Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
14.03.2009 at 15:29 #630494
Þú ert að borga fyrir slysatryggingu á sjálfum þér og öðrum.
13.03.2009 at 19:50 #643428Það er fínt mál ef lokan gefur eftir, þá er ekkert annað að brotna á meðan…
13.03.2009 at 01:07 #643340Baðvigtin sem ég keypti fyrir 700 kr í Ikea segir að 38" Mudder á 14" stálfelgu sé 52 kg
12.03.2009 at 21:41 #643332Dana 44 framhásing undan Scout er 134 kg með öllu, s.s. diskabremsum, ólæstu drifi og millibilsstöng. Hún er 152 cm milli felgubotna.
kv Kiddi
27.02.2009 at 22:06 #642068Þetta stendur á blaðsíðu 39
07.203 Breytt bifreið.
(1) Hæð aðalljóskera á breyttri torfærubifreið má mest vera 1350 mm.
(2) Hæð bakkljóskera á breyttri torfærubifreið má mest vera 1650 mm.
(3) Breytt torfærubifreið má vera búin tveimur ljóskösturum sem mega vera tengdir stöðuljóskerum um
eigin rofa og samtengdir gaumljósi í mælaborði.
26.02.2009 at 21:43 #639134Það gildir bara það sama, dempararnir mega ekkert slá saman frekar en dragliðurinn í skaptinu.
24.02.2009 at 21:25 #641836Er þetta ekki bara eins og munurinn á að drekka kók úr venjulegu röri eða reyna að súpa það í gegnum 10 metra garðslöngu… það gefur augaleið að það er auðveldara að sjúga í gegnum það sem er styttra, sem í þessu tilfelli er brúsinn á framstuðaranum og stutt slanga inní húdd. Ef þú setur bara sverari lagnir frá tank og upp í olíuverk þá minnkar þrýstingurinn, þar sem dælan annar alltaf jafn miklu magni, sem gæti orsakað minna afl. Ef þú setur aðra dælu á lögnina þá hinsvegar eykurðu þrýstinginn á lögninni og þar af leiðandi olíumagnið sem fer að vélinni.
Hvað eru annars sverar lagnir í 60 cruiser?
21.02.2009 at 22:18 #641700Það er yfirleitt merkt á diskum hvað þeir mega vera þunnir. Það er engin ástæða til þess að skipta diskunum út fyrr en þeir eru komnir niður fyrir þau mörk eða orðnir skakkir, nú nema menn hafi ekkert betra við peningana að gera, en séu menn í þeim sporum er þeim guðvelkomið að hafa samband og fá reikningsnúmer og kennitölu hjá mér
kv Kiddi
16.02.2009 at 13:39 #640966MHN getur huggað sig við það að það er enn langt í að það þurfi meirapróf á tölvu, þó það séu sjálfsagt ekki allir sammála þegar hann á í hlut.
15.02.2009 at 21:43 #640916Það skiptir líka máli að vera ekki með of sverar lagnir og eins ef þær eru of langar þá tekur sinn tíma að ná upp þrýsting að lásnum
02.02.2009 at 16:52 #203708Mig bráðvantar að komast í samband við Þorra sem á eða átti rauðan Cherokee á 38″ með 350 Chevy.
kv Kiddi S: 869-7544
30.01.2009 at 09:48 #639300Hvernig endi kemur á dælurnar, ef það er banjó bolti þá hversu sver??
Í wranglerinn hjá mér notaði ég bremsuslöngur úr Honda Accord ’91, þar er 10mm banjóbolti (bolti með gati í gegn)
25.01.2009 at 21:43 #638934Hilux hásingar myndu ábyggilega virka fínt undir þetta
svo hef ég hingað til ekki vitað til þess að amerískar legur og pakkdósir séu neitt öðruvísi en þær japönsku….
20.01.2009 at 19:46 #638560en hvað er CTIS?
20.01.2009 at 16:34 #638538Hvoru megin viltu hafa framdrifið?
16.01.2009 at 00:54 #637370Þið eruð, með fullri virðingu, öll hundleiðinleg!!!! Svona svona skottist þið nú dúllurnar og farið að tala um eitthvað skemmtilegt eins og snjóalög á fjöllum, hvað V8 bensínvélar með blöndung eru heimskulegar og hvað Patrol er kraftmikill.
Ástarkveðja
Kiddi
09.01.2009 at 20:29 #636944Maður hefði haldið að það myndi duga fyrir temmilega stóra big block!!
09.01.2009 at 20:22 #203522Jæja… hvaða blöndungar hafa verið að reynast þokkalegir í svona jeppaskaki, Edelbrock eða Holley??
Hefur einhver prófað Holley með mekanísk aftari hólf (Double Pumper with Mechanical Secondaries), maður er hálfsmeykur við að slíkur búnaður sé að eyða vel úr hófi fram…
Aðalatriðið er samt auðvitað að þetta sé svona alveg þokkalega til friðs í þessum veltingi og hamagangi sem virðist fylgja mér alltaf, það er jú ekkert gaman að vera með hressa áttu í húddinu ef bensínið ratar ekki rétta leið. Ég er með gamlan Carter 625 cfm núna sem er sama hönnun og Edelbrock, það má ekkert halla þetta dót, þá bara drepur þetta á sér alveg miskunnarlaust, sem er bara alls ekki nógu sniðugt í mínum bókum!! Já þetta er á 350 letta skipti það einhverju máli..
.
En jæjajæja mér þætti ægilega vænt um ef reynsluboltarnir væru til í að ausa úr viskubrunnum sínum, ef einhverjum dettur í hug að segja mér að fá mér innspýtingu þá bið ég þá afskaplega pent að hlífa mér í bili senda alla þá speki á noreply@baugur.is. Ég fæ mér hugsanlega kannski innspýtingu seinna meir þegar ég á pening og hef ekkert annað að gera við hann!
.
Kveðja, Kiddi
06.01.2009 at 20:01 #636526Ef þú nennir ekki að fara í V8 þá á ég til 4.7 stroker mótor, sem er 4.0 blokk með sveifarás og stangir úr gömlu 258 sleggjunni sem ásamt því að bora hana út um 0.060" gerir hana að 4.7 lítrum. Stimplarnir eru þrykktir og þjappan er 9.5:1, spíssarnir eru sverari en original sem er nauðsynlegt þegar búið er að breyta vélinni svona. Það eru farnir stimpilhringir og það þarf að hóna blokkina en þú getur fengið alla vélina ásamt einhverju varahlutagramsi á 50.000 kr.
Ég var með þennan mótor í Wranglernum hjá mér og virkaði fínt, V8 er samt auðvitað miklu meira spennandi en líka meiri vinna…
Kiddi S:869-7544
03.01.2009 at 05:11 #636020Af hverju er meiri hætta á að beygja millibilsstöng sem er fyrir aftan hásingu en framan??
Er ekki málið bara að Land Rover er bara ónýtt drasl frá verksmiðju??? Er þetta vandamál í Cruiser eða Patrol?
-
AuthorReplies