FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir
You are here: Home / Lárus Rafn Halldórsson

Lárus Rafn Halldórsson

Profile picture of Lárus Rafn Halldórsson
Not recently active
  • Prófíll
  • Groups 0
  • Forums
  • Topics Started
  • Replies Created
  • Favorites

Forum Replies Created

Viewing 20 replies - 321 through 340 (of 684 total)
← 1 … 16 17 18 … 35 →
  • Author
    Replies
  • 27.02.2008 at 10:34 #615354
    Profile photo of Lárus Rafn Halldórsson
    Lárus Rafn Halldórsson
    Participant
    • Umræður: 116
    • Svör: 1238

    Sæll

    ég er á einkennilegri blöndu af 60 og 70 krúser og nota bara 75-90 á drif og kassa.
    Mig minnir að það eigi að fara 75-90 á kassana en 80-90 á drifin skv. handbók, en ég hef prófað þetta fram og til baka og gírkassinn verður stífur og leiðinlegur með 80-90 olíuni.

    Svo set ég alltaf smá militech bætiefni með öðru hvoru á millikassann og hásingarnar, það virðist allavega aldrei hafa skemmt neitt…

    kveðja,
    Lalli





    22.02.2008 at 09:49 #613790
    Profile photo of Lárus Rafn Halldórsson
    Lárus Rafn Halldórsson
    Participant
    • Umræður: 116
    • Svör: 1238

    Svona fara sumir að þessu, helvíti snilldarlega gert.

    [url=http://www.employees.org/~dirttrak/rear-FF-disk-conversion.htm:3b62y3n4][b:3b62y3n4]Full floating breytt úr skálabremsu í diskabremsu[/b:3b62y3n4][/url:3b62y3n4]

    eitthvað svipað hlýtur að vera hægt að gera á hj60 hásinguni.

    mjög þægileg leið, nú er bara að útbúa handbremsuna! :)





    18.02.2008 at 18:37 #614560
    Profile photo of Lárus Rafn Halldórsson
    Lárus Rafn Halldórsson
    Participant
    • Umræður: 116
    • Svör: 1238

    Sæll

    Ég veit til þess að renniverkstæði Ægis hafi tekið svona hluti að sér, en kostnað veit ég ekkert um.

    Fjaðrabúðin Partur selur púðana og fylgihluti ef þú treystir þér sjálfur í þessar breytingar.

    kveðja,
    Lalli





    15.02.2008 at 16:32 #613902
    Profile photo of Lárus Rafn Halldórsson
    Lárus Rafn Halldórsson
    Participant
    • Umræður: 116
    • Svör: 1238

    Væri ekki hægt að fá eina geymslu hjá Geymslur.com gegn auglýsingu á síðuni t.d.? til að geyma dótið úr gömlu geymsluni?

    allavega meðan verið er að redda þessu?

    nei bara hugmynd….





    14.02.2008 at 23:57 #613890
    Profile photo of Lárus Rafn Halldórsson
    Lárus Rafn Halldórsson
    Participant
    • Umræður: 116
    • Svör: 1238

    Ég mæti í flutninga á laugardag kl 10.

    kveðja,
    Lalli, hjálparsveit





    14.02.2008 at 14:55 #614140
    Profile photo of Lárus Rafn Halldórsson
    Lárus Rafn Halldórsson
    Participant
    • Umræður: 116
    • Svör: 1238

    Sæll

    mér dettur ekkert annað í hug en að þú hafir ekki aflæst kortinu fyrir þitt GPS tæki eða stimplað inn innsláttarvillu við það.

    ég held að næst á dagskrá hjá þér sé að renna við hjá R.Sigmundssyni og fá þá til að díbögga þetta með þér.

    virkar nRoute á heimatölvuni þegar þú plöggar þessu GPS tæki í hana?





    13.02.2008 at 23:33 #613964
    Profile photo of Lárus Rafn Halldórsson
    Lárus Rafn Halldórsson
    Participant
    • Umræður: 116
    • Svör: 1238

    já, ulfr.. gjaldið sjálft er krónutala, en skatturinn ekki.

    það að 25% hækkun á 24.5% virðisauka skili 2 miljarða auka hagnaði í ríkissjóð.. þá er eitthvað að. Sérstaklega ef peningarnir fara ekki engöngu í bættar samgöngur á svæðinu sem skilar tekjunum (svona 60% höfuðborgarsvæðið, ef ekki meira þori ég að giska á).

    það er fúlt.





