You are here: Home / Kristinn Sigurþórsson
![]() |
FERÐAKLÚBBURINN 4X4 |
|||
Menu |
Flottur bíll hjá þér… endilega setja inn fleiri myndir
kv
K
Ætlaði að kaupa mér rofabox í jeppan minn en fannst tæpur 20.000. kall sem að boxið kostar hjá Bílasmiðnum of mikið ( þeir eru samt yfirleitt með góð verð) svo ég smíðaði þetta fyrir 2800 kr. Keypti rofana hjá N1, þeir eru með led-ljósi í ,fyrir 2400 kr, boxið keypt hjá Íhlutum fyrir 400 kr.
kv
K
Tær snilld..
En hver er verðmunurinn á þessum tveimur tegundum??
kv
Kristinn
Daginn
Hafið þið eitthvað verið keyra á steinolíu? Gengur það upp fyrir alla disel bíla? Eru menn að blanda sjálfskiptivökva útí og þá í hvaða hlutföllum? Er sjálfur með lc-80 og datt í hug að ath hvort það væru ekki til hagstæðari leiðir til að reka hann..
kv
Kristinn
Hjólastillingar Hamarshöfða… hann Siggi sem er þar er mjög sanngjarn..
Sælir strákar og takk fyrir svörin
Ég er að lenda í þessu í háa drifinu í venjulegri keyrslu, bílinn er að skipta sér í rúmlega 3000 snúningum, spurning hvort skiptingin sé eitthvað biluð hjá mér
kv
Kristinn
Daginn
Langaði að spyrja ykkur að einu
Er nýlega búinn að eignast Lc-80 og er ekki alveg sáttur við skiptinguna, hann skiptir sér seinnt í annan gír og gerir það þá mjög snögglega, hvað ætti ég að gera?
Takk
Kristinn