Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
09.11.2009 at 11:21 #665706
hann má eiga það hann Ulfr að hann er duglegur að fara á fjöll..
kanski ættum við sófasvínin að halda kjafti bara
Dabbi… hvað er langt síðan við sáum snjó síðast? ég man ekki hvernig hann er á litinn lengur hehe…
09.11.2009 at 10:06 #665702sorrý ulfr, en ég er sammála síðasta ræðumanni…
ef þú neyðist til að vera á 44" til að drífa eitthvað af viti á bíl sem slefar í 2 tonn þá er það ekki bíllinn sem er að hamla drifgetuni
hættu svo að éta þessa sveppi drengur, það er óhollt fyrir nýrun í þér.
05.11.2009 at 20:45 #665402og hvernig hefur maður samband við þig ágæti Guðmundur?
03.11.2009 at 17:53 #665048þú ert ágætur, úlfr..
well. ég fór á ónefnt verkstæði og það var sko ekkert djók að koma dekkinu uppá felguna, þegar kantlásinn er soðinn á þá breikkar bilið frá mjókkuninni í felgunni og útá felgubrún. þetta flækir málin töluvert þegar á að troða dekki þarna yfir… ég er ekki að sjá að mödder færi þarna uppá fyrst það var svona erfitt að teygja Tomsoninn þarna utanum.
eftirleikurinn verður auðveldur, þeas að bolta ytribrúnina á. svo bara pumpa, skrúfa undir og hafa gaman! vonandi kemur svo einhver snjór… annars er allt fönnið til einskis.
03.11.2009 at 15:29 #207965jæja… ég þarf að láta setja innri brún dekkja uppá felguna hjá mér svo ég geti klárað að skrúfa bedlockið saman og fara svo með dótið í ballanseringu.
N1 uppá höfða ætlaði að rukka mig um þúsundkall á dekk að setja uppá og ballansering kostar 15 þúsund. þetta finnst mér frekar dýrt…
með hvaða verkstæðum mæla menn í svonalagað?
26.10.2009 at 23:16 #663776ég er með púða að aftan og koni dempara sem eru alveg dauðir í samanslaginu (s.s. dempa lítið sem ekkert saman). mér finnst það stundum galli, hann á það til að hamra saman ef hann er léttur hjá mér og lítill þrýstingur í púðunum því þá verður færslan meiri, ég hugsa að ég sé með dass of stóra púða. (hann er afturámóti mjög góður svona þegar hann er hlaðinn, því betri eftir því sem hann er þyngri).
þetta er misjafnt eins og menn eru margir, sumir vilja þetta svona meðan aðrir segjast hafa fengið mikið betri fjöðrun með því að setja bara frekar mjúka dempara sem dempa í báðar áttir.
eins og með margt í þessu sporti þá færðu þessu ekki svarað að fullu nema prófa sjálfur. ég myndi hreinlega byrja á því að setja ódýra dempara sem dempa í báðar áttir fyrst, og skipta svo yfir í stillanlega koni eða svipað ef þér finnst hitt ekki virka.
24.10.2009 at 09:44 #663524ford transit og benz sprinter eru með þetta líka að aftan á einhverjum árgerðum
23.10.2009 at 19:32 #207653sjá frétt á http://www.amx.is/vidskipti/10801/
ætli það sé ekki hægt að finna nöfn og myndir svo maður geti forðast svona skítapakk? (eða hreinlega klappað því á kinnina ef maður rekst á það) þetta er náttúrulega alveg óþolandi þróun að maður geti ekki skilið neitt eftir utandyra án þess að það hverfi.
skjóta þetta lið með salti….. urr!
einn pirraður.
19.10.2009 at 10:36 #662600felgur.is Maggi er fínn í þessu. en svo eru fleiri í þessu, t.d. Renniverkstæði Ægis.
17.10.2009 at 22:57 #207484smá spurningar varðandi bedlockið….
