Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
04.02.2009 at 14:56 #639988
Sæll
legðu rafmagn beint frá geymi að stöðinni. það er mjög mikilvægt fyrir gæðin að þetta fari beint í almennilegt rafmagn. passaðu líka að nota ekki of granna víra í þetta.
settu öryggi á + eins nálægt rafgeymi og þú getur.
kveðja,
Lallip.s. oft er gott að láta bara fagmenn setja svona græjur í… minnkar líkur á íkveikju eða ónýtum græjum…
31.01.2009 at 11:34 #639650ég á 4.56:1 í köggli í svona afturhásingu handa þér.
hafðu bara samband ef þú hefur áhuga, lalli@slepja.com
31.01.2009 at 10:54 #639646LC 70 bensín kom orginal með 4.56:1 hlutföllum en dísel var með 4.88:1
margir þessara bíla eru með Limited Slip Differential lás í afturhásinguni
held að 4runner hásingin sé 4 cm breiðari milli hjóla, er þó ekki alveg 100% viss.
talaðu við Ulfr, hann er búinn að vesenast mikið með þetta allt saman.
Menn hafa verið að setja spacer á framhásinguna til að ná sömu sporvídd á þessum bílum þegar 70 hásingin er notuð að framan.
27.01.2009 at 11:31 #639098Blossi/Framtak eru umboðsaðilar Garret held ég, og eru með sérhæft túrbínuverkstæði.
eru fluttir í Vesturhraun 1 í Garðabæ skilst mér.
26.01.2009 at 21:49 #638910Sæll
sértu til í að eyða þessum pening (100.000 eða meira) skalltu tala við höfðingjana í Controlant.
þeir eru með helvíti öflugt system, það flottasta sem ég hef séð hingað til. verst að ég á ekki svona mikinn pening
[url=http://www.controlant.com/vorur_jeppakerfi.html:1cc2in2j][b:1cc2in2j]Controllant jeppakerfið[/b:1cc2in2j][/url:1cc2in2j]
25.01.2009 at 15:47 #638886Sæll.
talaðu við þá í SAMRÁS útá nesi, þeir hljóta að eiga svona handa þér. (smá villa í titli)
ég keypti digital ambient (leiðréttir eftir hæð) mæli hjá þeim sem mæir 0.1 – 100 psi og er með 0.1 psi nákvæmni í full scale.. get mælt allt kerfið mitt með einum mæli. mér þótti það mikið hagræði. hann var að vísu nokkuð dýr.
[url=http://ja.is/us?q=samr%C3%A1s:3beqnkg3][b:3beqnkg3]Samrás Verkfræðistofa[/b:3beqnkg3][/url:3beqnkg3]
23.01.2009 at 20:42 #638724Sæll
ég held að enginn svari þér því að spurningin er mjög opin og það vantar fullt af upplýsingum.
hvernig bíll? hve mikið hækkaður? hvernig hækkaður? ertu búinn að breyta einhverju fleiru s.s. hjólabili og öðru?
yfirleitt er í lagi að síkka bara festingarnar fyrir samsláttarpúðann, hvort sem hann er inní gormi eða ekki. það fer bara eftir því hvar þú kemur honum fyrir og hvernig hann þarf að vera til að bíllinn nagi ekki í brettin þegar hann misfjaðrar.
til að fá svör hérna þarftu held ég að gefa svoldið meiri upplýsingar
lalli
23.01.2009 at 08:56 #638734hér er [url=http://vimeo.com/2638558:fgx7mimw][b:fgx7mimw]Linkurinn á vídeóið[/b:fgx7mimw][/url:fgx7mimw]
19.01.2009 at 08:56 #638448Endilega eyðið þessum þræði, ég bara vissi ekki að maður mætti ekki segja hug sinn hérna.
.
