Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
26.08.2009 at 21:24 #655518
eitt sem skiptir mjög miklu máli með púða er að vera ekki með of stífa dempara.. ég er með dempara sem (í mýkstu stöðu) eru of stífir fyrir tóman bílinn hjá mér og þá er hann dáldið hastur.. en þegar hann er troðinn af dóti er hann algert töfrateppi! líka ótrúlega næs að geta hlaðið í eins og manni hentar og pumpa svo bara uppí aksturshæð. ég mæli með lofti, það er ótrúlega mjúkt og gott ef þetta er rétt stillt.
19.08.2009 at 15:52 #654438því miður virðist þessi vefur hafa versnað til muna hvað varðar svörun við svona fyrirspurnum frá því skipt var um vefumsjónarkerfi.
hingað var alltaf hægt að sækja hafsjó fróðleiks frá ýmsum aðilum.. en ekki lengur. menn nenna ekki lengur að svara neinu hérna af viti. sorgleg þróun.
Dabbi, við verðum bara að finna upp hjólið sjálfir sýnist mér (har har). mæla bara og prufa okkur áfram.
mér dettur í hug að prófa að máta subarú felgur á þetta hjá þér.
13.08.2009 at 21:59 #653996ég smíðaði minn tank úr 2 mm þykku áli og fannst það ekki mega vera þynnra.
31.07.2009 at 11:09 #652542nóg um röfl og væl um hvort þetta er gáfulegt eða ekki.
hefur enginn farið í gegnum þetta ferli? hvað með allar þessar hestakerrur sem verið er að smíða útum allt?
hefur virkilega enginn gert þetta og treystir sér til að segja frá því hérna?
31.07.2009 at 11:06 #652852ég fór þarna um fyrir mánuði síðan og mætti fjöldanum öllum af Suzuki Jimny óbreyttum útum allar trissur. svo ég hugsa nú að flestir fjórhjóladrifnir bílar geti farið þetta.
p.s. fór einmitt á 70 krúser
mjög góðir bílar. (38" reyndar)
29.07.2009 at 08:42 #652618ég fór til Arctic trucks, þeir voru mjög sanngjarnir fannst mér. þeir vilja hinsvegar fá bílana á 35" eða minna ef hægt er til að auðvelda verkið.
27.07.2009 at 14:26 #652532það þarf víst ekki að skrá kerrur undir 750 kíló að leyfilegri heildarþyngd, en alla ferðavagna, hjólhýsi og kerrur yfir 750 kg.
er enginn sem hefur gert þetta og vill fara yfir ferlið hérna?
26.07.2009 at 22:51 #205436Hvernig er það, nú þarf að fara að skrá alla aftanívagna… hvaða reglur gilda um kerrur í dag sem maður þarf að hafa á hreinu til að fá þetta skráð? ég þarf að skrá eina kerru sem er undir 750 kíló og bremsulaus en ég smíðaði allt sjálfur, þar með talið öxulinn. þarf maður nokkuð að fá eitthvað EU vottorð á þetta til að koma þessu í gegn?
eins hef ég heyrt einhverjar sögur um að maður þurfi að skila reikningum fyrir efni og reikna sér laun við smíðina og greiða virðisauka eða aðra vitleysu til að fá þetta skráð, er það rétt?
ég er að smíða mér aðra lokaða kerru sem verður yfir 750 kíló í heild með burði, hún verður með bremsum og ég ætla að smíða hana á svipaðan hátt og ég gerði með þá litlu, s.s. allt sjálfur. Er eitthvað meira sem þarf að uppfylla þar en þessa ljósaskyldu og bremsur?
væri gaman ef einhver hellti hér úr viskubrunni sínum um þessi mál.
24.07.2009 at 10:36 #205396Vantar að kaupa skrúfstykki til að setja á smíðaborðið í bílskúrnum. Skoða allt.
hafið samband, lalli (at) slepja.com eða 8202053
21.07.2009 at 08:28 #652092sæll
ég er með svona olíumiðstöð í jeppanum hjá mér. ég get sagt þér strax að rafgeymirinn myndi aldrei lifa heila nótt. þetta kerfi samanstendur af vatnsdælu til að hringdæla vatninu og svo miðstöðvarmótornum og þessar 2 dælur taka alltof mikinn straum til að þetta geti virkað af einhverju viti á bílgeymi í marga klukkutíma.
