FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir
You are here: Home / Kristinn Magnússon

Kristinn Magnússon

Profile picture of Kristinn Magnússon
Virkur síðast fyrir 9 years, 8 months síðan
  • Prófíll
  • Groups 0
  • Forums
  • Topics Started
  • Replies Created
  • Favorites

Forum Replies Created

Viewing 20 replies - 621 through 640 (of 897 total)
← 1 … 31 32 33 … 45 →
  • Author
    Replies
  • 29.03.2006 at 15:02 #547680
    Profile photo of Kristinn Magnússon
    Kristinn Magnússon
    Participant
    • Umræður: 91
    • Svör: 1775

    Sæll Ívar
    .
    ef þig langar í 700 skiptingu þá skal ég gefa þér svoleiðis
    en það þarf að taka hana upp! Þetta er jeppaskipting s.s. fyrir millikassa
    .
    endilega bjallaðu í mig ef þú hefur áhuga
    .
    Kristinn, s:869 7544





    28.03.2006 at 23:07 #547596
    Profile photo of Kristinn Magnússon
    Kristinn Magnússon
    Participant
    • Umræður: 91
    • Svör: 1775

    Lágmarkið er 85 pund, 5.9 bör og hámarkið er 105 pund, 7.2 bör.

    Þetta er tekið beint upp úr ARB handbók

    kv. Kiddi





    26.03.2006 at 22:40 #547452
    Profile photo of Kristinn Magnússon
    Kristinn Magnússon
    Participant
    • Umræður: 91
    • Svör: 1775

    Ef það á að grilla verður að gera það með kolum annars græða djöflarnir á því!

    Já það þarf að gera eitthvað svona róttækt eins og að loka einhverri götunni.
    Hvernig væri nú að loka bara fyrir eldsneytisflutningana í Örfirisey?

    kv. Kiddi kjáni





    21.03.2006 at 16:29 #547170
    Profile photo of Kristinn Magnússon
    Kristinn Magnússon
    Participant
    • Umræður: 91
    • Svör: 1775

    Er ekki langeinfaldast að festa þetta í veltibúr? Svoleiðis er það a.m.k original í Willy’s!

    kv. Kristinn





    20.03.2006 at 01:05 #547116
    Profile photo of Kristinn Magnússon
    Kristinn Magnússon
    Participant
    • Umræður: 91
    • Svör: 1775

    þetta kalla ég keppniz…bara sjóðheit svör beint af hálendinu!





    19.03.2006 at 23:37 #547112
    Profile photo of Kristinn Magnússon
    Kristinn Magnússon
    Participant
    • Umræður: 91
    • Svör: 1775

    Jújú ég ætlaði að fara sem kóari en smallaði puttann á mér og í staðinn fyrir að vera í skýjunum uppdópaður af Parkódíni ákvað ég að vera heima… ekki alveg sáttur með það
    .
    En nei drifið er ekki eins og í Toyota…því miður! Mig langar reyndar rosalega að henda Toyota hásingum undir dýrið… bæði útaf þessu og líka lokuðu liðhúsunum! Puttinn brotnaði nefnilega þegar hann klemmdist á milli liðhúss og hásingar!

    kv. Kiddi





    19.03.2006 at 23:24 #197584
    Profile photo of Kristinn Magnússon
    Kristinn Magnússon
    Participant
    • Umræður: 91
    • Svör: 1775

    Ef ég tek allt drifið, s.s. allt heila helv… klabbið, keisingu með kamb og pinjón, úr einni hásingu og set í aðra eins, er séns á því að það þurfi ekki að stilla inn drifið? Þetta er Dana 30 hásing þar sem að skinnurnar til að stilla drifið eru fyrir innan leguna…
    .
    Síðan er það önnur pæling, hvað kosta svona mæligræjur til að stilla inn drif… eða er einhver sem á þetta og er til í að lána þetta?
    .
    kv. Kiddi kjáni og Wranglerinn síbilaði





    19.03.2006 at 16:32 #546906
    Profile photo of Kristinn Magnússon
    Kristinn Magnússon
    Participant
    • Umræður: 91
    • Svör: 1775

