FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir
You are here: Home / Lárus Rafn Halldórsson

Lárus Rafn Halldórsson

Profile picture of Lárus Rafn Halldórsson
Not recently active
  • Prófíll
  • Groups 0
  • Forums
  • Topics Started
  • Replies Created
  • Favorites

Forum Replies Created

Viewing 20 replies - 581 through 600 (of 684 total)
← 1 … 29 30 31 … 35 →
  • Author
    Replies
  • 17.06.2006 at 11:16 #554674
    Profile photo of Lárus Rafn Halldórsson
    Lárus Rafn Halldórsson
    Participant
    • Umræður: 116
    • Svör: 1238

    Síðast þegar ég smíðaði gólf í bíl þar sem upprunalega gólfið var búið að yfirgefa svæðið þá barði ég til húdd úr skóda og sauð það undir…..

    svo er bara að vippa bílnum á toppinn og bræða þakpappa yfir viðgerðina!

    suðukveðjur,
    Lalli





    30.05.2006 at 15:05 #550522
    Profile photo of Lárus Rafn Halldórsson
    Lárus Rafn Halldórsson
    Participant
    • Umræður: 116
    • Svör: 1238

    Sælir félagar.

    hvernig er það mælt hvort menn séu að nota litaða olíu? Er engöngu hægt að sjá það með því að taka sýni úr tönkum/síum/spíssum? eða er eitthvað til í því sem ég hef heyrt að hægt sé að mæla þetta með því að taka sót-sýni úr púströrinu?

    ég hef allavega heyrt það að þar til gerðu spjaldi sé haldið við útblástursrör grunað bíls og á því sjáist strax hvort lituð olía hefur verið notuð eða ekki…. er þetta bull? hefur einhver lent í þessu? eða eru þessir menn að skafa sót úr pústinu og láta efnagreina?

    vinsamlegast svarið þið sem vitið allt um þetta. einnig væri gaman að fá hlekki inná framleiðendur mælitækja þeirra sem íslenska löggjafarvaldið er að nota.





    29.05.2006 at 21:21 #198016
    Profile photo of Lárus Rafn Halldórsson
    Lárus Rafn Halldórsson
    Participant
    • Umræður: 116
    • Svör: 1238

    Sælir félagar.. er með nokkrar spurningar varðandi vetrardekkin mín og hvernig er best að geyma þau í sumar.

    þetta eru 38″ túttur á felgum, og mér hefur verið sagt að það sé ekki gott fyrir þau að þeim sé staflað. er nóg að setja þá trékubba á milli felgubrúnanna svo þau hvíli ekki á belgjunum, bara timbri og felgum?

    annað, á maður að geyma þau með fullum þrýsting (c.a. 23 psi) eða á maður að minnka loftið? hversu mikið þá?

    og er einhver þörf að umstafla þeim um mitt sumar svo þau leki ekki niður á aðra hliðina?

    hellið nú úr viskubrunnum ykkar um skynsamlegar geymsluaðferðir vetrardekkja!

    kveðja,
    Lallinn





    09.05.2006 at 12:02 #552176
    Profile photo of Lárus Rafn Halldórsson
    Lárus Rafn Halldórsson
    Participant
    • Umræður: 116
    • Svör: 1238

    Sælir

    túrbínan í bílnum mínum var komin í 310.000 km þegar ég lét taka hana upp. það þurfti að laga slatta, m.a. skipta um afgashúsið og rótorinn, en það kostaði 100.000. ný túrbína átti að kosta yfir 200.000 svo þetta er í góðu lagi.

    Skoðið bara pústgreinina vel líka þegar þið rífið þetta af, oft er hún orðin slöpp líka og borgar sig að skipta um hana í leiðinni, sem og allar pústpakkningar að sjálfssögðu.





    09.05.2006 at 11:57 #552242
    Profile photo of Lárus Rafn Halldórsson
    Lárus Rafn Halldórsson
    Participant
    • Umræður: 116
    • Svör: 1238

    munið bara að setja +354 fyrir framan númerið svo þetta virki líka erlendis….





    09.05.2006 at 11:43 #197935
    Profile photo of Lárus Rafn Halldórsson
    Lárus Rafn Halldórsson
    Participant
    • Umræður: 116
    • Svör: 1238

    Eftir að hafa æ ofan í æ lent í vandræðum með að finna símanúmer nánustu aðstandenda þeirra sem lent höfðu í slysum eða skyndilegum veikindum fékk breskur sjúkraflutningamaður þá góðu hugmynd að gott væri að fólk setti símanúmer einhvers sinna nánustu í símaskrá GSM símans undir nafninu ICE en ICE er skammstöfun fyrir „In Case of Emergency.“ Sjúkraflutningamaðurinn kom þessari strax hugmynd á framfæri og nú breiðist hún um heiminn með örskotshraða og er þegar orðinn eins konar alheims- „standard“. Hvað með þig ágæti lesandi? Hefur þú sett símanúmer þíns nánasta aðstandanda í símaskrána í gemsanum þínum undir ICE?

