FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir
You are here: Home / Kristinn Magnússon

Kristinn Magnússon

Profile picture of Kristinn Magnússon
Virkur síðast fyrir 9 years, 8 months síðan
  • Prófíll
  • Groups 0
  • Forums
  • Topics Started
  • Replies Created
  • Favorites

Forum Replies Created

Viewing 20 replies - 601 through 620 (of 897 total)
← 1 … 30 31 32 … 45 →
  • Author
    Replies
  • 21.04.2006 at 22:19 #550188
    Profile photo of Kristinn Magnússon
    Kristinn Magnússon
    Participant
    • Umræður: 91
    • Svör: 1775

    Þó ég sé alls enginn millikassasnillingur (ég veit varla baun um þessi apparöt!) þá dettur mér helst í hug keðjan í kassanum
    svo getur verið að ef þessi kassi er fucked þá sé hægt að fá NP 231 kassa úr Cherokee eða Wrangler. Það þarf samt alls ekki að vera, en það er allt í lagi að skoða það og ef þeir passa þá ætti það að vera mun ódýrara en að taka þennan upp!
    En eins og ég segi, ég veit varla nokkuð um þetta og þetta gæti allt saman verið tómt sinnep með remúlaði sem ég er að segja.
    .
    kv. Kristinn





    20.04.2006 at 14:40 #550172
    Profile photo of Kristinn Magnússon
    Kristinn Magnússon
    Participant
    • Umræður: 91
    • Svör: 1775

    Ég held að túrbínan komi fyrr inn þegar loftflæðið inní vélina eykst, vegna þess að þá hlýtur bara að koma meira út líka. Annars veit ég ekkert um þetta ég er bara að bulla eitthvað

    kv. Kristinn





    20.04.2006 at 13:51 #550168
    Profile photo of Kristinn Magnússon
    Kristinn Magnússon
    Participant
    • Umræður: 91
    • Svör: 1775

    K&N síur eru svokallaðar "opnar" loftsíur. Þær eru með betra loftflæði en orginal pappírssíur og endast endalaust.
    En síðan eru gallarnir, þessar síur hleypa meiri óhreinindum í gegnum sig og það þarf að smyrja þær reglulega með þar til gerðri olíu.
    .
    Þessar síur auka aflið í bílnum oftast um eitthvað smotterí sem maður finnur ekki fyrir.
    En hinsvegar, ef orginal loftsían er flöskuháls (bíllinn er kominn með sverara púst t.d.), þá gæti þetta skilað þónokkru.
    .
    Ég veit það samt að ég fæ mér ekki K&N aftur. Throttle body-ið í jeppanum mínum er troðfullt af sand blönduðum við K&N olíu. (og já ég fór eftir leiðbeiningunum þegar ég smurði síuna og setti passlega mikið)
    .
    Ég skoðaði einu sinni síðu á netinu þar sem Ástrali hafði sett pappírssíu og síuhús úr dráttarvél í Cherokee. Hann sýndi fram á það að þetta flæddi alveg jafn vel og K&N sía og síaði miklu betur! Ef menn hafa pláss í húddinu þá væri þetta kannski ekkert vitlaust?
    Ég veit það allavega að ég fæ mér svoleiðis í minn jeppa þegar annari vél verður holað ofaní

    kv. Kristinn





    17.04.2006 at 23:43 #549652
    Profile photo of Kristinn Magnússon
    Kristinn Magnússon
    Participant
    • Umræður: 91
    • Svör: 1775

    Hvar fá menn svona breiðar krómfelgur?
    Er einhver á klakanum sem krómar?

    kv. Kiddi kjáni





    13.04.2006 at 22:02 #549436
    Profile photo of Kristinn Magnússon
    Kristinn Magnússon
    Participant
    • Umræður: 91
    • Svör: 1775

    Og hvað gerir þetta síðan? Þessi undirskriftalisti fer bara beint í ruslið
    .
    Er ekki málið að ákveða hvenær við fjölmennum niður á Alþingi og lokum bílastæðunum, skrúfum pílurnar úr dekkjunum og sullum smá skyri yfir jólasveinana á Alþingi í leiðinni og verum bara með HÁVAÐA OG LÆTI
    .
    Það þarf að láta þá finna fyrir því hvernig það er að geta ekki hreyft bílinn!!!
    .
    Hvenær er Alþingi búið í páskafríi?
    .
    Kv. Kiddi klikk





