Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
17.08.2008 at 23:24 #627656
sæll
þú þarft alltaf samsláttarpúða… nema þú sért með burðar-púða með innbyggðum samsláttarpúða
sem mér þykir tæpt.
líti púðinn svona út:
http://www.lighttruckbiz.com/images/art … p20_19.gif
þá eru minniháttar líkur á því að inní honum sé samsláttarpúði.líti hann hinsvegar svona út:
http://www.ultimateautoaccessories.com/ … D/AIR/9001
þá er ekki samsláttarpúði í þeim.
15.08.2008 at 23:35 #627526þetta er þvert á það sem ég ætlaði að segja..
ég bið menn og konur að þverskallast við og þverneita að lesa um þverstýfur í spurninguni að ofan…..
ég meinti að sjálfssögðu stýfuturna (án nokkurs þver´s)… takk fyrir ábendinguna.
þverhausinn
15.08.2008 at 23:28 #627492Magnað…
alltaf lærir maður eitthvað nýtt. ég hef reyndar lent í þessu líka þegar ég fer að spá til baka… herða útí handbremsuna og hún er fín en alltaf er fótbremsudraslið máttlaust og leiðinlegt. og ég sem héllt ég hefði svona ægilega rétt fyrir mér
15.08.2008 at 23:10 #627488útíherslubúnaðurinn sem er á skálabremsum að aftan á gömlum jeppum passar að "herða útí" þegar borðarnir slitna, s.s. passa að dælan þurfi ekki að ganga of langt til baka þegar borðar eyðast, stoppa samslagið á kjálkunum. Annars myndi pedallinn ganga of langt niður að gólfi.
örin á þessari mynd hérna bendir á útíherslu-sýstemið:
[url=http://www.4x4wire.com/toyota/maintenance/bleedingbrakes/rear.jpg:1ngrz5jl][b:1ngrz5jl]útíherslubúnaður[/b:1ngrz5jl][/url:1ngrz5jl]þetta er yfirleitt einfaldur tannhjólabúnaður með "eyra" sem sér um að snúa tannhjólunum þegar borðarnir slitna nógu mikið. oft gerist þetta bara ef rifið er í handbremsuna, s.s. hún er notuð til að "herða útí".
15.08.2008 at 22:40 #202788bara smá spurning… hefði ekki verið minni vinna að gera bara einn sterkan ríkis-þverstýfuturn fyrir allar 4 stýfurnar?? þetta eru hálfgerðir síams-tvíburaturnar þessir: þverstífuturnar…
14.08.2008 at 13:03 #627390ég vissi ekki að talstöðvar gætu verið fjórhjóladrifnar… getur ekki einhver hent inn mynd af þessu furðuverki?
14.08.2008 at 10:23 #627250Ég held ég brjóti allar þessar reglur
ég er á stuttum og þungum bíl með mjög þunga vél (dísel að vísu) og alltof lítil dekk miðað við þyngd
kosturinn við minn bíl er samt sá að stóra díselvélin mín eyðir næstum engu, því hún hefur ekkert fyrir því að toga bílinn minn áfram og þarf ég því iðullega c.a. 50% af því eldsneytismagni sem bensín-vinir mínir taka með sér í ferðir.
ég fer hægar yfir, en kemst líka jafn langt.
fyrir mér er "jeppi" bifreið á sálfstæðri grind, með hátt og lágt drif.. og á 35" dekkjum. annað eru götubílar.
08.08.2008 at 23:05 #627066Ég var nú líka bara að fíflast aðeins.
ég t.d. vissi ekki þetta með hitann. En ég veit að skálabremsur sem aðalbremsur, þótt ekki sé nema að aftan, hefur alltaf verið til leiðinda hjá mér.
leiðinlegt að umgangast þennan búnað og ég hef aldrei fengið þetta dót til að herða sig útí rétt og það er hundleiðinlegt að skipta um borðana. mér hefur heldur aldrei tekist að fá þetta til að bremsa nógu vel að eigin mati, enda kanski hálfgerður þumalputti.
hvað varðar skála-HAND-bremsur þá er það örugglega meira en satt að það er góður búnaður, en verandi sá þrjóskuhundur sem ég er, þá verð ég að prófa diskinn fyrst
eins og Ulfr.
lalli hinn leiðinlegi.
