Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
12.03.2007 at 13:23 #584216
ef það er stíft að snúa henni þegar bíllinn er stopp (dautt á vél) þ.e. búið að vera dautt á bílnum í einhvern tíma, þá er hún nú að öllum líkindum í lagi.. aðrar aðferðir hef ég ekki heyrt um.
11.03.2007 at 00:11 #199887er eitthvað vitað hvaða hópur þetta er og eru allir talstöðvarlausir?
hver er þessi eini og hvaða fífldirfska er að fara einn í svona veðurspá á jökul?
10.03.2007 at 17:22 #583940í Essó Aðföng við hliðina á endurvinnsluni í Knarravogi 4. Þeir eru með ýmis tæki sem sniðugt er að eiga við olíuskipti m.a.
Ekki man ég samt hvað þetta furðuverk kostaði, en það var ekki dýrt minnir mig.kveðja,
Lallip.s. eru margir jeppar í dag sem ekki eru með botntappa á pönnu?
10.03.2007 at 08:41 #19987906.03.2007 at 11:06 #583432Sæll
mundu bara að skipta um allar legur og pakkdósir, líka í læsinguni fyrst þú ert að opna þetta á annað borð…
pay now, or you will pay (more) later. þannig virkar þetta stöff oftast.
kveðja,
Lalli
27.02.2007 at 12:05 #199802Á flakki mínu um netið fann ég þennan handhæga dýptarmæli sem má henda út í á í bandi og draga að landi aftur… hann sýnir dýpi í fetum sýnist mér, og ekki er verra ef hann skynjar einhverja fiska
ætli þetta sé nýtilegt sem dýptarmælitæki í ám? það væri ágætt að þurfa ekki lengur að vaða….
22.02.2007 at 16:18 #581700Sæll
fór Skálparnes-Jaki um daginn, skal senda á þig trakkið í kvöld. þú veist bara að það er alveg án ábyrgðar
kveðja,
lalli
21.02.2007 at 15:37 #581696Sæll
ég myndi helst vilja fá nýlegt TRACK af því að það er nákvæmlega sú leið sem einhver hefur ekið. Ég geri mér samt grein fyrir því að það er engin trygging fyrir því að sú leið sé fær núna og ég æki með TRACKIÐ til hliðsjónar og veit að eigandi þess ber enga ábyrgð á því að það sé rétt.
RÚTU er ekkert mál að búa til og hafa til hliðsjónar þegar maður keyrir, en þar sem ég hef aldrei keyrt þarna áður væri betra fyrir mig að fá TRACK.
RÚTA sem gerð er eftir TRACKI eða því sem næst myndi líka duga ágætlega.
það á að vera hægt að vista RÚTUR og TRÖKK auðveldlega úr tækjum í Mapsource, getur einhver séð aumur á mér og sent mér svona lagað?
21.02.2007 at 13:51 #199751Hvar get ég fundið nýlegt track yfir langjökul frá Jaka og niður hjá Hveravöllum?
við ætlum að fara nokkrir félagar um helgina og langar mig að eiga nýlegt trakk af þessu ef ég get.
Endilega ef þið getið sent mér svona trakk á Garmin formatti, sendið á lalli@slepja.com eða bendið mér á hvar ég get downloadað þessu.
takk,
Lalli
19.02.2007 at 21:50 #580978….er þetta hjá ykkur.
ég er með svona 10 á langkeyrsluni, og svona 13 innanbæjar, 38" breyttur krúser með 4 lítra túrbódísel.
19.02.2007 at 13:39 #580890Já, ætli maður nái sér ekki í nýjan smurþrýstingsmæli fyrst…… það er allavega ódýrasta "viðgerðin" ef það er málið, hehe
ef það skilar engu, þá fer maður að experimenta með olíur.
18.02.2007 at 21:24 #199723Kæru félagar..
getið þið frætt mig um það hvort það henti betur að vera með þykka eða þunna olíu á frekar mikið keyrðum bílum?
Vélin hjá mér er ekin um 300.000 og mér finnst smurþrýstingurinn (skv. mæli) vera leiðinlega lítill. Sér í lagi þegar maður slær af eftir kanski frekar langan þjóþvegarakstur.
ÉG er með 5W30 gerfiefnaolíu sem er mjög fín, en ég vill ekki skemma mótorinn ef þessi olía er of þunn…
hafiði skoðun á þessu?
14.02.2007 at 15:50 #580354Sæll
þú getur prófað þetta á einfaldan hátt með því að taka stýrisdælureimina af og fara út að keyra.
leiti hann til hliðar þrátt fyrir það, þá er það ekki dælan
spara þér smá krónur….
12.02.2007 at 15:57 #580154Sæll
þú veist að stundum á að skrúfa skrúfur -inn- til að fá meira olíumagn á spíssana… varstu að skrúfa í rétta átt?
11.02.2007 at 22:41 #580114Sæll
Já fjögurra lítra vélin kemst oní og passar fínt. Ég var einmitt leiður á kraftleysinu í mínum og setti í hann 4 lítra vél úr 60 krúser.
Vélin er sáraeinföld og rafmagnstengingar og annað mjög lítið mál. það þarf reyndar slatta að smíða í kringum vélina, færa til festingar og fleira, en sú vinna borgar sig um leið og þú ferð að keyra.
hafðu samband ef þú villt fá meiri upplýsingar,
lalli
10.02.2007 at 10:53 #579990Gat þessi vesalings valdsjúki herramaður útskýrt fyrir þér afhverju þetta er ólöglegt? Stafar einhver gríðarleg hætta af kösturum með parkljósum umfram aðra kastara? Afsakið, en ég bara get ekki farið eftir bönnum sem hafa þann eina tilgang að -banna- eitthvað án þess að gild rök séu þar að baki.
kveðja, Lalli sem fattar ekki tilgangslaus bönn…
09.02.2007 at 20:33 #579950…..en ég væri talsvert til í að kaupa af þér bremsudælurnar og jafnvel diskana líka ef þú skiptir því út…
hafðu samband,
Lalli(at)slepja.com
08.02.2007 at 13:57 #579684Það sem ég sé við töskurnar hjá Landsbjörg er aðallega það að þær eru ryk- og rakaheldar sem ég tel nauðsynlegt fyrir svona dót í bíl.
Ég mun kaupa svoleiðis tösku af Landsbjörg, þótt hún kosti helling og bæta svo við því sem við á í þá tösku held ég…. og nokkra litla poka af raka-gleypandi silica-geli til að halda þessu alveg þurru og óskemmdu.
Held það hljóti að vera töluvert atriði að grisjur og teygjubindi séu ekki að mygla í rakablautum töskum….
08.02.2007 at 13:25 #579678Er einhver séns á að kaupa heilan svona pakka í tösku frá þeim þarna í FBSR?
ef svo er, hvað kostar svona taska?
08.02.2007 at 08:30 #579494maður hefði komið með ef ekki hefði verið löngu búið að plana að fara í aðra ferð…
-
AuthorReplies