Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
23.01.2008 at 10:11 #610776
Takk fyrir mig, gaman að sjá í gær hvað margir mættu og hafa áhuga á þessum ágæta hugbúnaði. Ég veit ekki allt um hann og er ófeiminn við að viðurkenna það en vona jafnframt að það sem ég kann og reyndi að útskýra í gær hafi komið þeim sem mættu að góðum notum.
Vilji einhver spyrja meira útí þessi mál eða sjá aftur eða betur atriði í þessum forritum, er viðkomandi alveg óhætt að hafa samband við mig. Upplýsingar um mig er hægt að finna hér á vef 4×4.
aftur þakkir fyrir góðar undirtektir,
Hjálparsveitakveðja,
Lalli
23.01.2008 at 09:57 #609528Hjartanlega sammála Lellu, gefið mönnum vinnufrið eða bjóðið fram aðstoð.
Ég býð hér með kerru til láns í verkefnið, hún er á 36" dekkjum og getur borið um 500 kíló ef hún kemur að gagni. (38" túttur passa undir)
kveðja,
Lárus
21.01.2008 at 10:54 #610752kynninguna á morgun kl. 20
kv.
Lalli
20.01.2008 at 17:43 #610748aðeins að halda þessu á forsíðu, ef fleiri vildu bætast í hópinn…
20.01.2008 at 05:08 #610966þegar maður hefur efni á nýjum 120 krúser og fellihýsi þá fær maður sér besta dráttarbeislið, ekki það ódýrasta.
myndir þú fara á Argentínu og panta þér nautasteik af Kobe nauti og panta pylsusinnep með af því að það er ódýrara en piparsósan?
nei bara spurði….
19.01.2008 at 20:48 #610744Sæl öll
gaman að sjá hvað margir ætla að mæta
það gæti orðið ögn þéttskipaður bekkurinn, en þröngt sitja sáttir.
Enginn þarf að mæta með neitt frekar en þeir vilja, ég verð með glærushow fyrst og svo fer ég yfir aðgerðir í sjálfu Mapsource og nRoute með hjálp skjávarpa.
vona að þetta svari spurningunum.
kveðja,
Lalli
18.01.2008 at 21:31 #610716Takk Haffi fyrir að setja þetta í atburðadagatalið.
Baldvin, takk fyrir ábendinguna, ég er búinn að stækka letrið í fyrirlestrinum eins og ég get núna.
Ef fleiri sem voru á fyrri fyrirlestrinum vilja senda mér punkta sem betur mega fara, endilega sendið mér meil á lalli@slepja.com
Pétur, nei þetta ætti að sleppa fyrir horn. Þú missir af ýmsu náttúrulega, en þú sérð það þá á blöðunum sem þú færð.
kveðja, Lárus
18.01.2008 at 20:25 #201657Sæl öll
það er kominn tími á aðra svona MAPSOURCE og nROUTE kynningu.Hún verður haldin í húsnæði Ferðaklúbbsins í mörkinni á ÞRIÐJUDAGSKVÖLDIÐ 22. JANÚAR kl 20:00
Ég ætla ekkert að hafa takmarkaðan fjölda núna, en þeir sem ætla að koma mættu vinsamlegast skrá sig hér á þennan spjallþráð og segja „hæ, ég mæti“ svo ég hafi einhverja hugmynd um fjölda. Geri ráð fyrir að þetta taki svona 2 tíma.
Hjálparsveitarkveðja,
Lárus
17.01.2008 at 09:39 #609748Takk fyrir hólið
gott að þetta nýtist ykkur eitthvað.