    13.02.2008 at 23:26 #614130
    Profile photo of Lárus Rafn Halldórsson
    Lárus Rafn Halldórsson
    Participant
    • Umræður: 116
    • Svör: 1238

    Sæll

    þú þarft að nota 25 stafa kóðann sem þú fékkst á heimasíðuni til að aflæsa kortinu í bílnum. þú þarft ekki að fara á netið á þeirri vél til að aflæsa, Bara gera sömu aðgerð í Mapsource á þeirri vél og þú gerðir á þeirri nettengdu, velja "I have a 25 character unlock code".

    ef þú villt hjálp við þetta, vertu þá í bandi, ég er nokkuð vanur þessu dóti :) er með kortið mitt virkt í svona 8 tölvum eða svo… þó bara fyrir mitt GPS.

    kveðja,
    Lalli, s:820-2053





    13.02.2008 at 22:04 #613954
    Profile photo of Lárus Rafn Halldórsson
    Lárus Rafn Halldórsson
    Participant
    • Umræður: 116
    • Svör: 1238

    það sem mér finnst alvarlegast við þetta allt er að nú keppast félögin öll um að labba á klúbba og starfsmannafélög fyrirtækja og bjóða þeim 5-10 króna afslátt af verði á líter, en þeir sem ekki eru svo heppnir að vinna hjá stóru fyrirtæki eða eru í svona sterkum klúbbi eins og F4x4 þurfa að borga brúsann. mér finnst þetta vera svona eins og kjaraskerðing á lægstu launþegana…

    það er alvarleg þróun ef N1 getur boðið starfsmannafélagi Nýherja 10 króna afslátt af viðmiðunarverði á sama tíma og þeir hækka álögur á þá sem ekki hafa tækifæri á því að ganga inní svona díl.

    það finnst mér skítt!

    fyrir utan það er þetta að sjálfssögðu rán um hábjartan dag og til skammar að ríkið skuli ekki lækka álögur á eldsneyti sem samsvarar þessari 2 milljarða króna aukabúbót sem 25% hækkun síðasta árs skilar.

    Lalli, hundfúll og vel til í að snúa díselbrælandi afturenda jeppans síns að loftinntaki loftræstikerfis Alþingishússins og standa allt í botni!





    12.02.2008 at 08:49 #201847
    Profile photo of Lárus Rafn Halldórsson
    Lárus Rafn Halldórsson
    Participant
    • Umræður: 116
    • Svör: 1238

    sjá hér FRÉTT FRÁ STJÓRN

    ætla ekki allir að vera duglegir að hjálpa?

    Ég get komið á laugardag og sunnudag og hjálpað við flutninga, kem með kerruna með mér. Þarf ekki að tæma geymsluna líka?

    p.s. það mætti auglýsa GPS hnitin á nýja húsinu svo maður rati á staðinn….





    11.02.2008 at 23:48 #613776
    Profile photo of Lárus Rafn Halldórsson
    Lárus Rafn Halldórsson
    Participant
    • Umræður: 116
    • Svör: 1238

    Já, handbremsan á drifskaftið (eða aftan á millikassa) er áhugaverð hugmynd, svo lengi sem diskurinn fyrir það nær ekki niðurfyrir grind… þyrfti að fá að sjá þessa útfærslu hjá Jóa. Einhverntímann heyrði ég af bílum sem koma svona original, man ekki hvaða bílar það eru samt.

    tékka á þessari heimasíðu á morgun, takk fyrir ábendinguna með hana

    Hjörtur, mannstu hvað snillingarnir hjá Ægi tóku fyrir að smella þessu á rörið fyrir þig?





    11.02.2008 at 15:48 #201842
    Profile photo of Lárus Rafn Halldórsson
    Lárus Rafn Halldórsson
    Participant
    • Umræður: 116
    • Svör: 1238

    Félagar!

    hefur einhver hér útbúið diskabremsur á Landcruiser 60 afturhásingu? (full floating hásinguna)

    hvaða bremsudælur eru menn að nota, úr hvaða bílum? ég veit að Saab og Subaru komu með handbremsuna tengda að framan fyrir löngu.. og ástralinn notar Cadillac Eldorado bremsur.

    ef einhver hefur gert þetta hér og á myndir eða getur leyft mér að sjá hvernig þetta var útfært, þá væri ég voðalega glaður..

    kveðja,
    Lalli





    08.02.2008 at 16:12 #613344
    Profile photo of Lárus Rafn Halldórsson
    Lárus Rafn Halldórsson
    Participant
    • Umræður: 116
    • Svör: 1238

    svo ég vitni í Benna:

    "En djöfull er ég hrifin af þessum talstöðvarfídus í Tetra – að geta setið hér við tölvuna í vinnunni og spjallað við fólk uppi á hálendi í viðlíka gæðum og það sæti við hliðina á mér (og það án nokunargjalda)… BARA SNILLD !!"

