FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir
You are here: Home / Lárus Rafn Halldórsson

Lárus Rafn Halldórsson

Profile picture of Lárus Rafn Halldórsson
Not recently active
  • Prófíll
  • Groups 0
  • Forums
  • Topics Started
  • Replies Created
  • Favorites

Forum Replies Created

Viewing 20 replies - 481 through 500 (of 684 total)
← 1 … 24 25 26 … 35 →
  • Author
    Replies
  • 06.02.2007 at 22:55 #578756
    Profile photo of Lárus Rafn Halldórsson
    Lárus Rafn Halldórsson
    Participant
    • Umræður: 116
    • Svör: 1238

    Ég skipti um vél í 70 krúsernum mínum og setti 60 krúser túrbódísel í hann.

    það var möndl þar sem ég ætlaði að halda upphaflegri mynd á framendanum að öllu leiti ef hægt væri. Það tókst, hér má sjá myndir af ævintýrinu..

    [url=http://www.slepja.com/gallery/album161:33uf0jsh][b:33uf0jsh]60 Krúsermótor í 70 krúser[/b:33uf0jsh][/url:33uf0jsh]

    Afraksturinn er frábær, bíllinn breyttist svakalega við þetta, varð mikið stöðugri og skemmtilegri

    kveðja,
    Lalli





    06.02.2007 at 22:43 #579402
    Profile photo of Lárus Rafn Halldórsson
    Lárus Rafn Halldórsson
    Participant
    • Umræður: 116
    • Svör: 1238

    Sæll

    ekki fara löngu leiðna að þessu. byrjaðu að láta laga spíssana og kanski fara yfir olíuverkið… svo er hægt að kaupa kubba til að hressa greyið við. (edit: sá ekki hvað hann var nýlegur, kanski í lagi að fara beint í kubba á svona nýlegum bíl)





    05.02.2007 at 13:48 #578928
    Profile photo of Lárus Rafn Halldórsson
    Lárus Rafn Halldórsson
    Participant
    • Umræður: 116
    • Svör: 1238

    Ég legg til að það verði bara boruð göng milli Selfoss og Akureyrar, enda er það ekkert heimskari aðgerð en að bora göng gegnum virkt "eldfjallasvæði" til Vestmannaeyja….

    þá fáum við allavega að hafa hálendið í friði :)





    30.01.2007 at 20:15 #578068
    Profile photo of Lárus Rafn Halldórsson
    Lárus Rafn Halldórsson
    Participant
    • Umræður: 116
    • Svör: 1238

    …..er gerð á verkstæði, af fagmönnum.

    Mundu allavega að tilkeyra drifið rétt, og skipta nokkuð ört um olíu fyrstu skiptin.

    fjandi góðar leiðbeiningar þarna samt :)





    30.01.2007 at 10:05 #577952
    Profile photo of Lárus Rafn Halldórsson
    Lárus Rafn Halldórsson
    Participant
    • Umræður: 116
    • Svör: 1238

    Þetta er ekki heddpakningin, enda myndi bíllinn þá tapa vatni einhvert, annaðhvort útí púst sem myndi lýsa sér sem óvenju mikil gufumyndun úr pústi eða útí olíu, sem myndi sjást sem "hvítur rjómi" eða svoleiðis í olíuloki á heddi eða á olíukvarðanum.
    hvorugt er að hrjá þennan bíl og hann tapar ekki vatni.





    28.01.2007 at 22:48 #577762
    Profile photo of Lárus Rafn Halldórsson
    Lárus Rafn Halldórsson
    Participant
    • Umræður: 116
    • Svör: 1238

    Ég skipti út hjá mér… fór úr 2.4 túrbódísel í 4.0 túrbódísel. Bíllinn varð æðislegur, og eyðsla innanbæjar fór úr 16 í svona tæpa 12 lítra á hundraðið og fór úr 16 utanbæjar niður í rúma 9. semsagt ég hætti að þurfa að stíga hann alltaf í gólfið til þess að það gerðist eitthvað og bíllinn varð rosalega skemmtilegur.

    stærra er betra og stærst er best, þannig er það bara.

    p.s. grútur er góður, bensín er bull.