ég veit að ég yrði mjög reiður ef þetta kæmi fyrir mig, kreppa or not. Að vera sagt upp í síma og fá ekki greidd laun í uppsagnarfresti þótt búðin haldi áfram finnst mér alveg afspyrnu lélegt, en það er bara mín skoðun.héðan í frá skal ég halda þessum skoðunum fyrir mig og afsakið.
p.s. ef einhver veit "hina hliðina" væri gaman að fá hana fram einhversstaðar.
19.01.2009 at 00:21 #203591Ég get bara ekki orða bundist yfir framferði nýrra eigenda R. Sigmundssonar sem heyra mátti um og eftir áramót. Sé rétt og sagt frá í þessari frétt þá sé ég mig knúinn til að versla aldrei aftur við þessa verslun og vona heilshugar að sem fæstir leggi leið sína þangað.
.
leyfi mér að vitna í fréttina: „Einn af þeim var Hafsteinn Valsson, sölumaður á vélasviði hjá R. Sigmundssyni, sem fékk upplýst símleiðis í fyrrakvöld að fyrirtækið væri komið með nýja kennitölu og hans væri ekki óskað í vinnu.
Hafsteinn segist í samtali við Fréttablaðið hafa verið í hópi fimmtán starfsmanna R. Sigmundssonar sem fengu slíkt símtal. Í símtalinu var starfsmönnum sagt að fyrirtækið myndi ekki greiða uppsagnarfrest og starfsmennirnir þyrftu að sækja uppsagnarfrest, orlof og slíkt í Ábyrgðasjóð launa“
.
Fyrirtæki sem gera svona lagað eiga ekki rétt á að vera í bissness. Sorrý fyrir starfsmennina sem eftir eru, en svona skepnuskapur eigenda bara á ekki að lýðast.
.
Ég veit að ég mun ekki versla aftur við R. Sigmundsson
.
Hér er linkur fyrir forvitna: Nýjar kennitölur fyrirtækja
15.01.2009 at 15:15 #637192Ég er einmitt búinn að ákveða að fara þessa HARLEM leið sem þú nefnir Hilmar, það verður loftkista inní bíl með 10 kúlulokum (4 fyrir dekk, 4 fyrir púða og svo inn og úrhleypi) ásamt slöngu í einn mjög nákvæman digital mæli.
þessi uppröðun gerir mér kleift að stjórna og mæla loft í öllum púðum og öllum dekkjum, ásamt kút. (þó aldrei allt í einu, skiljanlega). Það verður líka auðvelt að jafna út þrýsting í púðum og dekkjum.
hér er mjög einföld teikning af þessu: [url=http://farm4.static.flickr.com/3369/3198561709_94d0a555da_o.jpg:2bl1cub9][b:2bl1cub9]LOFTKERFI[/b:2bl1cub9][/url:2bl1cub9]
þetta kerfi verður þá ekki á neinn hátt háð rafmagni, og þótt það verði ekki sjálfvirk hæðarstilling þá er það bara allt í lagi. Seinna meir mun ég svo koma fyrir svona díóðusýstemi svipuðu og Atli er með, svo einfalt sé að setja hann í ökuhæð þegar maður er á jafnsléttu.
skelli inn myndum af kerfinu þegar það er reddí
p.s. mælirinn er mjög nákvæmur, mælir 0.1 – 100 psi í 0.1 psi increment.. og hann er nákvæmur uppá 0.1 psí í fullscale.
Auk þess miðar hann við ambient pressure, svo tölur breytast með hæð sem er nauðsynlegt þegar maður er að rúnta upp og niður jökla…
14.01.2009 at 16:04 #637256jæja, það getur svosem verið að það sé ekki mikið átak á þessu þegar þetta er notað í snjóakstri, ég hef aldrei prófað þetta þannig.
ég veit bara að ég tók engan sjens þegar ég bjó mér til minn eigin göndul, og gerði hann úr 50x50x5 og sterkum tengjum til að vera viss
14.01.2009 at 14:47 #637180Sæll
flottasta lausnin sem ég hef fundið og leysir öll vandamál varðandi mælingarþáttinn er þessi:
[url=http://controlant.com/vorur/jeppakerfi.html:3tchyjc0][b:3tchyjc0]CONTROLANT Jeppakerfi[/b:3tchyjc0][/url:3tchyjc0]
þetta sýstem mælir alla þætti og getur birt þá grafískt á hvaða tölvu sem er.