    Benni, ég var að spá… ertu að vinna við Tetra eða eitthvað þannig eða er hægt að spjalla á talstöðvarrás í gegnum internetið? endilega útskýrðu hvernig þú ferð að því að sitja í vinnuni og spjalla við fólk á Tetra kerfinu…

    einn forvitinn





    02.02.2008 at 20:56 #612666
    Profile photo of Lárus Rafn Halldórsson
    Lárus Rafn Halldórsson
    Participant
    • Umræður: 116
    • Svör: 1238

    Sæll

    vatn á drifi er aldrei eðlilegt. Mér finnst líklegast að þú hafir verið að sulla yfir ár eða læki bæði fyrir fyrri smurninguna og eftir. Og gæti verið að öndunin á hásinguni nái ekki nógu hátt uppí grind hjá þér? það er þar sem vatnið fer inn í svona sulli….

    ég er með öndunina á mínum hásingum alveg eins ofarlega og hún kemst, alveg uppundir boddý, og hef ég að mestu sloppið við að fá vatn inná rörin.

    Vatn inná drifi er náttúrulega alltaf slæmt, eykur slit á legum og drifinu og ef þetta er mikið vatn er náttlega alltaf smá hætta á að þetta hreinlega frostspringi.

    kveðja,
    Lalli





    30.01.2008 at 14:37 #612140
    Profile photo of Lárus Rafn Halldórsson
    Lárus Rafn Halldórsson
    Participant
    • Umræður: 116
    • Svör: 1238

    eins og sést á [url=http://www.fjallabilar.com/gallery2/main.php?g2_itemId=2843:1i7qjk84][b:1i7qjk84]ÞESSARI MYND[/b:1i7qjk84][/url:1i7qjk84] þar sem Ofur-dráttarklárinn minn er að tosa 600 kíló af hásingum og bensínbrúsum (fyrir fylgdarbílinn) í kerru yfir Langjökul þá er það augljóst mál að TOYOTA getur allt, er betra en allt og yfir allt og alla hafin! :)

    Drifkveðjur,
    Lalli!

    p.s. GO4IT, það er erfitt að toppa þetta flot hjá ykkur :)





    29.01.2008 at 08:52 #612020
    Profile photo of Lárus Rafn Halldórsson
    Lárus Rafn Halldórsson
    Participant
    • Umræður: 116
    • Svör: 1238

    Varla er um ólöglegt athæfi að ræða?

    ég segi eins og aðrir hérna; Vefnefnd eða Stjórn… rökstyðja þessa ákvörðun takk.

    Benni, það er lítið mál að koma upp smá heimasíðustubbi með spjallkerfi utanum þetta dæmi, ég er með nokkra svona vefi í hýsingu. Ef þú villt koma upp svona vef get ég hjálpað, jafnvel hýst hann.

    hafðu samband, og settu mig endilega á listann: lalli@slepja.com
    Lalli





    27.01.2008 at 22:03 #611976
    Profile photo of Lárus Rafn Halldórsson
    Lárus Rafn Halldórsson
    Participant
    • Umræður: 116
    • Svör: 1238

    Sæll

    Dabbi félagi minn er með 35" breittan 90 krúser og hann skrúfaði nú bara sín 36" Groundhawg undir…. eina sem hann þurfti að gera í viðbót var að skrúfa af plast-endana sem eru á stigbrettunum og þá slapp þetta til svona nokkurn veginn. ég held að sá bíll sé svona "standard breyttur " 90 krúser.

    Annars hafa þessir bílar þurft hásingarfærslu að aftan til að koma 38" undir skilst mér, og stærri kanta að sjálfssögðu. held að skurður að framan sé líka nauðsynlegur, annars rekast þessar blöðrur í hvalbakinn þegar þú beygir.

    semsagt, skrúfa bara 36 undir og taka svo fram stóru sleggjuna ef eitthvað þarf að laga :)





    27.01.2008 at 21:56 #611936
    Profile photo of Lárus Rafn Halldórsson
    Lárus Rafn Halldórsson
    Participant
    • Umræður: 116
    • Svör: 1238

    Sæll

    á hvernig felgum ertu? eru þetta stálfelgur? hafa þær verið meðhöndlaðar einhvernveginn? (t.d. galvaniseraðar eða annað)?

    á hvernig dekkjum varstu áður en þú settir MT undir og voru þau dekk alveg til friðs?

