Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
03.02.2012 at 16:56 #749006
Þða er soðið í grindina á henni að aftan "F4X4" og hún er galvaniseruð þannig að það er augljóst ef það hefur verið slípað af. Bið alla félaga að hafa augun opin því það er mikið tjón fyrir klúbbinn að tapa þessari kerru. L.
24.01.2012 at 18:03 #748165Held að það sé upplagt fyrir stjórn klúbbsins að senda inn fréttatilkynningu þar sem klúbburinn fordæmir hvers konar framferði sem þetta og skorar á "mótorista" þessa lands að vinna ekki ferðafrelsinu í óhag með svona ábyrgðarlausri framkomu gagnvart samferðamönnum sínum sem eru að reyna allt sem þeir geta til að verja ferðafrelsið. L.
18.01.2012 at 12:19 #745923Hringur um Hafravatn hljómar betur og betur L.
13.01.2012 at 21:04 #745551Iss.piss maður, bíðið bara, það líður ekki á löngu þar til ég verð búinn að setja HEYBLÁSARA í Mussoinn og þá verður nú blásið maður. Túrbínur hvað,,,,,,,, :). L.
10.01.2012 at 20:04 #746615Mæli alltaf með tommustokk,,, en það er svo önnur saga,, :). L.
10.01.2012 at 15:43 #745531Það er allavega löglegt að aka á þessu inn í Nautöldu þar sem þetta er beltatæki,,,,, L.
10.01.2012 at 13:50 #746557Það má allavega keyra á þessu inn í Þjórsárver,,, L.
08.01.2012 at 21:54 #7464256 krónur á Orkunni líka. L.
08.01.2012 at 18:42 #745499Tjahhh, ef biðlistamenn vilja setja upp annað þorrablót er næsta lausa helgi í Setrinu 10-12 febrúar,,, L.
06.01.2012 at 10:43 #746207Veit ekki alveg hvar mörkin liggja en þú átt að vera í lagi í 80 gráðum að ég held, mundi halda að um 90 gráðurnar værir þú að lenda í vandræðum. Best er fyrir þig að setja stóran kæli inn á kerfið og öfluga viftu með honum því að um leið og þú ert farinn að lenda í einhverju skaki og ert undan vindi ertu oft lentur í vandræðum með hita. Er með þetta svona í bílum hjá mér og er með viftuna á "manual" rofa þannig að ég hendi viftunni inn um leið og ég sé fram á vond skilyrði svo sem að keyra undan vindi í þungu færi. Svo er mjög mikilvægt að skifta um olíu á skiftingunni ef hún hefur hitnað eitthvað umfram það sem æskilegt getur talist. L.
06.01.2012 at 10:34 #745477Það ER blót helgina eftir í Setrinu Atli því suðurlandsdeildin er með sitt blót helgina þriðja til fimmta febrúar í Setrinu. Mikið um að vera á fjöllum þessa dagana.. L:
06.01.2012 at 00:32 #745469Held að málið snúist ekki um skort á gistplássi strákar heldur skort á plássi við borðhald. M.ö.o. það geta mun fleiri gist skálann heldur en rými til þægilegs borðhalds gefur tilefni til. L.
03.01.2012 at 21:05 #745447Sé það ekki fyrir mér að þótt Kristján Loga drykki að hann gæti toppað drykkjuna á bílnum hja þér Teddi,,,,, L.
03.01.2012 at 15:09 #745441Ekki skrýtið að sjóðurinn sé tómur hjá Tedda eftir síðustu aðgerðir. Þarftu þá ekki að taka eldsneytið á 12 mánaða raðgreiðslum líka Teddi? L.
31.12.2011 at 22:29 #745403Þarf að skrá mig +2 í staðinn fyrir +1. Kv. Logi Már
31.12.2011 at 09:34 #745383Var beðinn um að skrá Einar Sól +1 L.
31.12.2011 at 07:52 #745381Skrái mig sjálfan +1. Kv. Logi Már.
20.12.2011 at 12:54 #744519Við í skálanefnd Seturs vorum búnir að ræða þetta mál og vísa því til stjórnar með óskum um að stjórnin fæli lögfræðingi klúbbsins að athuga hvernig við ættum að bera okkur að í þessu máli. Geri mér ekki alveg grein fyrir því sjálfur hvernig við eigum að tækla þetta mál. L.
17.12.2011 at 23:28 #221712Hvernig er það, eru jólasveinarnir ekki að koma til byggða þessa dagana? Hefur einhver orðið var við Skúraskelfi? Eða Dekkjasníki og Jeppalúða? Hélt að þeir ættu að vera komnir en hef ekki orðið var við þá ennþá. Hvað segið þið félagar, hafið þið orðið varir við einhverja af þessum bræðrum? L.
12.12.2011 at 12:18 #743925Er ekki alveg 100% viss en minnir að það séu rúmlega 13 pund eða tæplega eitt bar. Kv. L.
-
AuthorReplies