FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir
You are here: Home / Lárus Rafn Halldórsson

Lárus Rafn Halldórsson

Profile picture of Lárus Rafn Halldórsson
Not recently active
  • Prófíll
  • Groups 0
  • Forums
  • Topics Started
  • Replies Created
  • Favorites

Forum Replies Created

Viewing 20 replies - 421 through 440 (of 684 total)
← 1 … 21 22 23 … 35 →
  • Author
    Replies
  • 06.07.2007 at 13:45 #583616
    Profile photo of Lárus Rafn Halldórsson
    Lárus Rafn Halldórsson
    Participant
    • Umræður: 116
    • Svör: 1238

    Sælir strákar..

    ef einhver hefur þessar teikningar undir höndum þá þætti mér voða gaman að fá þær líka.

    lalli@slepja.com

    kærar þakkir





    15.06.2007 at 23:17 #200431
    Profile photo of Lárus Rafn Halldórsson
    Lárus Rafn Halldórsson
    Participant
    • Umræður: 116
    • Svör: 1238

    Sælir félagar

    veit einhver hvenær von er á margumtalaðri uppfærslu á Garmin Íslandskortið sem átti að koma í vor?
    ef það er komið, hvar getur maður nálgast þessa uppfærslu?

    kveðja,
    Lalli





    14.06.2007 at 21:26 #592472
    Profile photo of Lárus Rafn Halldórsson
    Lárus Rafn Halldórsson
    Participant
    • Umræður: 116
    • Svör: 1238

    þetta er gert til þess að vélarolían nái að kæla túrbínulegurnar svo að olían sem stoppar í legunum þegar þú drepur á brenni ekki og myndi karbon sem síðan eyðileggur legurnar. (svona hér um bil)

    í hægagangi er minni hiti á túrbínuni og olían kælir legurnar niðurfyrir þann hita sem hún myndi eyðileggjast í legunum. Svo þegar bíllinn er búinn að kæla sig niður drepur þessi búnaður á bílnum og þá brennur olían ekki í legunum. mjög indælt.

    þetta á líka við um vatnskældar túrbínur.





    27.05.2007 at 11:07 #591270
    Profile photo of Lárus Rafn Halldórsson
    Lárus Rafn Halldórsson
    Participant
    • Umræður: 116
    • Svör: 1238

    Félagi minn var með leiðndar hvin í bílnum hjá sér sem ágerðist smátt og smátt.

    í ljós kom að hjöruliðskrossar á drifskafti voru ónýtir. það kemur ótrúlegur hvinur í þetta á ferð ef þetta fer að gefa sig.

    bara ein hugmyndin enn.





    25.05.2007 at 15:04 #589812
    Profile photo of Lárus Rafn Halldórsson
    Lárus Rafn Halldórsson
    Participant
    • Umræður: 116
    • Svör: 1238

    Lítið eitt olíusmit þarf ekki að þýða neitt alvarlegt. á flestum bílum er olíuöndunin tengd uppí soggrein (fyrir túrbínu) og þótt hún smiti smá er það ekkert hættulegt.

    mikið smit þýðir samt yfirleitt að legur í túrbínu eru farnar að slappast og það er farið að leka meðfram pakkninguni í henni.

    En yfir í annað… Gefa þessir ástralar einhverja ástæðu fyrir því að þeir vilja ekki kæla meira en niður í 60°c aftur? Nú held ég að það sé nokkuð þurrara loft hér en í ástralíu, er samt ekkert alveg viss…





    21.05.2007 at 09:34 #589800
    Profile photo of Lárus Rafn Halldórsson
    Lárus Rafn Halldórsson
    Participant
    • Umræður: 116
    • Svör: 1238

    Þetta er einmitt lykilatriði í hugmyndinni með að setja vatnskældan kúler…..

    vatnskældir kúlerar eru með frekar lítið element á vélinni, en stóran vatnskæli t.d. fyrir framan vatnskassa. Auk þess eru ekki langar leiðslur fyrir loftið fram fyrir kassa og í risastóran kúler þar og aftur til baka í vél, heldur er vatnið leitt þessa leið.

    þetta þýðir styttri leið fyrir loftið= minna lagg..





    20.05.2007 at 22:38 #591382
    Profile photo of Lárus Rafn Halldórsson
    Lárus Rafn Halldórsson
    Participant
    • Umræður: 116
    • Svör: 1238

    … ég hef aldrei séð almennilega íslenska síðu með loftpúðum.

    En ég hef aldrei komið að tómum kofanum hjá þeim í Fjaðrabúðinni Parti hvað varðar spurningar um þessa hluti.

    http://www.partur.is/





    19.05.2007 at 19:33 #589784
    Profile photo of Lárus Rafn Halldórsson
    Lárus Rafn Halldórsson
    Participant
    • Umræður: 116
    • Svör: 1238

    fyrir að bjarga geðheilsu minni :)

    þetta er einmitt það sem ég vildi sjá, útskýringar á málinu…

    En hvernig er rakastig lofts sem er undir frostmarki? er þetta bara alveg eins? er "raka-rýmd" lofts alltaf minna eftir því sem það kólnar meira? þarf maður að hafa einhverjar áhyggjur af þessu svo lengi sem maður nær ekki að kæla loftið í mótornum niðurfyrir umhverfishita?