    27.01.2007 at 00:21 #577490
    Profile photo of Lárus Rafn Halldórsson
    Lárus Rafn Halldórsson
    Participant
    • Umræður: 116
    • Svör: 1238

    Hvað með að smíða bara skíði undir framdekkin úr dokaflekum?

    setja svo framdekkin 1/3 inná flekana en láta 2/3 standa fram úr, þá vísa "skíðin" uppúr snjónum meðan dregið er….
    Eða hefur þetta verið reynt og aldrei virkað á fjöllum?





    25.01.2007 at 23:35 #577424
    Profile photo of Lárus Rafn Halldórsson
    Lárus Rafn Halldórsson
    Participant
    • Umræður: 116
    • Svör: 1238

    Deysus, hvernig væri að hætta að tala um brotajárn og ónýtt rusl (s.s. forda og patrola) OG FREKAR EINBEITA SÉR AÐ ÞVÍ AÐ HJÁLPA MANNINUM!!!

    það ætti að vera hægt að sjóða saman hjálparleiðangur handa þér ef þér tekst ekki að semja við hjálparsveitina.

    Ef allt fer í vitleysu, prófaðu að hringja og ég ræði við mína félaga

    Lalli, 8403535





    23.01.2007 at 22:50 #576906
    Profile photo of Lárus Rafn Halldórsson
    Lárus Rafn Halldórsson
    Participant
    • Umræður: 116
    • Svör: 1238

    Sæll.. kanski best að stjórnin svari þessu, en ég myndi halda að þú þyrftir að tússa félagsnúmerið þitt á debetkortið líka til að gera þetta "löglegt" þar sem það er stundum heimtað líka þegar þú stundar viðskipti og færð afslátt útá klúbbinn.





    18.01.2007 at 19:44 #576196
    Profile photo of Lárus Rafn Halldórsson
    Lárus Rafn Halldórsson
    Participant
    • Umræður: 116
    • Svör: 1238

    Það er nú þannig með dót að það er aldrei dýrara en svo að það selst… og þótt þér finnist svívirða að borga 30 þúsund fyrir felgugang þá er það nú svo að breikkun + frágangur (galvanisering eða annað) er nú bara talsvert meira en það!

    Hvað varðar olíufélögin þá er ég sammála þessu með verðið og sérstaklega verð ég fyrir gríðarlegum vonbrigðum þessa dagana með ATLANTSOLÍU sem ég hef haldið tryggð við lengi í von um aukna samkeppni.
    Verð á hráolíu hefur ekki verið lægra síðan um miðbik 2005 en samt kostar olían hér ennþá 112 krónur!
    Þess má reyndar geta að bensínverð (og dísel) er aðeins á eftir heimsmarkaðsverði á olíu í sveiflum, en ef ekki fer eitthvað að lækka hér verulega í þessum málum, þá er kominn tími til að mótmæla!!!!
    –
    SVO MÁ VEFNEFND ENDURSKOÐA TENGINGARTÍMA TIL AÐ SKRIFA INN ÞRÆÐI HÉRNA!! ÓÞOLANDI AÐ ÞURFA AÐ SKRIFA SVONA SMOTTERÍ Í WORD OG PEISTA ÞVÍ HINGAÐ INN ÞVÍ LOGIN TÍMINN ER SVO STUTTUR AÐ MAÐUR NÆR VARLA AÐ SKRIFA JÁ EÐA NEI SVÖR!





    15.01.2007 at 23:22 #575746
    Profile photo of Lárus Rafn Halldórsson
    Lárus Rafn Halldórsson
    Participant
    • Umræður: 116
    • Svör: 1238

    er ekki dana 50 framhásing? ég á ARB lás í það fyrir þig… hafðu band ef þú villt skoða, lalli, 8403535





    15.01.2007 at 08:36 #575398
    Profile photo of Lárus Rafn Halldórsson
    Lárus Rafn Halldórsson
    Participant
    • Umræður: 116
    • Svör: 1238

    Jæja.. Er þetta ekki olía síðan fyrir breytingu á þungaskattslögunum? Ef svo er þá er þetta orðin hundgömul olía, og sumarolía í þokkabót með lélegt frostþol.

