Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
18.04.2009 at 16:11 #20426417.04.2009 at 18:52 #645902
Sæll
það verður engin breyting á öxlunum. það kemur bara millilegg milli bremsudisks og hjólnafs.
16.04.2009 at 08:17 #645812sæll… þú ert bara óþolinmóður
byrjaðu fyrr að hleypa úr og hleyptu bara úr á ferð, þetta er dekurkerfi og virkar fínt.
15.04.2009 at 09:03 #645754sæll…
síðan hefur þennan mjög svo "þjála" slóða:
[url=http://www.iccrc.is:30d9twnv][b:30d9twnv]http://www.iccrc.is/[/b:30d9twnv][/url:30d9twnv]kveðja,
Lalli
15.04.2009 at 08:28 #645542að sjálfssögðu er hann að tala um læsingamótorinn
14.04.2009 at 18:23 #645696er með 4.0 túrbó og lenti í því sama.. sýndi alltaf óþægilega lágan þrýsting og sama og engan í hægagangi svo ég skipti um skynjara og allt normal á ný.
.
til fróðleiks þá á olíuþrýstingur í 4.0 túrbó árg. 88 að vera 0.3 kg/cm(eða 4.3 psi) eða meira í hægagangi (750 rpm)
.
við 3000 rpm á þrýstingur að vera 2.5-6 kg/cm (36-85 psi).
.
vona að þetta gagnist,
Lalli
13.04.2009 at 22:51 #645674Sæll
Ísaga leigir tæki. þú borgar eitthvað grunngjald og svo það gas sem þú notar minnir mig, þetta er dagleiga og kostar ekkert voðalegt.. eða gerði það ekki fyrir kreppu allavega
Einfalt og þægilegt…
11.04.2009 at 18:47 #645372fór inní mörk í gær, föstudag, og langar að láta vita að vegurinn er mjög illa farinn, sérstaklega við árnar og var þá spottinn yfir urðina við Hvannárgil (beint á móti Langadal) langsamlega versti kaflinn. Vegurinn er mjög holóttur á löngum köflum og seinfarinn. þónokkuð háir bakkar eru við helstu árnar.
Ég var rúman klukkutíma frá Seljalandsfossi og inní Skagfjörðsskála.
það er -ekkert- í ánum hinsvegar… smábörn gætu skriðið þar yfir án þess að blotna í ermarnar
09.04.2009 at 21:41 #645334Var að spá í að fara þessa leið á laugardag, er einbíla líka og á ekki trakk… gæti einhver sent mér trakk á lalli@slepja.com ? vel til í að vera í samfloti.
spurning um að hittast á planinu við Seljalandsfoss svona um 9:30-10 á laugardagsmorgun?
08.04.2009 at 08:07 #645386Sæir strákar.
ég sendi honum fyrirspurn um kantasmíði og hversvegna ekki væri hægt að ná í hann í síma og þetta er svarið sem ég fékk:
.
"Get því
miður ekki eytt öllum deginum í að tala við alla á Íslandi sem eru að breyta
jeppanum sínum eða að spá í að breyta jeppanum sínum einhverntíman og vantar
kannski sérsmíðaða kanta sem mega svo hugsanlega þegar upp er staðið lítið sem
ekkert kosta…"
.
skil hann svosem alveg, en svo sendi ég aðra fyrirspurn og hann hefur aldrei svarað henni. Undarlegt að vera í business en nenna því samt eiginlega ekki. Ég mæli frekar með að menn tali við Brettakantar.is, hann nennir allavega að tala við mann!!
01.04.2009 at 17:39 #644958Tja, það fer eftir hverju þú ert að leita að.
ef þú villt fá úrhleypibúnað og því um líkt (ekki utanáliggjandi) þá er líklega best að byrja á að tala við strákana í Renniverkstæði Ægis.
Svo hafa Stál og Stansar verið að fá góða umfjöllun hérna fyrir að vera liðlegir og kunna sitt fag. þeir gætu eflaust gert eitthvað fyirr þig eða bent þér í rétta átt allavega.