    13.04.2006 at 21:21 #549366
    Profile photo of Kristinn Magnússon
    Kristinn Magnússon
    Participant
    • Umræður: 91
    • Svör: 1775

    Ég tékkaði á Cherokeenum og hann er á 1" stærri dekkjum en orginal þannig að hraðamælirinn er 5% skakkur… sem þýðir að eyðslan á honum er sennilega 19-20 (hinar tölurnar koma úr eyðslutölvunni í bílnum). Sem er samt ekki svo mikið meira en 15 lítrar á Terrano… og ef það sama á við hann þá má e.t.v. bæta við 1 lítra þar…
    Það er kannski rétt að taka það fram að þessi jeppi er sjaldan í sparakstri og er með sítengt fjórhjóladrif

    kv. Kristinn





    12.04.2006 at 23:46 #549362
    Profile photo of Kristinn Magnússon
    Kristinn Magnússon
    Participant
    • Umræður: 91
    • Svör: 1775

    Ertu á óbreyttum Terrano?

    Grand Cherokee V8 (óbreyttur 4.7L) er að eyða 17-18 innanbæjar, 15 lítrar á Terrano er bara ekki fyndið!!!
    Er einhver ástæða til að vera frekar á díselbíl ef þetta er svona

    kv. Kristinn





    11.04.2006 at 15:04 #548944
    Profile photo of Kristinn Magnússon
    Kristinn Magnússon
    Participant
    • Umræður: 91
    • Svör: 1775

    Þá hef ég greinilega misskilið þig, ég biðst afsökunar á því.

    kv. Kristinn





    10.04.2006 at 22:12 #548932
    Profile photo of Kristinn Magnússon
    Kristinn Magnússon
    Participant
    • Umræður: 91
    • Svör: 1775

    Birkir er ekki í lagi með þig?
    Hvernig geturðu reynt að færa rök fyrir því að það sé í lagi að keyra í skíðabrekku?
    Og hvernig dettur þér í hug að kalla þetta nöldur? Þessar athugasemdir eiga alveg fullan rétt á sér og það er mjög mikill munur á því að jeppast í Úlfarsfellinu og á skíðasvæði! Þeim sem finnst það allt í lagi að jeppast á skíðasvæði eru ekki nógu þroskaðir til að eiga jeppa.
    Ég ætla rétt að vona að þú sért ekki einn af þessum vitleysingum en ég þori engan veginn að fullyrða neitt í þeim efnum.

    kv. Kristinn





    10.04.2006 at 22:03 #549042
    Profile photo of Kristinn Magnússon
    Kristinn Magnússon
    Participant
    • Umræður: 91
    • Svör: 1775

    Sæll
    þú ert þá væntanlega að tala um dráttarkrók aftaná?
    Það er ágætis úrval af þeim hjá [url=http://store.summitracing.com/egnsearch.asp?Ntt=hitch&N=4294908110+4294907880+4294924666+115+4294907043&Ntk=KeywordSearch:2vqdnskw]Summit[/url:2vqdnskw] á ágætis verði en þá á eftir að redda rafmagnstenginu!

    kv. Kristinn





    07.04.2006 at 22:40 #548698
    Profile photo of Kristinn Magnússon
    Kristinn Magnússon
    Participant
    • Umræður: 91
    • Svör: 1775

    Wrangler 2.5 er original með 4.10:1 þannig að þá þarf ekki aðrar keisingar





    07.04.2006 at 19:46 #548686
    Profile photo of Kristinn Magnússon
    Kristinn Magnússon
    Participant
    • Umræður: 91
    • Svör: 1775

    Mér sýndist þetta einmitt vera 120 Cruiser, en svo sá ég að það var hásing svo ég varð alveg villtur!
    En er komin einhver skýring á af hverju þetta gerðist?





    06.04.2006 at 21:15 #548496
    Profile photo of Kristinn Magnússon
    Kristinn Magnússon
    Participant
    • Umræður: 91
    • Svör: 1775

    Sumir hafa bara ekki efni á VHF… ekki flóknara en það





    04.04.2006 at 17:04 #548352
    Profile photo of Kristinn Magnússon
    Kristinn Magnússon
    Participant
    • Umræður: 91
    • Svör: 1775

    en það er nú samt sem áður alls ekkert of vitlaust að sjá hversu langt maður kemst með svona þó að maður sé með voðavoða fínann og flottan spotta!