þegar maður skrúfar þetta saman, hversu þétt á að herða hringinn að dekkinu? er einhver með herslutölur eða er þetta bara hert í slit og hálfhring til baka?
hafa menn eitthvað verið að nota framrúðu-kítti í stað þess að lím-kítta dekk á felgur? (s.s. innri kant á bedlock felgum). mér skilst að menn séu lítið að líma innri kanta vegna þess að -EF- þetta affelgast þá lekur yfirleitt með rifnuðu líminu… En rúðukíttið er alltaf aðeins soft og límist saman aftur… bara hugmynd?
eru menn ekkert að kítta á hringina áður en þeir eru hertir á dekkið?
eitthvað sem maður á sérstaklega að hafa í huga áður en maður þrusar dekkjunum á bedlock felgurnar?
með von um svör…
lalli
11.10.2009 at 12:09 #207261http://www.mbl.is/mm/frettir/innlent/2009/10/11/thyrla_saekir_slasadan_mann/
veit einhver meira um hverjir eru á ferð eða hvað skeði?
07.10.2009 at 11:48 #660734svakalega eru menn í góðu skapi eitthvað
07.10.2009 at 09:27 #659870Númerið á þessum rauða er SL-245 sýnist mér… getur það passað?
06.10.2009 at 22:42 #660728díses mar. það er bara nýfarið að snjóa, ekki komin nein þekja ennþá. það eru alveg þónokkuð margir dagar þar til snjórinn þarna verður ferðahæfur án þess að eiga á hættu að eyðileggja undirlagið.
06.10.2009 at 20:37 #660618hmm. vantar hana bara far á jökul? eigum við svo að henda henni út á toppnum? og labbar hún svo í bæinn?
mánaðamótin okt/nóv eru langt í burtu enn… hver veit hvernig færið verður þá? vonandi verður reyndar allt á kafi í snjó
23.09.2009 at 14:07 #658506Hefur einhver fundið forrit sem svipar til nRoute eftir að Garmin henti því í ruslið hjá sér?
þetta basecamp drasl er algerlega ónýtt.
16.09.2009 at 16:52 #657664á þetta ekki heima í auglýsingum??? undir liðnum Vagnar?
08.09.2009 at 13:33 #656572það er líka hægt að kaupa einnota kúta hjá Gastech uppá höfða. það er fínt í hobbýið svona ef menn þurfa bara rétt að redda sér og eiga þetta til.
ef menn eru að smíða eitthvað af viti er það bara AGA eða Strandmöllen. báðir nota sama kerfi samt… leigja út hylkin og svo þarftu líka að kaupa áfyllingar.
strandmöllen leigir hylki á 9 þús á ári + vsk
20 lítra áfylling af Mison8 (sem Möllen kallar argonmix) kostar 7 þúsund + vsk.
svo er til dagleiga á hylki sem er c.a. 50 kall dagur +vsk. ef menn vilja leigja hylki í styttri tima en ár í einu.
02.09.2009 at 10:08 #655802þú getur commentað á þína eigin auglýsingu að dótið sé selt. þá hættir fólk væntanlega að hringja í þig.
27.08.2009 at 08:37 #655548ég hef smíðað svona kerru og þetta er ekki ódýrt. ekki nema þú eigir eitthvað í þetta sjálfur, svosem dekk og felgur, og jafnvel hjólnöf eða öxul.
hugsa að verðmiðinn á svona kerru væri í kringum 500 þúsund kall myndi ég giska á ef þú lætur sérsmíða, jafnvel meira.
passaðu þig bara á því ef þú ætlar eitthvað að fara með kerruna af viti "off road" að þá verður hún að vera í sömu sporvídd og bíllinn og það þýðir að þú þarft að hafa innri-bretti í henni. það gæti truflað svoldið möguleikana á að setja fjórhjól inní hana, en ekki ógjörningur samt.
-
AuthorReplies