    Það þarf ekkert að hækka fyrir 31" Bara klippa smá úr og berja kannski líka. Ég held að það dugi líka fyrir 33"!

    kv. Kristinn





    19.03.2006 at 14:59 #546808
    Profile photo of Kristinn Magnússon
    Kristinn Magnússon
    Participant
    • Umræður: 91
    • Svör: 1775

    Mín K&N sía hefur verið að sía alveg þokkalega, allavega er ekki mjööööög mikið af ryki innan við hana en þessi helv… olía stíflar spíssana! Einhver jólasveinn í Ástralíu fékk sér bara síuhús og pappírssíu úr dráttarvél í Cherokeeinn sinn. Það var að flæða álíka vel og K&N en ekkert ryk fór í gegn og engin olía!

    kv. Kristinn





    16.03.2006 at 23:28 #546672
    Profile photo of Kristinn Magnússon
    Kristinn Magnússon
    Participant
    • Umræður: 91
    • Svör: 1775

    Er þetta ekki Peugeot kassinn alræmdi sem þú varst að brjóta?
    Þá held ég bara að málið sé að finna öðruvísi kassa og mixa hann í! Peugeot kassarnir voru ekki í mörgum árgerðum og eru sennilega flestallir brotnir í spað núna!
    .
    Í minn var settur T-5 kassi úr Willy’s í staðinn en það er mjög erfitt að finna svoleiðis.
    .
    Auðveldast væri sennilega að fá gírkassa úr Cherokee, þeir finnast nú í hrúgum út um allt land. Gírkassinn sem er í þeim (cherokee 4.0) eftir 89 heitir Aisin AX-15 og hefur ekki verið að brotna eins og Peugeot draslið…
    .
    Reyndar er einn galli við þessa framkvæmd, en hann er að skaftið út úr Peugeot kassanum er 21 rillu en í AX-15 er það 23 rillu. Það ætti samt að vera lítið mál að redda því annaðhvort með því að tæta millikassann í sundur og skipta um inntaksskaftið eða að skipta kannski bara um millikassa?
    .
    Hér eru nokkrir linkar fyrir þig…

    [url=http://www.jeeptech.com/wiki/index.php/Transmission/Factory/BA10-5:3kz6n8kf]um Peugeot kassann[/url:3kz6n8kf]
    [url=http://www.jeeptech.com/wiki/index.php/Transmission/Factory/AX-15:3kz6n8kf]um AX-15 kassann[/url:3kz6n8kf]
    [url=http://www.jeeptech.com/wiki/index.php/Transmission/Conversion/AX-15/AX-15_Swap_in_Cherokee:3kz6n8kf]Hvernig á að mixa AX-15 í staðinn fyrir peugeot…[/url:3kz6n8kf]

    Ég vona að þetta hjálpi þér eitthvað!

    kv. Kiddi (sá sem fékk að koma og kíkja á fjöðrunina þína 😉 )





    16.03.2006 at 22:32 #546344
    Profile photo of Kristinn Magnússon
    Kristinn Magnússon
    Participant
    • Umræður: 91
    • Svör: 1775

    Já eins og þú sagðir þá er afturdrifið ekki stórt, og mér finnst það alveg hreint ótrúlegt hvað það hefur dugað hjá þér á 38"! Svo maður tali nú ekki um að það brotnar ekki undan álagi!
    Er það ekki rétt munað hjá mér að það sé búið að bora þína vél út?
    En nei ég hef ekki brotið drif enda hef ég varla notað gripinn minn…sem er synd! Hann virðist allltaf enda aftur inní skúr í einhverri meiriháttar skurðaðgerð :-( Þar á meðal verður reyndar afturhásingaskipti vegna þess að ég er ekki að treysta 7.5" drifi…en kannski er það bara vitleysa í mér!

    kv. Kristinn





    15.03.2006 at 12:08 #546318
    Profile photo of Kristinn Magnússon
    Kristinn Magnússon
    Participant
    • Umræður: 91
    • Svör: 1775

    Braustu afturdrifið loksins?