    Þegar sjúkraflutningafólk, læknar og hjúkrunarfólk hlynna af fólki sem lent hefur í slysum eða bráðum veikindum er eitt af því sem þarf að gera að ná strax í nánustu aðstandendur og láta þá vita og ekki síður til að fá upplýsingar. Oft er byrjað á því að leita í minni GSM síma hins sjúka eða slasaða, en oftast er ómögulegt að sjá af nafnalistanum í minni símans hver á listanum er nánasti aðstandandi. En standi bókstafirnir ICE er allt á hreinu með það og hægt að hringja strax.

    Talsmaður sænsku neyðarlínunnar segir þessa hugmynd frábæra og hvetur alla til að setja stafina ICE og símanúmer nánasta aðstandanda síns þar undir í minni gemsans. Hann segir að í neyðartilfellum geti það skipt sköpum að samband náist við nánustu aðstandendur hið fyrsta. Með því að nota stafina ICE þá viti sjúkraflutningamenn, lögregla og hjúkrunarfólk nánast hvar sem er í veröldinni undireins að þarna sé það númer sem hringja skuli í til að fá upplýsingar um hver hinn veiki eða slasaði er eða t.d. hvort hann sé hrjáður af einhverjum sjúkdómum, hvaða lyf má gefa honum o.s.frv. „Þetta er skynsamlegt, einfalt og kostar ekki neitt en getur bjargað lífi þínu,“ segir talsmaðurinn við blaðamann Auto Motor & Sport í Svíþjóð.





    26.04.2006 at 08:52 #550854
    Profile photo of Lárus Rafn Halldórsson
    Lárus Rafn Halldórsson
    Participant
    • Umræður: 116
    • Svör: 1238

    Þetta hljómar vel og er ég vel til í að vera með. Við konan erum samt því miður bara á 2ja sæta bíl, en gætum tekið vistir og fleira í skottið sem er ágætlega rúmgott.

    kveðja,
    Lalli





    24.04.2006 at 22:40 #550668
    Profile photo of Lárus Rafn Halldórsson
    Lárus Rafn Halldórsson
    Participant
    • Umræður: 116
    • Svör: 1238

    Sæll

    þessar jarðtengingar eru yfirleitt ekki frá vél og beint á geymi heldur úr vél og í boddí. Oft eru þær 2, eins og á mínum gamla krúsa, en stundum bara ein og úr ofnum kopar sem er snöggur að spanngrænast og kolast.

    svo eru aðrar jarðtengingar úr bbodý og í mínus á geyminum.





    24.04.2006 at 09:16 #550664
    Profile photo of Lárus Rafn Halldórsson
    Lárus Rafn Halldórsson
    Participant
    • Umræður: 116
    • Svör: 1238

    Sæll

    er léleg jarðtenging frá mótornum og í boddý? hef lent í svona máli þar sem jarðtenging mótorsins var orðin koluð og þótt straumur kæmi að startara og allt virtist eðlilegt þá bara var ekki nægilega sterk jörð til að snúa vélinni





    20.04.2006 at 12:35 #550102
    Profile photo of Lárus Rafn Halldórsson
    Lárus Rafn Halldórsson
    Participant
    • Umræður: 116
    • Svör: 1238

    Er það s.s. 100% standbylgja 0:1 sem rústar talstöðvum þegar maður reynir að kalla með ekkert loftnet í loftnetsfætinum? það er að segja, ekkert af sendiorkuni nýtist þá til að senda út í loftið heldur fer öll bylgjan aftur til tækisins og eyðileggur sendinn??

    eða hvað?

    kveðja,
    ringlaði resonans-hálfbylgjuleiðarinn….. :)





    08.04.2006 at 19:27 #548740
    Profile photo of Lárus Rafn Halldórsson
    Lárus Rafn Halldórsson
    Participant
    • Umræður: 116
    • Svör: 1238

    Strákar strákar…. olíupanna og hedd er alveg sitthvor hluturinn sko…

    ef þú ætlar að skipta um HEDD-pakningu, ráðlegg ég þér að skipta um tímareim og vatnsdælu í leiðinni, svona fyrst þú ert að opna þetta.

    ef þú ætlar að skipta um olíupönnupakkninguna, þá þarf musso að vera fjandanum flóknari en krúserinn minn ef það þarf að gera meira en að tappa olíuni af, skrúfa 16 bolta úr pönnuni, rífa hana undan, leggja pakkninguna á pönnuna og skrúfa í aftur. passa bara að krossherða og bara tylla skrúfunum allan hringinn áður en þú byrjar að full-krossherða pönnuna undir.

    kveðja,
    Flækjufótur





    07.04.2006 at 19:51 #548574
    Profile photo of Lárus Rafn Halldórsson
    Lárus Rafn Halldórsson
    Participant
    • Umræður: 116
    • Svör: 1238

    Hafðu Samband við Bílaverk í Hafnarfirði. þar er strákur sem heitir Lýður, alveg hrikalega sanngjarn og vandvirkur strákur. Hann heilsprautaði jeppa fyrir mig og ég get af heilum hug mælt með stráknum.