    Hvernig breytir þrýstingur loftsins þessum jöfnum? getur það haft einhver áhrif á þetta "daggarmark" að loftið er þjappað?





    18.05.2007 at 23:51 #589780
    Profile photo of Lárus Rafn Halldórsson
    Lárus Rafn Halldórsson
    Participant
    • Umræður: 116
    • Svör: 1238

    JÆJA!

    nú kemur þetta daggarútfellingarröfl aftur. Er þetta eitthvað voða fansí orð sem allir fróðir menn um vatnskælda interkúlera verða að veifa í tíma og ótíma í kringum sig eða hefur þetta eitthvað að segja?

    Er einhver sem getur útskýrt hvað þetta fyrirbæri er í alvöru? Hefur þetta eitthvað að gera með að það falli út raki og myndi dropa í soggreininni þegar kælt er niður fyrir umhverfishita? Hvers vegna eru menn að röfla um það í einni setningu og röfla svo um það í næstu setningu að þessir kælar geti ekki kælt jafn vel og loftkældir kælar? Myndi þá ekki falla út raki líka í loftkældum kælum? Breytist þetta strax og farið er í lofthita undir frostmarki?

    Ég óska hér með eftir svari frá einhverjum sem -veit- hvað hann er að tala um og getur útskýrt það fyrir svona aula eins og mér.

    afsakið óverðskuldaðan pirring,
    Lalli





    18.05.2007 at 11:13 #589770
    Profile photo of Lárus Rafn Halldórsson
    Lárus Rafn Halldórsson
    Participant
    • Umræður: 116
    • Svör: 1238

    Mig langar mikið að sjá ofaní húddið hjá Tryggva…. hvernig næ ég sambandi við hann??

    getur einhver sent mér upplýsingar um það (eða tryggvi, hafðu samband) á lalli(hjá)slepja.com eða hringja í mig..





    17.05.2007 at 23:44 #589762
    Profile photo of Lárus Rafn Halldórsson
    Lárus Rafn Halldórsson
    Participant
    • Umræður: 116
    • Svör: 1238

    Jæja, ég er búinn að lesa mér til um vatnskælda kúlera og búinn að mynda mér mína skoðun.

    Vatnskældir kúlerar henta ekki öllum og oftast ekki "street racing" eða lengri tíma akstri, og frekar notaðir í spyrnukeppnir .

    Enda er þá yfirleitt um extreme notkun að ræða og loftið kælt niður fyrir ambient temp með ísvatni. þetta er að sjálfssögðu bara hægt í stutta stund og í þessum tilfellum er hætta á útfellingu raka (eða daggarmyndun sem talað var um í öðrum þræði).

    Vatnskældir kúlerar ná yfirleitt ekki að kæla eins vel og loftkældir en þrýstingstap yfir þessa kæla er minna en af venjulegum. Þeir eru líka hentugir þar sem lítið pláss er fyrir loftkælda kæla ofaná vél eða menn (eins og ég) vilja ekki fá túrbó-lagg af því að leiða slöngur fram fyrir vatnskassa fyrir loftkældan kúler þar.

    Ég ætla að gera tilraun með þetta. er með frekar stórann vatnskældan kúler og ætla að hafa fjandi stórt element fyrir framan vatnskassa hjá mér.

    svo þarf ég að finna einhverja leið til að mæla hita á loftinu fyrir og eftir kæli…. einhverjar hugmyndir?





    16.05.2007 at 12:55 #590936
    Profile photo of Lárus Rafn Halldórsson
    Lárus Rafn Halldórsson
    Participant
    • Umræður: 116
    • Svör: 1238

    Okay. nú eru komnar nýjar uppl sem skipta máli.

    Hvers vegna er slæmt að það komi daggarútfelling? skaðar það vélina að fá inná sig örfáa dropa af vatni sem af þessu kemur? hvað með kerfi sem hreinlega sprauta vatni vísvitandi inná strokka til að auka þjöppu eða hvað það gerir?

    hvers vegna er miðað við 40? og áttu þá við að það megi aldrei fara nær umhverfishita en 40 gráður? í 10 stiga frosti myndi ég þá bara vilja fá 30°c heitt loft inná vélina?

    hvers vegna gerist þetta ekki með loftkælda kúlera? þeir kæla örugglega talsvert nær "ambient"hita en þessir vatnskældu?

    getur einhver bent mér á góðan link til að lesa um þessi mál?





