Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
24.06.2008 at 15:17 #624756
ég veit að þetta fæst útum allt og í mismunandi útgáfum.. en hefur enginn prófað þetta???
hvorki neikvæðar eða jákvæðar upplýsingar?
23.06.2008 at 21:45 #624748well.. það að komast alla leið er aukaatriði. Það er hugurinn sem gildir! (þ.e.a.s. að ætla að fara).
en hugmyndin jú er að kerrugreyið fljóti líka eitthvað og það hlýtur hún að gera betur á breiðum belg þótt sporlengdin skipti líka máli, jafnvel mestu máli segja sumir.
svo er maður bara að pæla. hver veit nema að þetta endi bara á gömlu 38" túttunum þegar maður skiptir um dekk næst á eðalkerruni… en takk MNH fyrir ábendingarnar, ég hef þetta í huga þegar kemur að því að velja dekkjastærð.
23.06.2008 at 12:40 #202580Er einhver búinn að prófa almennilega þessa samsláttardempara frá Kliptrom? ég er að spá í að henda þessu undir að aftan hjá mér í staðin fyrir gömlu gúmmípúðana.
eru menn glaðir með þessa gaura?
23.06.2008 at 11:08 #202579Ég er að smíða mér trúss kerru sem ég gæli við að geta líka notað á veturna og langar að hafa hana almennilega dekkjaða.
eru til einhver 33″ eða 35″ dekk sem eru c.a. 15″ breið og passa vel á 10-12 tommu felgur? ætlunin er að kerran spori svipað og bíllinn, en ég keyri í dag á 38″ mödder.
21.06.2008 at 11:53 #624716tjah, samkvæmt [url=http://www.vegagerdin.is/media/umferd-og-faerd/Halendi.gif:jgtcm371][b:jgtcm371]HÁLENDISLEIÐARKORTI[/b:jgtcm371][/url:jgtcm371] Vegagerðarinnar þá er þetta opið, amk. hvað varðar aurbleytu og þessháttar.
ætli þessi spurning þarna sé ekki bara þar vegna þess að þeir hafa ekki keyrt þennan kafla til að athuga ástand.
það má allavega keyra þetta ef þú treystir þér til greinilega.
18.06.2008 at 08:38 #624580Sæll
ég hef nú ekki farið þangað í ár, en ég hef séð menn drösla óbreyttu hjólhýsi þarna inneftir, svo fellihýsið ætti að fara með smá varkárni.
Ekki vera einn á ferð, farðu varlega og ekki fara uppí lónið við jökulinn, taktu neðri leiðina og fylgdu brotinu í ánni þegar þú ferð yfir vaðið þar.
Ég geri fastlega ráð fyrir að þú ætlir -ekki- yfir Krossá.
happy camping
12.06.2008 at 13:58 #624462Sæll
ef það er allt nýtt í þessu, þá er engin ástæða til að skipta um legur. bara láta skella lásnum í.
hugsa samt að það sé best fyrir þig að láta jeppaverkstæði gera þetta fyrir þig, t.d. ljónsstaðabræður á selfossi eða eitthvað… það er vandaverk að gera þetta rétt og helvíti dýrt ef það er ekki gert.
12.06.2008 at 09:03 #624456Sæll
það er nokkuð til í þessu. fyrst þú ert að opna þetta á annað borð þá borgar sig hreinlega að skipta um þær legur og pakkdósir sem eru þarna inni. Sérstaklega þar sem það er nokkuð dýrt að láta stilla þetta saman (c.a. 25-30 þús á verkstæði).
jafnvel væri gáfulegt að skipta um kamb og pinnjón ef þetta er mikið keyrt drif.
ef þú ert að fá þér læsingu í þetta þá er alveg jafn gott að hafa þetta bara eins mikið í lagi og hægt er, er það ekki?
kv, Lalli
08.06.2008 at 13:49 #624134Sælir
propex kostar um 60 þúsund kall í UK.
svo er bara að nýta tækifærið næst þegar einhver er að skreppa þangað og fá hann til að smygla þessu heim…
06.06.2008 at 09:12 #624118Afsakið,
ég átti að sjálfssögðu við PROPEX hitara, [url=http://www.propexheatsource.co.uk/:14pinvnk][b:14pinvnk]PROPEX[/b:14pinvnk][/url:14pinvnk]
allar þessar græjur eiga það sameiginlegt (webasto, Trumatic og Propex) að brenna eldsneyti fyrir utan rýmið, en hita loft inni… sem þýðir að þú ert ekki með gasbruna og þar með koltvísýringsmengun inní vagninum.
06.06.2008 at 09:02 #624116Sæll
það er alltaf hávaði í þessum græjum, og gallinn við Webasto græjurnar er bensín/dísel pumpan sem smellir viðstöðulaust meðan græjan er í gangi.
Trumatic hinsvegar er gasmiðstöð og þykir með eindæmum hljóðlát. þessi græja fer í vagninn minn þegar hann er reddí….