    Wrangler kveðja
    Kristinn





    09.03.2006 at 17:50 #545938
    Profile photo of Kristinn Magnússon
    Kristinn Magnússon
    Participant
    • Umræður: 91
    • Svör: 1775

    Það er heldur ekki aðalatriðið að geta sótt einhvern ofan í sprungu, heldur skiptir það líka mjög miklu máli fyrir þann slasaða ef einhver kemst til hans og getur veitt honum skyndihjálp eða bara haldið í höndina á honum þar til það er hægt að ná honum upp.

    kv. Kristinn





    06.03.2006 at 23:11 #545792
    Profile photo of Kristinn Magnússon
    Kristinn Magnússon
    Participant
    • Umræður: 91
    • Svör: 1775

    Sæll
    Pabbi átti svona bíl fyrir nokkrum árum, hann var einmitt árgerð 98. Hann var ekinn rúmlega 100 þúsund þegar olíuverkið fór, en hann var ennþá í ábyrgð þá (hefur líklega verið 2001) og IH skipti um það. Þannig að ég held að þetta sé ekkert einsdæmi… kannski getur einhver Patta sérfræðingurinn sagt meira um það!

    kv. Kristinn





    27.02.2006 at 21:49 #544902
    Profile photo of Kristinn Magnússon
    Kristinn Magnússon
    Participant
    • Umræður: 91
    • Svör: 1775

    Wranglerinn er svosum bara ágæt…
    en hann er ekki ferðafær! Ég reyndi nefnilega við heimsmetið í langstökki utanvega en lenti á fjalli með þeim afleiðingum að hestakerrufjöðrunin brotnaði. Þannig að það var ekkert annað í stöðunni en að rífa það undan… sem ég er búinn að gera, síðan fer ég vonandi að dúndra gormunum undir þetta fljótlega!
    Ég verð bara að bíða með spólið þar til næsta vetur og taka það með stæl.

    En varðandi það að sturta amerísku dóti ofan í drusluna þá er það ekkert til að hræðast, því þetta verður nefnilega alls engin drusla heldur eðalvagn á eftir!

    Ég leitaði á Google og 4.3 á að vera 190 kíló…

    Kveðja Kiddi





    27.02.2006 at 19:34 #544894
    Profile photo of Kristinn Magnússon
    Kristinn Magnússon
    Participant
    • Umræður: 91
    • Svör: 1775

    Hvað er klafadrifið í Hilux stórt? Eru það ekki 7.5"?
    Ég held að það sé alveg fjandi nógu sterkt fyrir Vortec…
    Ég meina, 7.25" dugar fínt fyrir Cherokee og Wrangler að framan!
    Mér finnst líka 3.0 sexan bara handónýt vél það er nákvæmlega engin vinnsla í þessu! Ef maður reynir að pína þetta drasl eitthvað þá drepur það bara á sér!

    kv. Kiddi kjáni





    26.02.2006 at 23:47 #544874
    Profile photo of Kristinn Magnússon
    Kristinn Magnússon
    Participant
    • Umræður: 91
    • Svör: 1775

    Óskar, þú setur bara AMERÍSKA 4.3 Vortec ofan í þetta og sjálfskiptingu og málið er steindautt!

    kv. Kristinn





    26.02.2006 at 00:35 #544532
    Profile photo of Kristinn Magnússon
    Kristinn Magnússon
    Participant
    • Umræður: 91
    • Svör: 1775

    Ég votta aðstandendum hins látna mínar dýpstu samúðarkveðjur. Sömuleiðis vil ég óska þeim slasaða góðs bata.

    Kristinn Magnússon





    24.02.2006 at 00:21 #543780
    Profile photo of Kristinn Magnússon
    Kristinn Magnússon
    Participant
    • Umræður: 91
    • Svör: 1775

    Það á alltaf að setja platta undir veltibúr!
    annars fer það bara í gegn





    19.02.2006 at 22:38 #543378
    Profile photo of Kristinn Magnússon
    Kristinn Magnússon
    Participant
    • Umræður: 91
    • Svör: 1775

    Ég vona að þú móðgist ekki…en er skiptibarkinn tengdur?

    kv. Kristinn





  • Author
    Replies
Viewing 20 replies - 621 through 640 (of 897 total)
← 1 … 31 32 33 … 45 →

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.