Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
24.08.2008 at 11:27 #628016
Það er ljóst að ekkert fær að vera í friði.
Mæli með að sett verði upp myndvél í Setrinu.
Hugsa að umgengnin myndi batna töluvert og skálagjöldin skili sér betur.
Kveðja Lella
22.08.2008 at 22:39 #620222Þetta er sýning sem haldin er í tilefni af 25 ára afmæli klúbbsins og held ég að meiningin sé að hún spanni söguna og sýni vel þróun og framfarir sem verið hafa þessi 25 ár. Þarna vera 100-150 bílar sem spanna alla breiddina vonandi en til þess að þetta verði eins flott og hægt er verða allir að leggjast á eitt og gera þetta með stæl eins og okkur er einum lagið……. er það ekki ?
Kveðja Lella
22.08.2008 at 22:12 #627930Lýst vel á að hafa Landsfund í eitt ár……
dem er laust sæti í e-h nefnd ?
kveðja Lella
22.08.2008 at 17:32 #620212Flott hugmynd Baldur, ég væri líka til í að sjá þessa röð.
Kveðja Lella
21.08.2008 at 19:27 #627756Úlfr, hvaða viðkvæmni er þetta eða vissirðu ekki að það er skotleyfi á Hjálparsveitina, það má hver sem er skjóta hverju sem er á meðlimi Hjálparsveitar……..
kveðja Lella
20.08.2008 at 23:18 #627752Auglýsingin var uppfærð 15 ágúst, þess vegna sést ekki fyrri auglýsingin sem var komin löngu fyrr en ég ætla ekki að fara að agnúast um það en ég legg höfuðið að veði um að það er búið að auglýsa þessa ferð fyrir löngu síðan. Hvet ég hér með bæði Jón og Séra Jón að skrá sig og mæta í örugglega flotta ferð.
Kveðja Lella
20.08.2008 at 23:02 #627748akkurru kemur allt 2x sem ég geri í kvöld
Lella
20.08.2008 at 23:02 #627746Góðður Maggi !!!!!!!!!!!
En ég var akkúrat að hugsa áður en ég sá póstin frá Úlfr, einu sinni var fjölskylduhátíð haldin í Setrinu sömu helgi og menningarnótt ef ég man rétt var hátíðin færð vegna þess að fólk tók menningarnótt fram yfir Setrið.
Jú ég man eftir þessar vinnuferðarauglýsingu í langan tíma en var líka búin að heyra um langan fattara hjá nei segi ekki meir, en það sem ég var að spá er HVERSU margi myndu mæta í vinnuferð í Setið ef eldsneytislíterinn væri helmingi ódýrari og ef ekki væri menningarnótt ?
man eftir nokkrum röddum í vetur þegar ég fór í eldsneytismótmælin sem sögðu að eldsneytisverð væri ekki hagsmunamál klúbbsins. En ég segi og stend við það ef eldsneytisverð er eins hátt og það er í dag og jafnvel hærra þá hefur meðal Jón ekki efni á að fara á fjöll meðal annars til að fara í vinnuferð í Setrið……
bara svona að spá
Lella
20.08.2008 at 20:22 #627708Tryggvi fer alveg að verða öruggur með sæti í gátu-básnum á sýningunni með MHN og Hlyni.
Ég ætla að vera svo víðsýn og skjóta á Vestfirði og að þetta sé hrunið í dag.
Kveðja Lella
19.08.2008 at 15:10 #627816Stefanía, ekkert mál ég er alveg til í að fara og laga til á slóðunum í kringum Setrið. En þetta er eitthvað sem þyrfti að gera á hverju ári.
í Sóleyjarhöfðan þarf stórtækar vinnuvélar til að laga það sem hægt er að laga þar.
Sveinbjörn, ekkert að því að kynna skýrslurnar og fundargerð aðalfundar á Landsfundi, en þá kemur hitt málið, hver ætlar að svara þeim spurningum sem upp geta komið, ekki er víst að formenn nefnda og fyrrverandi formaður séu viðstaddir til að svara og þá er sú hætta fyrir hendi að upp lendi spurningar sem enginn getur svarað fyrir, eða einhver annar svari einhverju sem ekki var svarið.
Svei mér þá, ég er hætt að skilja hvað ég er að skrifa svo ég er að hugsa um að hætta …….
kveðja Lella á puttanum á kantinum
Stef hvað þola brettakantarnir þínir
19.08.2008 at 13:50 #627804Nei Stefanía sé ekki ástæðu til að tjá mig um vettvangsferð Umhverfisnefndar eftir fréttir um utanvega akstur á Landmannalaugasvæðinu.
