Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
28.07.2008 at 14:08 #626382
það eru fullt af klúbbum í gangi, hópar jeppamanna sem hafa tekið sig saman og leigja aðstöðu einhversstaðar fyrir sig og verkfærin sín.
ég veit um amk. 2 svona klúbba sem eru í gangi í dag. sumir klúbbar eru þannig að menn eru með sín eigin stæði í húsnæðinu og er leiga þá frekar há, kanski 30-40 þús per stæði en svo eru aðrir sem eru 10-15 saman með 2ja stæða hús og skiptast bara á að nota stæðin.
hvað hafðir þú í huga? þarftu þitt eigið stæði eða dugar þér að komast inn endrum og sinnum og sinna minniháttar viðhaldi og bilunum?
25.07.2008 at 10:59 #626418skv. saving iceland… sem eru 99% útlendingar….. þá mætti aldrei ná í fjallagrösin því það yrði flokkað sem umhverfisspjöll að ganga um landið.
ég hef ekkert á móti umhverfisvernd og er meðfylgjandi því að fara varlega í virkjanamálum og nota orkuna frekar í hátækniiðnað… en skæru-umhverfisvernd þjónar engum tilgangi og menn verða að vera með heilann aðeins í sambandi til þess að fólk nenni almennilega að hlusta á málstaðinn..
það finnst mér mistakast hjá saving iceland.
23.07.2008 at 10:30 #202702Jæja félagar!
Nú hefur olía á heimsmarkaði lækkað um 20 dollara og þar fyrir utan hefur dollarinn styrkst til mikilla muna undanfarna daga og hefur ekki verið sterkari gagnvart evru og Yeni í mánuð.
Ekkert bólar samt á lækkun á bensín og olíuverði hjá blessuðum olíufélögunum okkar sem miða bensínverð við heimsmarkað þegar allt er í botni, en birgðarstöðu þegar allt lækkar.
þess má líka geta fyrir áhugasama að í dag kaupir Atlantsolía inn bensín með Skeljungi og er því bara komin í hringamyndunina eins og hinir. Það hefur líka sýnt sig síðustu vikur að Atlantsolía hefur drullað uppá bak í því að veita eitthvað aðhald á markaðnum hérna. það er verstur andskotinn að maður á engan möguleika á að versla eldsneyti lengur fyrir utan mafíuhringinn .
Alveg er það ótrúlegt að þessi hringamyndun og samráð fái að vera í friði og maður spyr sig bara hvað olíufélögin borgi samkeppnisstofnun mikið í mútur til að fá að vera í friði!!
djöfull er maður orðinn ógeðslega pirraður á þessari fákeppni á þessu landi hérna. þetta er algerlega óþolandi
einn salt-pirraður!
10.07.2008 at 14:43 #625674Sæll
mér skildist á Benna að hann gæti pantað kílreimardælur, er það bull?
04.07.2008 at 22:34 #625484ég er búinn að prófa ýmsar aðferðir og gamla góða strokleðrið á borvélinni er lang fljótlegasta aðferðin.
það er allavega það sem ég mæli með.
02.07.2008 at 15:41 #625296Bátaland er farið á hausinn (allavega lokað) og lokin hjá R. Sigmunds eru ekki læst.
það er meira vesenið að finna þetta dót mar. ég héllt að allir þessir jeppamenn væru með svona lok, en það virðist vera verulegur skortur á þessum lokum sem hægt er að læsa!
02.07.2008 at 14:03 #625282ég er búinn að hringja útum allt og enginn á læst svona lok. ég er búinn að tala við alllllllla sem mér dettur í hug, breyti, Arctic trucks, meiraðsegja Icecool og enginn virðist eiga neitt af þessu.
mér þætti voða gaman ef þú gætir ryfjað upp hvaða verslun þetta var og hvert hún gæti hafa flutt
02.07.2008 at 13:38 #625278pardon my stupidity, en hvað er Ingólfur útá granda?
ertu með nánara heimilsfang eða kennileiti sem gæti aðstoðað mig við að finna staðinn?
02.07.2008 at 10:33 #202620hvar hafa menn verið að kaupa bensínlok til að smíða á bíla t.d. fyrir auka tanka og því um líkt?
ég þarf að eignast svona lok -í dag- svo hægt sé að klára breytingar á bílnum en hef ekki hugmynd um hvar svona lagað fæst?
einhver sem getur bent mér á stað sem selur svona hluti?
02.07.2008 at 09:54 #625264sæll
henti inn myndum á myndasafnið af bremsubullinu í mér, þar ættirðu að fá góða hugmynd um þetta.
bremsurnar eru afturbremsur undan Toyotu Corolla Station, 2005. ég held þær séu nógu sterkar, en það kemur í ljós. Diskarnir eru afturdiskar undan Mússó.
[url=http://www.f4x4.is/new/photoalbum/default.aspx?file=breytingar/6185:3alipqqd][b:3alipqqd]Myndir af Bremsubulli[/b:3alipqqd][/url:3alipqqd]
01.07.2008 at 23:42 #625260Sæll
það eru örugglega nokkrir sem hafa gert þetta.
ef þú vilt hafa handbremsuna með á diskunum þá geturðu notað afturbremsur undan t.d. Sprinter (minnir mig), eða sett handbremsuna á drifskaftið og þá geturðu notað nánast hvaða bremsur sem er.
