveggina ofan á þær þannig að undirstaðan undir húsið er komin, þá er bara eftir að rífa timbrið af fyrir veturinn. Tankurinn fyrir affallið af eldhúsvaskinum var einnig settur á sinn stað og gengið frá honum ásamt því að skifta um nokkrar rúður og vinna að lagfæringum á gluggum. Einnig náðist að laga veginn inn við Tjarnarver, sett var í hann ræsi og fyllt að. Komu bændur í leitum að máli við okkur inni í Setri á sunnudagsmorguninn og spurðu hvort við hefðum staðið að þessum lagfæringum og voru þeir afskaplega ánægðir með þessa framkvæmd okkar og kunnu okkur hinar bestu þakkir fyrir. Steypuvinnu var lokið um kl. ellefu á sunnudagsmorguninn og fóru þá skálanefndarmenn í það að skifta um vatnsdælu og var það verk klárað á um tveim tímum. Aðrir fóru í að taka til í kringum húsið vegna framkvæmdanna og ganga frá því sem ganga þurfti frá. Það má sjá á þessu að í þessari ferð var alveg einstaklega samhentur mannskapur sem virtist frá upphafi vera ákveðinn í því að þetta skildi allt ganga eftir sem það og gerði og voru menn gengnir snemma til og síðla frá eins og máltækið segir. Ég vil þakka öllum þessum mannskap fyrir góð viðkynni og það var einstaklega gaman að vinna með ykkur öllum þessa helgi þar sem allir lögðu sig virkilega fram. Kveðjur, Logi Már.
02.09.2008 at 18:17 #628604Kominn tími til að skrá sig formlega, reikna með að vera einn + sleggja + álkarl. Kveðjur, Logi.
31.08.2008 at 19:42 #628484Fróðleikskorn um svefnpoka hann Magnús, vinur minn
Myndast við að skrifa inn á veraldarvefinn
Upp þá rísa önugir og snúa því í háð
Einhverjir sem ótækt finnst að skrifa svona þráð
.
Ef fræðast vilt um þvottapoka góði Hlynur minn
Þá held ég að þeir dugi ekki á þitt grófa skinn
Og þig ég vil því upplýsa um það min fine ven
Að strigapoka góða þeir víst selja í Ellingsen
.
Með þeim þú vissulega getur skúrað vel þinn skráp
Til sanns vegar má færa að það gefi fjör og táp
Og grófleiki þess góða efnis rauðan gefur rass
Ritningu nú lokið læt og signi yfir, pass.
.
Kveðjur, Logi.
28.08.2008 at 20:08 #628298hann bremsar að ég held nokkuð jafnt.
28.08.2008 at 19:34 #628292Hann er bara að slíta munstrinu, felgur eru réttar, hann liggur ekki i bremsu. Sjálfsagt rétt að athuga framstillingar og demparagúmmí. En hvernig virkar nó-spin læsingin? Losar hún alltaf annað hjólið og tekur á hinu eða virkar þetta ekki þannig?
28.08.2008 at 18:16 #628394Sæll Sævar og velkominn í þetta stórskrýtna jeppasamfélag, gaman að fá svona hressa kynningu á nýjum félaga. Vertu velkominn á opið hús í kvöld. Hilsner, Logi.
27.08.2008 at 17:37 #202835Vinur minn er með Suburban á 38 tommu dekkjum sem misslítur alltaf afturdekkjunum. Afturhásingin er stóra 14 bolta GM hásingin með no-spin. Er einhver þarna úti sem getur gert sér grein fyrir því af hverju þetta stafar, taka skal fram að hásingin er ekki skökk og annar öxullinn er ekki í sundur. Hilsner, Logi.
21.08.2008 at 19:36 #627758and don´t you know it,,,
21.08.2008 at 17:26 #627898um að þessi foss sé núna á botni Hálslóns, líkist mjög fossi sem ég sá á svæðinu nokkrum dögum eftir að þeir settu tappann í lónið, hvort hann hafði nafn veit ég ekki. L.
21.08.2008 at 09:26 #627712Væri ekki ráð að hafa samband við ljósmyndarann sjálfan og láta hann varpa ljósi á málið eða þannig, L.
20.08.2008 at 21:27 #627570djöfull er hann flottur þessi, meira að segja með aukabensíntank, þægindastuðullinn þó heldur lágur og ekki mundi hann nú skora hátt á dótastuðlinum hans Óskars, ekki einu sinni rúðupiss, L.
18.08.2008 at 22:44 #627736að ég komist, veltur svolítið á því hvort ég verð búinn að raða draslinu saman, get að öðrum kosti kannski fengið far með einhverjum. Þar sem búið er að skrá Loga er þá ekki tilvalið að skrá mig sem Hinn-Loga svona til aðgreiningar. Hilsner, Logi.
16.08.2008 at 10:59 #627286Góður þessi dótastuðull hjá Óskari, vantar að vísu læst framdrif í hann, það hefði sennilega gert gæfumuninn hjá mér að skríða yfir þrjá á stuðlinum (fékk 2,9 ) þannig að maður á langt í land með að ná fyrstu einkunn, hvað þá að dúxa, L.
15.08.2008 at 11:24 #627260eiginlega bara sófaSETT, L.
14.08.2008 at 23:04 #627454Móður er Móri
magur og gamall
liggur hann lúinn
lélegur orðinn
fífil sinn fegri
feyskinn má muna
tekinn á taugum
tregur til hreyfings.
.
Minnugur margs
Magnúsi þakkar
samveru stundir
sínar þeir áttu
sýnist mér svo
stundin sé komin
kistuna klambra
klerkinn til kalla.
.
Maggi minn, vona að ástandið sé allavega ekki svona slæmt, kveðjur, Logi.
-
AuthorReplies