    Svona olía þolir ekkert endalausa geymslu, og það fara að myndast í þessu þörungar.

    líklega væri þetta ágætis olía til að brenna í kabyssu uppí bústað :) en ég myndi ekki setja svona glundur á bílinn minn, og alls ekki á veturna.

    bara my 50 cents…
    lalli





    12.01.2007 at 22:57 #575242
    Profile photo of Lárus Rafn Halldórsson
    Lárus Rafn Halldórsson
    Participant
    • Umræður: 116
    • Svör: 1238

    Sæll

    ertu búinn að þrýstiprófa wastegate ventilinn? þegar þetta er tengt, geturðu hreyft stöngina sem opnar waste-lokann? það á að vera nokkuð mikið átak.

    þegar ég lét taka upp túrbínuna mína virtist allt í stakasta lagi nema hún blés illa, rétt um 4-5 pund

    Þegar túrbínan var skoðuð kom í ljós að það hafði kross-sprungið afgashúsið við waste-lokann sjálfan og vantaði þar stykki í og annað laflaust.

    Einnig eiga wastegatin sjálf (membrudótið sem sumir setja skinnur undir) það til að fyllast af smurolíu, þetta skeður samt yfirleitt ekki nema túrbínan sé orðin slöpp. þá fer hún að hegða sér á hinn undarlegasta máta :)

    vonandi að þetta hjálpi,
    Lalli





    09.01.2007 at 19:05 #571872
    Profile photo of Lárus Rafn Halldórsson
    Lárus Rafn Halldórsson
    Participant
    • Umræður: 116
    • Svör: 1238

    Það má benda á það að barnið var aldrei sýnt detta.. bara gefið í skyn hvað skeði..

    þarna í auglýsinguni frá NISSAN má sjá bíl spóla í gegnum mosagróið land og þar -ER- um utanvega akstur að ræða, ekkert bara gefið í skyn neitt.

    þessi auglýsing fer ótrúlega í taugarnar á mér og ég get ekki að því gert að slagorðið "skapaður fyrir íslenskar aðstæður" finnst mér alveg ömurlegur endahnútur, það er eins og það sé verið að hvetja til utanvegaaksturs. Hvers vegna mátti ekki taka myndir af svona jeppahræi (eins og nissan bílar eru) í snjó?

    það er líka búið að taka út úr auglýsinguni þetta comment sem sýnt var í 20 millisekúntur um að utanvegaakstur sé bannaður.





    08.01.2007 at 18:49 #573874
    Profile photo of Lárus Rafn Halldórsson
    Lárus Rafn Halldórsson
    Participant
    • Umræður: 116
    • Svör: 1238

    Jæja, þá er þessi fíni fyrirlestur búinn. Helsta niðurstaðan og sú veigamesta er vafalítið sú að enginn munur er á slysum á breyttum jeppum og óbreyttum í árekstri við fólksbíla.

    Mér fannst reyndar ótrúlega léleg mæting á þennan fyrirlestur frá jeppamönnum, ég bjóst við að sjá mikið fleiri, jafnvel fullt útúr dyrum.

    kveðja,
    Lalli





    03.01.2007 at 20:34 #573386
    Profile photo of Lárus Rafn Halldórsson
    Lárus Rafn Halldórsson
    Participant
    • Umræður: 116
    • Svör: 1238

    Ívar, endilega segðu okkur frá þessum göllum. Ég var einmitt að spá í að fá mér svona kerfi í minn bíl.

    Hvaða gallar eru á gormum, hvaða gallar eru á loftpúðum og hvaða gallar elta mann þegar maður er með bæði gorma og púða?

