Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
04.02.2006 at 17:47 #541466
Ég þakka fyrir þetta, núna er þetta allt saman að smella í kollinum á mér.
Þá ætla ég s.s. að lækka þverstífuna úr grindinni jafn mikið og ég lækka togstöngina.En varðandi þverstífurnar að aftan, er það ekki bara á jeppum frá löndum þar sem stýrið er hægra megin, og þar af leiðandi þarf þverstífan að framan að snúa þannig og þá láta þeir þverstífuna að aftan snúa eins. Síðan færa þeir stífuna að framan á þeim bílum sem fá stýri vinstra megin og láta afturstífuna vera? Bara pæling…
En ég er ennþá að velta fyrir mér samsláttarpúðunum, þ.e. hvort ég geti ekki bara haft sléttan flöt á hásingunni fyrir þá…
kv. Kristinn
04.02.2006 at 13:13 #541438Ég sé ekkert því til fyrirstöðu að nota sand frekar en salt. Öll niðurföll á götum eru með sandgildru, ef ég giska eftir sjónminni þá held ég að ca. 100 lítrar kæmust þar fyrir. Síðan á að dæla upp úr þessu reglulega en ég hef ekki séð það gert…
03.02.2006 at 18:13 #197231Jæja þá er komið að því að smíða gormafjöðrun undir Wranglerinn að framan. Ég er með nokkrar spurningar sem gaman væri að fá álit á frá þeim sem hafa reynslu í þessum málum
Stífur. Mér líst best á afturstífur undan 70 cruiser, þær eru mjög svipaðar Rover framstífum en þar sem að mér skilst að fóðringarnar í Rover stífunum séu ekkert að endast þá vil ég frekar nota þessar. Hvernig er best að hafa þær undir? Á ég að hafa þær alveg lágréttar eða meiga þær halla aðeins niður að hásingunni?
Samsláttarpúðar. Ég ætla að hafa benz púðana en spurningin er hvernig á að ganga frá fletinum þar sem þeir koma á hásinguna. Að aftan er ég með skál undir þá (smíðaði ekki þá fjöðrun sjálfur) en er kannski allt í lagi að hafa bara sléttan flöt?
Spindilhallinn á svona bíl (’87 Wrangler) er 8 gráður original, er það ekki bara nokkuð passlegt fyrir 38″?
Ég ætla að setja lægri stýrisarm úr Grand Cherokee (um 8 cm lækkun) til að fá togstöngina lágréttari. Hvort er sniðugra að hækka festinguna fyrir þverstífuna á hásingunni eða lækka hana úr grindinni?
Síðan vil ég taka það fram að ég er alveg galopinn fyrir öllum hugmyndum og commentum!
Kveðja, Kiddi kjáni.
Just
Empty
Every
Pocket
03.02.2006 at 00:14 #541026Ertu búinn að kíkja á Vöku?
03.02.2006 at 00:13 #541254Svona fyrirbæri kallast oft auglýsingar!
31.01.2006 at 18:10 #540522Á þeim spjallborðum í vesturhreppi sem ég er svolítið að stunda er mjög mikið um að menna séu að nota svona Durabak í allan andskotann jafnvel utan á bílana með góðum árangri. Það er bara bull að segja að Rhino sé það eina sem virki, rétt eins og það er bull að segja að Toyota sé það eina sem virki. En vissulega er Rhino mjög góð vara en þetta er alls ekkert rusl.
Það er ekki nokkur spurning að ég set svona í gólfið á Wranglernum í sumar og kannski á stigbrettin líka…
29.01.2006 at 14:01 #540622Á mínum jeppa (Wrangler) þá er voltmælirinn (original mælir) bara tengdur við vatnshitamælinn þannig að ég held að það skipti engu máli hvort hann er tengdur beint við geyminn eða bara einhversstaðar í plús. Síðan er jörðin bara tekin með hinum mælunum.
27.01.2006 at 13:01 #540428Framfjöðrunin í WJ er alveg eins og í öðrum Jeep en afturfjöðrunin er öðruvísi, hún er svipuð og í Range Rover s.s. tvær neðri stífur og ein stór efri stífa sem kemur í þríhyrning og festist ofan á drifkúluna.