þú værir í raun mikið betur settur með gasmiðstöð, en þar er bara ein lítil vifta til að blása lofti og tekur miklu minni straum. gallinn er vissulega sá að þú þarft þá að rassast um með gaskút, en þetta eyðir svona 200 grömmum á klukkutíma svo lítill grillkútur myndi duga í sólarhring þótt miðstöðin væri alltaf í botni, sem er ekki raunin því þessar miðstöðvar eru með hitastilli svo auðvelt er að stjórna því hversu heitt er í bílnum.
ég held þú sért að eyða of miklum hita í vitleysu með því að vera að halda vélinni heitri og reyna að hita gólfið í bílnum. að halda vélinni volgri yfir nótt er bara sóun á orku, það er alveg nóg að hita hana rétt fyrir brottför ef þú ert að hugsa um að fara vel með hana.
en þetta er bara mín skoðun…
19.07.2009 at 20:30 #651966ætli fjarstartið sé ekki tengt framhjá svissinum þannig að það er í raun ekki svissað á hann þegar fjarstartið kikkar inn.
kanski geta þeir hjálpað þér í Aukaraf
14.07.2009 at 08:11 #651572ég hef af því fregnir að hann sé leiðinlegur og mikið þvottabretti.
12.07.2009 at 23:47 #651446því miður virðist Garmin vera hættur með nroute og ætlast til að við notum basecamp í staðin, sem er gersamlega useless product. en svona er víst lífið.
12.07.2009 at 20:16 #651438þú þarft ekki að unlocka í nroute.
bara passa að velja USB þegar forritið er ræst (en ekki serial)…
12.07.2009 at 20:14 #651414leiðin frá hrauneyjum og í landmannalaugar er fólksbílafær fyrir utan vaðið rétt við skálann. fór þarna um í gær.
24.06.2009 at 13:20 #650290heyrðu, sumarstelpurnar á malarviktinni hjá Ingvari Helgasyni eru svona líka ljómandi viðkunnalegar
fékk þessa fínu viktun þótt ég væri á sumardekkjunum og vökvar kanski í lægsta móti.
þakka fína ábendingu, virkaði fínt. nú fer maður í skoðun.
22.06.2009 at 19:12 #650284takk fyrir góð svör, kíki á morgun í malbikunarstöðina…
22.06.2009 at 18:50 #204830Jæja, nú er komið að því að vikta bílinn minn fyrir breytingarskoðun. ég hef heyrt margar tröllasögurnar um þetta dót og spyr því hér, hvert er best að fara í viktun? og þarf maður alltaf að vera með fullan tank?
20.06.2009 at 13:49 #650164loftpúðar, ekki spurning
var að lengja minn að aftan aðeins (10 cm færsla) og ákvað að fara í loftpúða. þvílíkur munur! mikið skemmtilegri fjörðrun.
það fylgir þessu samt meira vesen.. maður er alltaf að fikta í hæð og þrýstingi á þessu og þetta er gjarnara á að bila og skemmast t.d. ef maður lendir í að þurfa að öslast í krapaelg eða þessháttar. en fjöðrunarlega séð er þetta ekki spurning.
18.06.2009 at 15:06 #650038leiðin inní kverkfjöll er lokuð og verður það örugglega fram að mánaðamótum.
annars er stysta leiðin örugglega að fara öskjuleið (beygt útaf þjóðvegi eitt við Hrossaborgir, ekki langt vestur af Grímsstöðum á fjöllum) og keyra sem leið liggur að Herðubreiðartöglum, taka þar Austurleið og svo inná Kverkfjallaleið alveg inní Kverkfjöll.
en eins og ég segi, allt þetta svæði er lokað eins og er. sjá má betur hér:
http://www.vegagerdin.is/media/umferd-o … alendi.gif
þessu korti er breytt einusinni í viku held ég, alltaf á miðviku-eða fimmtudögum.
-
AuthorReplies