Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
11.10.2006 at 14:12 #563050
Þeir sem vilja gera þetta sjálfir geta pantað allt sem þeir þurfa í þetta á [url=http://www.cartft.de:2vpw3zif][b:2vpw3zif]www.cartft.de[/b:2vpw3zif][/url:2vpw3zif]
ég bendi á að það þarf samt talsverða þekkingu til að henda þessu í og mæli með að menn tali við Erling frekar. En það eru alltaf einhverjir sem vilja gera þetta sjálfir…
kveðja,
Lalli
03.10.2006 at 20:31 #562194…er ég sammála þér!
það þarf að hætta að berjast með öfgum og yfirgangi og nota frekar betri aðferðir s.s. áróðri um góða umgengni og gera erlenda ferðamenn upplýstari um þessar reglur heldur en nú er gert.
24.09.2006 at 19:22 #198605Hér er komið fínt tól fyrir fólk sem er að ferðast, hægt að fá leiðarlýsingar og allan fjandann….
nú er bara að setja háhraða-internet tengingar á hálendið
http://www.map24.is
21.09.2006 at 21:24 #561002Sæll
ég veit að þetta kann að hljóma mjög furðulega, en prófaðu að bóna húsið vel. bæði topp og hliðar.
ég átti einusinni mótorhjól og asnaðist til að bóna hjálminn minn einu sinni…. Eftir það bónaði ég hjálminn vikulega að lágmarki!!
munurinn á því hvernig vindurinn greip í hjálminn var ótrúlegur. Síðan þá hef ég reynt að bóna bílinn minn reglulega, og held því fram að það breyti einhverju hvað varðar vind og drag…. kanski ekki mælanlegt, en ekkert vitlausara en KN sía eða annað þannig dót
21.09.2006 at 20:01 #198584Ég hugsa að þetta verði hinn skrítnasti bátur ef ég skil þetta rétt
kanski stærri útgáfa af Þessum….
18.09.2006 at 08:45 #560548….dekkjum undan orginal Patrol er:
M+S 33 x 12,50 R17 LT
s.s. 33" dekk á 17" dekkjum
(allavega var mér sagt að þetta kæmi beint undan patrol sem var keyrður frá IH og í Breyti á þessum dekkjum og ekki meter lengra)
17.09.2006 at 16:25 #560472Þetta er hárrétt og skrifað áður en ég fékk morgunkaffið.
ég bið þig hér með afsökunar á leiðindunum verkfræðingur. stundum sér maður ekki bjálkann í eigin auga.
17.09.2006 at 15:31 #560468enda skrifa ég ekki undir gælunafninu lallirafn undir hér heldur undir fullu nafni. Svo er eitt að skrifa undir gælunafni á svona þráð eða vera með leiðindi og skæting eins og þú hefur gert verkfræðingur góður. Ég held að það sé virðingarverðara að gera þannig lagað undir fullu nafni ef menn vilja vera með leiðindi á annað borð.
að lokum biðst ég afsökunar á að hafa eyðilagt þennan þráð.
Lárus Rafn
17.09.2006 at 10:52 #560462Skemmtilegast þykir mér að menn þori að vera þeir sjálfir á móti fjöldanum -undir eigin nafni- en þurfa ekki að skýla sér bakvið gælunöfn.
hvað varðar utanvegaakstur er ég alveg sammála. ég held reyndar að tilgangurinn með þessum límmiða sé ekki alveg svarhvítur, hér er verið að meina eyðileggingu lands en ekki akstur t.d. á gangstéttum og einkalandi…. (eða skynsamlegum útafakstri sem ekki spillir landi eða gróðri).
15.09.2006 at 08:26 #560172Það má samt ekki horfa framhjá þeirri staðreynd að bensín og olíuverð hefur lækkað helling undanfarna daga og ég er sannfærður um að ef Atlantsolíu nyti ekki við þá væri bensínið enn á 130 kall, vegna mikilla birgða sem til væru í landinu!
þessvegna versla ég við Atlantsolíu!
06.09.2006 at 20:51 #559348Ég fór og skoðaði þessa tanka og var tjáð að þetta værð væri nú vitlaust….
24 þús væri verðið, þetta eru samt sterkir og flottir kútar, lítið mál að bolta uppundir og svona. Svo fylgir mælir ekki með, heldur þarf að kaupa mæli og mælisett í tankinn á um 12 þús í viðbót.
s.s. ekki alveg það sem stendur þarna, en þetta er ágætis stöff samt.
