Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
12.12.2005 at 10:51 #535290
Hehe, áður en þið farið að hlæja að dekkjastærðum hjá kananum mæli ég með því að þið skoðið myndir af klettaklifrinu hjá þeim. Enda ekkert skrýtið að þeir séu iðnir við að brjóta á litlum dekkjum 😉
Bensínkveðja Kristinn.
09.12.2005 at 23:30 #535544hvað er langt síðan þú tékkaðir á því hvað olíulítrinn kostar? 😀
09.12.2005 at 20:07 #535332Pabbi minn var að kaupa sér loftlæsingar í Econoline og fékk þær á 700 dollara stykkið ef ég man rétt svo þetta verð sem þú ert með sýnist mér bara vera nokkuð sanngjarnt.
Ég er samt ekki viss hvar hann keypti þær en get látið þig vita þegar ég hef það á hreinu.
Síðan er það alls ekki svo vitlaust ef þig vantar loftdælu fyrir lásana að redda henni í leiðini 😉
09.12.2005 at 18:35 #535512Sælir
þetta vandamál hefur komið upp áður og var það þá eitthver vírusvörn eða e-ð svoleiðis sem var að trufla menn en meira um það hér: [url=http://www.f4x4.is/new/forum/?file=vefsida/5333:3aer4zm3]https://old.f4x4.is/new/forum/?file=vefsida/5333[/url:3aer4zm3]
09.12.2005 at 16:35 #535456Þegar þú talar um að mökkvirka áttu þá við þennnan típíska díselmökk!
Með bensín kveðju
Kristinn.
09.12.2005 at 15:13 #535322Ég var nú líka bara að hræra aðeins upp í þessum rugludall, ekki heil brú í neinu sem kemur út úr þessum manni!
09.12.2005 at 13:34 #530986Hverjir eru það eiginlega sem eru að kaupa þessa varahluti? einhver partasali kannski?
08.12.2005 at 16:53 #535272[url=http://home.4x4wire.com/erik/diffs/:15pcl843]http://home.4x4wire.com/erik/diffs/[/url:15pcl843]
07.12.2005 at 22:59 #535302Ég veit ekki með þig en ég hef sjálfur vanist því að hugsa í hljóði. Hvernig væri það nú ef að þú byggir til vef utan um þessar "hugleiðingar" þínar?
07.12.2005 at 22:16 #533484þú ert eitthvað að misskilja þetta. Bæði það að það skiptir engu máli hvaðan bíllinn kemur og það að það er allt í fína lagi hjá þeim (Current status of the team: 1)
07.12.2005 at 21:01 #535260alltaf finnur maður eitthvað fleira sniðugt í bookmarks…
[url=http://www.offroaders.com/info/tech-corner/facts/axles/axle.htm:3iyd0w7g]http://www.offroaders.com/info/tech-corner/facts/axles/axle.htm[/url:3iyd0w7g]
07.12.2005 at 20:58 #535258Hérna er eitthvað:
[url=http://www.offroaders.com/info/tech-corner/facts/axles/axlefacts.htm:66m3omy8]http://www.offroaders.com/info/tech-corner/facts/axles/axlefacts.htm[/url:66m3omy8]Bara amerískar hásingar þarna fyrir utan eina Toyotu, ég er ekkert inn í þessi japanska stöffi þannig að ég hef ekki hugmynd um hvar maður finnur upplýsingar um það!
07.12.2005 at 20:50 #535294leiðist þér svona svakalega eða? er ekki málið að hætta þessu helv… bulli og fara út að leika sér á jeppanum? nei fyrirgefðu þú ert ekki á jeppa, þú ert á corollu á sterum. plís, hlífðu okkur við þessari minnimáttarkennd.
04.12.2005 at 20:06 #534986Því miður þá get ég ekki sagt að ég myndi leita til þeirra.
Eins og sumir vita kannski þá er hann Björn hættur og annar maður tekinn við verkstæðinu. Bróðir minn lét hjólastilla hjá honum Vitöruna sína daginn áður en hann fór út á land. Þegar hann er kominn nokkuð vel á leið tekur hann eftir því að dekkin eru hreint ekki sammála hvert skal fara. Þá hafði það gleymst að herða upp á og hjólabilið komið í tómt rugl. Auk þess tók sá sem hjólastillti trukkinn ekki eftir því að annar spindillinn var farinn, sem uppgvötvaðist þegar farið var með bílinn í skoðun en bíllinn hafði lengi verið mjög leiðinlegur í stýri.
Það væri gott að vita hvort fleiri hafi frá svipaðri reynslu að segja, fyrir mitt leyti get ég alveg fullyrt að ég myndi leita annað.
04.12.2005 at 19:56 #534946Sælir
Er einhver ykkar með það á hreinu hvað svona trukkur er þungur? Bara smá forvitni!
01.12.2005 at 18:27 #534466Reyndar kostar 4 gíra Atlasinn svoldið. Einhvers staðar sá ég að hann ætti að kosta tæpa 3000 dollara, sem ætti að sleppa undir 300.000 kallinn hingað kominn…sem er dágóður slatti. En það má alltaf láta sig dreyma…
01.12.2005 at 15:40 #534462Atlasinn er bara miklu skemmtilegri kassi en þessir japönsku vegna þess að hann er kjánalega stuttur og mjög sterkur.
Síðan er hann alveg sínkróneseraður þannig að þú getur skipt í lága drifið á ferð!Hvað kostar svona milligír með ástralíuhlutfalli í Patrol? Eru það ekki nokkur hundruð þúsund?
30.11.2005 at 23:41 #534264Ég er að minnsta kosti með það á hreinu að mig langar alls ekki til þess að viðhalda svona útúrpeppaðri díselvél þegar hún fer að eldast.
kv Kristinn annar stuðningsmaður bensínháka en vantar samt aðeins stærri rokk í húddið til að vera sáttur.
29.11.2005 at 17:00 #534280Sæll
Ef þú ert tilbúinn í smá smíðavinnu við að skipta út gormasætum þá mæli ég með því að þú talir við þá í BSA á Smiðjuveginum. Þeir eru að selja nýja Rover gorma og gormasæti í öllum stærðum og gerðum og geta alveg ábyggilega hjálpað þér að finna réttu gormana.
27.11.2005 at 03:37 #534100Mér litist mun betur á að breyta Dodge Ram 2500 vegna þess að hann er með framhásingu og gormafjöðrun að framan frá verksmiðju. 1500 bíllinn er með klafa að framan sem að mínu mati er ekkert vit í.
Síðan er hægt að fá Dodge Ram 2500 Power Wagon sem er svona off-road týpa með lægri drifum (4.56), 33" dekkjum, spili í framstuðara og læsingum framan/aftan.
Annars veit ég ekkert um þetta en þetta getur varla verið mikið mál!
-
AuthorReplies