ég geri fastlega ráð fyrir að næsti fyrirlestur verði fljótlega, ég auglýsi það þá hérna á spjallinu þegar það er orðið ljóst.
kveðja,
Lárus
16.01.2008 at 18:16 #610444þetta er óþolandi átroðningur. magnað að það sé ekki hægt að fá fólk til að láta fólkvanginn í Bláfjöllum í friði.
fyrst þið sáuð þessa bíla þarna, eruð þið þá ekki með bílnúmerin? bara birta þau hérna á vefnum, ekkert annað að gera.
kveðja,
Lalli sem skilur ekki bjána sem skemma í Bláfjöllum
11.01.2008 at 23:19 #609054það má nálgast einhver forrit fyrir mac notendur hér:
[url=http://www8.garmin.com/support/mappingsw.jsp:2eeoz2rs][b:2eeoz2rs]Mapinstall og mapmanager fyrir mac[/b:2eeoz2rs][/url:2eeoz2rs]annars hef ég ekki ögmund um hvernig þessi forrit virka, hvort þau séu eitthvað lík windows forritunum.
11.01.2008 at 18:36 #609048þarna á síðuni er talað um að retail price á þessu forriti sé um 59 dollarar, er þetta þá s.s. ekki frítt fyrir notendur eins og okkur sem eiga tæki og eiga íslandskortið í mapsource (eins og er í dag með nRoute)?
verður þróun nRoute hætt í framhaldi af þessu forriti?
ég sé einn kost við þetta forrit, það virðist ekki skipta máli hvaða gps á í hlut, ef það talar NMEA. Verður hægt að nota íslandskortið við þetta?
hlakka samt til að heyra meira af þessu forriti.
lalli
10.01.2008 at 23:41 #609884Sæll
þú græðir fleira á því að hafa búnaðinn svona, tildæmis það að lenda aldrei í því að vera að nota lásana með of litlum þrýstingi ef dælan bilar. mér var tjáð að ef það kemur fyrir er meiri hætta á skemmdum á lásnum.
ef þú stillir þetta á að skjóta læsingunum af/á við svona 70 psi þá er allt í góðu, þær eru gefnar upp fyrir 75-100 psi þrýsting minnir mig.
ég geri s.s. ráð fyrir því að þú ætlir að nota þrýstistillirofa til að athuga hvenær óhætt sé að skjóta læsingunum inn….
10.01.2008 at 15:58 #609734sæl öll!
það er mjög gaman að sjá hvað margir hafa áhuga á að mæta á aðra svona kynningu.
ég mun pósta hérna inná þennan þráð þegar ákvörðun hefur verið tekin um hvenær halda skuli svona kynningu aftur.
kveðja,
Lárus
09.01.2008 at 14:47 #609718Nú er fullbókað á kynninguna. Ef áhugi er fyrir hendi, þá verður hugsanlega hægt að halda fleiri kynningar í náinni framtíð.
kveðja,
Lárus
09.01.2008 at 13:11 #201568Enn eru 5 sæti laus á Mapsource og nRoute kynninguna. Sendið póst á hjalparsveit@f4x4.is til að skrá ykkur ef þið hafið áhuga!
sjá annars Fréttina af vefsíðu F4x4
kveðja,
Lárus
05.01.2008 at 00:01 #609026já fékk póstinn, takktakk, frábært
fer varlega með þetta…
04.01.2008 at 23:52 #609018Sælir strákar
ég hef aldrei náð að keyra Mapsource og nRoute saman í einu. Ertu að reyna það? prófaðu að loka nRoute meðan þú leitar í Mapsource.
kveðja,
Lalli
03.01.2008 at 15:21 #608750góðan dag.
hefðu einhverjir áhuga á stuttu námskeiði í helstu notkunarmöguleikum og stillingum í Mapsource og Nroute?
ég var að spá í að halda stutta kvöldkynningu á helstu stillingum og hvernig ég nota þessi forrit til að safna ferlum og vinna með þá. Einnig hvernig gott er að hafa þetta stillt þegar maður keyrir með Nroute.
hefðu menn áhuga á því?
01.01.2008 at 23:14 #608506…eða vídeó? þetta var nebblega nokkuð flott show hjá þeim þarna á þyrluskrattanum
þetta er greinilega helvíti öflug græja…
-
AuthorReplies