Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
06.01.2009 at 20:15 #636528
Sæll
þekki einn sem hefur gert þetta og þetta kemur þræl vel út. En þetta er töluverð vinna. hann setti 350 og 700 skiftingu ofaní húddið og það þurfti alveg að taka til sko.. smíða nýjar vélafestningar og "hagræða" fyrir flækjunum og svona smotterí. en krafturinn… óboj!
mæli með þessu.
22.12.2008 at 23:07 #635208Sæll
þetta hljómar fyrir mér eins og að það sé sjálfvirkt innsog á bílnum sem ekki "fer af"… gæti það passað?
ég man að nákvæmlega þetta gerðist í gamladaga ef maður reif í innsogshaldfangið þegar brummi var orðinn heitur…. steindrap á sér.
p.s. hálendingur… ertu að meina að vacuum í tankinum hefði þessi áhrif ef bensínloks-öndunin er stífluð? fær ekki bensín?
21.12.2008 at 00:44 #635070Sex þúsund kall á ári er ekki rassgat. rétt um 16 krónur á dag. maður þarf nú að vera fjárans nánös held ég til að týma því ekki í jafn mkilvægt félag og Ferðaklúbbur 4×4 er fyrir okkar sport.
ég hugsa að 6 þúsund kall á mánuði færi kanski aðeins fyrir brjóstið á mér, en skitinn 500 kall á mánuði (sem gerir 6 þús á 12 mánuðum) er bara ekkert.
Ég reyndar viðurkenni fyrir mitt leyti að ég er duglegur að nýta afslættina og borgar þetta sig upp nánast í hverjum mánuði.
ég mun allavega ekki væla yfir kostnaðinum þótt ég sé ekki mjög duglegur að nýta mér annað en afslætti sem félagsskírteinið færir. önnur not eru bónus (m.a. afsláttur af gistingu í setrinu ofl.)
nú vona ég bara að tækninefndir og aðrar nefndir beiti sér ötullega gegn lagasetningum sem banna sportið okkar í komandi ESB árás. vonandi náum við að brjóta þá vitleysu á bak aftur
kveðja,
Lalli
07.12.2008 at 01:04 #634304eru menn bara almennt hættir að smyrja sjálfir? nei bara svona velti þessu fyrir mér
annars veit ég ekki um neitt verkstæði sem gerir þetta um helgar. hugsanlega gætirðu fengð inni hjá einhverjum góðhjörtuðum félaga ef þú átt olíuna til sjálfur.
05.12.2008 at 19:45 #634240Sæll
farðu í verkfæralagerinn og verslaðu þér 4 búkka og tjakk.. eyddu svo 10 mínútum í að henda honum uppá búkka þegar þú sérð framá að bíllinn standi óhreyfður í meira en 2 vikur í einu…
þá sleppurðu við að fá þessar leiðinda flatir í dekkin sem valda hoppi og skoppi og getur haft þann þrýsting í þeim sem þér þykir best að keyra á.
einfalt og ódýrt…. gott ef þetta er ekki bara ágætis þjófavörn líka. það eru til vitleysingar þarna úti sem stela patrolum
04.12.2008 at 22:32 #634134strákar strákar! þið gleymið því alveg að EU eða ekki, við erum samt dæmdir til að hætta þessum risadekkjabissness.
Allar þessar fínu dekkjaverksmiðjur eru að fara á hausinn og mjög bráðlega fáum við engin dekk… og þá getum við alveg eins farið í EU þessvegna og keyrt um á 35" ef þau verða þá enn framleidd.
það er alveg á tæru að þeir hætta með dekk sem ekki borgar sig að framleiða… og ég held að þessi verði fyrst til að fara úr framleiðslu.
bjartsýniskveðjur!!
03.12.2008 at 22:38 #634174Sæll
þegar ég setti miðstöðina mína í bílinn var ég varaður við því að taka olíufæðinguna fyrir hana af slönguni við olíuverkið… frekar fara sem næst olíutanki, helst með sér línu í tankinn.
þessar dælur eiga það víst til að soga af verkinu olíu í staðin fyrir að soga hana úr tankinum og þá "myndast" loft inná verkinu sem tekur smá stund fyrir bílinn að losa sig við með tilheyrandi prumpugangi og hiksta.
prófaðu að láta miðstöðina soga olíu úr t.d. 2ja lítra flösku í stað línunar sem nú er tengd við tankinn hjá þér og sjáðu hvort það breytir einhverju. ég þarf varla að benda þér á að blinda hinn endann á meðan svo hann sogi ekki loft þar þegar þú ræsir
03.12.2008 at 17:04 #634070Sæll
1200 kg. firestone loftpúðar með plastbotni fást í Landvélum.
svo er Fjaðrabúðin Partur með drullugott úrval af púðum frá ýmsum aðilum, m.a. firestone.
kv,
Lalli
30.11.2008 at 12:13 #633798Sæll
Bílasmiðurinn á Bíldshöfða selur viftur á vatnskassa og svoleiðis.