    [img:pv33lixh]http://www.hooverfence.com/garden-supplies/img/shovel-as19d.jpg[/img:pv33lixh]

    Allavega vil ég helst komast hjá því að rykkja í draslið með tilheyrandi tilhlaupum og slitum og veseni…en það er kannski bara ég.

    kv. Kiddi kjáni





    04.04.2006 at 13:07 #548332
    Profile photo of Kristinn Magnússon
    Kristinn Magnússon
    Participant
    • Umræður: 91
    • Svör: 1775

    Eftir því sem ég best veit er ekki hægt að fá lækkuð hlutföll í þessa jeppa lengur…
    það er auðvitað hægt að komast framhjá því með því að setja aðrar hásingar undir en það kostar vinnu og peninga
    Svo er hægt að kaupa notaðan sem er með lækkuð hlutföll…





    03.04.2006 at 16:06 #548220
    Profile photo of Kristinn Magnússon
    Kristinn Magnússon
    Participant
    • Umræður: 91
    • Svör: 1775

    Ég veit um eitt leiðinlegt dæmi, þar sem 44" jeppi valt í hálku. Hann var í kaskó og fékkst ekkert bætt vegna þess að hjá Sjóvá var hann skráður sem 38". Samt hafði Sjóvá skoðað jeppann á 44" dekkjunum fyrir kaskó trygginguna!
    Endilega tékkið á því hvort ykkar jeppar séu rétt skráðir hjá þeim!

    kv. Kristinn





    01.04.2006 at 10:20 #548160
    Profile photo of Kristinn Magnússon
    Kristinn Magnússon
    Participant
    • Umræður: 91
    • Svör: 1775

    Ertu búinn að jarðtengja ljósin? Þetta kom fyrir mig um daginn, síðan þegar ég loksins fattaði að ljósið væri jarðtengt í gegnum skrúfurnar í boddýið þá skrúfaði ég það fast og allt var í himnalagi!

    kv. Kristinn





    31.03.2006 at 13:08 #547974
    Profile photo of Kristinn Magnússon
    Kristinn Magnússon
    Participant
    • Umræður: 91
    • Svör: 1775

    Ég get ekki alveg séð hvernig hægt er að tengja bumpsteer, s.s. þegar bíll vill beygja við fjöðrun, við afturfjöðrunina!
    Stýrið er auðvitað ekkert þar nema Land Rover sé kominn með fjórhjólastýri?
    .
    En verður ekki alltaf að vera skástífa að framan upp á stýrið? Eða er hægt að setja þetta Watts apparat?
    A stífan kemst auðvitað ekki fyrir útaf vélinni…
    .
    [img:304sfufx]http://www.tsmmfg.com/WATTSREDUCED.jpg[/img:304sfufx]
    .
    En getur einhver útskýrt fyrir mér þessa þvingun sem menn tala um með 4-link fjöðrun. Hvernig lýsir hún sér? Er kannski málið að gera þetta rétt, og þá er engin þvingun? Ég er með 4-link (reyndar 5-link með skástífunni) að aftan í mínum Jeppa og hef aldrei verið var við einhverja þvingun þar. Spyr sá sem ekki veit!

    kv. Kristinn





    30.03.2006 at 23:12 #547964
    Profile photo of Kristinn Magnússon
    Kristinn Magnússon
    Participant
    • Umræður: 91
    • Svör: 1775

    Eini gallinn sem ég sé við A- stífuna er að hún tekur dýrmætt tankapláss! Með samsíða 4-link þá er hægt að hafa tanka á milli stífanna og drifskaftsins.

    kv. Kristinn





    30.03.2006 at 21:38 #547472
    Profile photo of Kristinn Magnússon
    Kristinn Magnússon
    Participant
    • Umræður: 91
    • Svör: 1775

    Það eru svipaðar pælingar farnar af stað á live2cruize.com
    Það sem vantar núna er að ákveða hvað á að gera og hvar, og auglýsa það síðan á þessum bílasíðum

    Ef allir eru bara hver í sínu horni hefur þetta engin áhrif! Sammvinna er málið!

    kv. Kiddi Kjáni





  • Author
    Replies
Viewing 20 replies - 601 through 620 (of 897 total)
← 1 … 30 31 32 … 45 →

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.