    Ég er með bíl sem er með stýfur (ekki four link) bæði að framan og aftan, er eitthvað sem hindrar mig í að skipta út gormunum fyrir loftpúða?

    mig vantar meiri upplýsingar





    02.01.2007 at 11:06 #573146
    Profile photo of Lárus Rafn Halldórsson
    Lárus Rafn Halldórsson
    Participant
    • Umræður: 116
    • Svör: 1238

    Sæll

    það getur meira en vel verið að þetta sé eitthvað í eigu Vegagerðarinnar, en ég gat ekki betur séð en þetta væri græja með flassi, held að þeir noti ekki svoleiðis til vegaeftirlits.

    þessar vélar eru líka settar á frekar krítíska staði, önnur eftir langa beina kaflann frá borgarnesi og hin ekki langt frá afleggjaranum inní Hvalfjörð.

    ég skora á einhvern að keyra vel yfir hámarkshraða þarna og gá hvort hann fær á sig flass :)

    lalli





    01.01.2007 at 20:02 #199268
    Profile photo of Lárus Rafn Halldórsson
    Lárus Rafn Halldórsson
    Participant
    • Umræður: 116
    • Svör: 1238

    Var að keyra í fyrsta sinn frá Rvk til Borgarness í frekar langan tíma og varð þá var við nýja gerð af hraðamyndavélum sem ég hef ekki séð á íslandi áður.

    Þetta eru stauravélar, ekki ólíkar þeim sem finnast við ýmis gatnamót í Reykjavík. Ég er vanur þessum vélum frá Svíþjóð, en þar eru þær útum alla koppa og grundir.

    Ég tók að ganni Hnitin á vélunum og eru þeir eftirfarandi m.v. WGS 84 og HDDD°MM.MMM stillingar.
    –
    frá Borgarnesi í átt að Reykjavík:
    n 64°25.387
    w 021°56.819
    –
    frá Reykjavík í átt að Borgarnesi:
    n 64°23.036
    w 021°50.902
    –
    að ganni má setja þessa punkta inní GPS hjá sér og stilla „proximity warning“ á þeim, en þá flautar GPS tækið þegar þú nálgast þessa punkta.

    kveðja,
    Lalli
    P.S. Ég er að sjálfssögðu bara að nefna þetta hér til að menn geti farið og skoðað þessa kostagripi en ekki að ýta undir að menn nýti sér þessar upplýsingar til ólöglegs aksturslags….. notist á eigin ábyrgð.





    31.12.2006 at 15:38 #573102
    Profile photo of Lárus Rafn Halldórsson
    Lárus Rafn Halldórsson
    Participant
    • Umræður: 116
    • Svör: 1238

    Ég held að Ómar sé geggjað mikilmenni. Landið á það mjög gott að eiga hann og Andra Snæ Magnason í sínum röðum, fólk sem fær annað fólk til að HUGSA aðeins.

    Marga fleiri mætti nefna en læt aðra um að telja upp fleiri.

    Með von um gott umhverfisár 2007, þar sem fólk fær að VERNDA náttúruna til þess að NJÓTA hennar, ekki loka af og læsa, eyðileggja með uppbyggðum vegum og girðingum, og svo hliðverði sem rukka inngöngugjald inná skrípaleikinn.

    friðarkveðjur,
    Lalli





    30.12.2006 at 20:07 #573058
    Profile photo of Lárus Rafn Halldórsson
    Lárus Rafn Halldórsson
    Participant
    • Umræður: 116
    • Svör: 1238

    Dabbi: já, það má segja það :) maður verður að geta bjargað þér þegar þú festir þig…. :) bíllinn minn er ekki nógu þungur til að kippa þér upp.

    Gísli, 1 þúsund punda spil eiga heima á fjórhjólum, ekki jeppum, nema þú sért að tala um 10.000 punda spil.

    Já, hef samband tryggvi.





  • Author
    Replies
Viewing 20 replies - 481 through 500 (of 684 total)
← 1 … 24 25 26 … 35 →

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.