You are here: Home / Kristján Gunnarsson
FERÐAKLÚBBURINN 4X4 |
||||
Menu |
Sæl,
Aðeins varðandi þessa umræðum um lokanir á vefsíðunni. Þetta mál er ekki nýtt af nálinni, umræða um þetta var t.d. á aðalfundi 2008 ef mig minnir rétt og voru flestir sammála um að takmarka þyrfti aðgang utan félagsmanna að spjallinu. Á fjölmönnum félagsfundi var síðan samþykkt tillaga stjórnar 4×4 að loka fyrir aðgang annarra en félagsmanna að spjallinu, þ.e. fyrir skrifaðgang. Stjórnin og allur meirihluti greiddra félagsmanna telur engin sérstök rök fyrir því að leyfa óheftan skrifaðgang að spjallinu þar sem hver sem er getur tjáð sig um allt og ekki neitt. Sama aðferð er notuð hjá flestum félaga- og áhugamannasamtök á landinu. Öll önnur notkun vefsins er frjáls. Stjórnin mun senda frá sér fljótlega smá pistil um þetta og önnur mál.
Með von um uppbyggilegar umræður á vefnum á meðal greiddra félagsmanna á landinu öllu.
kv. Kristján, stjórn 4×4
Fer í að kanna málið.
Vantar að vita hvernig er best að fá meira afl út úr 24 ventla vélinni og hverjir þekkja þetta best. Vantar upplýsingar um samband þjöppunar (boost), olímagns og stærð millikælis. Er með óbreyttan mótor en 3″ púst. Er ekki endilega að leita eftir ódýrasta setupinu, frekar það sem virkar
og bitnar ekki um of á endingu vélarinnar.