ég ákvað að prófa að nota afturbremsur úr toyotu 2005 á 60 krúser hásinguna mína, það kemur svo í ljós fljótlega hvort þær eru nógu sterkar
þetta kostaði mig um 10 þús fyrir dælurnar með glænýjum klossum að mig minnir, og svo smíðaði ég brakketin sjálfur úr 10 m.m. járnplötum. Fékk diska undan Mússó sem smellpössuðu á, en ég er náttúrulega með 6 gata.
ég hefði þurft að skipta um allt til að fá bremsurnar í lag, þetta var allt meira og minna beyglað og ryðgað í spað…. svo bremsa þessi skálahelvíti aldrei neitt nema í korter eftir viðgerð. Hvað mig varðar þá er ég mikið hrifnari af diskabremsum, miklu auðveldara viðhald og alles.
Ég er nokkuð viss um að ljónin tækla þetta auðveldlega fyrir þig og verða bæði sanngjarnir á verð og skila vandaðri vinnu.
01.07.2008 at 13:46 #625232fínt blað, ég held að þetta skili sér mikið betur til virkra félagsmanna. Geirfuglum sem ekki nota netið fækkar held ég ár frá ári og ég er mikið meira til í að lesa þetta á netinu en að borga sendingarkostnað undir blaðsnepilinn.
29.06.2008 at 23:05 #625158sæll
köggullinn úr afturdrifinu passar á milli… fátt annað.2.4 túrbódíselvélin úr 70 krúsanum er lágþrýstari og passar ekki beint á milli, það er annar "rass" á henni að mig minnir. mér fannst krúserinn minn alltaf heldur latur þar til ég setti 60 krúser vél í húddið.
ég leyfi mér að efast um að swappið muni borga sig afl-lega séð, enda er 2L um 70 hp og 2L-T um 85.ef Túrbínan er ekki nýlega uppgerð og nýlegt afgashús á henni þá borgar þetta sig alls ekki.
kveðja,
Lalli
29.06.2008 at 19:11 #625156þú getur náð í nýjasta nRoute hér:
http://www8.garmin.com/support/mappingsw.jsp
einnig uppfærslur á mapsource og eitthvað rusl fyrir macintosh líka
26.06.2008 at 23:20 #625000ef þetta er jeppi þá er lang auðveldast, ódýrast og best fyrir þig að rífa undan honum bæði drifsköftin ef hann er sjálfsskiptur og draga hann hreinlega, að því gefnu að einhver nenni að stýra með þér
N1 bensínstöðin á Gagnvegi 2 í Grafarvoginum á stóra og öfluga bílakerru sem tekur 36" breittan 90 krúser allavega (búinn að prófa).
kveðja,
Lalli
26.06.2008 at 12:09 #624762hefur virkilega enginn sem skrifar hérna reglulega prófað þessi stykki?
engar sögur frá fyrstu hendi???? jahérna…
26.06.2008 at 10:01 #613802Sæll Bazzi..
mér þætti gaman að kíkja aðeins undir bílinn hjá þér. Bjóstu til bremsudæmið sjálfur eða eru þetta kitt sem þú keyptir?
hvar næ ég í skottið á þér?
26.06.2008 at 00:12 #613796ég ætla einmitt að fabrikera handbremsuna á drifskaftið uppvið millikassa. hef séð ýmsar útfærslur á því og er með ágætis hugmyndir að lausnum. Ef þú gerir eitthvað svona máttu endilega pósta myndum hérna inn, alltaf gott að hafa fleiri hugmyndir
25.06.2008 at 20:11 #624986færðin inní þórsmörk er mjög misjöfn eftir veðurfari og árstíðum.
ég hef t.d. séð Saab bifreið inní Langadal (yfir krossá) á góðum degi.
það fer bara algerlega eftir því hvort rignir eða er mjög heitt t.d.
best er að fara innúr snemma að morgni því þá er minnst sólbráð á jökli ef rigningar hamla ekki för.
lykillinn er að fara varlega og ef þú ert óvanur, horfðu þá á einhverja aðra fara yfir vöðin áður en þú skellir þér yfir.
óbreyttur cherokee á alveg að fara leikandi innúr ef þú bara passar þig aðeins og ert ekki með fíflagang.
ef þú ætlar ekki í Langadal eða Húsadal þá þarftu ekki að fara yfir krossá sem er gott. enda fínt að vera inní Básum (Útivist á það svæði)
25.06.2008 at 15:31 #613792fyrir þá sem hafa áhuga á að gera eitthvað svipað þá ákvað ég að smíða brakketið bara sjálfur frekar en að kaupa eitthvað kitt að utan. eða blanda einhverju non-toyota rusli á bílinn..
Ég notaði s.s. afturbremsur undan Corollu 2005 og bremsudiska af musso.
brakketin eru úr 10 mm. járni.. á eftir að rúna þetta betur til og sandblása/zinc húða.
nú er bara að vona að bremsudælurnar séu nógu sterkar… ef ekki, þá fer maður útí að breyta þessu fyrir frambremsudælur.
þeir sem hafa áhuga á að skoða ógeðis-brakkettið mitt geta séð það hér: [url=http://www.flickr.com/photos/lallirafn/2609204184/:23v6lfra][b:23v6lfra]BRAKKET[/b:23v6lfra][/url:23v6lfra]
-
AuthorReplies