08.08.2008 at 21:57 #627054Jæja já… eru skálabremsur æði? hvers vegna í ósköpunum er þá verið að útrýma þeim úr öllum bílum?
heh.. nei ég bara spyr
ég er sammála Úlfr… skálabremsur eiga heima á patrol því hann er náttúrulega framleiddur ónýtur… en þetta á ekkert erindi í alvöru jeppa, hvorki sem handbremsa né annað!!!
úlfr… ef þú finnur dælur, kauptu þá 2 og ég skal kaupa hina af þér með sanngjarnri álagningu.
07.08.2008 at 13:27 #626912ástæðan fyrir því að patrol og landcruiser voru 24 volt og dísel er einmitt sú að hafa öll tæki hersins sem líkust….(þótt þetta hafi kanski ekki verið hertæki, hvað veit ég) flugvélarnar eru 24volt og nota Jet A-1 sem er ekkert annað en steinolía…..
ég veit að þetta var allavega hönnunar-pælingin.
svo díselbílar og þá sérstaklega eldri bílar þola steinolíuna eins og ekkert sé. betra að henda með smá smur, c.a. hálfan líter til líter í 100 lítra til að hjálpa til við smurningu á dælu og dísum… þarft ekkert að pæla í öðru.
annað gæti gilt um þessa kommonrail og tölvubíla, ég veit voða lítið um það drasl
07.08.2008 at 09:24 #626950Sæll
ég held að meðalverðið sé ágætis viðmið… eða í kringum 50 þús. mér finnst blóðugt að borga meira per hjól fyrir læsingu.
07.08.2008 at 09:14 #626938Þetta er svo misjafnt hvernig best er að sjá þetta út að það er engin leið að segja þér eina pottþétta aðferð.
ég hef miðað við það að ef miðjuhólkurinn er laus (s.s. ekki lengur fastur í gúmmíinu) þá sé fóðringin ónýt. En þá er hún líka orðin HANDÓNÝT…
ekki bara léleg.
þú verður bara að taka á þessu með kúbeini eða einhverju og ef slagið er meira en 1-2 cm þá er þetta líklega ónýtt.
eða losa þetta niður og gá hvort miðjuhólkurinn er laus úr milli-gúmmíinu.
þetta fer að sjálfssögðu eftir stærð fóðringarinnar. stundum er hálfur cm af slagi of mikið, fer bara eftir því hvaða fóðringar þú ert að skoða.
kveðja,
Lárus
06.08.2008 at 13:27 #626840Sæll.
ef þú treystir þér ekkert í þetta sjálfur þá held ég að þér sé best borgið hjá Fjallabílum (stál og stansar) eða hjá Renniverkstæði Ægis.. ég sagðist geta aðstoðað þig
en ég er ekki til í að taka þetta að mér að fullu.
kveðja,
Lalli
06.08.2008 at 10:27 #626858Jæja! heldur glæðist hópurinn
Mér finnst kominn tími á að minna Atlantsolíu á loforðið sitt þegar þeir komu á markað. Þeir -lofuðu- að stunda samkeppnisrekstur og vera ALLTAF með lægsta mögulega bensínverð. Síðustu mánuði hafa þeir drullað uppá bak hvað varðar þessi loforð.
Svo má skiptast á að láta félögin vita að við fylgjumst með.
Ég skal reyna að redda gosi, pylsum og grilli ef menn vilja koma og eiga glaðan dag á Óseyrarbrautinni í Hafnarfirði einhvern næstu daga.
ÁKVEÐUM TÍMA, ÚTBÚUM SPJÖLD, LÁTUM Í OKKUR HEYRA!!
ÞAÐ ER KOMINN TÍMI Á BENSÍNLÆKKUN! 2 KRÓNUR HVAÐ!!!!! VIÐ VILJUM SJÁ 10 KRÓNA LÆKKUN —LÁGMARK—
05.08.2008 at 23:28 #626876Í ET-Verslun eru seldar Bens fóðringar og til-renndir stálhólkar sem henta ágætlega til fourlink smíða. þessar fóðringar eru 7 cm breiðar og stórar og góðar er mér sagt.
