Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
16.01.2006 at 22:27 #539220
Sverara púst ætti að hjálpa þónokkuð til, spurningin er bara hversu svert því verða aðrir að svara sem hafa reynsluna en ég giska á að 2.5" séu passlegar?
14.01.2006 at 12:55 #197059Hvaða gorma hafa menn verið að setja undir Wrangler að framan?
Jeep kveðja Kristinn
14.01.2006 at 12:31 #538930Þetta hlýtur bara að vera eitthvað bull í þessum könum eða þá framleiðslugalli, ég fór að hugsa út í þetta nánar og Borla er með góða ábyrgð á þessu. Endilega ekki láta eitthvað djöfuls kjaftæði í mér stoppa þig í þessu…
kveðja Kristinn
14.01.2006 at 11:53 #538926Ég las þetta um Borla flækjurnar hérna: http://www.naxja.org/forum/showthread.p … ight=borla
Datt bara í hug að þú vildir lesa þetta sjálfur og mynda þína eigin skoðun á þessu
14.01.2006 at 02:47 #538796Það vill nú reyndar svo til að í Bandaríkjunum rakst ég á þessa skruddu sem inniheldur gjörsamlega ALLT um alla Jeep jeppa frá upphafi! Frábær bók
14.01.2006 at 02:29 #538922Það sem ég hef lesið á spjallsíðum í ameríku um Borla flækjurnar fyrir 4.0 vélina er að þær eiga það til að passa illa og jafnvel alls ekki við blokkina og einhverjar sprungu. Banks flækjur eiga víst að vera betri en ég tek það fram að þetta er ekki mín reynsla svo ég sel þetta ekki dýrara en ég stal því.
13.01.2006 at 18:45 #538996Þú getur fengið einhverjar hugmyndir hérna:
http://www.jeepsunlimited.com/forums/sh … p?t=626553Ef þú hefur einhverjar fleiri spurningar endilega spurðu, ég er búinn að dandalast alltof mikið á netinu í kringum Wrangler og búinn að komast að öllum andskotanum…
kveðja Kristinn.
13.01.2006 at 18:42 #538916Ég er með Wrangler með 258 og það er búið að máta á alla kanta og hugsa mikið en það er ekki séns að koma þessu ofaní. Wranglerinn er með 10cm breiðari grind en CJ7 og þetta er einhvern veginn sniðið í kringum grindina.
13.01.2006 at 18:30 #538776AMC 20 hefur aldrei verið notuð í Cherokee (XJ)! Punktur! Það er Chrysler 8.25 sem var notuð þegar þeir áttu ekki Dana 35.
Jeep kveðja Kristinn
13.01.2006 at 18:28 #538912Ég sá hérna fyrir ofan að þú minntist á 4.0 vél… þá passa þessar því miður ekki og síðan passa þær heldur ekki með grindinni í Wrangler
13.01.2006 at 18:07 #538908Hvernig bíl/vél ertu með? Ég á flækjur í CJ5/CJ7 (EKKI WRANGLER) fyrir 258 vélina sem þú getur fengið fyrir lítið.
Kveðja Kristinn.
13.01.2006 at 18:06 #538976Þar sem þú talar um fimmta gír þá geri ég ráð fyrir því að bíllinn sé beinskiptur og þá ertu væntanlega með 4.10.
Lægstu hlutföllin sem þú færð í þessi drif eru 4.88 sem ætti að vera alveg nothæft ef eitthvað er að marka þessa reiknivél: http://4lo.com/calc/geartire.htm
13.01.2006 at 01:17 #5387644 cylindra er fyrir kellingar. Ekki flóknara en það. Sömu afturhásingarnar í báðum, annaðhvort Dana 35 eða Chrysler 8.25 (sterkari). Einhverjir bílar voru með Dana 44 voðavoða sjaldgæft ég á nú reyndar eina svoleiðis sem hægt væri að plata út úr mér ekki voða líklegt en þó einhver séns…
AMC 20 hásingin var bara í CJ7 og Wagoneer (stóra).
13.01.2006 at 00:08 #538736Síðan er það nokkuð algengt að það sé takki í mælaborðinu eða á einhverjum sniðugum stað…
12.01.2006 at 16:01 #538472Getur ekki verið að alternator úr öðrum Krúserum sé stærri? Ég veit ekki betur en þetta sé sama 4.2L vélin?
11.01.2006 at 22:30 #538624Ef þú hefur þokkalega aðstöðu þá er þetta ekkert mál. Þetta er í raun og veru bara að skrúfa helling af drasli úr og aftur í. Almennileg viðgerðarbók útskýrir allt sem þarf að útskýra…
09.01.2006 at 19:13 #538402Það er alveg greinilegt að leikskólabörn myndu standa sig betur heldur en þessir "fagmenn" (með fullri virðingu fyrir þeim, börnunum þ.e.a.s.)
05.01.2006 at 22:26 #537884Það er aldrei að vita hvort ESB banni high-tech vélar, þessar reglur eru meira til þess að vernda evrópskan iðnað heldur en nokkuð annað.
04.01.2006 at 20:29 #537856Ég væri til í að sjá tog og hestafla kúrfuna, hiluxinn er með stöðugt tog á 1600-2400 snúningum en maður veit ekkert hversu stöðugt aflið hjá Nissan er yfir snúningssviðið sem að mínu mati skiptir meira máli en hámarksafl!
04.01.2006 at 00:44 #537688Ég er nokkuð viss um að Þórir er ekki að tala um krumpusvæðin heldur það að toppurinn leggist saman sem hefur gerst og kostað mannslíf á fjöllum.
-
AuthorReplies