    ástæður þess að ég spyr er sú að ég hef horft hýru auga á þessi dekk og langara að skipta, en ég hef verið á mödder hingað til og verið afskaplega sáttur við þau að flestu leiti, t.d. engar affelganir eða annað vesen þrátt fyrir 15" breiðar felgur.

    mig langar hinsvegar í þetta aukna flot sem ég hef heyrt að þessi dekk geti gefið, 2.5 tonn er alveg í það mesta fyrir mudderinn :)





    25.01.2008 at 13:22 #611472
    Profile photo of Lárus Rafn Halldórsson
    Lárus Rafn Halldórsson
    Participant
    • Umræður: 116
    • Svör: 1238

    [url=http://www.youtube.com/watch?v=ayuH7wvnNUQ&feature=related:3fiuadqb][b:3fiuadqb]myndband 1[/b:3fiuadqb][/url:3fiuadqb]
    [url=http://rds.yahoo.com/_ylt=A0geu8.yuZlHwtsAEsRXNyoA;_ylu=X3oDMTFhZHUyNmxuBHNlYwNzcgRwb3MDMTEEY29sbwNhYzIEdnRpZANIMDU3XzEyMARsA1dTMQ–/SIG=12p6brcpl/EXP=1201343282/**http%3a//www.youtube.com/watch%3fv=1RiqJop9Vx0%26mode=related%26search=:3fiuadqb][b:3fiuadqb]myndband 2[/b:3fiuadqb][/url:3fiuadqb]

    [url=http://www.youtube.com/watch?v=iHuSGPekjas&feature=related:3fiuadqb][b:3fiuadqb]myndband 3[/b:3fiuadqb][/url:3fiuadqb]

    [url=http://www.youtube.com/watch?v=lEQJ9ioHVjg&feature=related:3fiuadqb][b:3fiuadqb]myndband 4[/b:3fiuadqb][/url:3fiuadqb]

    ———————————————————–

    [url=http://www.youtube.com/watch?v=JHwoGQPHcRI&feature=related:3fiuadqb][b:3fiuadqb]myndband 5[/b:3fiuadqb][/url:3fiuadqb]

    [url=http://rds.yahoo.com/_ylt=A0geu82BwplHgzoBusRXNyoA;_ylu=X3oDMTFhdmJxbTZjBHNlYwNzcgRwb3MDMTUEY29sbwNhYzIEdnRpZANIMDU3XzEyMARsA1dTMQ–/SIG=1207nah5i/EXP=1201345537/**http%3a//www.youtube.com/watch%3fv=E6s88d2FbPE:3fiuadqb][b:3fiuadqb]myndband 6[/b:3fiuadqb][/url:3fiuadqb]

    [url=http://www.youtube.com/watch?v=D60rpJr3wRE&feature=related:3fiuadqb][b:3fiuadqb]myndband 7[/b:3fiuadqb][/url:3fiuadqb]

    [url=http://www.youtube.com/watch?v=h-R57d25p2Y&feature=related:3fiuadqb][b:3fiuadqb]myndband 8[/b:3fiuadqb][/url:3fiuadqb]

    [url=http://www.youtube.com/watch?v=YoAu-gPPktQ&feature=related:3fiuadqb][b:3fiuadqb]myndband 9[/b:3fiuadqb][/url:3fiuadqb]





    25.01.2008 at 08:36 #611468
    Profile photo of Lárus Rafn Halldórsson
    Lárus Rafn Halldórsson
    Participant
    • Umræður: 116
    • Svör: 1238

    þú færð bestu verðin í teygjuspotta hjá Ísfell í hafnarfirði. 28 mm spotti, kanski svona 20 metra langur ætti að vera fínn fyrir þig og kostar innan við 10 þúsund kall með splæsingu á báðum endum.

    Menn hafa verið að taka musso felgur og breikka þær í 15" með ágætis árangri…

    hvað súbarú varðar er ég alveg out, dettur helst í hug að panta þær bara að utan beint, fá nýjar og góðar dælur. Einhver auglýsti það fyrir stuttu að geta pantað svona hluti hræódýrt beint frá DingDong landi. Prófaðu að leita á spjallinu…

    Mér og mínum jeppa hefur reynst best að vera með góða flösku af Smirnoff glamrandi einhversstaðar, svo þegar mann þyrstir er bolli fylltur af snjó, vodkanum sullað í og borðað með skeið! eðal fjallakokteill það.. sullast ekkert þótt mikið gangi á…. (í skála að sjálfssögðu)

    kveðja, Lalli





  • Author
    Replies
Viewing 20 replies - 321 through 340 (of 684 total)
← 1 … 16 17 18 … 35 →

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.