    16.05.2007 at 09:19 #590932
    Profile photo of Lárus Rafn Halldórsson
    Lárus Rafn Halldórsson
    Participant
    • Umræður: 116
    • Svör: 1238

    Sæll Elías.

    ég veit að það er ekki hægt að nota vatnskassa sem millikæli, enda sagði ég að ég ætlaði að nota vatnskassa úr fólksbíl sem kæli fyrir vatnið sem síðan fer inná vatnskælda millikælinn sem er ofaná vélinni minni.

    sé eini gallinn sá að maður getur "ráðið hitastiginu" þá er það náttúrulega augljóst að maður vill hafa hitann sem minnstan :)





    15.05.2007 at 22:47 #590928
    Profile photo of Lárus Rafn Halldórsson
    Lárus Rafn Halldórsson
    Participant
    • Umræður: 116
    • Svör: 1238

    Sælir strákar..

    getiði sagt mér kosti og galla þess að vera með vatnskældan intercooler?

    ég var að spá í að ná mér bara í vatnskassa úr fólksbíl til að hafa fyrir framan stóra kassann minn, og tengja vatnskælda coolerinn inná hann með hringrásardælu sem ætluð er Webasto.

    Eru einhverjir gallar aðrir við þetta en að þetta er aðeins minni kæling en af loftkældum kúler?





    08.05.2007 at 09:14 #590590
    Profile photo of Lárus Rafn Halldórsson
    Lárus Rafn Halldórsson
    Participant
    • Umræður: 116
    • Svör: 1238

    Ef Pólitíkin er móðir (upphaf) allra stjórnmálamanna….. má þá ekki segja að allir stjórnmálamenn séu tíkarsynir?

    nei ég bara spurði…. :)





    05.05.2007 at 18:02 #590366
    Profile photo of Lárus Rafn Halldórsson
    Lárus Rafn Halldórsson
    Participant
    • Umræður: 116
    • Svör: 1238

    Sæll Brynjólfur.

    "gúmmíið" á kaðlinum mínum er nú bara rafmagnsteip sem límt var á af félaga mínum sem splæsti lykkjurnar á hjá mér.

    Ég sé það núna að svona teip á ekki heima á kaðli sem þessum því þetta verður bara klístrað og ógeðslegt og límið skemmir kaðalinn með tímanum…. næst mun ég nota slöngubút þegar splæsa á lykkju á kaðal hjá mér.

    Varðandi öryggisbeltið þá er komin á það góð reynsla, ég er búinn að spara mér í það minnsta einn afturhlera eftir að krókur gaf sig í togi. Bjargaði þá "öryggisbeltið" því að kaðallinn þrumaðist í afturdyrnar hjá mér.





    04.05.2007 at 13:28 #590348
    Profile photo of Lárus Rafn Halldórsson
    Lárus Rafn Halldórsson
    Participant
    • Umræður: 116
    • Svör: 1238

    Ég bjó til öryggisbelti á kaðalinn minn því ég vill nota lása. Það er ekkert vit í öðru en að hafa svona kerfi, og sér í lagi ef maður er að nota lása.

    hér er hægt að sjá hvernig ég gerði það:

    [url=http://www.f4x4.is/new/photoalbum/default.aspx?file=skyrinarmynd/4811:3q4gnyp3][b:3q4gnyp3]öryggisbelti á kaðal[/b:3q4gnyp3][/url:3q4gnyp3]





    03.05.2007 at 13:10 #590188
    Profile photo of Lárus Rafn Halldórsson
    Lárus Rafn Halldórsson
    Participant
    • Umræður: 116
    • Svör: 1238

    Ég talaði við Toyota og þessir bílar koma ekki hingað, ekki ætlaðir fyrir evrópumarkað er mér sagt.

    þannig fór um sjóferð þá….





    02.05.2007 at 13:38 #590162
    Profile photo of Lárus Rafn Halldórsson
    Lárus Rafn Halldórsson
    Participant
    • Umræður: 116
    • Svör: 1238

    Ég hef einmitt fylgst svolítið með þessum bílum…

    þeir koma fljótlega með sömu vél og LandCruiser 200 held ég hann heiti, v8 disel, twinturbo..

    það sem meira er, þeir uppfylla mengunarkröfur evrópu og er því ekkert því til fyristöðu skilst mér að flytja þá hingað.





    01.05.2007 at 11:34 #590102
    Profile photo of Lárus Rafn Halldórsson
    Lárus Rafn Halldórsson
    Participant
    • Umræður: 116
    • Svör: 1238

    er mikið dautt slag í stýri?

    ég hef séð svona hegðun í bíl sem var með ónýtar framhjólalegur.

    þetta passar líka við slitin dekk og svo náttúrulega haga flestir jeppar sér svona þegar keyrt er í djúpum hjólförum á þurru malbiki… allavega oft.





  • Author
    Replies
Viewing 20 replies - 421 through 440 (of 684 total)
← 1 … 21 22 23 … 35 →

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.