Eins og ég talaði um í öðrum þræði finnst mér að okkar Umhverfisnefnd eigi að horfa nær sér, þe í kringum Setrið það er allveg nóg af utanvega aksturs förum þar út og suður og ekki væri það góð umfjöllun um okkur ef fjölmiðlar myndu skoða Sóleyjarhöfða vegleysuna. Sem ég hef ekki séð en mér var sagt að þar væru drulluför djúp og ljót þar sem menn hefðu verið að reyna að komast.Kveðja Lella
19.08.2008 at 13:33 #627800Sveinbjörn, afhverju verður skýrslan borin upp á Landsfundi ? Ertu að tala um skýrslu stjórnar ? skýrlsur nefndanna ? eða aðalfundargerðina í heildsinni með öllum skýrslum ?
Veit ekki til að þetta hafi verið borið undir Landsfund ? ( nema það hafi verið gert í gamla daga ) og þá afhverju ?
Kveðja Lella
19.08.2008 at 11:46 #627792Þetta er mjög skringilega orðað, þe að verið sé að skrifa aðalfundargerð upp úr skýrslu stjórnar.
Því skýrslu stjórnar verður ekki breytt.
Svo er það aftur annað mál hvað er birt opinberlega.
Kveðja Lella
19.08.2008 at 10:50 #627786Ég veit það ósköp vel að Stef er að miðla því sem fram kom á fundinum og er ekki að hengja hana.
En þetta með aðalfundargerðina er bara steypa.
En þar sem stjórnin svarar ekki á spjallinu, hlýtur formaðurinn að hringja í mig fljótlega og útskýra þetta, en hvað þá með alla hina sem vilja útskýringu, þarf hann þá að hringja í þá alla……
hmmmm
Kveðja Lella
19.08.2008 at 09:41 #627778Stefanía skrifar :
Verið sé að vinna í að skrifa aðalfundargerð upp úr skýrslu stjórnar og verði hún birt um leið og hún sé tilbúin.
HALLÓ
Skýrsla stjórnar er skýrsla stjórnar, það breytir henni enginn. Aðalfundargerð er ekki skrifuð upp úr skýrslu stjórnar, heldur er skýrsla stjórnar hluti af aðalfundargerðinni.Hvað er í gangi ?
Held að það sé betra að sleppa svona upplýsinga-flóði
Kveðja Lella
18.08.2008 at 21:31 #627672Ég hef mjög góða reynslu af Smurstöðinni í Efstahjalla eða Engihjalla eða hverju sem hún tilheyrir.
Svo fáum við víst fínan afslátt af smurþjónustu hjá Shell en ég hef alldrei farið þangað.
Kveðja Lella
18.08.2008 at 21:29 #627734Legg til að endurskoðandi verði fengin til að fara yfir þennan lista. Allavega mun nærvera mín ekki laða að / fæla frá Setrinu þessa helgi.
Ekki smuga að ég verði þar.
En hvet fólk til að skrá sig, fínt tækifæri fyrir nýja í klúbbnum að mæta og það þarf ekki mikið breyttan bíl til að bruna í Setrið í dag. Svo þetta er upplagt fyrir litla fólkið.
Þetta verður örugglega voða gaman þó það vanti mikið að ég sé ekki á staðnum.
Kveðja Lella
18.08.2008 at 10:32 #627210Nei Lalli þú ert ekki blindur. Frestunin/hætta við á afmælinu var ekki auglýst nema í spjallþræði.
Dagur, ég var líka að spekúlera að þetta væri flott samstarfsverkefni fyrir til dæmis umhverfisnefnd, litlunefnd og skálanefnd til að halda leiðunum að Setrinu fínum og snyrtilegum. Vel stikuðum og hreinum.Kveðja Lella
17.08.2008 at 18:20 #627204ég á nokkrar myndir Ægir sem ég get notað við eitthvað mjög gott tækifæri.
En var að spekúlera, hvert er klúbburinn að stefna í umhverfismálum ? Ég hef ekki orðið vör við neinn áróður gegn utanvega akskri í sumar, eitthvað sem þyrfti stanslaust að vera í umræðunni. Afhverju erum við að eyða orkunni í að stika leiðir um allt Ísland, afhverju einbeitum við okkur ekki að Setrinu og leiðunum þangað ?
Það þyfti í dag stóran hóp til að ganga um nágreni Setrursins og týna rusl sem hefur fokið út og suður.
Allt of mikið sést af förum út um allt.
Afhverju er ekki búið að fara og laga slóðan við Sóleyjarhöfðan ?
Umgengnin í og við Setrið er alls ekki nógu góð.
Bara svona smá spekúleringar.
Kveðja Lella
15.08.2008 at 23:00 #627520Málið leyst, snilld þetta netsamband á fjöllum. Kv. Lella
-
AuthorReplies