26.01.2006 at 23:02 #540456Dana 30 afturhásingar eru mjööög sjaldgæfar þannig að ég held að það sé lítill séns á því að finna tregðulæsingu úr Jeep ódýrt. En spurningin er síðan hvort að öxlarnir í Volvonum passi í Jeep læsingu ef svoleiðis finnst. Mín Dana 30 framhásing er með 27 rillu öxla.
25.01.2006 at 23:58 #540342Er það nokkuð sniðugt að vera með svona blá/hvít ljós, týnist þá ekki bara vegurinn þegar það kemur smá skafrenningur.
Ég fékk mér gular perur hjá Wurth og það er að svínvirka í snjókomu síðan er ég bara með 100W aukaháljós sem ég get ómögulega verið án!
25.01.2006 at 20:05 #540232Fyrst þetta á að vera svona þokkalega fíflhelt þá er aldrei að vita nema maður slái til!
25.01.2006 at 17:41 #540252Ef þú sættir þig við Dana 60 undan Econoline þá veit ég hvar þú gætir fundið slíka (með diskabremsum)
23.01.2006 at 19:50 #540042Ég fékk ljósrit hjá þeim upp úr handbók fyrir um 3 vikum síðan svo eitthvað hefur þetta verið fljótt að gerast. Síðan sá ég auglýsingu um helgina þar sem þeir auglýstu Jeep þjónustu!
23.01.2006 at 19:41 #540036Sæll
Ég mæli með því að þú talir við þá hjá Ræsi, ég hef alltaf fengið frábæra þjónustu hjá þeim og þeir geta gefið þér ljósrit af öllum teikningum sem þig vantar!Ps: Jeep = Just Empty Every Pocket!
22.01.2006 at 20:14 #539698Ef menn eru að reyna að telja sér trú um að 150 bíllinn sé eitthvað léttari heldur en 350 þá er 350 bíll með V8 innan við 300 kílóum þyngri en 150 bíll með V8! Þá er ég auðvitað að tala um original bíla sem er ekki búið að breyta. 150 bíllinn þarf alveg jafn sterka hásingu og stór dekk eins og 350. Síðan er það merkilega að þessir bílar eru svipað þungir og Patrol eða Cruiser, ef þeir eru ekki með einhverjum díselvélahlunka í húddinu…
20.01.2006 at 16:44 #538824Hvað eruð þið að rugla með 727? Það er eldgömul 3ja gíra Mopar skipting…
19.01.2006 at 10:43 #539488Hvernig er með grindarlausa eins og t.d. cherokee og pajero, eru þeir ekki eitthvað sterkari í veltu?
19.01.2006 at 00:19 #539478Loftpúðar fyrir framan ökumann eða farþega gera bara gagn þegar höggið kemur úr þeirri átt, svo einfalt er það, hann er jú ekkert að draga úr neinu höggi þannig lagað þegar bíllinn rúllar. Hver veit síðan hvað gerist þegar bíllinn hefur rúllað nokkra hringi, hann gæti þess vegna fengið högg framan á sig og þá væri slæmt að hafa blásið út loftpúðana að óþörfu!
Margir bílar eru síðan með hliðarloftpúða fyrir högg frá hliðum og síðan eru Volvo og einhverjir fleiri (Honda minnir mig a.m.k.) með einhvers konar loftpúðagardínu fyrir veltur.
18.01.2006 at 14:24 #534378Hvað er skaptið inn í Dana 20 kassann margar rillur? Ég veit nefnilega um einskonar kit sem er hægt að fá í Jeep með 23 rillu kassa og þá er notaður plánetugír úr NP 231 millikassa sem milligír og síðan er hægt að vera með Dana 300 eða 23 rillu New Process kassa þar fyrir aftan. Þetta kostar um 700 dollara minnir mig.
16.01.2006 at 23:42 #539262Það er alls ekki mikið mál að lesa hvað stendur á kambinum í Dana hásingu, það þarf bara að losa lokið af og tjakka e.t.v. upp dekk svo hægt sé að snúa kambinum.
-
AuthorReplies