Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
02.01.2009 at 04:26 #636010
Getur líka sett arm framaná hásinguna bílstjóramegin, og látið tjakkinn koma þar í. Nú eða látið tjakkinn koma frá grind og í togstöng
24.12.2008 at 17:00 #635398Takk fyrir að minna mig á þetta með sjálfskiptikælinn, það væri ágætt að vita hvernig þeim málum er háttað í svona kössum.
Þakka líka fyrir ábendinguna með Partaland, þá hefur maður svona einhverja hugmynd hvert maður getur leitað!kv Kiddi
24.12.2008 at 16:23 #203407Sælir
Nú er ég að reyna að finna einhvern passlegan vatnskassa til að fara með Chevy 350 ofaní húddið á Wrangler
Pajero 2.8 dísel er einn þeirra sem gætu hentað og því væri það afskaplega ljúft ef einhver gæti ráðist á einn slíkan með málband eða tommustokk að vopni og sagt mér öll helstu mál, sem sagt hæð alveg frá botni og upp fyrir tappa, þykkt á elementinu og mestu breiddina á botnunum (breidd á festingum á hliðum kassans skiptir ekki öllu máli, ef það eru einhverjar festingar þar þ.e.a.s)Með fyrirfram þökk og ósk um gleðileg jól…
Kiddi
18.12.2008 at 01:45 #634830Heyrðu hvort var þetta 305 eða 350 sem var í honum… svona í minningunni þá var þetta dót ekkert að vinna sem skyldi!!
Var ekki annars búið að lappa aðeins uppá hásingarnar, ég veit að allavega framhásingin var skælbrosandi þegar hann yfirgaf þetta heimili en mér skilst að síðan hafi eitthvað verið lappað uppá þetta dót, settir nýir öxlar og fleira..
Jæja það er í það minnsta gott að vita að hann er ekki kominn í pressuna… ennþá hehe
17.12.2008 at 21:50 #634824Óli áttu enn þá Isuzuinn?? Eitthvað að frétta af honum…
04.12.2008 at 23:32 #634136Vertu ekki með þessa vitleysu drengur!! Á meðan íslendingar kaupa Mudderinn, AT405 og 44" Cepek þá verða þau framleidd, þannig er það og það mun ekkert breytast þar sem það er enginn annar sem kaupir þetta!!
03.12.2008 at 00:23 #634028Hvaða vitleysisgangur er þetta eiginlega að vera að setja auglýsinguna svona á kolvitlausan stað!!!
03.12.2008 at 00:21 #203301Vantar vatnskassa í Hilux dísel… enga plastkassa takk
Kiddi S: 869-7544
02.12.2008 at 13:49 #634000Það er engin kúpling, bara mismunadrif
28.11.2008 at 00:20 #633730Nei þessi New Process kassar eru eins og hráviði út um allt land, komu oft orginal í pikkum
Mjööög lágur fyrsti gír (nálægt 7 minnir mig) og alveg þrælsterkur… einhvern veginn minnir mig að þú hafir einhvern tímann nefnt hér á spjallinu að þú værir með 3 gíra kassa með lógír?? Ef svo er þá er það sennilega umræddur kassi!!
27.11.2008 at 22:49 #633722Hvað fæst með 5 gíra Benz kassa sem 4 gíra New Process hefur ekki??
21.11.2008 at 11:47 #633194Prófaðu bara að tylla gormunum undir, ef þeir pressast svipað saman og í bílnum sem þeir voru í þá ætti þetta að virka fínt… mig minnir að Cherokee framgormar séu ca 30 cm undir bíl og svipað burðarmiklir og Rover afturgormar.
kv Kiddi
16.10.2008 at 01:17 #631204Freyr er þetta mælt á planið þar sem felgan sest?
kv Kiddi
10.10.2008 at 13:19 #630648Varðandi vatnskassa þá mæli ég með að tala bara við kallinn í Stjörnublikki, hann smíðar bara kassa sem passar og ekkert mál… svona í svörtustu kreppunni
06.10.2008 at 19:33 #630636Hvort ertu með jeppaskiptingu eða fólksbílaskiptingu?
19.09.2008 at 21:45 #629678Nei, AMC mótorarnir eru ballanseraðir utanfrá með flexplötunni/swinghjólinu…
15.09.2008 at 00:23 #629346Það er ekkert mál að nota orginal bensíndæluna, þú þarft samt að græja einhvern þrýstijafnara á lögnina þar sem innspýtingin vinnur á einhverjum rúmum 40 punda þrýsting sem er töluvert meira en góðu hófi gegnir á blöndung, ef ég man rétt þá eru þeir ekki mikið sáttir með meira en 10 pund en þú verður bara að afla þér nánari upplýsinga varðandi það (og hvort það gangi upp yfir höfuð). Annars eru þetta bara plús og mínus inn á dæluna, tölvuna í ruslið og allir sáttir. Snúningsmælirinn virkar þannig (allavega á 4.0) að hann tengist við jörðina á kveikjukeflinu, tölvan kemur ekkert mikið þar nærri. Ef þú notar t.d. HEI kveikju á lettann þá tengirðu snúningsmælinn bara beint við TACH plöggið á kveikjunni, en ef þú ert með sex sílendra bíl þá mun mælirinn hins vegar verða eitthvað leiðinlegur við þig þar sem hann mun sýna 33% meira en vélin er í raun að snúast… ég hef séð einhverjar græjur á netinu til að redda því en þetta kostar allt saman peninga og slatta af þeim.
Skynjarinn á kúplingshúsinu hefur bara það hlutverk að segja tölvunni að mótorinn sé í gangi og hversu hratt hann snýst, hann má bara fara sömu leið og tölvan en ég læt það algjörlega í þínar hendur hver örlög þeirra verða…
kv Kiddi
13.09.2008 at 14:46 #629248318 er bæði slagstyttri og með grennri sílendra en 360!
29.08.2008 at 16:31 #628468rak kellingin þig út eða???
24.08.2008 at 01:36 #202821Hvað er gamli Bronco á 38″ með 302 að eyða miklu?????
-
AuthorReplies