Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
06.04.2005 at 22:01 #195800
Ef ég fer inná notanda fæ ég ýmist þann möguleika að skrá hann sem vin eða fjarlægja notanda sem vin. Ég er ekki allveg að átta mig á þessu. T.d. fór ég inná Lúther vin minn og þar fékk ég bara þann möguleika að fjarlægja notanda sem vin, SORRY Lúther þú mátt ekki vera vinur minn lengur. En getur einhver þarna úti frætt mig um þessa vini, fær maður brandara frá þeim í pósti eða bara bögg? eða hvað? og afhverju má ekki Lúther vera vinur minn? Vill einver vera vinur minn?
Kveðja Lella að leita að vinum
16.03.2005 at 12:09 #519118Á forsíðunni er linkur sem heitir NETFÖNG þannig að auðvelt er fyrir aðila að ná sér í netfangalista. Mitt netfang var tengt við ritnefn@f4x4.is og það fylltist allt af ruslpósti og víusum sem komu í gegnum ritnefdar-netfangið ég hef ekki fengið póst í marga mánuði í gengum það og sakna þess ekki. En þessi linkur mætti allveg heita eitthvað annað en netföng svona aðeins til að erfiða mönnum að ná sér í lista.
kv Lella
12.03.2005 at 10:29 #518658Ég varð ekki hissa þegar ég heyrði um þetta mál fyrir vestan. Það stendur í lögunum að öll umferð vélknúinna ökutækja er bönnuð nema með leyfi þjóðgarðsvarðar. Fannst mér allveg ótrúlegt að það var samþykkt á sínum tíma að hafa þetta inni. Ég átti hins vegar von á að nánast allt hálendið færi undir svona lög og svo yrði akstur bannaður nema eftir ákveðnum leiðum.
Það er góður punktu að hafa fundargerðir stjórnar aðgengilegar á vefnum fyrir félaga, svo við getum aðeins fylgst með hvað stjórnin er að bauka.
Uppgjör ferða er líka eitthvað sem á að vera sýnilegt.
Og svo þessi gamla lumma með skálgjöldin, það er allveg ótrúlegt að fólk sem keyrir um á jeppum uppá margar milljónir geti ekki staðið skil á skitnum 800 kalli fyrir gistingu.
Þegar við komum í Árbúðir 21. janúar hafði enginn skrifað í gestabókina síðan Eddi kom í október og gerði skálann kláran fyrir veturinn samt var þar tómur gaskútur.
Kveðja Lella
26.02.2005 at 20:12 #517962Hvernig er með menn ætlið þið að mæta.
26.02.2005 at 11:25 #517770Logn, sólskin, smá frost, þetta bara gerist ekki betra og við bíllausir heima, ég held bara að ég fari að gera Skoda kláran á fjöll.
P.S Hjá Gullfingri í Kópavogi.
25.02.2005 at 21:54 #517756Hvernig var með heimboðið einhverjar fréttir.
25.02.2005 at 21:52 #517754Gott mál hjá Ása að bregðast svona við og bjarga málunum
og eiga þeir hjá Gúmmívinnustofunni heiður skilið fyrir viðbrögðin.
Að sjálsögðu varð Musso fyrstur í Setrið eða kanski Willis allavega voru Lella og Katrín komnar í hús rétt eftir hálf níu.
11.02.2005 at 17:35 #195466Flott hjá ykkur stelpur í morgun í Íslandi í bítið.
þeir sem misstu af viðtalinu geta séð það á vísi.is
Kveðja Lella
06.02.2005 at 22:32 #512424Þeir sem eiga von á verðlaunum verða að mæta á Lofteiði á morgun eða senda fulltrúa fyrir sig
02.02.2005 at 23:26 #515312Þetta er nokkuð laglegur hópur.
síminn hjá mér er 852-4283
ég fer frá Geysi kl 14 á föstudag í Árbúðir og svo Setrið.
Ef eihverjir vilja vera í samfloti þá hafið samband.
Þorgeir sími 892-6746
02.02.2005 at 22:47 #515374Lúter ætlar að fara Sóleyjarhöfðan annað kvöld og við fáum alveg örugglega fréttir af þeirri ferð.
02.02.2005 at 19:53 #195395Hæ hæ og hó
nú er farið að styttast í Þorrablótið
við ætlum að fara frá Geysi kl 14 á föstudag veðjum á erfiðu leiðin þ.e. Kjöl og Kerlingarfjöll.
Á þessari leið er mesta von um bras og svo þarf að skoða hvort fært er fyrir Litludeildina í Árbúðir.þeir sem vilja slást með í för geta haft samband í síma 892-6746 hvort sem fólk er á leiðinni í Setrið eða á blótið í Árbúðum.
Kveðja Þorgeir
29.01.2005 at 18:30 #513350Samkvæmt félagatali 4×4 eru 25 Musso-eigendur í klúbbnum.
Það eru ótrúlega fáir miðað við ágæti þessa bils.
Ég er mjög sáttur Musso-eigandi en ég keypti hann breyttan.
kv Lella
19.01.2005 at 15:20 #512422Hvað óþolinmæði er þetta. Úrslit verða tilkynnt á febrúar fundinum. Það bárust fleiri en 3 sögur þannig að það fá ekki allir verðlaun
meira síðar. Í sambandi við Setrið vorum að spá í að kaupa bara Moggan og gefa Setrið út daglega í stað hanns.
kveðja Lella.
11.01.2005 at 17:44 #512416Sögurnar streyma inn enda glæsilegir vinningar í húfi
Vil biðja þá/þær sem senda mér sögu í tölvupósti að fá staðfestingu frá mér um að sagan sé móttekin.
Hætt verður að taka við sögum kl 24 þann 15. jan
Kveðja Lella
10.01.2005 at 15:30 #512690Eftir því sem ég best veit er ekki hafin skráning í ferðina og verður það örugglega rækilega auglýst þegar þar að kemur. Vil aðeins benda á að ég tek ekki við skráningu í þessa ferð og Lella og Ella er ekki það sama. Alla vega þeir sem eru búnir að senda mér skráningu þurfa að gera einhverjar aðrar ráðstafanir.
kveðja LELLA
05.01.2005 at 17:52 #512414síðasti skiladagur er 15 en ekki 10 eins og hér að ofan er sagt.
05.01.2005 at 08:28 #195165Vil bara aðeins minna ykkur á að síðasti dagur til að skila sögum í samkeppnina er 10. janúar. svo nú fer hver að verða síðastur.
kv Helena
15.12.2004 at 10:53 #511016Ég keypti um daginn box á Ebay, sömu tegund og fæst í Stillingu það var mun ódýrara hingað komið en það sem fæst hér út í búð og er sennilega ennþá ódýrara núna þar sem dollarinn hefur lækkað svo mikið.
Lella
05.12.2004 at 23:07 #510342Vorum að koma heim eftir frábæra ferð, verð að taka það fram að Trúðar festu sig aldrei og þáðu ekki spotta. Myndir verða komnar inn á Trúðasíðuna á morgun.
Kveðja. Þorgeir
-
AuthorReplies