Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
22.06.2005 at 15:40 #524406
Ég hef skipt við VÍS í 18 ár og enginn hefur getað boðið mér betur. Fékk td ráðgjafa frá sjóvá í vor og hann reyndi ekki að bjóða betur.
71.721 borga ég fyrir allan pakkan alkaskó og utanvega kaskó fyrir minn Patrol.
þó að það sé mikið þá er ég mjög ánægð með þau samskipti sem ég hef átt við VÍS og myndi ekki skipta þó að annað félag biði mér betri kjör.
Kveðja Lella
20.06.2005 at 10:51 #524284Fyrir ári síðan eða svo var alltaf eitthvað að gerast. Ef maður setti inn auglýsingu var hún horfinn af Topp 10 eftir 1-2 tíma. Núna lítur maður inn á síðuna eftir sólarhring og ekkert hefur gerst, kannski 1 ný auglýsing og örfá svör á spjallinu.
Viðmótið á myndaalbúminu er þannig að ég nenni ekki að finna út hvernig á að setja inn nýjar myndir, nógu flókið var að finna út hvernig ætti að setja inn auglýsingu og nýjan þráð.
Þetta er alveg steindautt. Kveðja Lella
12.06.2005 at 01:53 #524078Við erum klár hvenær sem er. Við Trúðar höfum rætt svipaða hugmynd í sundlaugarpatýi og einnig er ég búin að ympra á þessu við Geir stór-vin minn Horde sem leist vel á þetta. Reyndar var ég að hugsa um alvöru vetrarferð í jan-feb.
Kveðja Lella
10.06.2005 at 13:31 #523136Flott grein í nýjasta Séð og heyrt um ferðina.
Kveðja Lella
06.06.2005 at 11:40 #523166eða ekki. Miðað við upptalninguna í auglýsingunni er verðið ekkert svo fjarri lagi, en hann er dýr fyrir það.
06.06.2005 at 11:29 #523852Það eru líka komnar myndir á Trúðasíðuna.
29.05.2005 at 21:50 #523590Hlynur ég held að þú sért að misskilja þetta Óskar er kóari hjá Benna Toy-ið er ekki með í för.
29.05.2005 at 21:49 #523588… það verður erfitt að toppa þessa mynd en jú það er þá bara bikiní-ið ég verð að toppa þetta með einhverjum mögulegum eða ómögulegum ráðum.
Kannski ég já segjum ekki meir.
kv. Lella
29.05.2005 at 21:41 #523584Ég held að Óskar þoli töluverðan hraða, viltu ekki bara prufa og láttu okkur svo vita hvenær hann gefst upp og tekur orð sín til baka.
Kveðja Lella
29.05.2005 at 20:14 #523576Við þökkum skemmtilega helgi, nokkrar myndir komnar inn á [url=http://trudur.alvaran.com:2ym7ujdr]Trúðasíðuna[/url:2ym7ujdr]
Þorgeir, Lella og börn
27.05.2005 at 08:14 #523552Ég fékk email í kvöld frá félaga sem heitir Olgeir og hann talaði við ýtumanninn sem var að koma úr Landmannahellir í gærkvöldi og sagði sá að búið væri að opna úr Rangárbotnum inn í Landmannahellir en ekki yrði reynt við skaflinn á Dómadalshálsinum næstu 2 vikur og það væri blautt á Fitjunum sem sagt ófært og óráðlegt að vera að reyna þá leið
Kv Þorgeir
26.05.2005 at 21:07 #523536Vitið þið að fótbolti var fundinn upp til að treggáfað fólk hefði eitthvað til að horfa á í sjónvarpi.
Ef eitthvað gæti hugsanlega gerst er þér sagt frá því …. ef ekkert gerist er þér sagt af hverju ekkert gerðist….. nú ef svo eitthvað merkilegt skéður þá er það sýnt hægt jafnvel 2x og nákvæmlega útskýrt fyrir þér hvað gerðist
Kveðja Lella
25.05.2005 at 14:08 #523472Fyrst þeir keyptu auglýsingu í Setrinu get ég tekið þessu. Þetta er fín búð ég hef verslað mikið þarna, þeir eru oft með 50% afslátt af öllu í búðinni.
Aldrei að vita nema maður láti freistast til að versla eitthvern óþarfa bara af því það er 50% aflsáttur.
Og Ofsi mikið ofsalega ert þú vel upp alinn ef það dugar konunni að opna ruslaskápinn og segja þér að fara út með ruslið
Kveðja Lella
25.05.2005 at 12:09 #523464Ég var nú ekki hrifin af þessum auglýsingapósti sem kom inn um lúguna merkt 4×4, Útivist & Sport hefur ekki viljað auglýsa í Setrinu ég ætla rétt að vona að þeir hafi borgað eitthvað fyrir að fá að senda þetta á félagsmenn.
Kveðja Lella sem þolir ekki ruslpóst
23.05.2005 at 13:11 #523290Hér með mótmæli ég 50 cm þetta er óframkvæmanlegt að öllu leiti og ferðamennska að vetri mun leggjast af.
Þorgeir Egilsson kt 0102624969
23.05.2005 at 13:09 #523214Þetta er snilldargrein og hefði mátt vera meira áberandi en farið og skrifið undir mótmælin og svo verður væntanlega farið í bíltúr saman og listinn afhentur.
Mótmælendakveðja Lella
23.05.2005 at 13:03 #523284Ég Helena Sigurbergsdóttir kt. 1408694069 mótmæli hér með 50 cm ákvæðinu ef þetta stendur inni eru allar vetrarferðir búnar að vera hvort sem er á jeppa eða snjósleða.
23.05.2005 at 10:11 #523200Ég hef reyndar ekki séð Fréttablaðið en þessa mál var hér á þræðinum um daginn og þá var birt þessi blessaða reglugerð með 50 cm snjódýft.
Ef búið er að skrifa undir þetta getum við lagt niður þennan klúbb og hent bílunum okkar. Allavega getum við ekki selt þá.
Kveðja Lella
22.05.2005 at 13:37 #523084JÞJ ertu ekki að grínast? Hoppukastala inní Landmannalaugar? Þarna er fínn pottur og fullt af flottu grjóti. Ef farið yrði með hoppukastala kæmi ég allavega ekki með
Hoppukveðjur Lella
22.05.2005 at 13:35 #522938þetta er nú að verða algjört bull, afhverju drekkið þið ekki bara þennan vonda mjöð? þarf virkilega allar þessar seremoníur í kringum þetta? Það er mikið auðveldara að drekka venjulegan bjór hann þarf bara að vera kaldur, þarf hvorki að mæla froðuna eða hitastigið !!!!!!!!!!!!!!
En þar sem tommustokkurinn fer að verða staðalbúnaður í hverjum jeppa er hægt að dunda sér við að mæla froðu á kvöldin
og Skúli ég læri ekki á neinar sérþarfir í kringum þetta sull ef þið getið ekki drukkið þetta þá þá þá þá getið þið bara sett í glösin sjálf/ir
SanMiguel-kveðjur
Lella
-
AuthorReplies