Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
08.10.2008 at 23:27 #630838
það veit ég reyndar ekkert um.. það fer eftir því hvað þú ert að gera kallinn minn. Ertu að setja LC70 rör undir hjá þér eða hvað ertu að spá? það hafa margir gert og nota þá stýrismaskínuna úr 70 bílnum með. þú verður aðeins að útskýra betur hvað þú ert að föndra held ég….
08.10.2008 at 21:25 #630834Sæll
millibilsstangarhornin eru að neðanverðu á báðum liðhúsum og snúa aftur, en stýrishornið er að ofanverðu hægramegin og vísar fram…
s.s. ekki saman eða tvöfalt að ofan.
kveðja,
Lalli
29.09.2008 at 20:40 #630012Sæll…
þessi punktur er gefinn upp sem Sólheimar í Grímsnesi í íslandskortinu frá Hnit… þetta er allavega nærri lagi.
N64 03.965 W20 38.578
hversu nákvæmum punkti ertu að leita að?
19.09.2008 at 15:32 #629630hvernig væri þá að koma þessu sem frétt á forsíðu líka???
18.09.2008 at 17:36 #629614….verður hægt að fara siglandi yfir háldendi Íslands, frá Rauðavatni að Lagarfljóti… ljótt að sjá
15.09.2008 at 14:30 #629384Sælir strákar..
ég hef heyrt að þeir noti [url=http://farm4.static.flickr.com/3291/2859872358_940d444cca.jpg?v=0:2mmugi3s][b:2mmugi3s]ÞENNAN HEST[/b:2mmugi3s][/url:2mmugi3s] sem viðmiðun á hestafli þegar menn hestaflamæla Patrol…
getur einhver sagt mér hvort það sé rétt eða ekki?
Toyota kveðjur, Lalli
15.09.2008 at 00:03 #629360Samrás við Eiðistorg er með aukarafkerfi sem eru sniðug.
[url=http://www.speedcalibrator.com/joomla/index.php?option=com_content&task=view&id=21&Itemid=35:117e56np][b:117e56np]aukarafkerfi og fleira[/b:117e56np][/url:117e56np]
allavega í lagi að kíkja á þá.kv, Lalli
12.09.2008 at 09:41 #629266Hefðirðu ekki bara átt að búa til auglýsingu þar sem þú auglýsir eftir svona bíl í stað þess að búa til þráð á spjallinu?
10.09.2008 at 14:13 #629142Sælir strákar..
jeppakerfið frá Controlant er eina systemið sem ég myndi setja í minn bíl.
[url=http://controlant.com/vorur/jeppakerfi.html:2sljs7kx][b:2sljs7kx]Jeppakerfi Controlant[/b:2sljs7kx][/url:2sljs7kx]
þeir segja að það mæli 0-200 psi með 0.1 í nákvæmni. Kerfinu fylgir 5. mælirinn sem jafnar mælingu í dekkjum miðað við hæð (sem er nauðsynlegt á fjöllum).
þetta er enn í "beta" og þessvegna dáldið dýrt, en helvíti flott system.
09.09.2008 at 10:02 #629110Sæll
ég er með svona kitt frá héðni, kemur vel út.
ég smíðaði mér stýfur úr 38×4 vökvarörum sem ég fékk í Landvélum og sauð á þær hólka og fóðringar sem fást í ET-verslun í klettagörðum.
[url=http://farm4.static.flickr.com/3250/2690803556_7157603921_b.jpg:1bh5njo4][b:1bh5njo4]þverstýfur úr vökvaröri[/b:1bh5njo4][/url:1bh5njo4]bara ein hugmynd
08.09.2008 at 22:55 #629090Sæll
hún passar fínt, en 5,71 er ekki til í reverse köggulinn… aðeins 5,29 og niður.
sé þetta úr díselbíl er 4,88 í þessu… annars 4,56 (orginal)
kveðja,
Lalli
05.09.2008 at 15:36 #628962Ég hef nú bara keypt mínar olíuþolnu slöngur í Landvélum, þar er þetta sæmilega ódýrt.
hvort þær þoli bensín er svo önnur saga, en þeir hljóta að geta leiðbeint þér þar. þurfa þær líka að þola einhvern alvöru bensín-þrýsting?
28.08.2008 at 10:51 #628376….mundu bara að alvöru jeppamenn keyra ekki utan vega nema á snjó.
annars velkominn í sportið, og vertu viðbúinn því að jeppinn þinn sogi hverja einustu krónu úr veskinu þínu og meira til, en það er vel þess virði.
kveðja,
Lalli sem getur ekki hætt að breyta bílnum sínum.
23.08.2008 at 23:51 #627964þetta er sama aðgerð og á öðrum toyotum með semi-floating að aftan (lux, lc70, og lc60 semi ofl.)
engin spes verkfæri þarf í þetta.
ef þú rífur öxulinn úr og átt pakkdósir og legu þá er séns á að hleypa þér í legupressu hjá mér eftir 17 á morgun til að græja þetta. símann ættirðu að finna í prófílnum mínum.
lalli
21.08.2008 at 14:52 #627878mér finnst einmitt besta ráðið við affelgunum einmitt að koma hreinlega í veg fyrir þær!!
ég hef nú þvælst helling á fjöll, í alskonar færi með allt niður í 1 pund í dekkjum… en ég er með heitgalvanhúðaðar felgur og límdi dekkin á í þokkabót, þótt það hafi þurft yfir 30 psi til að poppa dekkjunum á felgurnar.
ég hef aldrei affelgað á fjöllum og ætla að halda því bara þannig
21.08.2008 at 11:20 #627868Sæll
í guðsbænum ekki nota kveikjarabensín. menn hafa verið að nota svokallað startgas í þetta, en það er ekki á allra færi að gera þetta. auðvelt að meiða sig alllverulega á þessu.
19.08.2008 at 08:57 #627676Hvernig væri að smyrja bara bílinn sinn sjálfur með þeim efnum sem maður kaupir sjálfur??
þá veistu hvort verið er að nota það sem þú villt nota eða ekki og sparar þónokkuð í vinnukostnað.
ég smyr allt sjálfur hjá mér, enda jeppinn þannig að ekki þarf gryfju til að komast undir og losa tappa
töluverður sparnaður fólginn í því.
18.08.2008 at 16:18 #627214heh…
Margt má kanski segja um Lellu, en hlass er hún ekki. Þú ert allavega velkomin á mín kerrubretti hvenær sem er Lella
18.08.2008 at 14:00 #627662Sæll
ég leitaði lengi og fann engan annan stað með loftpúða á svipuðu verði og Landvélar eru með þetta á.
Fjaðrabúðin Partur eru með allan fjandan í loftpúðasmíði samt og gott úrval…. ef þú getur selt úr þér nýra fyrir kostnaðinum.
p.s. á sínum tíma fékk ég 4 púða í Landvélum á minni pening en 2 -nákvæmlega eins- púðar áttu að kosta í parti. þetta var fyrir gengisfall og heimskreppuna miklu.
18.08.2008 at 10:20 #627208er ég blindur eða var aldrei send út auglýsing eða frétt sem skýrði frá frestun afmælisins??
frekar slappt ef það var bara tilkynnt hérna á spjallinu finnst mér svona í ljósi þess að þetta var auglýst sem frétt hérna á forsíðuni og aldrei leiðrétt….
-
AuthorReplies