í og úrhleypikerfið þarf maður svo að hanna sérstaklega en það er pís of keik svosem.
ég myndi hiklaust kaupa þetta kerfi ef það væri helmingi ódýrara en það er í raun
en þar til verðið lækkar þá verð ég að notast við ofur-einfalda handstýrða kerfið mitt með einum mæli fyrir allar mælingar.
14.01.2009 at 14:35 #637252Sæll
ég held að 50x30x3 ál sé ekki nógu sterkt… ég myndi aldrei nota minna en 50x50x4 járn í þetta, þótt þyngdin sé þá orðin leiðinleg. það eru gríðarleg átök á þessum hlutum….
ég hef notað svona til að ýta bíl uppá kerru (nema bíllinn var fastur að framan, brotnar pinnjónstennur) og bílilnn hjá mér prjónaði bara… og hann er ekkert léttur að framan
notið líka sterkustu tegund af kúlutengjum
14.01.2009 at 14:02 #637176ég hef alveg spáð í að nota svona vörubíladót, en hallast frekar að því að gera þetta eins og Atli.
Ástæðan er sú að ég vill geta lokað fyrir "sjálfvirkt" inn og útstreymi í púðann í miklum torfærum. Ég er búinn að hanna og er byrjaður að smíða svona kerfi í anda Atla, svo verða bara ljós sem segja hvort bílilnn er of hár eða lágur per púða og maður stjórnar hæðinni innúr bíl.
þar fyrir utan get ég mælt þrýstinginn í hverjum púða fyrir sig eða öllum í einu.
þetta er tengt sama kerfi og ég ætla að nota til að pumpa í og úr dekkjunum
set inn myndir þegar ég er búinn að smíða…
12.01.2009 at 14:12 #637154Sæll
endilega settu inn myndir með skýringum, ég er ekkert voðalega stressaður á tíma, púðarnir eru komnir í og maður stillir þetta bara eftir auganu í augnablikinu
en það væri frábært að sjá myndir og skýringar
12.01.2009 at 10:53 #637148Sæll
þetta er einmitt ein hugmynd sem hefur verið að brjótast um í mér, vera bara með handvirka stýringu á þessu inní bíl og mixa ljós til að láta vita þegar þetta er í réttri hæð, en einmitt þetta vesen, að fá þetta til að virka rétt og vera til friðs í drullumallinu hefur þvælst aðeins fyrir mér…
er einhver séns að fá að sjá þetta hjá þér? hvernig þetta virkar og svona? geturðu kanski sent mér myndir eða teikningar?
12.01.2009 at 09:06 #637144Sæll og takk fyrir þetta, ég skoða þessa aðila
En það sem ég er í raun að leita eftir er sjálfvirk hæðarstilling á púðunum sem svo er hægt að slökkva á þegar við á, s.s hann réttir sig sjálfur af eftir því hversu hlaðinn hann er.
Ertu með þannig?
11.01.2009 at 22:46 #203538Góðan deig
hvernig hafa menn verið að hæðarstýra loftpúðafjöðrun? er hægt að kaupa hæðarstýringakerfi sem auðvelt er að „kveikja og slökkva“ á? s.s. ef maður vill ekki að þetta sé sífellt að puðra í og úr púðum t.d. í miklum ójöfnum?
einhverjir með hugmyndir, teikningar, myndir eða geta squeelað hvar þeir keyptu sín kerfi?
var að setja púða í hjá mér og nennekki að finna upp hjólið ef ég þarf þess ekki
09.01.2009 at 09:42 #636870hef heyrt um eitthvað sem er kallað Sikaflex eða Sitkaflex eða eitthvað álíka
og svo er eitthvað standard límkítti frá Wurth sem þykir líka gott.
-
AuthorReplies