    Bílaverk 5650708, spurja um Lýð.

    kv, Lalli





    13.03.2006 at 08:10 #546270
    Profile photo of Lárus Rafn Halldórsson
    Lárus Rafn Halldórsson
    Participant
    • Umræður: 116
    • Svör: 1238

    Sæll

    ég myndi ekki hika við að kaupa koni dempara í bílinn ef þú villt alls ekki kaupa orginalinn aftur.

    það er nefnilega þannig að maður (yfirleitt) þarf að borga dáldið fyrir gæði. Koni dempararnir eru líka gæddir þeim yndislegu möguleikum að vera stillanlegir í fyrsta lagi, og öðru lagi er hægt að gera þá upp sem kostar brot af upphaflegu verði þeirra þegar þeir slappast.

    ef þú villt alvöru fjöðrun, fáðu þér þá alvöru dempara.

    kv.
    Lalli





    10.03.2006 at 10:38 #197508
    Profile photo of Lárus Rafn Halldórsson
    Lárus Rafn Halldórsson
    Participant
    • Umræður: 116
    • Svör: 1238

    hæhæ

    ég þyrfti nauðsynlega að ná í einn gaur sem er í óvissuferð 4×4, hvaða rásir eru þeir að hlusta á? og eru einhverjir fararstjórar að mónitora endurvarpa? eða er einhver með nmt síma þarna sem hægt er að ná í?

    endilega sendið uppl á lalli@slepja.com ef einhver veit.

    kv,
    Lalli





    09.03.2006 at 16:56 #546014
    Profile photo of Lárus Rafn Halldórsson
    Lárus Rafn Halldórsson
    Participant
    • Umræður: 116
    • Svör: 1238

    svo hafa menn verið að setja gömlu volvo b20 vélina í þessa bíla með ágætum árangri.

    og líka einhverja toyotu mótora… 2ja lítra. allt bensín. virkar víst fínt





    26.02.2006 at 22:25 #544820
    Profile photo of Lárus Rafn Halldórsson
    Lárus Rafn Halldórsson
    Participant
    • Umræður: 116
    • Svör: 1238

    Ástæðan fyrir því að ég fæ mér ekki AT dekkið er sú að mudderinn rétt passar undir hjá mér. Mér skillst að AT standi talsvert hærra en 38 mudder, og það er enginn afgangur af plássi þegar hann fjaðrar í botn á 38 tommu muddernum 😀 Þar fyrir utan hef ég átt 36" mudder og er alveg hroðalega ánægður með þau, og vona að 38 verði jafn góð. Ef einhver á AT á felgu sem þorir að leyfa mér að skrúfa það undir til að sjá hvernig það passar, þá er ég alveg til í að skoða það betur.

    Hverjir breikka felgur? ég á 12 tommu felgur sem ég er ógeðslega sáttur við en ég myndi vilja breyta þeim. það fer samt eftir því hvað það kostar.

    takk annars fyrir góð svör





    26.02.2006 at 20:23 #197418
    Profile photo of Lárus Rafn Halldórsson
    Lárus Rafn Halldórsson
    Participant
    • Umræður: 116
    • Svör: 1238

    gott kveld.

    nú er komið að stóru stundinni, ég er búinn að safna í baukinn minn í mörg mörg ár, og nú á að fara að fjárfesta!!!!

    mig vantar s.s. dekk :) og er búinn að ákveða að 38″ mudder verður fyrir valinu. Gumbo Monster mudder s.s. Nú er bara að fá nokkra hluti á hreint..

    ég er með 12.5 tommu breiðar felgur, er það ekki alveg ásættanlegt fyrir 38″ mudderinn?

    hverjir selja mudder? er það bara bílabúð benna? og ég þarf að láta setja þetta á felgurnar mínar og míkróskera og ballansera. Hvar fæst þetta á ódýrastan hátt en samt professionally gert? s.s. engin hoppudekk og svona?

    vona að þetta sé ekki alveg steindauð og hundleiðinleg spurning…..
    lalli





    23.02.2006 at 14:28 #544100
    Profile photo of Lárus Rafn Halldórsson
    Lárus Rafn Halldórsson
    Participant
    • Umræður: 116
    • Svör: 1238

    Sælir

    ég vill leyfa mér að efast um að hjálmur geri mikið gagn þegar bíll/jeppi án veltigrindar fer á hvolf og leggst saman.

    ég myndi fyrst kaupa veltibúr……

    kv,
    Lalli





    21.02.2006 at 10:03 #543540
    Profile photo of Lárus Rafn Halldórsson
    Lárus Rafn Halldórsson
    Participant
    • Umræður: 116
    • Svör: 1238

    Lagði inn 2000 krónur frá mér og frúnni,

    breytingakveðjur,
    Lallirafn





    15.02.2006 at 17:54 #542784
    Profile photo of Lárus Rafn Halldórsson
    Lárus Rafn Halldórsson
    Participant
    • Umræður: 116
    • Svör: 1238

    Sælir,

    við verðum á 3-4 jeppum að torfærast eitthvað þarna, væntanlega við skálparnes á sunnudag.

    vorkveðjur,
    Lalli





  • Author
    Replies
Viewing 20 replies - 581 through 600 (of 684 total)
← 1 … 29 30 31 … 35 →

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.