31.03.2009 at 10:07 #644794sæll
það munar mjög miklu, þú skalt leiðrétta þetta strax því annars stútarðu krossunum um leið. það er allavega mín reynsla
30.03.2009 at 22:04 #644748Loft magnið skiptir engu.. það er þrýstingurinn í ökuhæð sem skiptir öllu
í ökuhæðinni (fyrir 1200 kg plastbotnana er það c.a. 32 cm) þarf þrýstingurinn að vera c.a. 45-55 psi svo hann fjaðri vel. í ökuhæð hjá mér með troðið skott af drasli er ég rétt að ná því í 35 psi sem er of lítið, bíllinn verður of mjúkur og lemur of auðveldlega saman. Ef ég eyk þrýstinginn þá lyftist bíllinn bara úr ökuhæðinni sem er ekki gott.
ég er með loftpúða-dempara sem eru dauðir saman en stífir sundur og það er partur af "vandamálinu", það væri betra með þessa púða í þessum þrýstingi að hafa dempara sem taka á móti í samanslaginu, en það er óþarfi þegar þeir eru á réttum vinnuþrýstingi í ökuhæð.
það þarf meiri þrýsting í minni púða til að halda sömu hæð á sömu þyngd, það sem ég meina er að ef ég væri með 800 kg púða, þá væri ég mun nær þessu 50 psi marki í ökuhæð með sama magn af farangri, og þannig væri ég með betri fjöðrun.
30.03.2009 at 20:08 #644744Vissulega er smekkur manna misjafn… og til að gæta sanngirni verður að koma fram að ég er ekki á forrunner heldur stutta LC 70… sem ég hugsa að sé þyngri á afturhásingu ef eitthvað er.. ætli það sé ekki best að fá sem flestar skoðanir og svo bara prófa sjálfur
30.03.2009 at 12:34 #644740sæll.. það eru nokkrir með þetta undir og þetta virðist endast ágætlega. Ég held samt að þrátt fyrir góða teygjumöguleika (30 cm… frá 20-50) þá séu þetta of sterkir púðar undir rönner. held þú fengir betri fjöðrun með 800-1000 kg púðum nema þú ætlir að staðaldri að vera með mörg tonn í skottinu.
ég er með þessa púða undir hjá mér og sé eftir því að hafa ekki farið í 800 kg púðana. hugsa að ég breyti þessu þegar þessir deyja.
málið er að þú getur ekki sett nægan þrýsting í þá til að fjöðrunin verði skemmtileg ef þeir eru of stórir. (án þess að bíllinn verði alltof hár það er að segja).
27.03.2009 at 10:36 #204118Getur einhver sagt mér hérna hvernig ég næ í kallana hjá http://www.jeppaplast.is?
einhverra hluta vegna er hvergi hægt að finna símanúmer eða email á heimasíðunni þeirra, sem mér finnst stórmagnað
ekki er þetta heldur í símaskránni svo ég veit satt að segja ekki hvernig maður á að hafa samband við þá, eina uppgefna emailið er á vefstjóra, en það er óvirkt…..
25.03.2009 at 08:23 #644284Nei, hann er að tala um að þú þarft að nota aflæsingarkóðann sem þú bjóst til með því að skrá inn kortakóðann fyrir 3.5 og UNIT-ID númerið úr tækinu sem þú ert að reyna að nota í bílnum.
kortin eru aflæst per tæki.
23.03.2009 at 23:26 #644254Sælir
notið Stable release, eða það sem er 3.3 í dag.
hitt er "beta" útgáfa, eða óstöðug útgáfa til prufu, gæti krassað og svoleiðis.
23.03.2009 at 15:42 #644248Sæll Erlingur
þetta download sem þú linkar á er á eldgamla útgáfu af forritinu.
[url=http://www.sackman.info/:1cxn2tm5][b:1cxn2tm5]HÉRNA[/b:1cxn2tm5][/url:1cxn2tm5] er nýrri útgáfa af þessu forriti sem leyfir mikið fleiri route points og fleira.
lalli
19.03.2009 at 17:32 #643942Sæll
hef heyrt að Maggi felgubreikkari geri þetta, http://www.felgur.is. eða í það minnsta veit hann örugglega hver hefur verið að þessu.
-
AuthorReplies