Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
18.11.2005 at 00:30 #532692
Svona fyrst við erum farnir að ræða svona í alvöru um þessa trukka þá kannast ég við tvo forfallna Lödu eigendur (annar þeirra á sína ennþá veit ekki með hinn!) sem athuguðu með innfluttning á þessu. Ég man ekki alveg hvort ég er að fara rétt með en það væri eitthvað vesen með mengunarkröfur en það væri hægt að redda því með því að flytja þá inn í gegnum tékkland…eða eitthvað svoleiðis
17.11.2005 at 23:10 #532728það er bara ekki hægt að hætta að hlæja að þessum!
en hvað er málið, það er ekki eins og þetta sé einhver vefsíða fyrir leikskólakrakka mér finnst allt í himnalagi með svona brandara hérna
17.11.2005 at 00:39 #532684ekki dissa rússneska eðalvagna og alls ekki dissa 86 hestöfl…subaruinn minn sálugi var 86 hestöfl og það vantaði ekki aflið. Enda lét hann lífið sökum þess að ökumaðurinn hafði ekki hemil á þessu óhemju afli en þaðbest að vera ekkert að tjá sig of mikið um það!
14.11.2005 at 01:40 #532302Er ekki bara málið að finna framhásingu undan eldri Ford (Dana 44) og halda afturhásingunni sem er væntanlega þá Ford 8.8" sem hægt er að fá ARB lás í og sömu hlutföll og í Dana 44. Hvað myndu menn annars setja undir í staðinn?
13.11.2005 at 01:09 #532212Gunni minn við vitum það báðir jafnvel að það eru bara þrír bílar sem fara lengst það eru þeir sem stendur á JEEP…
12.11.2005 at 01:04 #531924Birkir
Hvaða öxul hefur þú brotið, fram eða aftur? Ertu ekki annars með Dana 30 og 35?
11.11.2005 at 23:11 #531920Patrol fæst með 280 hrossa bensínvél í miðausturlöndum
http://www.nissan-me.com/patrol/patrol_ … ations.htmAf hverju fæst hann ekki hérna…
11.11.2005 at 20:02 #532040um hvaða bílaplan ert þú að tala Óskar minn. Ég veit um þónokkur sem ég kem mínum Jeep ekki inní sökum stórkostlegrar hæðar sem þekkist ekki í súkkum og þetta hlýtur að vera eitt af þeim.
Og annars þá veit ég ekki af hverju ég ætti að vera að skamma hann Ásgeir eitthvað… mig grunar svona einhvern veginn að ég gæti þurft að fá hann til að kippa mér upp nokkrum sinnum og hver þarf þá að skamma hvern
11.11.2005 at 19:52 #531910Nei veistu mér finnst þetta alls ekki ótrúlegt að það muni svona litlu á þyngdinni. AMC línuvélarnar eru soddan þungar sleggjur með stálhedd og massífa blokk
11.11.2005 at 14:26 #531900Það er hægt að gera þetta miklu ódýrar en fyrir 18000 dollara. Það er hægt að fá svona vél á partasölum þarna, þú færð mótorfestingarnar hjá Advance Adapters og vatnskassa og rafkerfi hjá Teraflex. Endar örugglega undir 5000 dollurum.
09.11.2005 at 13:52 #196604Ég var svona bara eitthvað að dúlla mér á netinu og rakst á þetta:
http://aev-conversions.com/Iceland.htmlÞetta er sem sagt amerískt fyrirtæki sem breytir Jeppum og þeir ætla að koma með nokkra Jeppa (s.s Jeep) og keyra yfir vatnajökul og sigla síðan á kajak niður Jökulsá á fjöllum. En hvað um það það sem ég er meira spenntur fyrir eru bílarnir. Þeir eru svona nokkuð svipað breyttir og við erum að gera en það má kannski deila um dekkjavalið hjá þeim…
hvað finnst ykkur um þetta
08.11.2005 at 00:38 #196597http://4xforum.co.za/cgi-bin/YaBB/YaBB.pl?board=TechQuestions;action=display;num=1126725233
Ef þetta eru ekki snillingar þá veit ég ekki hvað
03.11.2005 at 20:34 #530874Þetta eru nú engir andskotans braskarar. Þegar þessir hundarúnkarar finnast ætti að dulbúa þá sem rjúpur, skilja þá eftir upp á heiði og láta veiðimennina um restina. Og hananú.
31.10.2005 at 01:03 #530270Það er ekkert til sem heitir leiðinlegur snjór!
30.10.2005 at 19:03 #530134Það var nú enginn að tala um einhverja 10 sílendra dreka en hitt er samt víst að það er heill hellingur af jeppum í notkun með alvöru vélum og sumir þeirra eru jafnvel Toyota og Patrol. Þá er ég að tala um amerískar 8 gata. Þú segir að menn þroskist og sjái ljósið…þvílíkt endemis bull og kjaftæði! Staðreyndin er bara einfaldlega sú að þið gömlu kallarnir eruð orðnir alltof lasburða til að skoppa um í svona leiktækjum og viljið drullumallara og samlæsingar og dvd og hita í afturrúðuna eða eru það bara kellingarnar sem þið leyfið að ráða ferðinni?
PS. það er ekkert illa meint með þessu um ykkur gömlu kallana…
29.10.2005 at 00:04 #530126Það er nokkuð greinilegt að Erlingur hefur ekki fengið að sitja í alvöru amerísku vöðvatrölli…
26.10.2005 at 16:48 #529926Þú ert með AW4 skiptingu ekki satt? Frá 1987 til 1991 voru þær með 21 rillu skapt en eftir það 23 rillu. Þú ættir að geta breytt millikassanum í 23 rillu með því að fá skapt í hann úr nýrri bíl
26.10.2005 at 01:04 #529952Læsingarnar í þeim eru 100% loftlæsingar sem þurfa ekki nema 5-10 pund en ekki 100 pund eins og ARB. Síðan er afturlásinn með tregðulæsingu þegar hann er ekki 100% læstur þannig að þessar læsingar eru bara pjúra snilld!
25.10.2005 at 23:38 #529942þessi á eftir að svínvirka! til hamingju!
24.10.2005 at 22:14 #529874Blessaður vertu helltu bara Dexron 2 á þetta og hættu að spá í þessu. Þetta er olían sem á að fara á þetta og það hlýtur að vera ástæða fyrir því.
-
AuthorReplies