04.09.2006 at 19:56 #559330Sæll
þú finnur þetta í system setup menu í tækinu.
03.09.2006 at 22:49 #559274Takk fyrir þetta, ég hugsa að ég fari tindfjallahring með þá drengina…
03.09.2006 at 19:10 #198484halló
Ég er með útlending hérna hjá mér sem langar að kíkja með mér í dagstúr frá Reykjavík og sjá aðeins inná hálendi Íslands, og hvað 38″ jeppinn minn getur en mig vantar hugmyndir að dagsferð, ég er alveg tómur.
Hvert væri gaman að fara? við höfum c.a. einn dag í þetta, frá svona 9 um morgun og fram yfir miðnætti… er hægt að fara inní setur t.d. og til baka á þessum tíma? hvað er þar á leiðinni sem gerir hana spennandi? vöð, útsýni o.s.frv?
endilega komið með einhverjar hugmyndir handa mér… ekki væri verra ef fólk nennti að senda mér trökk eða rútur á lalli@slepja.com
kveðja,
Hugmyndasnauði Lallinn
31.08.2006 at 00:33 #558990Sæll og takk fyrir upplýsingarnar!
ég mun hafa samband við þig..
yfir í annað, hefur enginn íslendingur enn breytt svona bíl á 49? hvers vegna ekki????
[url=http://funtime.blogbugs.org/26676/Super-Duty-is-not-enough.html:335b5ttd][b:335b5ttd]stóóóóóóóoór bíll[/b:335b5ttd][/url:335b5ttd]
30.08.2006 at 08:39 #198462Sælir strákar
ég er með gamla krúser 60 mótorinn 12H-T og ætla að setja hann í bíl sem er 12 volt.
12H-T mótorinn er hinsvegar 24 volt…. veit einhver hverju þarf að breyta og skipta út í honum til að hann verði 12 volt?
er til 12 volta startari og forhitara-kerti? hvað með relayið í olíuverkinu? Hefur einhver gert þetta? hverju þarf ég að breyta meira?
endilega ef þið lumið á skemmtilegum ráðum, setjið þau hingað inn eða sendið mér email lalli@slepja.com
kveðja,
Lalli
28.08.2006 at 15:56 #558738Nei, enginn er kúlerinn enn sem komið er. en það er í vinnslu.
skoða þessa skrúfu
takk fyrir .
27.08.2006 at 10:37 #558734Takk fyrir góð ráð, ég prófa "hræklón", enda 30 daga skilafrestur ef ég finn engan mun, ekki satt?
ég var búinn að finna þetta út með 5.71 og reverse.
Annað sem fer í bílinn líka, það er boost controller, eða kúluloki sem sér um að wastegate ventillinn opnist ekki fyrr en fullum þrýstingi er náð.
maður þarf að gera allt til að fá smá orku útúr þessum greyjum
kveðja,
Lalli
26.08.2006 at 17:13 #558714ÉG er með 2,5" opið púst á honum og búinn að opna aðeins öndunina, boostið er eitthvað sem ég á eftir að skoða, en túrbínan er ný og blæs "stock" þrýsting sem er 10 psi. nýlegir spíssar eru í honum.
eru menn ekki alveg hættir að setja 5,71 í svona bíla? er það ekki bara vitleysa?
26.08.2006 at 16:04 #198445Sælir félagar.
ég er með stuttan Landcruiser 70 með 2.4 túrbódísilvélinni. Mér finnst hann dáldið latur hjá mér greyið á 38 tommuni og var að spá í að skipta um hlutföll og setja 5,29 undir.
Orginal er hann á 4,88 og ég get aldrei sett hann í 5. gír, það bara er ekki næg orka.spurningin mín er þessi: Munurinn milli 4,88 og 5,29 í hlutfalli er ekki nema tæp 9%… mun ég finna einhvern verulegan mun á bílum við þetta? ég vill ekki fara í 5:71 því mér er sagt að það sé of brothætt.
Get ég gert eitthvað annað? t.d. breytt gírun í gírkassa eða eitthvað álíka?
ég vill ekki skipta um bíl, og nenni ekki að skipta um vél í honum heldur svo það er out…
einhverjar góðar hugmyndir??
-
AuthorReplies