21.11.2008 at 08:40 #633164Sæll
færð fínar fourlink fóðringar í ET-verslun í klettagörðum
19.11.2008 at 08:07 #633022Sæll
ég ráðlegg þér að taka 800 púðana, ég er á bíl sem er 2 tonn og er með 1200 púða að aftan og á í vandræðum með að fá bílinn nógu þungan til að fá púðana til að virka.
það er ekkert gott að vera með of stóra púða, þeir verða að hafa ákveðinn þrýsting af lofti í sér í ökuhæð til að vera ekki bara alltof mjúkir og þá slær bíllinn bara saman alltof auðveldlega.
annars er best fyrir þig að tala við þá uppí Parti, http://www.partur.is þeir geta frætt þig um þetta betur.
01.11.2008 at 21:39 #631990segið mér snillingar, hvernig finnur maður út réttan pinnjónshalla?
er til einhver formúla fyrir þetta?
30.10.2008 at 09:15 #631886félagi minn á LC 90 og lenti í því að það fór að smella svona í framdrifinu öðru hvoru í átaki (okkur fannst það koma vinstrameginn fyrst), og svo þegar hann var að keyra bara í sakleysi sínu á sæbrautinni þá kom ofboðslegur smellur og högg… og þá hafði brotnað tönn í framdrifinu og farið milli kambs og pinnjóns með þeim afleiðingum að drifið brotnaði í mask og millikassinn líka.
vertu bara viss um að þetta sé hjöruliður
ef ekki, þá skalltu leggja bílnum þar til þú hefur fundið alveg útúr því hvað er að.
29.10.2008 at 17:41 #631898eru þetta nokkuð legur? stundum talað um skemmti-legur þegar auðvelt er að skipta um og lítið vesen, en einnig eru til leiðin-legur sem að sama skapi geta gert manni gramt í geði….
22.10.2008 at 10:14 #631256Elvar stórvinur minn benti mér á að yfirleitt eru svona fourlink kerfi sett upp þannig að stýfurnar halli eins. það hindrar vinding á hásinguni þegar hún hreyfist upp og niður og þykir betra fyrir loftpúðana.
Ég hafði viljandi mismunandi halla á stýfunum í tvennum tilgangi, annarsvegar til að reyna að fá réttan halla á pinnjóninn sem síðan leiðréttist þegar bílilnn fjaðrar saman, og hinsvegar til að mynda örlitla þvíngun þegar bíllinn misfjarðar, en þetta ætti að gera það að verkum að bíllinn verði minna svagur í akstri en ella.
svo er bara að sjá hverju þetta skilar, það kemur ekki í ljós fyrr en ég fer að keyra hann eitthvað af viti.
21.10.2008 at 23:09 #631252ég hef ekkert prófað af viti ennþá
er rétt að klára að smíða þessa dagana…. engin reynsla komin á þetta.
Ég vona samt það besta, er með 10 cm samslátt og 15 cm í sundur svo þetta dót ætti allavega að fjaðra. Hann lofaði líka góðu þetta litla sem ég hef heyrt hann enn, ekkert svagur eða neitt þannig en það er ekkert að marka þetta víst fyrr en afturskaftið er komið í og svona.
Ég skal segja meira þegar ég hef farið í almennilegar teygjuæfingar á honum.. það verður vonandi fyrir lok nóvember
19.10.2008 at 20:49 #631312ég spái því nú að það verði gos mun nær byggð fyrst, áður en það gýs við Upptyppinga… en það er bara mín tilfinning
19.10.2008 at 20:46 #631298Ég væri líka til í að vita tíðnirnar á Hlöðufellsendurvarpanum, Tx, Rx og sítón (ef hann er notaður)
18.10.2008 at 09:59 #631248Tjah, já, þetta kostaði um 12-14 þús minnir mig, og þá fylgdi þessu 4 plattar á grind, 4 plattar fyrir hásingu, og efni í þverstýfuturn og einhver járn sem ég vissi ekkert hvað ég átti að gera við
held þeir eigi þetta yfirleitt tilbúið úr 4 m.m. efni en ef þú villt þykkara, þá skera þeir líka út 5 og 6 m.m. en það er orðið andskoti þungt.
[url=http://farm4.static.flickr.com/3218/2694362094_8449ddcbe2_b.jpg:3dd5tf7q][b:3dd5tf7q]mynd af fourlink dóti[/b:3dd5tf7q][/url:3dd5tf7q]
16.10.2008 at 23:20 #631244Sæll
fourlink brakketin geturðu keypt laserskorin í Héðni http://www.hedinn.is og þeir skera eins þykkt og þú villt. ég fékk þetta úr 4 mm efni hjá þeim af því að þeir áttu það til og ég nennti ekki að bíða eftir 5 mm skurði.
Keypti líka 38×4 mm efnisrör í Landvélum. Demparafestingar gerði ég svo úr 5 mm efni, en það er bara af því að það var til hjá mér
ég handsmíðaði allt nema tilskornu brakketin sem fara á grind og hásingu og kemur þetta ágætlega út, get sent þér myndir ef þú hefur áhuga.
Ég keypti mér fóðringar í ET verslun í klettagörðum, þar færðu bæði fóðringarnar og hólka til að klára stýfusmíði.
vona að þetta hjálpi eitthvað,
Lalli
-
AuthorReplies