[url=http://www.truma.com/truma05/de/produkte/detail1_74457.html#:1p67hlqa][b:1p67hlqa]Trumatic Gasmiðstöð[/b:1p67hlqa][/url:1p67hlqa]
05.06.2008 at 23:08 #623704Getum við ekki frekar bara flutt inn okkar eigin matarolíu? (rapeseed) gera svo eins og gaurinn á Ak… skella 2 tönkum í bílinn og keyra um með djúpsteikingarlyktina angandi afturúr pústinu…. fyrst hann má keyra á notaðri feiti þá hljótum við að mega keyra á nýrri…
svo geta bensíntittirnir þá flutt inn bensín ef þeir fá einhvern til að selja sér það ódýrar en samráðshundarnir hér eru að rukka….
05.06.2008 at 22:55 #624044Sæll
þetta er -nákvæmlega- það sama og skeði hjá félaga mínum. framdrifið brotnaði með látum og stútaði millikassanum.
svo var framdrifið lagað og millikassinn líka, en eftir viðgerðina heyrðust alltaf smellir í millikassanum og framskaftið hrökk til við átak. þetta er í millikassanum.
Ég er ekki búinn að heyra hvað þetta var nákvæmlega, en við urðum að rífa millikassann úr aftur og senda hann í viðgerð. það er eitthvað meira brotið en sást við fyrstu viðgerð á millikassanum…
meilaðu á mig og ég skal senda þér contact info á þann sem er með -spot on- eins case og þú. eins ef þú finnur út hvað þetta er máttu endilega pósta því hingað inn
17.05.2008 at 16:48 #622634Sæll
10 psi eru c.a. 0.7 bar
gildir einu. ég myndi ekki pumpa meira en svona 5 psi inná þessa vél, eða c.a. 0.3 bar eins og þú ert að gera og fylgjast vel með afgashita, sérstaklega ef þú ætlar að fikta í olíuverkinu.
kveðja,
Lallipost scriptum: 1 bar er 14.5 psi
17.05.2008 at 15:29 #622630þú ert með 2L sem er ekki orginal túrbó.
það er ekkert holt að blása mikið inná þær meira en 4-5 psi því þessar vélar eru háþrýstari en 2L-T sem koma orginal túrbó.
þessar vélar fara hratt á stangar- eða höfuðlegum ef blásið er mikið inná þær.
p.s. 10 bar eru 145 Psi… svo vél sem fær 145 psi er ónýt vél…
12.05.2008 at 01:02 #621942ætli hann hafi ekki verið að tala við Landfastan um að kíkja á meilið sitt…..
11.05.2008 at 21:22 #622832sæll
ég er með gírkassa, millikassa og vél úr 60 krúser í bílnum hjá mér.
ég er reyndar með millikassainnvolsið úr 70 krúser í millikassanum vegna þess að það er nokkuð lægra gírað en millikassainnvolsið úr 60 krúsakassanum sem fylgir beinskipta bílnum.
þetta er maus og vinna, meira en svo að ég nenni að týna það til hér en ef þú villt ekki þurfa að finna upp hjólið er þér velkomið að hafa samband og ég skal sýna þér hverju ég breytti og hvernig.
ath… ekki selja gömlu vélina fyrr en sú nýja er komin ofaní… það eru nokkrir hlutir sem þú þarft að setja á milli.
kveðja,
Lalli
10.05.2008 at 22:51 #622818Ég er með 60 krús mótor í 70 krúser og 4:88 hlutföll.
ég næ að halda honum í 10-11 innanbæjar með því að aka eins og maður.
Á fjöllum eyðir hann enn minna nema maður sé þeim mun graðari á gjöfinni.
08.05.2008 at 10:16 #622592ég henti 2.4 túrbódísel úr húddinu á 70 krúsanum mínum fyrir nokkru síðan og smurði 4.0 Túrbódísel úr 60krúser ofaní.
munurinn er ólýsanlegur
nú hef ég TOOOOOOOOOOOG! og eyðsla fór úr 18L/100 niður í 10L/100 innanbæjar. stærri mótor þýðir ekki endilega meiri eyðsla..
07.05.2008 at 19:54 #622576Ég sé ekkert því til fyrirstöðu. þessi vél heitir 2L-T og er næstum nákvæmlega eins og 2L-T vélin sem kemur orginal í þessum bílum sem koma dísel.
Ég er ekki viss um að þú getir boltað gírkassann beint á milli, það er einhver munur á þeim. svo bara raðaru því dóti utaná hana sem þú villt hafa
ég ráðlegg þér að taka alternatorinn með díselvélinni, á honum er vacuum dæla sem ekki er á venjulegum alternator í bensínbílnum. hann ætti að tengjast með sama plöggi inná hleðslu-regulatorinn í brettinu.
þetta fer allt að sjálfssögðu eftir því hvaða Hilux þú ert með (hvaða árgerð).
kveðja,
Lallip.s. þú áttar þig á því að þessi vél er eitthvað þyngri en bensínrellan… sem hefur ekki góð áhrif á annars kanski sligaða klafa…..
-
AuthorReplies