ET- verslun er í húsi Einars og Tryggva, klettagörðum 11.
kveðja,
Lárus
05.08.2008 at 23:09 #626850…og ég sem héllt að við værum upp til hópa stollt þjóð og baráttuglöð, víkingar sem standa saman gegn óréttlæti… en nei, mér sýnist við bara vera kotbændur og aumingjar og látum vaða yfir okkkur á skítugum skónum, drulla yfir okkur og svo borgum við brosandi og segjum "takk fyrir" meðan OLÍUforstjórarnir HLÆJA að okkur almúganum!
ég bjóst við betri undirtektum en fengist hafa hér. Kanski eru allir búnir að gefast upp, status quo….. "ég get ekkert gert" hugsa kanski allir.. eða er þetta leti?
2ja króna lækkun í dag er HLÆGILEG! þetta hefði átt að vera minnst, já MINNST FIMM KRÓNUR! og með réttu hefðu þær átt að vera 10!!
ÁSTANDIÐ BREYTIST EKKI NEMA VIÐ STÖNDUM SAMAN OG SEGJUM ÞAÐ SEM ALLIR HUGSA. ÞAÐ ÞARF AÐ MINNA OLÍUFÉLÖGIN AFTUR Á AÐ GENGDARLAUS GRÓÐRAFÍKN VERÐUR EKKI LIÐIN! það hinsvegar gerist ekki nema við stöndum saman og gerum eitthvað í þessu.
kanski er vonlaust að reyna að fá sundurlausan hóp jeppamanna til að standa saman… ekki einusinni hægt að halda úti þessu klúbbastarfi án þess að allt sé uppí loft.
ég ætti kanski bara að snúa mér að trukkabílstjórum, þar eru allavega menn með bein í nefinu virðist vera
Ég þakka allavega Davíð og Agnari ben fyrir innlegg. kanski eru þeir einu jeppamennirnir sem eitthvað er varið í! Davíð, eigum við að spjalla við trukkabílstjórana?
05.08.2008 at 11:16 #202742JÆJA kæru félagar.
nú er kominn tími á nýja öldu mótmæla gegn olíufélögunum.
olían er búin að lækka um 20% á heimsmarkaði og krónan búin að styrkjast eitthvað líka. EN EKKI LÆKKAR OLÍAN NEITT HÉR HEIMA!!!!
VIÐ ÞURFUM AÐ ENDURVEKJA MÓTMÆLAAÐGERÐIR GEGN ÞESSUM ÚRÞVÆTTUM SEM SELJA OKKUR ELDSNEYTI OG ÞAÐ STRAX!!
ég óska hér með eftir hugmyndum um aðgerðir og tímasetningar.
05.08.2008 at 09:44 #626830Sæll
þú meinar væntanlega loftpúðar v.s. fjaðrir (ekki demparar)
(nema þú sért með flexitora-fjöðrun sem er handónýt beint frá framleiðanda)
þú notar alltaf dempara með loftpúðunum, því það eru loftpúðarnir sem koma í stað fjaðra.
loftpúðarnir eru mikið mýkri en fjaðrir verða nokkurn tímann, en það fylgir þeim aðeins meira vesen líka. svo endast þeir ekki endalaust heldur.
en betri fjöðrun er erfitt að fá. Ég veit að Renniverkstæði Ægis hefur gert þetta við nokkra vagna og það eru fleiri að þessu. Ég gæti meiraðsegja aðstoðað þig við að gera þetta ef þú treystir þér til að fara í þetta sjálfur að einhverju leiti, en þetta er mikil vinna.
kveðja,
Lárus
04.08.2008 at 10:32 #626610Ég spyr nú bara: Hvað var það í þessari fundargerð sem ekki á erindi til þeirra félagsmanna sem ekki komu á fundinn? er verið að fela eitthvað laumuspil eða hvað er eiginlega í gangi?
það er skítalykt af þessu og ekki góðs viti að formaður klúbbsins heimti að fundargerðin verði tekin af netinu.
Fundargerðina óbreytta og rétta á netið STRAX!
29.07.2008 at 09:20 #626340mér skillst að sumt af afslættinum komi ekki fram nema þegar maður fær yfirlitið yfir viðskipti mánaðarins og þar sé endanlegur afsláttur gefinn upp
er það ekki rétt? ég hef allavega alltaf fengið afslátt af olíum ofl. sem ég hef keypt hjá Shell.
-
AuthorReplies